Dagur - 14.10.1997, Síða 12
12- ÞRIÐJUDAGUR 14-OKTÓRER 1997
X^MT
ÍÞRÓTTIR
L
Erfið
fæðing
Liechtensteinar stóðu
í íslenska landsliðinu
í 56 mínútur. Þá opn-
aðist vængjahurðin
og gestgjafamir gátn
gengið út og inn að
vild. En viljann vant-
aði í marga af okkar
mönnum. Því urðn
mörkin aðeins fjögur.
„Eg átti von á
erfiðleikum í
byrjun því það
var vitað mál
að þeir myndu
spila mjög aft-
arlega á vellin-
um. Þeir eru
með líkamlega
mjög sterka Guðjón Þórðarson.
menn og Ieik-
urinn varð eftir
því. Hins vegar hefði ég viljað sjá
eitt til tvö mörk detta inn í fyrri
hálfleik til að ná tappanum úr en
það tókst ekki fyrr en í seinni
hálfleik," sagði Guðjón Þórðar-
son Iandsliðsþjálfari eftir leik-
inn.
Fyrri hálfleikur var með dauf-
ari leikköflum sem íslenskt
landslið hefur leikið í langan
tíma. Flestir leikmanna virtust
vera komnir á völlinn til að taka
út restina af sumarfríinu sínu og
höfðu lítinn áhuga á að leika
knattspyrnu við gestina. Það
voru aðeins bræðurnir Þórður og
Bjarni ásamt Brynjari, sem
nenntu að kljást eitthvað við
Liechtensteinmenn og gerðu
það oft vel, sérstaklega eftir góð-
ar sendingar frá Rúnari Kristins-
syni. Það voru einmitt baneitr-
aðar sendingar Rúnars sem
splundruðu vörn gestanna og
gáfu þrjú fyrstu mörkin. Menn
þurfa ekki alltaf að hreyfa sig
mjög mikið til að eiga góðan leik.
Skynsemi og nákvæmni í send-
ingum kemur oft að góðu gagni.
Sæmilegur seinni háifleikux
Seinni hálfleikur var öllu betri
en þó ekki eins góður og maður
vildi sjá. Island fékk dauðafæri
strax í upphafi sem rann út í
sandinn. Það var ekki fyrr en á
1 I. mínútu hálfleiksins sem
langþráð mark leit dagsins ljós.
Rúnar átti þá snilldar sendingu á
Bjarna og hann náði góðu skoti
en boltinn í stöng. Þórður fylgdi
vel á eftir og sendi boltann rétta
Ieið og ísinn var brotinn. Islend-
ingarnir bættu þrem mörkum
við næstu átján mínúturnar.
Tryggvi skoraði gott mark úr erf-
iðri stöðu eftir glæsisendingu
Rúnars. Arnór skoraði sömuleið-
is frábært mark eftir að Rúnar
hafði tvístrað vörninni og síðasta
naglann í kistulok gestanna rak
Bjarni Guðjónsson með gullfal-
legu skallamarki eftir frábæra
sendingu frá bróður sínum. Eft-
ir þennan átján mínútna kafla
drógu strákarnir sig í hlé. Hvers
vegna veit maður ekki en víst er
að þeir hefðu getað bætt öðrum
fjórum mörkum við en viljann
vantaði.
Bestu menn Islendinga að
þessu sinni voru Þórður Guð-
jónsson og Rúnar Kristinsson.
Utsjónarsemi Rúnars er oft mjög
góð og þó hann hverfi stundum
langtímum saman í leiknum
koma sendingar hans oftast eins
og guðsgjöf til framherjanna.
Þórður vann vel allan leikinn og
það gerði yngri bróðir hans,
Bjarni, einnig. Brynjar Björn er
mikill jaxl en berst stundum
meira af kappi en forsjá. Hann
er framtíðarmaður í íslenska
landsliðinu.
Mörk íslands:
I - 0 Þórður G. 56. mín.
2- 0 Tryggvi G. 60. mín
3- 0 Arnór G. 68. mín.
4- 0 Bjarni G. 74. mín.
- GÞÖ
Giumar fékk tvo
stingi í magann
Gunnar Már Másson lék sinn
fyrsta Iandsleik gegn Liechten-
stein. Hann kom inn á tíu mín-
útum fyrir leikslok, skipti við
höfðingjann, Arnór Guðjohnsen.
„Það hlýtur náttúrulega alltaf
að vera frábært að koma inná í
sínum fyrsta landsleik. Arnór
hefur alltaf verið mitt átrúnaðar-
goð í gegnum tíðina þannig að
ég fékk tvo stingi í magann í dag.
Annan þegar mér var sagt að
fara inn á og hinn þegar það var
Arnór sem ég skipti við. Þetta
var yndisleg og ólýsanleg tilfinn-
ing.“
- Hvernig var svo baráttan á
vellinum?
„Ég átti nokkf^ ágæta skalla-
bolta og hefði getað skorað hefði
ég verið betur staðsettur. Ég
Gunnar Már enda væri hald-
Másson. ið vel utan um
hann. Það er
allt skipulagt frá
A-O og tíminn mjög ánægjuleg-
ur sem ég hef átt með landslið-
inu síðustu daga,“ sagði Leift-
ursmaðurinn geðþekki, sem
stefnir á atvinnumennskuna
eins og vel flestir knattspyrnu-
menn landsins um þessar mund-
ir. - GÞÖ
Skemmti-
legurtíiiii
Arnór Guðjóhnsen
lék sinn síðasta op-
inbera Iandsleik fyr-
ir Island á laugar-
daginn. I sínum síð-
asta leik bar hann
fyrirliðabandið, átti
góða spretti og skor-
aði gott mark. Hann
var síðan hylltur í
leikslok og honum
þakkað framlag sitt
til íslenskrar knatt-
spyrnu, sem ekki er
lítið. En hvernig var
þessum mikla
knattspyrnumanni
innanbrjósts eftir að
hafa gengið af leik-
velli í sínum síðasta
landsleik?
„Ég er nú búinn
að vera að búa mig
undir þetta og mér
lfður vel núna. Ætli
ég fái ekki sjokkið
seinna. Þetta er bú-
inn að vera
skemmtilegur dagur
og maður nýtur
hans. En það á ör-
ugglega eftir að vera
skrítin tilfinning að
vera ekki kallaður
heim í Iandsleiki
þegar fram í Iíður.
Eins og ég sagði er
þetta búinn að vera
gífurlega skemmti-
legur tími og ég sé
ekki eftir mínútu
sem í þetta hefur
farið,“ sagði Arnór
eftir leikinn við
Liechtenstein á laugardag.
Arnór er kominn á efri ár í fót-
boltanum þó enn sé hann einn
besti knattspyrnumaður sem
leikur á Norðurlöndum. Er hann
farinn að hugsa um að koma
heim?
„Já, það er mjög jákvætt að
enda ferilinn hér heima. Ég ætla
alla vega að spila eitt ár hér áður
en ég hætti endanlega. Ég er
samt ekkert farinn að hugsa
hvert ég fer eða hvort ég verð úti
eitt ár enn. En það skýrist vænt-
anlega fljótlega, jafnvel í þessum
mánuði."
- Þér hefur greinilega liðið vel
í Svíþjóð?
„Já, mjög. Ég er mjög sáttur
við að búa þarna. Ég er í góðu
liði og íjölskyldunni líður vel.
Það er mjög gott að ala upp börn
þarna. Það spilar náttúrulega
sína rullu. En konan mín, sem er
sjúkraþjálfari, hefur ekki haft
mikið að gera og hún vill komast
sem fyrst heim til Islands og
maður verður náttúrulega að
taka tillit til þess. Það er pottþétt
að við verðum komin hér heim
innan árs.“
Um Ieið og Dagur þakkar Arn-
óri fyrir framlag sitt til íslenskfar
knattspyrnu síðustu tvo áratug-
ina og skemmtunina sem hann
hefur veitt þeim sem lagt hafa
leið sína á völlinn, er ekki úr vegi
að fá hann til að segja frá því
hvernig honum finnist fótbolt-
inn hafa breyst hér á landi síðan
hann hóf feril sinn.
„Það er meira spil í þessu í
dag, meiri fótbolti. Það sem hef-
ur þó verið alltaf verið til staðar
og var einkennandi fyrir okkur
áður fyrr er að við höfum verið
með stóra og sterka varnarjaxla,
sem hvergi gáfu eftir, en voru
kannski ekki eins góðir knatt-
spyrnulega. En ég held að þetta
sé nú svona að þróast hjá okkur
og mjakast í rétta átt.“ — GÞÖ
Frábært að skora
„Ég var undir þó nokkurri
pressu. Þó enginn hafi sagt neitt
við mig þá les ég blöðin og heyri
orðróminn að utan og það sem
kallað er úr stúkunni. Þetta er
ekki skemmtilegt en þetta byrj-
aði svona líka hjá IA svo ég er
orðinn vanur þessu. Þetta er
samt alltaf jafn leiðinlegt,“ sagði
Bjarni Guðjónsson, en heyra
mátti gagnrýnisraddir fyrir leik-
inn um val Bjarna.
- En hvaða áhrif hefur það á
þá bræður að vera synir lands-
liðsþjálfarans?
„Hann krefst náttúrulega jafn
mikils af okkur og öðrum Ieik-
mönnum liðsins og kannski svo-
lítið meira. Ef við bræðurnir
stöndum okkur
ekki í leiknum
verður pressan
meiri á honum.
Við verðum að
sýna honum
það traust að
við vinnum til
þess að vera
valdir í liðið.
Við reynum
náttúrulega
alltaf að gera okkar besta og það
tókst svona sæmilega í dag. Það
var alveg frábært að skora fysta
landsliðsmarkið og bara að fá
tækifærið til þess að spila.“
- Það var nú ekki sama hver
átti sendinguna í dag?
„Það er rétt hjá þér. Það var al-
veg frábært að fá sendinguna frá
Þórði. Ég bjóst nú ekki við bolt-
anum en hann kom ineð hann
og ég náði að skalla hann inn.
Það er það sem skiptir mestu
máli.“
- Áttirðu von á að leikurinn
þróaðist með þeim hætti sem
hann gerði?
„Reyndar ekki. Ég átti von á að
við yrðum miklu sterkari í fyrri
hálfleik. Það var einhvert ein-
beitingarleysi hjá okkur í fyrri
hálfleik. Þetta kom svo í seinni
hálfleik. Við spiluðum leikað-
ferðina 3-4-3 allan leikinn og
ætluðum okkur að skora mikið
af mörkum." — GÞÖ