Dagur - 15.10.1997, Qupperneq 6
22 - MIÐVIKUDAGUR ÍS.OKTÓBER 1997
Dagutr
LÍFIÐ í LANDINU
Á sunnudaginn voru
sex matreiðslunemar á
Akureyri á fullu við að
elda dýrindis mat. Þeir
voru þó ekki eingöngu
að elda sér til ánægju
ogyndisauka heldur
voru þeir líka að keppa
sín á milli ífyrstu mat-
reiðslukeppni nema
scm haldin hefurverið
á Norðurlandi.
Matreiðslunemarnir sex, sem
allir eru að læra matreiðslu á
Akureyri, stóðu í eldhúsinu í
gamla Húsmæðraskólanum á
Akureyri meira og minna allan
sunnudaginn. Verkefnið sem
þeir áttu að leysa var að elda
glæsilegan mat þar sem byrjað
var á köldu stykki en síðan farið
í að elda forrétt, aðalrétt og eft-
irrétt úr fyrirfram ákveðnu hrá-
efni.
Dómnefndarinnar beið ærið
verkefni við að gera upp á milli
glæsilegra réttanna og margt
sem þurfti að hafa í huga við
dómarastörfin. Dómnefndin var
tvfskipt. Annar hluti hennar,
sem skipaður var matreiðslu-
mönnum, sá um að dæma um-
gengni, vinnubrögð og hráefnis-
meðferð ásamt því að dæma
með hinum hluta nefndarinnar,
matreiðsluaðferðir, bragð, að-
ferð og ýmislegt annað. Annars
tala myndirnar sínu máli. HBG
Ari Már Heimisson vid desertgerðina.
réttanna.
Va/dimar Valdimarsson setur adalréttinn á diskana.
.S æmundsson_
Yfirdómarinn, Friðrik V. Karlsson, og Benedikt Grétarsson, meðdóm-
ari, við störfsín í smökkuninni.
Annar hluti dómnefndarinnar ræðir málin. Frá vinstri er Vignir
Þormóðsson, þá Árni Steinar Jóhannsson og loks Helga
Jóhannsdóttir
Verðlaunastykkið í köldu réttunum átti
Ágúst Már Garðarsson á Hótel Kea.
Dómnefndin mættá svæðið. Frá vinstri er Þóra Jóhannsdóttir, Vignir Þormóðsson, Jó- Keppendurnir samankomnir að loknum annasömum degi. Frá vinstri er Ari Már Heimisson frá Hótel Kea, þá Jakob Arnarson frá
hann G. Jóhannesson sem haföi veg og vanda afkeppninni, þá Friðrik V. Karlsson yfir- Bautanum, Valdimar Valdimarsson frá Fiðlaranum sem lenti f öðru sæti, Gunnar Karl Gíslason sigurvegari keppninnar einnig frá Fiðl-
dómari, Helga Jóhannsdóttir, Benedikt Grétarsson og Árni Steinar Jóhannsson. aranum, Ágúst Már Garðarsson Hótel Kea, sem lenti í þriðja sæti og Hákon Sæmundsson frá Bautanum. myndir. brink.