Dagur - 14.10.1997, Qupperneq 6
Fjórir ungmennafélagar voru í liði ársins í Stofn-deildinni. Auður Skúladóttir Stjörnunni, Sigrún Óttarsdóttir, Ásthildur Helgadóttir og Margrét Ólafsdóttir Breiðabliki.
Umsjón
Jóhann Ingi
Árnason
s: 568-2929
Ungmennafélaginn, Erla Hendriksdóttir
Breiðabliki, hlaut silfurskóinn en hún var næst
markahæst í Stofn-deildinni í sumar.
Prúðustu leikmenn
deildanna. ívar
Bjarklind og Katrín
Jónsdóttir. Faðir
Katrínar, Jón Óttarr,
tók við viður-
kenningu fyrir
dóttur sína.
Frábært knattspymusumar er á enda og það var svo
sannnarlega endað með stæl. Allir bestu knatt-
spymumenn landsins komu saman á Hótel Islandi þar
sem viðurkenningar fyrir árangur sumarsins vom
afhentar.
Fjórir ungmennafélagar voru í liði ársins í Stofn-
deildinni en þess má geta að tíu Breiðabliksstelpur vom
í liðinu í fyrra. Liðið í ár var þannig skipað:
Sigríður Pálsdóttir, KR, Margrét Ákadóttir, ÍA,
Ragna Lóa Stefánsdóttir, KR, Auður Skúladóttir,
Stjömunni, Sigrún Óttarsdóttir, Breiðabliki, Guðrún
Jóna Kristjánsdóttir, KR, Guðrún Jónsdóttir, KR,
Ásthildur Helgadóttir, Breiðabliki, Margrét Ólafsdóttir,
Breiðabliki, Olga Færseth, KR og Ásgerður
Ingibergsdóttir, Val.
Prúðasti leikmaður kvennadeildarinnar var Katrín
Jónsdóttir og prúðasta liðið var Ungmennafélagið
Breiðablik.
Ungmennafélaginn, Þorvaldur Makan Leiftri,
hlaut bronsskóinn í Sjóvá-Almennra deildinni.
Ólafur Gottskálksson lék hálft tímabilið með Keflavík og það nægði
honum til að komast í lið ársins. Óli var eini ungmennafélaginn í liði
ársins hjá körlunum.
Oli bestur
Það voru margir tilnefndir en
fáir útvaldir þegar lið ársins, í
Sjóvá-Almennra deildinni, var
tilkynnt á lokahófi knattspymu-
manna um helgina. Gunnar
Oddsson, besti leikmaður
mótsins í fyrra, komst til dæmis
ekki í liðið sem valið var af
leikmönnum deildarinnar. Liðið
er hins vegar mjög sterkt og
greinilegt að ákveðin kynslóða-
skipting er að eiga sér stað í
fótboltanum á íslandi.
Lið ársins í Sjóvá-Almennra
deildinni árið 1997 var þannig
skipað: Ólafur Gottskálksson,
Keflvík, ívar Bjarklind, ÍBV,
Hermann Hreiðarsson, ÍBV,
Hlynur Stefánsson, ÍBV, Steinar
Adolfsson, ÍA, Ólafur Þórðar-
son, ÍA, Brynjar Gunnarsson,
KR, Sigurvin Ólafsson, ÍBV,
Sverrir Sverrisson, ÍBV, Tryggvi
Guðmundsson, ÍBV og Andri
Sigþórsson, KR.
Á lokahófinu voru tvö
ungmennafélög kvödd að sinni
en það var Umf. Stjaman og
Skallagrímur sem urðu, eins og
allir vita, að sætta sig við það
hlutskipti að falla í 1. deild. Við
óskum þeim góðs gengis næsta
sumar og vonandi sjáum við þau
fljótlega meðal þeirra bestu að
nýju.