Dagur - 14.10.1997, Blaðsíða 10
10- ÞBIÐJUDAGUR 14.OKTÓBER 1997
mi i kynsÉ
o
Ráðstefna fjármálaráðherra haldin á
Hótel Loftleiðum, mlðvikudaginn
15. október 1397
Rððstefnustjörl: Júnas H. Haralz
8.00
9.00
9.20
9.50
mm Mm
10.20
10.40
11.00
12.00
Skráning og morgunverður
Framtíðarsýn og sátt milli kynslóða
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra
Niðurstöður kynslóðareikninga fyrir (sland
Tryggvi Herbertsson forstöðumaður
Hagfrœðistofnunar Háskóla (slands
Benedikt Jóhannesson
ingur og Páll Gíslason formaður
Félags aldraðra
Hlé
Velferöarþjóðfélög Evrópu og sátt milll
kynslóða
Kristín Ástgeirsdóttir alþingismaður
Aging, Saving and Social Cohesion: The Next
25 Years.
Dr. Barrie Stevens, Ráðgjafanefnd
framkvœmdastjóra OECD
Umsagnir: Ásdís Halla Bragadóttir
aðstoðarmaður menntamálaráðherra og
Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Lrfeyrissjóðs
verslunarmanna
Ráðstefnuslit og lokaorð
Jónas H. Haralz
Þátttaka tilkynnist í síma 560 9200. Þátttökugjald án morgunverðar 2.400.
FRÉTTIR
rD^tr
Pétur og Vilhjálmur
skammaóir
Landssamband versl-
imarmanna sendir
þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins tón-
inn og varar stjóm-
völd við breytingum á
lífeyrissjóðalöggj öf.
Á þingi Landssamband íslenskra
verslunarmanna (LIV), sem
haldið var um helgina, var sam-
þykkt ályktun þar sem segir að
frumvarp sjálfstæðisþingmann-
anna Péturs H. Blöndal og Vil-
hjálms Egilssonar um §kattlagn-
ingu á eignum lífeyrissjóða feli í
sér tilræði við lífsafkomu og ör-
yggi þúsunda manna um ókomna
framtíð.
LIV telur afstöðu Péturs og
Vilhjálms byggja á blindri auð-
hyggju, sem fá fordæmi séu fyrir
og treystir því að svona karldrifj-
uðum árásum á samtrygginga-
kerfi fólksins verði hrundið.
Þá er sýnilegt að verslunar-
menn hafa áhyggjur af niður-
stöðum nefndar fjármálaráð-
herra um nýja lífeyrislöggjöf. LIV
hafnar samráðslausum breyting-
um og segir í ályktun um málið:
„... leggur þing LIV áherslu á að
aðilar vinnumarkaðarins standi
þétt og ákveðið saman gegn öll-
um hugmyndum er skerða frjáls-
an samningsrétt í lífeyrismálum.
Lífeyristryggingar eru stór þáttur
Pétur Blöndal.
í kjaramálum almennings þannig
að lagasetning af hálfu Alþingis
sem fæli í sér veigamiklar breyt-
ingar á skipan samningsbund-
Vilhjálmur Eigilsson.
inna lífeyrisréttinda þýðir að
gripið er inn í lögverndaðan
samningsrétt með freklegum
hætti." - FÞG
Feðgamir sem létust
Feðgarnir, sem létust í um-
ferðarslysinu hörmulega á
Vesturlandsvegi í síðustu viku,
hétu Björn Valberg Jónsson,
fæddur 22. ágúst 1959 og Mar-
ínó Kristinn V. Björnsson,
fæddur 24. febrúar 1995.
Eiginkona Björns og móðir
Marínós liggur með fjöláverka
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, en er
ekki í lífshættu.
- FÞG
Eitt eða tvo nef gætu
hafa skekkst
Úr dagbók lögreglimn-
ar á Akureyri vikuiia
6. til 12. okt. 1997.
Liðin vika var venju fremur róleg
og engin stórtíðindi urðu á sviði
Iögreglumála sem betur fer enda
er það oftast svo að þegar mikið
er að gera hjá lögreglunni þá eru
jafnan einhveijir miður skemmti-
legir atburðir að gerast hjá ein-
hveijum öðrum og því best að
lögreglan hafi sem minnst að
gera.
Þó var ekki svo að einhveijum
yrði ekki á í messunni og af 280
skráðum verkefnum lögreglunn-
ar í vikunni voru 11 kærðir fyrir
of hraðan akstur, 3 fyrir að nota
ekki bílbelti, 3 íyrir að virða ekki
stöðvunarskyldu og nokkrir voru
svo kærðir fyrir ýmis önnur um-
ferðarlagabrot. 13 umferðar-
óhöpp eru skráð en flest minni-
háttar og slysalaus en f einu til-
viki var aðili fluttur á slysadeild
til skoðunar. Má því segja að um-
ferðin hafi almennt gengið vel
fyrir sig og er vonandi að svo
verði áfram.
Yfir 30 niuner klippt
Það var helst að bifreiðaeig-
endur svæfu á verðinum varð-
andi skoðun bifreiða sinna og
greiðslu lögboðinna gjalda af
þeim. Þannig voru skráningar-
númer tekin af 31 bifreið vegna
vanrækslu á þessum skyldum og
er vonandi að þeir sem syndgað
hafa upp á náðina hingað til
panti nú strax tíma í skoðun og
greiði gjöldin af bifreiðunum því
engir yrðu fegnari en lögreglan ef
hún gæti hætt að taka númerin
af bifreiðunum.
Aðstoð
Lögreglan veitti margvíslega
aðstoð í vikunni sem endranær
og þannig voru 24 ökumenn,
sem höfðu verið svo óheppnir að
læsa kveikjuláslyklana inni í
þeim, aðstoðaðir við að komast
inn í bifreiðar sínar.
í dagbókina eru skráð ýmis að-
stoðarverkefni eins og flutningur
á fólki, aðstoð við að komast inn
í læstar íbúðir, aðstoð við fatlaða
o.s.frv. Oll þessi verkefni hafa
sitt heiti og númer og þannig
heitir eitt verkefnið „Aðstoð,
ólæti- slagsmál" og er eitt slíkt
skráð í vikunni. Til að forðast all-
an misskilning þá er ekki hægt
að fá Iögregluna til að aðstoðar
við ólæti og slagsmál heldur er
hér átt við aðstoð lögreglunnar
við að kveða niður þegar hafin
ólæti eða slagsmál og á bókunin
við það.
Órói og líkamsárásir
Nokkur órói var í samkomu-
gestum öldurhúsa bæjarins og
nokkrar líkamsárásir komu til
kasta Iögreglunnar. Þær voru þó
flestar minniháttar en eitt eða
tvö nef gætu þó hafa skekkst og
er ekki Ijóst á þessu stigi hversu
margar hafa eftirmála. Varðandi
þessar minniháttar líkamsárásir
og slagsmál um helgar, sem virð-
ast fylgja of mikilli neyslu áfeng-
is og ekki hljótast alvarleg meiðsl
af, gildir oft máltækið að sjaldan
veldur einn þá tveir deila. Það
hefur því oft lítinn tilgang að
kæra slík mál þar sem gjarnan
kemur í ljós að báðir aðilar eiga
nokkra sök á og mega því sleikja
sár sín bótalaust.
Oðru máli gegnir ef veruleg
meiðsl hljótast af en þá er sjálf-
sagt að leggja fram kæru í mál-
inu. Sé um meiriháttar Iíkams-
meiðingu að ræða heldur lög-
reglan sjálf málinu áfram fái hún
vitneskju um það.