Dagur - 28.10.1997, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 28.OKTÓBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Forseti Ktna
á ferd og fiugi
Með for sinni til
Bandaríkjaiuia er
Jiaug Zemin, forseti
Kína, að fullkomiia
þrefaldan sigur sinn í
kínverskum stjóm-
máliim.
Hann hafði heiðurinn af því að
sjá kínverska fánann dreginn að
hún í fyrrverandi Bretanýlend-
unni Hong Kong, honum tókst
að tryggja sig í sessi sem leiðtoga
kínverska Kommúnistaflokksins
á flokksþinginu fyrir skemmstu,
og nú er þessi fyrrverandi raf-
magnsverkfræðingur í sex daga
opinberri heimsókn til Banda-
ríkjanna og snæðir kvöldverð
með Clinton forseta á miðviku-
dag.
Tími Jiang Zemin er kominn.
Jiang, sem staðið hefur í skugga
Deng Xiaoping árum saman,
hefur löngum verið vanmetinn
og litið á hann sem eins konar
bráðabirgðaleiðtoga. Nú, átta
árum eftir að Deng valdi hann til
að stýra flokknum og átta mán-
uðum eftir andlát Dengs, virðist
öryggi Jiangs meira en nokkru
sinni fyrr, einmitt í sama mund
og hann stendur frammi fyrir
einna erfiðustu eldraun á ferli
sínum hingað til.
Deng stóðst þessa sömu
eldraun með glæsibrag þegar
hann þeysti um Bandaríkin fyrir
átján árum, heillaði bandaríska
þingmenn upp úr skónum,
spjallaði af fyllsta öryggi við sjón-
varpsfréttamenn og setti upp
risastóran kúrekahatt á hestaati í
Texas. A þeim árum vissu Banda-
ríkjamenn ákaflega lítið um
Kína, sem þá var rétt að byrja að
rétta úr kútnum eftir Menning-
arbyltinguna. En með Banda-
ríkjaför sinni tókst Deng að
senda ótvíræð skilaboð, bæði til
Bandaríkjamanna og h'ka til
landa sinna, um að nú væri ný
stjórn tekin við og Kína væri
komið á nýja braut raunsæis og
sveigjanleika.
Verkefni Jiangs er að mörgu
leyti keimlíkt því sem Deng
þurfti að gera á sínum tíma: Að
sýna ótvírætt hver er við stjórn-
völinn og að Kína sé aftur að ná
sér á strik sem heimsveldi, um
leið og hann tryggir sér sam-
vinnu Bandaríkjanna á næsta
stigi í efnahagsumbótum Kína.
„Viðhöfnin öll skiptir meira
máli en innihaldið," segir áhrifa-
ríkur utanrfkismálasérfræðingur
í Kína. „Þar með fá menn hér í
Kína á tilfinninguna að Banda-
ríkin viðurkenni ríkisstjórnina
hér.“
Jiang á þó erfiðara hlutskipti
en Deng árið 1979. Hann getur
ekki bent á ógnina af Sovétríkj-
unum til að sannfæra Banda-
ríkjamenn um hernaðarlegt mik-
ilvægi Kína. Og ólíkt Deng, sem
þurfti ekki að svara neinum
spurningum um mannréttinda-
mál, á Jiang sér þann erfiða djöf-
ul að draga sem er blóðbaðið á
Tiananmen torgi í Beijing árið
1989.
Jiang virðist sjálfur vera sann-
færður um að honum takist að
bæta ímynd Kína í Bandaríkjun-
um. En sumt af svörunum sem
hann kemur með fer eflaust ekki
vel ofan í Bandaríkjamenn, þótt
þau séu viðtekin sem fullgild
sannindi í kínverskum stjórn-
málaumræðum. Einhvern tím-
ann sagði hann Tíbetbúa vera
lánsama vegna þess að Kína hafi
frelsað þá frá þeirri „ánauð“ sem
alræði trúarbragðanna hefði
Jiang Zemin jiarí að
nota þessa heimsókn,
líkt og Deng Xiaoping
fyrir 18 árum, til að
sanna sig bæði heima
fyrir og í augum
Bandaríkj amanna.
haldið þeim í, og líkti verkum
stjórnarinnar í Beijing við frels-
un bandarísku þrælanna. And-
ófsmenn á borð við Wei Jings-
heng, leiðtoga lýðræðishreyfing-
arinnar 1979, og Wang Dan,
leiðtoga stúdenta í mótmælun-
um á Tiananmen torgi árið
1989, sem nú sitja í fangelsi,
sagði hann vera seka um glæp-
samleg athæfi og því engan veg-
inn réttlætanlegt að kalla þá
andófsmenn.
Ekki eru taldar miklar líkur á
því að Jiang fari nýjar leiðir í um-
ræðum um Tiananmen torg.
„Það er mjög erfitt fyrír kín-
verska leiðtoga að gera nokkuð,“
sagði áhrifamaður í kínverskum
utanríldsmálum. „Besta Ieiðin er
e.t.v. að tala ekki mikið um það.
Reyna að láta orðin vega hvert á
móti öðru og lýsa aðstæðum þar
sem ríkisstjórnin átti ekki ann-
arra kosta völ ... Engin leið er að
láta nein orð falla, sem lýsa eftir-
sjá.“
í Kína er talið að um 2000
manns sitji í fangelsi af stjórn-
málaástæðum. Sumir telja ekki
ólíklegt að einhverjir þeirra verði
látnir lausir eftir heimsókn Ji-
angs, hugsanlega í kringum
heimsókn dómsmálaráðherra
Kína til Bandaríkjanna sem ráð-
gerð er í nóvember. Ráðamenn í
Kína hafa síðustu vikur fyrir
heimsóknina átt viðræður við er-
lenda einstaklinga og stofnanir,
m.a. Sameinuðu þjóðirnar, bæði
um aðstæður fanga almennt og
þá sem sitja í fangelsi af stjórn-
málaaðstæðum sérstaklega, þar
sem þeir hafa reyndar gert lítið
úr „orðrómi“ um erfiðar og óþol-
andi aðstæður þeirra.
Kínverjum er mjög í mun að
Bandaríkin láti af refsiaðgerð-
um, sem settar voru eftir blóð-
baðið á Tiananmen torgi 1989,
en þær fela í sér að bandarískir
útflytjendur geta ekki fengið lán
með bandarískri ríkisábyrgð til
útflutnings til Kína. Ennfremur
vilja þeir að Bandaríldn aflétti
banni á sölu vopnabúnaðar til
kínverska hersins. Loks eru svo
Kínverjar með á stefnuskrá sinni
að gerast aðilar að Alþjóðlegu
viðskiptastofnuninni (WTO),
sem ólíldegt er að verði að raun-
veruleika á næstunni.
-Tlie Washington Post
„Kosningar461
Padaníu
ITALIA - Á sunnudaginn efndi Norður-
bandalagið, stjórnmálaflokkur undir
forystu Umbertos Bossi, til kosninga á
norðurhluta Italíu, en í fyrra lýsti Bossi
yfir sjálfstæði Padaníu, sem samkvæmt
hugmyndum hans nær í grófum drátt-
um yfir þann hluta Italíu sem er norðan
við ána Po. Padanía á sér nú þegar sér
fána, eigið dagblað og ríkisstjórn sem þó
hefur aðeins táknrænt gildi. Italskir
embættismenn vísuðu kosnipgunum á
sunnudag algerlega á bug, og Romano
Prodi forsætisráðherra sagði stjórnvöld vera með vakandi auga yfir
hugsanlegum stjórnarskrárbrotum. Norðurbandalagið sagði rúmlega
5 milljónir manna hafa tekið þátt í kosningunum.
Rolls Royce til sölu
BRETLAND - Rolls Royce fyrirtækið, sem framleiðir hina víðfrægu
eðalvagna Rolls Royce og Bentley, er til sölu og ýmsir aðrir bifreiða-
framleiðendur, meðal annars bæði Ford og BMW, hafa sýnt áhuga.
Rolls Royce var stofnað árið 1906, en lýsti yfir gjaldþroti 1971 og var
þá skipt upp í tvö fyrirtæki, annað sem framleiðir þotuhreyfla og ann-
að sem framleiðir bifreiðar. Á síðasta ári seldust 1.396 bifreiðar frá
fyrirtækinu.
Stj’ómarandstaðan sigrar í Argentínu
ARGENTINA - Kosningar til neðri deildar þingsins í Argentínu voru
haldnar á sunnudag, og þegar um þrír ljórðu atkvæða höfðu verið
taldir voru tveir helstu flokkar stjórnarandstöðunnar komnir saman
með 46% en stjórnarflokkur Perónista með 36%. Allt bendir því til að
Argentínubúar hafi Perónista þingmeirihluta í neðri deildinni, þrátt
fyrir góðan árangur ríkisstjórnar Carlosar Menems forsætisráðherra í
efnahagsmálum. Tvö ár eru enn eftir af kjörtímabili Menems.
Romano Prodi óhress.
TJ Palestínumönnum
sleppt úr haldi
ÍSRAEL - ísraelstjórn lét í gær lausa 27
Palestínumenn, sem „endurgjald" gegn
ísraelsku leyniþjónustumönnunum sem
sleppt var úr fangelsi í Jórdaníu, en þeir
höfðu verið handteknir í kjölfar mis-
heppnaðs morðtilræðis þeirra á einum
af leiðtogum Hamas hreyfingarinnar í
Amman. 11 Palestínumannanna voru
frá Vesturbakkanum og Gaza, en hinir
16 frá Jórdaníu.
Guilfundur á Lapplandi
SVÍÞJOÐ - Mikið af gulli fannst í jörðu á Lapplandi fyrir skemmstu,
og er talið að það nemi 16 tonnum. Mun þetta vera einn stærsti gull-
fundur í Norður-Evrópu. Gullæðin er f heild um 1300 rnetra Iöng, frá
tveimur til 50 metra á breidd, og a.m.k. 100 metrar á dýpt.
FleM áfengisntsölur
SVÍÞJÓÐ - í kjölfar úrskurðar Evrópudómstólsins um að Svíum sé
heimilt að vera með ríkiseinokun á áfengissölu er stjórnvöldum ekki
lengur neitt að vanbúnaði að fjölga áfengisútsölum þar í landi. Ellefu
sveitarfélög hafa lengi átt umsóknir um að fá útsölu, en beðið hefur
verið með afgreiðslu þeirra þar til dómur væri fallinn.
Ungrú Biblia kosin
SVIÞJOÐ - Sjónvarpsþátturinn Adam, sem sýndur var í sænsku sjón-
varpsstöðinni TV-3 um helgina, fór mjög fyrir brjóstið kristilegum sið-
gæðisvörðum þar í landi. I þættinum fór nefnilega fram fegurðarsam-
keppnin „Ungfrú Biblía“. Ungar konur gengu um á bikini einu ldæða,
voru látar svara spurningum upp úr Biblíunni og bera kennsl á sálma
sem hljómsveit þáttarins lék, auk þess sem þær fengu í hendurnar
hamar, nagla, sög og fjalir ásamt hagnýtum leiðbeiningum um hvern-
ig smíða skuli kross úr þessum efnivið. Sigurvegarinn hlaut að laun-
um helgardvöl í Jönköping og loforð um eilíft líf.