Dagur - 14.10.1997, Blaðsíða 2

Dagur - 14.10.1997, Blaðsíða 2
2 -ÞRIÐJUDAGUR 14.QKTÓBER 1997 rDnytr FRÉTTIR Gudmundur Gunnlaugsson, veitingamaöur í Humarhúsinu, þarf að kaupa humar frá Kanada og Noregi tii að uppfyiia óskir matargesta, humarvertíð við íslandsstrendur brást. mynd: e.ól Huinarskortur Hiiniarvertíöin í ár var sú lélegasta í mörg ár og veit- ingáhúsin slást uiii það litla sem fil er af humri. Það hefur ekki veiðst jafn lítið af hum- ar hér við land í áraraðir. Orsakirnar eru taldar vera framhlaup Skeiðarár eftir eldgosið í Vatnajökli, breyting á Iffríkinu m.a. vegna breytinga á hita- stigi sjávar, og slæmt veður í upphafi vertíðar f maí, en fyrstu tvær vikurnar skipta oft sköpum. Einnig hefur ofveiði fyrri ára sín áhrif. Af 1.500 tonna kvóta veiddust 1.220 tonn, en á árinu 1996 veiddust 1.635 tonn. Verulegur hluti óveidds kvóta færist milli ára. SH fékk fjórðungi minna af humri til að selja í ár en í fyrra, eða um 400 tonn að sögn Halldórs Eyjólfssonar, sölu- manns hjá SH. „Við gátum selt miklu meira magn en við fengum. Við seljum íyrst og fremst til Spánar, en einnig til Italíu og Japan. Verðið á dýrasta humrinum er um 4.000 krónur kílóið fyrir heilan humar en það fæst einnig gott verð fyr- ir halana á svissneska og bandaríska markaðnum," sagði Halldór Eyólfsson. Guðmundur Gunnlaugsson, veit- ingamaður í Humarhúsinu í Reykjavík, segir að það gangi mjög illa að fá hum- ar og stundum þurfi að grípa til þess að bjóða viðskiptavinunum humar frá Kanada og Noregi, sem þó standist engan samanburð í gæðum. „Við höfum verið að kaupa humar frá SH og fleiri aðilum, en þeir eru með mun minna af humri til sölu nú en t.d. í fyrra, og þannig er einnig með fleiri aðila. Það er slegist um það magn sem stendur til boða. Vegna þess að minna er af humri þá hefur verðið einnig stig- ið. Til þess að mæta óskum viðskipta- vina höfum við flutt inn humar frá Kanada og Noregi, en þetta er alls ekki sama varan hvað varðar gæði, ekkert skylt nema nafnið. Þetta er góð vara af kanadískum eða norskum humri að vera, en stenst ekki þann íslenska. Þessi erlendi er mjög bragðlaus, oft seigur og þurr, það vantár að hann „springi“ upp í manni eins og sá ís- lenski," sagði Guðmundur Gunnlaugs- son. GG FRÉTTAVIÐTALIÐ Kveðskapur þeirra Ingibjargar Sólrúnar borgar- stjóra og Halldórs Blöndal samgönguráðherra vegna Gullinbrúar virðist ætla að bergmála vel lengi og víða. Á ársfundi Hafnasambandsins fyr- ir helgi færði Guðmundur Vésteinsson, hafnar- stjómarmaður á Skaganum .Halldóri breyt- ingartillögu við vlsu ráðherra um Gullinbrú, en Guðmundur er áhugamaður um að brúa Grannafjörð norðan Akraness: Hættu að gráta Halldór minn, haltu þing á réttum vegi. Gefðu jyrstá Grunnafjörðinn Gullinbrú á góðum degi. í pottinum er sagt frá mik- illi gerjun í flokkunum sem standa að Reykjavík- urlistanum vegna próf- kjörsmála. Ljóst er að fjór- ir flokkar munu bcrjast um 7 efstu sætin - þannig að einn flokkur fær aðeins eitt sæti. í pottinum segja menn að hjá framsókn muni öragglega gefa kost á sér SigfúsÆgir Árnason, sem nú er varaborgar- fulltrúi og framkvæmdastjóri hjá TBR og Óskar Bergsson, húsasmiður og fyrrum formaður ungra framsóknarmanna í Reykjavík. Ifins veg- ar er talið ólíklegt að Bima Kristín Svavarsdótt- ir, sem verið liefur í borgarmálahópi framsóknar muni fara í prófkjörið... Hjá Alþýðubandalaginu hins vegar telja menn ólíklegt annað en Guðrún Ágústar verði í broddi íylkmgar. Helgi Hjörvar er sagður sækja hart að Áma Þór Sigurðssyni bogarfulltrúa. Gárangam- ir í flokknum segja hins vcgar að þeir Ámi og Helgi yrðu góðir saman, því Árni cr nú á hækj- um vegna fótaaðgerðar en Helgi er sem kuimugt er framkvæmdastjóri blindrafélagsins. Þeir væra þá í „haltur leiðir blindan" framboðinu... V Karl Bjömsson bæjarstjóri á Selfossi. Sameining Selfoss, Eyrar- bakka, Stokkseyrar og Sand- vtkurhrepps til skoðunar. Vinnuhópar eru að störfum ogeftil vill kosið í nýju sveitarfélagi næsta vor. íbú- ar í nýja sveitarfélaginu yrðu um 5.300 talsins. Sveitarfélög í Flóa skoöa sameiningu - Hafið þið fulltrúar sveitarfélaganna jjögurra sett ykkur einhver tímamörk í sambandi við þær sameiningarviðræður sem nú eru í gangi? „Við höfum engin tímamörk sett okkur í þessu máli og við leggjum þeim mun meiri áherslu á að vanda alla undirbúningsvinnu, og í henni höfum við verið að undanförnu. Það hefur verið myndaður tíu manna starfs- hópur fulltrúa frá Selfossi, Eyrarbakka, Stokkseyri og úr Sandvíkurhreppi sem vinn- ur að skoðun á sameiningu þessara fjögurra sveitarfélaga, kostum þess og göllum. Ur þeim hópi skipa framkvæmdastjórar sveitar- félaganna framkvæmdanefnd, það er ég, sem bæjarstjóri á Selfossi, Páll Lýðsson, oddviti í Sandvíkurhreppi, Magnús Karel Hannesson, oddviti á Eyrarbakka og Grétar Zóphaníasson, sveitarstjóri á Stokkseyri." - Hvernig hafa þið hagað starfi ykkar að undanförnu. „Það hefur verið starfshópur í gangi og hann hefur aflað sér mikilla upplýsinga um sveitarfélögin og stöðu þeirra á ýmsum svið- um og þær staðreyndir erum við að kynna fyrir sveitarstjórnarmönnum. Sveitarstjórnir munu í framhaldinu taka ákvörðun um hvort vinna eigi málið frekar áfram, eða setja það í salt. Fari málið í almenna at- kvæðagreiðslu - og verði niðurstaðan þar já- kvæð - getur svo farið að kosið verði til sveit- arstjórnar í nýju sveitarfélagi hér í Flóanum næsta vor.“ - Hve margir ibúar yrðu í hinu nýja sameinaða sveitarfélagi yrði það að veru- leika? „fbúar þess yrðu um 5.300 talsins. Ibúar hér á Selfossi eru um 4.300 og á Eyrarbakka og Stokkseyri eru tæplega 500 á hvorum stað. í Sandvíkurhreppi eru íbúarnir um 100 talsins. - Nú eru þrír hreppar til viðbót- ar í Flóanum austanverðum og þar á ég við Hraungerðis-, Gaulverjabæjar-, og Villinga- holtshreppa." - Hafa þeir ekki verið með í þessum við- ræðum? „Sveitarstjórnarmenn í þessum hreppum hafa fylgst með málinu óformlega og úr fjar- lægð en ekki verið beinir þátttakendur í sameiningarviðræðunum á þessu stigi máls. En ég útiloka ekki að þeim verði boðin þátt- taka í sameiningarferlinu á síðari stigum." - SBS.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.