Dagur - 07.10.1997, Page 2

Dagur - 07.10.1997, Page 2
18-ÞRIÐJUDAGUR 7 . OKT ÓBER 1997 Xfc^ttr LÍFIÐ í LANDINV Dagur • Strandgötu 31 • 600 Akureyri og Pverholti 14 • 105 Reykjavík Símmn hjá lesendaþjónustunni: S63 1626netfang : ritstjori@dagur.is Súnbréf:4M S|7,eb»SS| 0270 Núverandi viðskipta- ráðherra virðisthald- inn stórmennskubrjál- æði í sambandi við byggingu álvera. Fyrst var ákveðið að stækka ál- verið í Straumsvík mjög mikið, næst var ákveðið að byggja stórt álver á Grundartanga. Þetta finnst mér meira en nóg fyrir Is- lendinga að ráða við með til- heyrandi virkjunum sem þessari starfsemi fylgja. Nú mun vera gott verð á áli en hvaða tryggingu höfum við fyrir því að það haldist hátt næstu áratugina? Og hvað kosta þær virkjanir sem þarf að byggja svo að nægileg raforka sé fyrir hendi til að tryggja rekstur þessara verksmiðja? Gaman væri að al- menningur fengi að vita það. Það er mikið rætt um að ís- lenska ríkið sé orðið mjög skuld- sett og brýn nauðsyn sé að fara að greiða niður erlendar skuldir landsmanna og oft hefur verið frá því skýrt hvað þær væru háar per einstakling í landinu. Svo er það mengunin sem fylgir þessari starfsemi. Það er sífellt klifað á því að mengunin fari vaxandi hér á landi en ekki bætir þetta úr skák. Það heyrist lítið frá um- hverfisráðuneytinu og öðru fólki sem sífellt er að tala um nauð- syn þess að minnka mengun hér á landi þrátt fyrir þetta stóriðju- brölt viðskipta- og iðnaðarráð- herra. En þarna er þó ekki minnst á nema hluta af því sem hann hefur á dagskrá. Næst á að koma gríðarstórt álver á Keilis- nesi og þar á eftir álver við Eyja- Ijörð og loks er hann prívat að pukrast með samningagerð við Norðmenn um að byggja gífur- lega stórt álver við Reyðarljörð og að þ\i' er mér skilst að Iáta Norðmenn kosta byggingu stærsta raforkuvers á íslandi með því að veita saman Jökulsá á Dal í Jökulsá í Fljótsdal inn á austfjarðahálendinu og búa þar til gríðarlega stórt Ión og sökkva þar með undir vatn stóru svæði af velgrónu landi, meðal annars stóru svæði af kjörlendi hrein- dýranna. Ef af þessu yrði, myndi vatnsmagn í Lagarfljóti aukast gífurlega, þannig að láglendið meðfram Lagarfljóti færi á kaf í vorleysingum og mildum vatna- vöxtum. Og ekki nóg með það. Lagarfljótsbrúin á hringveginum hjá Egilsstöðum færi í kaf og Iíka Egilsstaðaflugvöllur. Vorið 1995 voru miklir hitar hér á Egilsstöðum og öllu Fljóts- dalshéraði í júnímánuði. Þá var vatnsstaðan í Lagarfljóti svo há, að litlu munaði að flyti j'fir Lag- arfljótsbrúna og ekki miklu að vatnið flyti yfir flugvöllinn lfka. Þá fóru tugir hektara af Egils- staðatúninu undir vatn og urðu Egilsstaðabændur að bera á þann hluta túnsins aftur. Ég tók mynd af þessu 14. júnf en þá var aðeins byijað að minnka í fljót- inu. Hvað halda menn að gerst hefði ef Jökulsá á Dal hefði ver- ið komin í Lagarfljótið þegar þetta gerðist? Þá hugsun vil ég ekki hugsa til enda. Ég hef að- eins átt 7 ár heima hér á Egils- stöðum. Það er vel hægt að hugsa sér hvernig þetta hefði lit- ið út ef svona hitakafli hefði komið í apríl eða maí eftir mjög snjóþungan vetur og kannski með stórrigningum í viðbót. Nei, þessir menn sem mæla með því að veita þessum stór- fljótum saman eru meira en lítið klikkaðir. Svo má bæta því við að Jökulsá á Dal ber fram svo mikið af sandi og leðju að Lag- arfljót myndi á fáum árum fyll- ast af sandi og leðju og þó að það sé um 100 metra djúpt þar sem það er dýpst ef ég man rétt, að Iífríki Jiess myndi allt ger- breytast. Ég vil einnig benda á að ef þessi álver verða öll byggð, þá er hætt við að svona einhæf framleiðsla gæti fyrr en varir orðið verðlítil eða verðlaus. Það yrði gífurlegt áfall fyrir þjóðar- búið. Skynsamlegra væri að dreifa áhættunni meira, t.d. með miklu fjölbreyttari iðnaðar- framleiðslu. Að lokum vil ég hvetja ráðherra og alþingismenn þjóðarinnar að koma í veg fyrir þetta áður en það er um seinan, svo stórfellt tjón hljótist ekki af. Sigurður Lúrusson. Fyrst var ákvedið að stækka álverið í Straumsvík og þar á eftir var ákveðið að byggja á Grundartanga líka, eitt stykki álver i viðbót. „Skrifaðar hafa verið lærðar og góðar greinar að undanförnu um þá alvarlegu stað- reynd að þessi verðmæti sem eiga að heita sameign þjóðarinnar eru að færast á færri og færri hendur", segir eftirlaunamaður nokkur. Auðlinda- flokkur? Eftirlaunamaður skrifar: Á undanförnum mánuðum og árum hafa birst í blöðum mjög svo áhugaverðar greinar eftir leika og lærða um auðlindir þjóðarinnar og þá sérstaklega fiskimiðin. Margir af okkar helstu hagfræðingum svo sem dr. Gylfi Þ. Gíslason, sonur hans Þorvaldur, dr. Benjamín Eiríks- son o.fl. hafa skrifað margar greinar þar sem þeir m.a. fjalla um þá alvarlegu staðreynd að þessi verðmæti sem eiga að heita sameign þjóðarinnar eru að færast á færri og færri hend- ur sem gjöf aumra stjórnvalda til gráðugra auðhyggjumanna sem svífast einskis við að soga til sín þessi verðmæti sem þeir selja svo oft á tíðum, og hafa af millj- ónatekjur án þess að fara nokkru sinni á sjó. Nú nýlega, birtust í Morgun- blaðinu tvær afbragðs vel skrif- aðar greinar um þetta efni eftir Þórólf Mattíasson Iektor við Hagfræðideild Háskóla íslands og Bárð G. Halldórsson sem titl- ar sig fijálslyndan sjálfstæðis- mann. Þessar greinar og fjöldi annarra, svo sem eftir Jón Sig- urðsson í Járnblendinu, dr. Gunnlaug Þórðarson, Markús Möller og ekki síst forustugrein- ar ritstjóra Morgunblaðsins ásamt skoðanakönnunum um veiðigjald hafa leitt hugann að því, að þar sem ráðherrar allir með tölu virðast vera undir hælnum á sægreifunum, hvort ekki sé tímabært áður en það verður um seinan að fá þessa heiðursmenn og/eða aðra sem halda vilja upp manneskjulegu þjóðfélagi á Islandi á komandi öld, að gangast fyrir stofnun á nýjum flokki fyrir næstu alþing- iskosningar, - þar sem enginn gömlu flokkanna virðist hafa áhuga á að breyta ástandinu, nema ef vera skyldi Alþýðuflokk- urinn - flokk sem hefur það sem höfuðmarkmið að breyta kvóta- lögunum, koma á veiðigjaldi, endurskoða skattakerfið, og koma á löggjöf um auðlindir Iands og sjávar og nýtingu þeirra. Ég er sannfærður um að flokkur sem stofnaður yrði ein- göngu til að koma iagi á þessi mál fengi fjöldafylgi um Iand allt. Eftir að því verkefni væri lokið og tiy'ggt að málin séu í höfn, mætti leggja flokkinn nið- ur, þeir sem að þessu stæðu fengju þakklæti þjóðarinnar, (nema kannske sægreifa og nán- asta skylduliðs!).

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.