Dagur - 28.10.1997, Qupperneq 1
Eiríkur Jónsson formaður Kf, Elna Katrín Jónsdóttir formaður HÍK og Jón Kristjánsson formaður samninganefndar iaunanefndar sveitarféiaga, ánægö að lokinni einhverri
lengstu samfelldu samningalotu sem sögur fara af í Karphúsinu, en samningar kennara og sveitarfélaga voru undirritaðir á áttunda tímanum í gær. - mynd: e.ól.
33% til keimara
Verkfalli gruimskóla-
keimara frestað eftir
80 tíma samn-
ingslotu. Byrjunar
laiui hækka úr 78
þúsund krónum í 110
þúsund á samninga-
tíma.
Verkfalli grunnskólakennara var
frestað á áttunda tímanum í gær-
kvöld. Þá var undirritaður samn-
ingur á grundvelli sáttatillögu
sem ríkissáttasemjari lagði fyrir
samninganefndir kennarafélag-
anna og samninganefnd launa-
nefndar sveitarfélaga í gærmorg-
un. Þá hafði sáttafundur staðið
nær samfellt í 80 klukkutíma,
eða frá kl. 10 sl. föstudagsmorg-
un.
Samningurinn felur í sér ná-
lægt 32-33% kauphækkun á
samningstímanum sem er frá 1.
ágúst til ársloka árið 2000. Þá er
meðtalin sú 4% launahækkun
sem kennarar fengu í skamm-
tímasamningi sínum sl. vor að
mati samninganefndar sveitarfé-
Iaga. Grunnlaun byrjenda hækka
úr 78 þúsund krónum
1 10 þúsund krónur á
samningstímanum. Við
upphaf næsta skólaárs
verða þessi laun komin í
100 þúsund krónur á
mánuði. Þá fá skólastjórar
auka 2-3 launaflokka
hækkun. Við það hækkar
launaþakið sem gefur öðr-
um svigrúm til frekari
sóknar síðar meir.
Anægja
„A þessari stundu er ég
ánægður og vona að
samningurinn verði samþykktur.
Það verður hins vegar að koma í
ljós,“ sagði Eiríkur Jónsson, for-
maður Kennarasambands ís-
lands.
Hann treysti sér hinsvegar
ekki til að leggja dóm á það hvort
þessi samningur muni verða til
þess að framkomnar uppsagnir á
annað hundrað kennara verði
dregnar til baka. Hann vildi ekki
tjá sig frekar um samninginn,
eða áður en hann verður kynnt-
ur kennurum.
Jón Kristjánsson, formaður
samninganefndar launanefndar
sveitarfélaga, segir að með
samningnum fáist fram meiri
sveigjanleiki við skipu-
lagningu skólastarfsins.
Auk þess er í samningn-
um bókun þess efnis að á
samningstímanum muni
menn skoða efnisatriði
vinnutímans. Hann vildi
ekki tjá sig um kostnað
samningsins fyrir sveitar-
félögin. Hinsvegar sé ljóst
að þau verða að hagræða í
sínum rekstri á móti þeim
útgjöldum sem samning-
urinn felur í sér. Hann
segir að ríkið hafi ekki
komið nálægt samnings-
gerðinni og á ekki von á því að
það verði rukkað um greiðslur í
framhaldinu. Þá telur hann að
samningurinn raski ekki hinum
margumtalaða stöðugleika.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
formaður sambands íslenskra
sveitarfélaga, segir að það komi
ekki til greina að senda ríkinu
reikninginn, vegna kennara-
samninganna, frekar en það
komi til greina að sveitarfélögin
taki þátt í að greiða 500 milljón-
ir króna vegna Iækkunar á tekju-
skattinum, sem ríkið spilaði út
til að greiða fyrir samningum á
hinum almenna vinnumarkaði í
vetur sem leið.
Þeir lesendur sem vilja kynna
sér kjarasamning kennara í smá-
atriðum geta gert það á heima-
síðu Kennarasambandsins, is-
mennt.is/vefir/k.i.
Sj« nánar á bls. 8 og 9.
- GRH
Krakkarnir á myndinni notuðu gærdaginn tii að mótmæla því
ástandi sem var að skapast í skólum landsins, en í dag snúa
þau glöð til skóla.
Guðmundur
Andri
umbúðalaus
Blað 2
Vill fleiri
konur á
lista
bls.3
w
1 Atfa Laval
Varmflskiptar
SINDRI