Dagur - 31.10.1997, Side 2
2-FÖSTUDAGUR 31.0KTÓBER 1997
D^ur'
FRÉTTIR
MUljónir í skóla-
gjold sendirádsbama
Kynslóðaskipti í sendiráð-
um meginástæða 9 millj-
óna kr. nýrrar fjárveiting-
ar vegna skólagjalda
sendiráðsbama.
„Það eru ákveðin kynslóðaskipti að
eiga sér stað í utanríkisþjónustunni,
ungu fjölskyldufólki hefur verið að
fjölga en eldra fólki að fækka. „Börn-
um sendiráðsstarfsmanna á skóla-
skyldualdri hefur því fjölgað, sem þýð-
ir að útgjöld okkar vegna þátttöku í
skólagjöldum barna starfsmanna er-
lendis hafa hækkað. Þessi kostnaður
hefur verið kringum 4,5 til 5 milljónir,
en tvöfaldast núna ef ekki meira,“
sagði Stefán Haukur Jóhannsson í ut-
anríkisráðuneytinu.
Leitað var hjá honum skýringa á
nýrri 9 milljóna króna fjárveitingu, í
fjárlagafrumvarpi 1988, til greiðslu
aukins skóla- og sjúkrakostnaðar
sendiráðsstarfsmanna og fjölskyldna
þeirra, eins og þar segir. Liðurinn
„Ymis sameiginleg útgjöld sendiráða og
fastanefnda", hækkaði alls úr 19 upp í
35 milljónir. Fimmtán sendiráð og
fastanefndir eru á fjárlögum svo skóla-
gjöld eru a.m.k. um 600-700 þús. kr.
að meðaltali á hvert þeirra, samkvæmt
framansögðu.
Stefán Haukur segir að ráðuneytið
verði að tryggja það að börn sendiráðs-
starfsmanna þurfi ekki að skipta á milli
margra tungumálasvæða meðan þau
eru í skyldunámi - t.d. ekki að byrja í
flæmskum skóla og fara þaðan yfir í
þýskan eða franskan og kannski að Iok-
um í danskan. Börn sem byrji hins veg-
ar sína skólagöngu í Skandinavíu setj-
ist oft í þarlenda skóla. En annars stað-
ar séu þau oftast í enskum eða frönsk-
um skólum. - HEI
FRÉTTAVIÐ TALIÐ
Kirkjuþing er ofarlega í hugum manna og sýuist
sitt hverjum um þær deilur og átök sem þar eiga
sér stað. Gömul kona úr Þingeyjarsýslu kom aö
máli við pottverja og sagði að umræöumar á
kirkjuþingi og sérstaklega einn maóur þar
minnti sig alltaf á forna gátu sem er svona:
Hver er sá litli Lúsífer
leggi hefurmjóa.
Geitarskegg á grönum her
gaggareins og tófa.
í pottinum gátu allir rétt upp á því hver það var
sem fékk göinlu konuna til að hugsa uin þessa
vísu.....
Skálholtsprestakall er nú að losna og i pottinum
hefur þegar heyrst um tvo umsækjendur um
brauðiö. Þetta inunu vera þeir Egill Hallgríms-
son sem nú er prestur á Skagaströnd, og svo nú-
verandi hiskupsritari Baldur Kristjánsson sein
nú er að leita sér að vinnu vegna biskupsskipt-
anna....
„Kóngurinn er dáinn - lengi
lifi kóngurinn!" er hið
ódauðlega hróp kallarans
þegar hinn konunghorni
hverfur yfir móðuna miklu.
„Alþýðuhlaðið er dautt -
lcngi lifi Alþýöublaöið" er
hins vegar frasi sem ein-
hverjum kom í hug í prent-
smiðju Dagsprents þegar birtist á filmu gamli
sorrí Gráni afturgenginn með Hrafn Jökulsson
titlaðan sem fréttastjóra og Sigurð Tómas Björg-
vinsson sem ritstjóra. Hjörtu slógu þó hægar
þegar í ljós kom að þessir tveir vora bara hluti af
löngu ónýtum haus - en blaðið lifir þó eim í
formi flokkstíðinda sem dreift verður fljótlega.
Við tökum forskot á sæluiia og segjum hvað cr á
forsíðu: Auglýsing um „Kveðjukvöldstund með
Jóni Baldvin og Biyndísi“. Deyr fé, deyja frænd-
ur...
Böðvar Pálsson
oddviti í Grímsnesi.
Kosið verðurum samein-
itigu Grímsnes- og Grafw
ingshreppa íÁmessýslu nk.
laugardag. Skólamál eni
meðal helstu atriða í sam-
einingammræðunni, en
samanlagður íbúafjöldi
sveitarfélaganna er 327
manns.
Fólk jákvætt í garð
sa meinnigari nnar
- Hvað eru tbúar þessara sveitarfélaga
tnargir?
„Eins og staðan er nú eru íbúar í Gríms-
nesi alls 270, en 47 f Grafningi. Með öðrum
orðum þá er íbúafjöldi í Grafningi kominn
niður fyrir 50 íbúa markið, en það er lág-
marksfjöldi íbúa í hverju sveitarfélagi, ella
þurfa þau að sameinast öðrum. Núverandi
félagsmálaráðherra hefur hinsvegar verið
áhugalítill um að pína menn til sameining-
ar, þó lagabókstafurinn segi til um það.“
- Nú vekur athygli að Þingvallasveitin
er ekki með í þessari sameiningartillögu,
enda þótt íbúofjöldi þar sé líka kominn
niður fyrir lúgmarkið. Hversvegna er
Þingvallasveit ekki með?
„Eg skal ekki um það segja. Hinsvegar er
staðreynd að íbúar þar standa að nokkru
leyti utan við það sem við erum að gera, og
talsvert af sinni þjónustu sækja þeir niður í
Kjós, í Mosfellsbæ eða til Reykjavíkur. Það
liggur líka beinast við fyrir þá, vegna sam-
gangna - þar sem enn er ekki kominn vegur
lagður slitlagi frá Steingrímsstöð hér í
Grímsnesi og að Þingvöllum."
- Nú hofa Grímsnes- og Grofnings-
lireppur haft með sér samvinnu ú ýmsum
sviðum...
„Jú, við höfum til dæmis staðið sameigin-
lega að rekstri Ljósafossskóla, ásamt Þing-
vallasveit og hann sækja tæplega 50 nem-
endur úr báðum þessum sveitarfélögum og
fyrir þremur árum byggðum við íþróttahús
við skólann. Þá störfum við saman á ýmsum
fleiri sviðum og byggðasamlög hafa verið
mynduð um ýmis skylduverkefni sveitarfé-
laga. Þá eru ýmis frjáls félagasamtök sam-
eiginleg í bæði Grafningi og Grímsnesi og
það kemur, að mínu mati, f beinu framhaldi
af sameiginlegum skóla. Þar kynnast krakk-
arnir og halda síðan áfram að starfa saman,
óháð hreppamörkum.“
- Hvernig lieyrist þér lattdið liggja gagn-
vart sameiningartillögunni. Verður þetta
samþykkt?
„Einsog fólk talar hér í Grímsnesi þá
finnst mér fólk jákvætt gagnvart þessu, og
þau viðhorf komu til dæmis fram á kynning-
arfundi sem haldinn var hér í sveitinni. Eg
get ekki fullyrt með Grafninginn, en mér
hefur heyrst fólk vera jákvætt þar li'ka. Þar
var sú krafa sett fram að ekki yrði faríð út í
sameiningu við Laugardal, en fólk í Grafn-
ingi taldi að slíkt myndi hafa í för með sér
veikbyggðara skólahald á Ljósafossi. Hins-
vegar ber að taka fram að Grímsnes og
Laugardalur voru eitt sveitarfélag fram til
ársins 1906.“
- Verði sameiningartillagan samþykkt,
hafið þið gert einhverja framtíðarúætlun
fyrir sameinað sveitarfélag?
„Það er sameiginlegt hagsmunamál okkar
að fá heitt vatn frá Nesjavallavirkjun og að
því hefur verið unnið síðustu ár. Þá hefur
Grafningshreppur tekjur af virkjuninni, sem
hreppsnefnd þar þykir eðlilegt að íbúarnir
njóti á einhvern hátt. En stefnu þar að lút-
andi - og í öðrum málum - myndi ný sveit-
arstjórn móta, en í viljayfirlýsingu með sam-
einingartillögunni gerum við ráð fyrir að
sveitarstjórn verði fyrsta kjörtímabilið skip-
uðum þremur fulltrúum úr Grfmsnesi og
tveimur úr Grafningi.11 - sbs.