Dagur - 28.10.1997, Qupperneq 6
6 - ÞRIDJUDAGUR 28.0KTÓBER 1997
rDgpr
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjaid m. vsk.:
Lausasöiuverð:
Grænt númer:
Símbréf auglýsingadeildar:
Simbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖRU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
FráteMð fyrir karla
í fyrsta lagi
LJrslit prófkjörs sjálfstæðismanna í Reykjavík um helgina eru
ekki bindandi. Aðeins um 43 prósent flokksmanna á kjörskrá
mættu á kjörstað til að greiða atkvæði. Sú dræma þátttaka
endurspeglar almennt áhugaleysi sjálfstæðismanna á væntan-
legum frambjóðendum flokksins í höfuðborginni. Niðurstaðan
verður heldur ekki til að kveikja baráttueld í brjóstum al-
mennra flokksmanna; niðurröðun í öll efstu sætin eru sam-
kvæmt bókinni, eins og sagt er á íþróttamáli. Þar kemur ekk-
ert á óvart.
1 öðru lagi
Þeir sem nenntu að mæta á kjörstað gáfu Arni Sigfússyni
rússneska kosningu. Fyrir prófkjörið hafði hann eindreginn
stuðning flokksforystunnar. Nú hafa flokksmenn Iagt blessun
sína yfir þá ákvörðun. Arni fær sem sagt það erfiða verkefni að
blása til sóknar gegn R-listanum næsta vor og reyna að vinna
til baka meirihlutann sem hann tapaði í síðustu borgarstjórn-
arkosningum. Flokksmenn gefa honum annað tækifæri til að
sýna styrk sinn og hæfileika sem stjórnmálaleiðtogi. Pólitísk
framtíð hans er tvímælalaust í húfi í leiðinni; forystumaður
sem tapar borginni tvisvar á ekki milda framtíð fyrir sér í ísl-
enskri pólitík.
í þriðja lagi
Urslit prófkjörsins eru ekki aðeins ánægjuleg fyrir Arna Sig-
fússon. Ungt fólk innan Sjálfstæðisflokksins getur einnig
fagnað góðum árangri. Það er að segja ungir karlmenn. Kon-
unum var hins vegar hafnað með örfáum undantekningum.
Inga Jóna Þórðardóttir fékk að halda þriðja sætinu, þótt hún
gengi gegn vilja flokksforystunnar og færi í slag um fyrsta sæt-
ið, og Jóna Gróa Sigurðardóttir kom öllum á óvart og náði
fimmta sætinu. En öðrum konum sem gáfu kost á sér í próf-
kjörinu var vísað út í hafsauga. Samkvæmt prófkjörsúrslitun-
um er ekkert pláss fyrir þær í öruggum eða líklegum sætum á
framboðslista sjálfstæðismanna í höfuðborginni næsta vor.
Þau eru með tveimur undantekningum frátekin íyrir karlana.
Elias Snæland Jónsson
fiW
6
l
Er Tannl kvenrétt-
indahimdur?
Garri heyrði að Davíð Odds-
son var ánægður með hlut
kvenna í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjavík. Formaðr-
inn talaði um að konur
myndu hafa mikil áhrif á list-
ann, enda væru hvorki meira
né minna en 8 konur í 18
manna hópi frambjóðenda.
Að vísu virðast næstum allar
konurnar raðast í síðustu sæt-
in og karlarnir f þau
efstu, en það breytir
að sjálfsögðu ekki
því að raddir kvenn-
anna munu heyrast.
Það má raunar til
sanns vegar færa að
hvernig sem fer,
verða varla nema
tvær konur í sjálfum borgar-
stjórnarflokknum, því þær
Inga Jóna og Jóna Gróa eru
þær einu sem geta talist hafa
fengið öruggt sæti. Vinni
sjálfstæðismenn borgina og
nái 8 mönnum inn, verður
hlutfall kvenna því einungis
25% í borgarstjórn, tvær kon-
ur á móti sex körlum. Hlut-
föllin Iagast hins vegar veru-
lega ef sjálfstæðismenn ná
ekki nema 7 mönnum inn í
borgarstjórnina því þá yrði
hllutfallið strax orðið tæp
30%. Sjálfstæðiskonur eru því
komnar í þá sérkennilegu
stöðu að árangur þeirra í jafn-
réttisbaráttunni í flokkum
verður í raun meiri ef flokkur-
inn tapar borginni en ef hann
vinnur hana.
Iluinlur ráðgjafmn
En enn á eftir að raða endan-
lega á listann hjá sjálfstæðis-
mönnum, því þrátt fyrir að
prófkjörið hafi verið glæsilegt
þá var þátttakan ekki næg til
að það yrði bindandi. Þar
hlýtur að koma að þætti Dav-
íðs Oddssonar flokksfor-
manns og hundarins Tanna.
Davíð kann að vera sáttur við
hlutfall kvenna á listanum en
þjóðin á enn eftir að fá að vita
hvað Tanna finnst. Davíð lýsti
því í viðtali við Dag um helg-
ina að hann treysti vel pólit-
ískri dómgreind Tanna. „Þeg-
ar menn koma heim til mín
með hugmyndir eða
tillögur sem þeir vilja
ræða sé ég mjög
gjarnan á hundinum
hvort menn eru
komnir í frómum til-
gangi. Hann ber sig
að á sérstakan hátt
þegar hinum þykja
aðstæður tortryggilegar,“ segir
Davfð í viðtalinu.
Gengið fyrir Tanna
Garra þykir einsýnt að vænt-
anlegir frambjóðendur flokks-
ins muni nú ganga fyrir
Tanna á meðan formaðurinn
fylgist með hvernig hundur-
inn ber sig að. Komi í ljós að
Tanni sé ekki eins sáttur við
hlutfall kvenna á listanum og
eigandi hans, er ekki útilokað
að hlutfallið verði hækkað
eitthvað með handvirkum
hætti. Sh'kt hlýtur að vera
betri kostur fyrir þá sjálf-
stæðismenn, en að hækka
kvennahlutfallið með því að
tapa borginni í annað sinn og
fá sjö menn kjörna í staðinn
fyrir átta. Tanni er því að
verða helsta von kvennrétt-
indaaflanna í Sjálfstæðis-
flokknum sem nú hafa tekið
upp gamla frasann frá Vil-
hjálmi Prússakeisara - eftir
því sem ég kynnist mönnun-
um meira því vænna þykir
mér um hundinn minn.
Sveflt er allt sem þarf
Þegar þetta er ritað, á fjórða tím-
anum á mánudegi, sitja samn-
inganefndir kennara og sveitar-
félaga enn fyrir luktum dyrum og
rembast eins og spörvar við spýtu
við að semja. Samningamenn
hafa setið við sinn keip nánast
uppstyttulaust frá því á föstudag
og hefur gengið á ýmsu. Nokkur
úrillska hljóp í menn á tímabili
vegna Ieka tii fjölmiðla þar sem
enn einar tölur komu fram um
„raunveruleg" laun kennara, sem
ku vera einhversstaðar á bilinu
100-180 Jiúsund eða þaðanaf
meira eða minna. Eins og venju-
lega í kjarasamningum ber deilu-
aðilum aldrei saman um hver
raunverulega laun viðkomandi
stéttar eru. Hinsvegar virðast
reyndar flestir orðnir sammála
um að Iaun kennara eru í raun
alltof lág og í engu samræmi við
mikilvægi starfans. Og þar kveð-
ur við nokkuð nýjan tón í Jjjóðfé-
laginu og þó ekki væri fyrir ann-
að en að kennurum hefur tekist
að snúa almenningsálitinu á
sveif með sér, þá hafa þeir unn-
ið merkilegan sigur.
Úrvinda undiiskrift
Ef samningar takast (eða hafa
tekist þegar þetta er Iesið), þá er
ljóst að þeir hafa verið undirrit-
aðir af svefndrukknum mönnum
og úrvinda af þreytu. Og svo sem
ekki í fyrsta sinn sem slíkt gerist
í kjarasamningasögu landsins.
Og raunar virðist að oftar en ekki
sé það þreyta og svefnþörf samn-
ingsaðila sem eru helsti hvati
undirritunar á lokasprettinum.
Þannig að það séu þeir sem best
hafa tálgað sína vökustaura sem
beygja þá sem úthaldsminni eru.
Það er alkunna úr pyndingar-
sögu heimsins að fátt er áhrifa-
rikara, ef fá á fólk til að játa á sig
sakir eða samþykkja einhverja
ósvinnu, en að svipta það
sýstematískt svefni. Fáir eru svo
úthaldsgóðir og vel af guði gerð-
ir að þeir þoli langvarandi svefn-
leysi án þess að eitthvað verði
undan að láta.
Kóngsríkið fyrir hænublund
Þessi staðreynd er flestum kunn
og sömuleiðis hvaða rullu svefn-
Ieysi hefur gegnt í samningagerð
hér á landi. Því vekur það nokkra
furðu að þeir hagsmunaaðilar
sem semja um kaup og kjör á Is-
landi skuli fyrst og fremst skipa í
samninganefndir talnaglögga
menn og tungulipra, en hyggja
minna að úthaldi sinna manna
eða svefnþörf. Það er sem sé
næsta víst að ef annar samnings-
aðilinn hefur á að skipa úthalds-
góðu fólki sem getur vakað sólar-
hringum saman án þess að það
hafi merkjanleg áhrif, þá er
hjörninn nánast fyrirfram unn-
inn. Þá er hægt að fara af stað
með gríðarlegar kröfur, gefa Iítið
sem ekkert eftir og hreinlega
vaka andstæðinginn í kaf, knýja
hann til samþykkis þegar hann
er nánast að ganga af göflunum
og er tilbúinn til að samþykkja
hvað sem er fyrir hálftíma hænu-
blund.
Lúra lengur
Svefn er sem sé ein af frumþörf-
um mannsins og ekkert er
þreyttum unaðslegra en að fá að
lúra dálítið lengur. Enda sögðu
börnin mín við mig, þegar þau
fóru að hátta á sunnudagskvöld-
ið og höfðu farið með bænirnar
sínar og beðið fyrir hærri laun-
um til handa kennurum sínum:
„Pabbi, þú hlustar á útvarpið í
fyrramálið og ef er ekki búið að
semja, þá máttu ekki vekja okkur
til að segja okkur það. Við viljum
fá að sofa fram að hádegi.“
Og það vilja samningamenn
örugglega líka.
svairaiö
Skilar prófkjör sjálf-
stæðismanna í Reykja-
vík þeim sterkumfram-
boðslista?
Helgi Hjörvar
Reykjavíkur-listamaður.
Nei, það er
fjarri því.
Þetta er
einsleitur
hópur, sem
skortir bæðir
ferskleika og
f u I 1 t r ú a
h e I m i n g s
borgarbúa,
það er kvenna. Lítil þátttaka
sjálfstæðismanna í prófkjöri sýn-
ir vel að jafnvel þeirra eigin
flokksmönnum finnst þetta. Það
kemur í ljós hvort kjörnefnd hafi
þor til að gera þær breytingar á
listanum sem gera myndu hann
samkeppnisfæran gagnvart
Reykjavíkurlistanum.
Þórariim B. Jónsson
bæjarfulltníi Sjálfstæðisjlokksins á
Akureyri.
Mér sýnist
það, svona
fljótt á litið.
Mér finnst
helsti styrk-
leikinn liggja
í því fólki
sem skipar
fjögur efstu
sæti listans,
en næstu sæti Jjar á eftir sýnast
mér vera skipuð traustum og
góðum fulltrúum, sem eru til-
búnir til að vinna borginni það
gagn sem þeir mega.
Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans.
Úrslit í próf-
kjöri sjálf-
s t æ ð i s -
manna í
Reykjavík
sanna fyrir
mér, enn á
ný, að slag-
orðið þeirra
„ f 1 o k k u r
allra stétta"
er marldaust. Á þessum Iista er
enginn sem tengist verkalýðs-
hreyfingunni og þá finnst mér
útkoma kvenna í þessu prófkjöri
vera hrikaleg.
EUen Ingvadóttir
formaðurLandssambands sjálfstæð-
iskveitna.
Listinn sem
sjálfstæðis-
menn í
Reykjavík
kusu sér um
síðustu helgi
er mjög sig-
urstrangleg-
ur. I hópn-
um er gott
fólk, sem án
efa á eftir að gera góða hluti. Ég
verð hinsvegar að lýsa yfir von-
brigðum mínum vegna slakrar
niðurstöðu fyrir konur, en hlutur
þeirra varð mjög rýr í þessu próf-
kjöri. Niðurstaðan er ekki í sam-
ræmi við þá miklu öldu jafnrétt-
isumræðu sem nú á sér stað í
Sjálfstæðisflokknum - og hlýtur
að valda vonbrigðum.