Dagur - 14.10.1997, Blaðsíða 3

Dagur - 14.10.1997, Blaðsíða 3
•fií»fÆlf O^iur. FRETTIR Kringlan sér framtíðar- lóð í Fram-svæðinu Séð yfir til Fram-svæðisins frá Kringlunni, en viðræður hafa farið fram milli Framara og Kringlumanna um hugsanlega nýtingu á samliggjandi lóðum mynd: pjetur Forráðameim Knatt- spymufélagsins Fram og Kringliumar hafa rætt samau uiii hugs- anlega nýtiugu á sam- liggjandi lóðum. „Það er rétt að við hittum þá Rringlu-menn og ræddum \4ð þá hina ýmsu möguleika sem eru á samstarfi milli þessara aðila vegna þess að svæðin liggja sam- an. Það er þó ekki inni í mynd- inni hjá okkur að selja af Fram- svæðinu en samnýting gæti átt sér stað,“ sagði Sveinn Andri Sveinsson, formaður Knatt- spyrnufélagsins Fram. Einar Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar, stað- festi að fundur hefði verið hald- inn en sagði málið á algeru frum- stigi og vildi því ekki segja meira um það nú. Ymsar liugmyndir hafa komið upp varðandi hugsanlega samnýtingu Fram og Kringlunn- ar á svæðinu. Ein hugmyndin er að gera bílastæði undir Fram- vellinum. Sveinn Andri sagðist ekki telja hana raunhæfa vegna þess hve langt er af slíku bíla- stæði yfir í verslunarhúsið. Hann segir að þetta samstarf geti oltið á því hvort sú hug- mynd, að grafa Miklubrautina niður á þessum kafla, verður að veruleika. Núna myndar Mikla- brautin í raun gjá á milli svæð- anna. Verði gatan grafin niður opnast óteljandi möguleikar á samnýtingu svæðanna því þá liggja þau alveg saman. „Þá tel ég að margir spennandi möguleikar séu inni í myndinni. Þar má nefna bæði bílastæði og jafnvel byggingar. Það má minna á svona til gamans að Ieikvangur hins heimsfræga Monakó-liðs er á 4. hæð í risabyggingu. Það sýn- ir að ýmislegt er til f þessu. En ég vil taka það skýrt fram að það er ekki farið að ræða þetta mál af neinni alvöru. Þeir Kringlumenn vildu vita hvort við værum nokk- oð að flytja og okkur lék forvitni á að vita hver framtíðarplön þeirra væru,“ sagði Sveinn Andri Sveinsson. — S.DÓR Reykja og tyggja Samkvæmt könnunum sem gerðar hafa verið fækkar reyk- ingamönnum ekki. Á sama tíma minnkar neysla á tóbaki sam- kvæmt sölutölum ATVR. Þorsteinn Blöndal, læknir á i^vcrn^ —-——— .--- að hann hafi það á tilfinn- Þorsteinn Blöndal. ingunni að margir noti nikótínlyf til að draga úr reykingum og því dragi úr reykingum þrátt fy'rir að reyk- ingamönnum fækki ekki. Margir vinnustaðir eru reyklausir og nokkuð er um að menn tyggi í vinnunni, en reyki heima hjá sér. Læknar hafa ráðlagt fólki að nota ekki nikótínlyf samhliða reykingum og því eru margir sem skammast sín fyrir að nota þetta samhliða. Þorsleinn segir að það mætti kannski endur- skoða þær hugmyndir læluia að nota ekki lyfin til að draga úr reykingum, heldur einungis til að hætta. Þorsteinn segir að það skipti verulegu máli hvað varði heilsu manna hversu mikið sé reykt. Hann segir að sumum geti hentað sú aðferð að draga úr reykingum til að byrja með og hætta síðan — HH Opnar fyrir gjald á aðrar fisktegimdir INNLENT Hafnarkránni frestað Félagsmálaráð Reykjavíkurborgar afgreiddi ekki á fundi sínum í gær umsókn Hafnarkrárinnar við Hafnarstræti um endurnýjun vínveit- ingaleyfis. Málefni Hafnarkrárinnar hafa mjög verið til umíjöllunar síðustu vikur vegna ítrekaðra kvartana íhúa, fasteignaeigenda og verslunar- rekenda í nágrenninu. Bæði heilbrigðisnefnd og félagsmálaráð borg- arinnar hafa fengíð þykkan skjalabunka um staðinn, meðal annars viðamiklar lögregluskýrslur og gögn um fjölda úlkalla lögreglunnar. Málinu var frestað á fundi félagsmálaráðs að beiðni Guðrúnar Zoega, sem vildi kynna sér lögregluskýrslurnar. — FÞG Áfengiskaup 18 ára Ótti er vid að veiði- leyfagjald á norsk-ísl- ensku síldina fari síð- ar á allar aflaheimild- ir. „Eg tel að það séu nægar leiðir til að skattleggja sjávarútveginn þótt það sé ekki gert með veiði- leyfagjaldi. Ég hef alla tíð verið því andvígur og er það enn. Það breytir engu fyrir mér þótt um úthafsveiðar sé að ræða,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja hf. á Akureyri, um veiðileyfagjaldið á síldina þegar Dagur ræddi við hann í gær. „Ég hef svo sem ekki hugsað sérstaklega um þessa ákveðnu hugmynd að setja veiðileyfagjald á norsk-íslensku síldina. Ég hef alltaf verið andvígur veiði- leyfagjaldi og það hefur ekkert breyst. Ég hef ekki trú á að það bjargi miklu. Eins þykir mér lík- legt að ef veiðileyfagjald yrði sett á síldina yrði það bara fyrsta skrefið. Gjald á aðrar tegundir myndi fylgja á eftir,“ sagði Magn- ús Bjarnason, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar, í samtali við Dag. HjáJtátlegt „Mér þykir þessi hugmynd hjá- kátleg. Ég hef verið andvfgur hugmyndinni um veiðileyfagjald eins og hún hefur verið sett fram. Annars er munur á því hvað menn eiga við með orðinu veiðileyfagjald. Sumir eiga við að sett verði á uppboð á veiðiheim- ildum og því er ég alfarið á móti Þorsteinn Már Baldvinsson. og mun aldrei sætta mig við. Aðr- ir tala um leigugjald fyrir afla- heimildir. Þá myndu menn greiða ákveðið leigugjald fyrir þær aflaheimildir sem þeir fá út- hlutað eftir sama kerfi og nú. Og þá á slíkt leigugjald að koma á allar aflategundir en ekki bara norsk-íslensku síldina. Aftur á móti sé ég ekki að gróðinn í sjáv- arútveginum sé neitt vandamál fyrir þjóðina og þá sem eru að tala um einhverskonar gjaldtöku lýrir aflaheimildir,“ sagði Finn- bogi Jónsson, forstjóri Síldar- vinnslunnar í Neskaupstað. Aö búa til verðmæti „Ég get fallist á að skoða meðferð veiðiheimilda í tilfellum eins og þessu alveg sérstaklega, þar sem þarna er um nýjan stofn inn í veiðar okkar að ræða og engin Steingrímur J. Sigfússon. langtímaveiðireynsla íýrir hendi. Ég dreg hins vegar í efa réttmæti þess að fara að standa í einhverri tilraunastarfsemi varðandi mikil- væga auðlindanýtingu eins og þetta auðvitað er. Þetta gæti leitt til sértækrar skattlagningar á sjávarútveginn og því er ég and- vígur. Mest um vert er auðvitað að ná að veiða þessa síld og nýta hana og gera úr henni verðmæti til manneldis þannig að þjóðar- búið fái tekjurnar í stað þess að rífast fyrirfram um skiptingu á einhverjum arði,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis. -S.DÓR Tveir ráðherrar ríkisstjórnarinn- ar eru hlynntir því að færa áfeng- iskaupaaldur ungmenna niður í 1 8 ár. Á málþingi sem umboðs- maður barna hélt um helgina á Akureyri sátu fyrir svörum þeir Guðmundur Bjarnason um- hverfisráðherra og Halldór Blöndal samgönguráðherra. I umræðum kom fram að þeir Eldur kviknaði í togaranum Þur- íði Halldórsdóttur GK 94 suður af Reykjanesi í fyrrakvöld. Tíu skipverjar voru um borð og var þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- LIF, send á staðinn ásamt varð- skipi. Mönnunum var bjargað en einhverra hluta vegna var Til- kynningaskyldunni ekki tilkynnt um atburðinn. Tilkynningaskyld- töldu báðir koma til greina að leyfa ungmennum að kaupa áfengi við 18 ára aldur, en ekki 20 ára eins og nú. Einnig sögðu þeir sig lýlgjandi því að athuga vel hækkun ökuleyfisaldurs úr 17 árum í 18. Sjáfrúsögn af málþinginu í Líf- inu í landinu í dag. an hefur aðgang að öflugum björgunarbát í Sandgerði og ætl- ar að láta gera rannsókn á því hvers vegna henni var ekki til- kynnt um atvikið. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en talið er að tjónið nemi 15 milljónum. Elds- upptök eru rakin til rafmagnsbil- unar. — RÞ Eldur í Þuríði

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.