Dagur - 15.10.1997, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 15.0KTÓBER 1997 - 27
Thytu-.
LÍFIÐ í LANDINU
SPJALL
Margrét Ríkarðsdóttir þroskaþjálfi ásamt Jökli Kristinssyni notenda Hæfingarstöðvarinnar. mynd: brink
Með 74.770
krónur í
byrjunarlaun
Eftil verkfalls þroska-
þjálfa kemurþann 3.
nóvember lokarHæf
ingastöðin áAkureyri
eins og allar sambæri-
legar dagvistunar- og
skammtímastofnanir.
Margrét Ríkarðsdóttir þroska-
þjálfi og forstöðumaður Hæf-
ingarstöðvarinnar segir að
samningaviðræður hafi staðið
síðan í desember og telur allar
líkur á að ekki takist að semja
fyrir boðaðan verkfallsdag.
A dögunum voru greidd at-
kvæði og reyndust 99,46%
þroskaþjálfa bjá ríki og borg
styðja verkfall ef ekki verður
búið að semja. Hjá ríkinu eru
203 á kjörskrá og greiddu 161
atkvæði, 160 sögðu já. Hjá
borginni sögðu 222 af 224 já.
Félag þroskajálfa er ungt og
er þetta í fyrsta skiptið sem fé-
lagið sem slíkt hefur samnings-
rétt en síðast reyndi á niður-
lagningu vinnu hjá stéttinni í
allsherjarverkfalli BSRB árið
1984. Þá lokuðu stofnanir sam-
bærilegar við Hæfingarstöðina á
Akureyri.
Hver eru byrjunarlaun þroska-
þjálfa?
„Byrjunarlaunin eru 74.770
og geta hæst orðið 88.111,“ seg-
ir Margrét og bætir við að for-
stöðumaður á sambýli geti hæst
komist í rúmar 100 þúsund
krónur á mánuði. Forstöðu-
maður hæfingarstöðvar með
hæsta taxta er með 118 þúsund
krónur á mánuði og er þá með
1 8 ára starfsreynslu."
Hvaða kröfur
gerið þið?
„Við setjum
fram kröfu um
1 10 þúsund
króna lágmarks-
laun sem er það
sama og leik-
skólakennarar
fóru fram með.
Það væri algjör
forsmán að við
yrðum undir
leikskólakennur-
um að loknum
samningi."
Flestir sem sækja þjónustu
Hæfingarstöðvarinnar búa á
sambýlum en þó svo að um
heimili þeirra sé að ræða eru
þau sum hver lokuð á þeim tíma
dags sem fólkið er á Hæfingar-
stöðinni. „Þá er enginn starfs-
maður á sambýlunum og þegar
hæfingar- og dagsþjónustu-
stöðvar loka verður að kalla út
aukavaktir á sambýlin og maður
veit ekkert hvernig það mun
ganga. Þótt þroskaþjálfar sem
starfa á sambýlum hafi undan-
þágu frá verkfalli er enginn sem
segir að þeir þurfi að taka auka-
vaktir.“
Hvaða stofnanir loka á Akur-
eyri?
„Þessi hæfingarstöð og
skammtímavistunin í Dvergagili
þar sem forstöðumenn eru
þroskaþjálfar.“
Hafa fjöl-
skyldur lýst yfir
áhyggjum sín-
um?
„Nei, eldd
ennþá. En það
gera sér allir
grein fyrir því
hvað það þýðir
þegar þessi
þjónusta er
ekki fyrir
hendi. Hér
erum við með
mjög breiðan
hóp af fólki, fólk sem þarf að-
stoð við allar athafnir daglegs
lífs og eins fólk sem er í vinnu-
þjálfun. Þetta mun allt leggjast
niður og eins öll sjúkraþjálfun
sem fram fer inni á þessum
stofnunum."
-MAR
„Þótt þroskaþjálfar
sem starfa á sambýl-
um hafi undanþágu
frá verkfalli erenginn
sem segirað þeirþurfi
að taka aukavaktir. “
SMÁTT OG STÓRT
Kjarkinn má ei vanta
• Það er ekki nema ein og
hálf vika þar til prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík hefst. Frambjóðendur auglýsa
grimmt þessa dagana að þeir hafi opnað
kosningaskrifstofu hér og þar og að þeir
gefi kost á sér í þetta eða hitt sætið á lista
flokksins. Arni og Inga Jóna gefa kost á sér
í 1. sætið, Vilhjálmur í 2. sætið, Jóna Gróa í 3. sætið og svo fram-
vegis. Það sem vekur mesta athygli er að enginn gefur kost á sér í
8. sæti listans. En 8. sætið er sætið sem allt snýst um. Vinnist
það er meirihluti fenginn. Hjá R-listanum leggur Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir allt undir og tekur 8. sætið á listanum.
Valdir réft
• Tæknifræðingar og verkfræðingar segja
skemmtisögur hverjir af öðrum ekki ósvipað
og Norðmenn og Svíar gera. Sagan segir frá
ungum tæknifræðingi sem aldrei hafði verið
við kvenmann kenndur. Hann var á dans-
leik og allt í einu hafði ung stúlka fangað
hann. Þau dönsuðu síðasta dansinn og
stúlkan spurði hvort hann ætlaði ekki að fylgja sér heim. Hann
sagði það sjálfsagt. Stúlkan var á hjóli þannig að tæknifræðingur-
inn ýmist gekk mjög hratt eða skokkaði við hlið hjólsins. Stúlkan
réð ferðinni og fyrr en varði voru þau komin út fyrir bæinn. Þetta
var fögur sumarnótt. Stúlkan beygði útaf götunni og í fallegan
hvamm. Þar lagði hún hjólið frá sér, afklæddist og lagði fötin við
hliðina á hjólinu og sjálf lagðist hún við hliðina á fötunum. Síð-
an sagði hún tæknifræðingnum að nú mætti hann velja, hjólið,
fötin eða sig. Hann hugsaði sig lengi um uns hann rauk til, tók
hjólið og hjólaði heim. Þegar þangað kom sagði hann föður sín-
um frá öllu saman og spurði hann álits. Faðirinn, sem var verk-
fræðingur, hugsaði sig lengi um en sagði svo: Þú gerðir rétt son-
ur, þú hefðir aldrei komist í fötin!
Óbættur hjá garði
• Um þesar mundir eru annir hjá fjárlaganefnd. Sveitarstjórnar-
menn og forstöðumenn hinna ýmsu samtaka, félaga og hópa
koma á fund hennar og biðja um peninga. Meðal þeirra var Ein-
ar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík. Hann var að biðja um fé til
hafnarframkvæmda vegna þess að Húsvíkingar eru búnir að
kaupa nýjan togara svo stóran að hann kemst ekki inn höfnina
nema hún verði dýpkuð og svo kallaður
Norðurgarður verði lengdur. Þegar Einar
hafði lokið máli sfnu orti séra Hjálmar
Jónsson, sem sæti á í fjárlaganefnd:
Ski'pin þurfa að skríða frjáls
og skila hænum drjúgum arði.
Annars liggur Einar Njáls
óhættur hjá Norðurgarði.
NÝJAR ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR
Minnlsgóðir
m emi
Frægasta þjóðsagnapersóna allra
tíma á Islandi er efalaust Júlíus
Havsteen, sýslumaður. Hver ís-
lendingur sem kominn er til vits
og ára kann sögur af Júlíusi,
sem var sýslumaður Þingeyinga í
áratugi og vann sér mildar vin-
sældir þar eystra. Eða einsog
segir í vísunni frægu sem ort var
þegar hann yfirgaf Þingeyinga
sem sýslumaður, og sýnir vel
hvaða hug menn báru til hans.:
„Foringjanna vel og völd
vilja frjálsar þjóðir.
Þingeyingar kveðja í kvöld
konug sinn og hróðir. “
Júlíus Havsteen var mikill
húmoristi og kunni manna best
að koma fyrir sig orði. Einhverju
sinni sagði hann á góðra vina
fundi að þrír menn væru öðrum
betri á Islandi að muna alla
skapaða hluti. „Og hverjir eru
þessir þrír menn,“ spurði Þing-
eyingurinn sýslumann sinn, sem
svarðraði um hæl.
„Jú, sjáðu til. Það er í fyrsta
Iagi ég, síðan er það hann Jó-
hann sonur minn,“ sagði Júlíus,
og hikaði svo stundarkorn og
sagði síðan „en ég man bara ekki
hver sá þriðji er.“
Utnsjón: Sigurður Bogi
Sævarsson.