Dagur - 31.10.1997, Blaðsíða 12
12- F Ö STUDAGV R 31.OKTÓBER 1997
GOLF
Bergvfldn vinsælust
Þriðja holan á Hólmsvelli í Leiru, sem í dag-
legu tali gengur uudir nafniuu „Bergvíldn“
reyndist vinsælasta golfhola landsins, í könn-
un sem GOLFSÍÐA Dags gekkst fyrir á meðal
tuttugu kylfinga úr fimmtán golfklúhbum.
í könnuninni kom fram að marg-
ar af nýrri brautum landsins eru
þegar farnar að snerta strengi í
hjörtum kylfinga. Rúmlega
helmingur af þeim holum sem
valdar voru til að prýða „drauma-
völlinn“ eru fimm ára gamlar eða
yngri. Sé mið tekið af úrtakinu
vilja kylfingar í 1.-3. flokki karla
hafa holurnar erfiðar og þá kom
óneitanlega nokkuð á óvart hve
hlutur níu holu vallanna er rýr.
Líkleg skýring á því er að þeir
eru mun minna spilaðir. Þessi
könnun gefur góða vísbendingu
um það hvaða golfholur séu
kylfingum að skapi, en er fyrst og
fremst til gamans gerð. Dagur
tók saman draumavöll, sem skip-
aður er átján vinsælustu holum
landsins, og fylgja ummæli kylf-
inganna um nokkra þeirra með.
Fyrri níu holur - Par 36
Lengd: 2793 metrar.
1. Urriðavatnsvöllur, 3 hola.
Það er ekki venjulegt að byrja
hringinn á par fimm holu, en
það er heldur ekkert venjulegt
við 3. holuna á Oddfellowvellin-
um. Hún er stysta par fimm
braut landsins, rétt um 400
metra löng. Þeir sem slá yfir 200
metra ná í niðurhalla og eiga
góða möguleika á að fara inn á
flöt í öðru höggi.
Ummæli: „Mér finnst það í
lagi hvað hún er stutt, því menn
mega ekki vera tveimur metrum
of langir, þá eru menn komnir í
alvöruvandræði. Flötin er það
Iítil og svo er bakgrunnurinn
ógnvekjandi."
2. Hvaleyrarvöllur, 2. hola.
Onnur nýræktarhola, 327
metra löng af gulu teigunum og
Hvaleyrarhraunið umlykur
brautina. Brautin var ekki í góðu
standi í sumar og flötin náði sér
ekki á strik, en hún á eftir að
verða mjög skemmtileg. Ef menn
ná yfir 200 metra grjót á flugi er
hægt að slá innáhöggið með
fleygjárni. Hin aðferðin er að
spila stutt og eiga 150 metra
högg inn á litla flöt.
Ummæli: “Skemmtileg hola,
meðal annars fyrir þær sakir
hvað hún er erfið. Það er hægt
að slá með járni af teig, en það er
líka hægt að taka „sjensinn“ með
„drævernum."
3. Jaðarsvöllur, 4. hola.
Dagur fékk tuttugu kylfinga úr
fimmtán klúbbum, víðs vegar að
af landinu til liðs við sig til að
finna út bestu átján holur lands-
ins. Kylfingarnir, sem eru í 1.-3.
flokki karla og leika að jafnaði af
almennum klúbbteigum, voru
einfaldlega spurðir að þv£ hvaða
níu holur þeir mundu helst vilja
spila á landinu. Hver þeirra tutt-
ugu valdi níu holur, sem skipt
var í þrjá gæðaflokka, Fimm stig
voru veitt fyrir tvær bestu hol-
urnar, fjögur stig fyrir þær þrjár
næstu og þrjú stig fyrir fjórar síð-
ustu holurnar. Eftirtaldir kylfing-
ar tóku þátt í þessari könnun og
þakkar umsjónarmaður Golfsíðu
Dags þeim fyrir þátttökuna.
Þessi hola hefur löngum verið
talin ein af fallegustu holum
landsins. Rúmlega 150 metra
löng og hætturnar felast aðallega
í tveimur tjörnum sem gleypa
bolta sem villast af leið. Skógar-
lundur norðan megin vdð flötina
setur sterkan svip á holuna.
Ummæli: „Með fallegri flat-
arstæðum."
4. Kötluvöllur, 4. hola.
Ein sérkennilegasta golfhola
landsins er á Húsavík. Hún
gengur undir nafninu Lautin, er
463 metra par fimm hola og
dregur nafnið af laut sem hylur
síðari hluta brautarinnar. Braut-
in spilast upp í móti og inná-
höggið er slegið úr lautinni yfir á
upphækkaða flöt.
Ummæli: „Aðkoman að hol-
unni er glæsileg." „Náttúrulegt
meistarastykki."
5. Urriðavatnsvöllur, 17.
hola.
Ein af mörgum fallegum hol-
um á Oddfellowvellinum. Braut-
in liggur í boga til vinstri og gam-
all furulundur hægra megin við
flötina byrgir mörgum kylfingum
sýn á flötina í innáhögginu.
Nokkrar tilfæringar hafa verið á
teignum á þessari holu, en þegar
teigurinn er framarlega er hún
skráð 266 metra og gefur þeim
högglengri möguleika á því að
slá beint inn á flöt.
6. Hólmsvöllur Leiru, 3.
hola.
Hin eina sanna Bergvík er ekki
nema rétt rúmir 140 metrar nið-
ur í móti af karlateigunum en
það segir ekki alla söguna. Vind-
urinn hefur oft mikil áhrif á
þessari holu og dæmi eru til um
að menn hafa oröið fráhverfir
golfíþróttinni eftir viðskipti sín
við fröken Bergvík. Það er ágætt
próf á manndóminn að standa á
teignum með rok í fangið eða í
átt til sjávar.
Ummæli: „Bergvíkin er „golf-
hola Islands" og verður seint
slegin út sem slík. Þessi 33 ára
gamla hola stendur alltaf fyrir
sínu, hvort sem það er í logni eða
roki og hefur lítið breyst. Af öft-
ustu teigum er hún erfiðasta
hola landsins."
7. Vestamannaeyjav. 13.hola.
Þessi hola er kölluð Borgir og
hefur verið noldtuð umdeild, að-
allega vegna lengdar sinnar. Hún
__ Aðalsteinn Ingvarsson (GV),
Asgeir Elíasson (GKJ), Bernard
Bogason (GFH), Bjarni Jónsson
(GR), Egill Sigmundsson (GÍ),
Friðþjófur Helgason (NK), Guð-
brandur Sigurbergsson (GK),
Guðmundur Kristmundsson
(GKG), Gunnar Þórðarson
(NK), Gunnar Þorláksson
(GKB/GR), Halldór Halldórsson
(GSS), Karl Karlsson (GB), Ósk-
ar B. Ingason (GO), Páll Ketils-
son (GS),Ríkharður Hrafnkels-
son (GMS), Sigurður Hreinsson
(GH), Skúli Agústsson (GA),
Þórhallur Pálsson (GA), Þórir
Bragason (GHR) og Örn Gísla-
son, (GK).
er par fjórir en gárungarnir segja
að hún sé par 4,5 og flestir sætta
sig við fimm högg á holuna.
Brautin liggur í boga, upp í móti
með vallarmörkum vinstra meg-
in og það er ekki á færi nema
betri kylfinga að ná inn á flöt í
tveimur höggum enda reyna það
fæstir. Aðkoman er þröng, hraun
er allt í kringum flötina og í hug-
um margra er það aðeins upp-
skrift að vandræðum að reyna slá
inn á flötina með trékylfu eða
löngu járni.
Ummæli: „Eg bíð alltaf eftir
þeirri 13. þegar ég spila í Eyjum,
en er svo guðslifandi feginn þeg-
ar ég klára hana.“
8. Korpúlfsstaðavöllur, 13.
hola.
Örugglega ein myndrænasta
hola landsins. Flötin er um þús-
und metrar að flatarmáli með
þremur risaglompum fyrir fram-
an og aftan og gamall og virðu-
legur víðirunni er vinstra megin
við flötina. Holan er 180 metra
löng, par 3 og það er ekki óvana-
legt að sjá menn þrífa upp úr
pokanum stærstu kylfuna þegar
slegið er af teignum.
Ummæli: „Með lengri par-
þrjú holum sem maður spilar."
„Ein af mörgum góðum holum á
Korpúlfsstaðavellinum." „Eg er
ekki hrifinn af öllu sem kemur
frá Hannesi (Þorsteinssyni, golf-
vallarhönnuði) en honum hefur
tekist einstaklega vel upp með
Korpuna."
9. Hvaleyrarvöllur, 7. hola.
Stutt par fimm hola með mikl-
ar hættur. Brautin er 418 metra
Iöng S-laga og býður upp á ýmsa
möguleika. Ef teighöggið heppn-
ast er hægt að reyna „blint“ inn-
áhögg yfir hraun.
Ummæli: „Ein fallegasta flöt
vallarins."
Síðari iiíii holur - Par 36
Lengd: 2912 metrar.
10. Urriðavatnsvöllur, 10.
hola.
368 metra löng og það þarf tvö
góð högg til að komast inn á flöt.
Stórkostlegt útsýni yfir völlinn af
teignum og glompur sitt hvoru
megin við flötina setja sterkan
svip á holuna.
Ummæli: „Tignarleg braut og
geysilega falleg. „Eg fæ það á til-
finninguna að ég sé kominn út í
heim.“ „Brautin er fallega slegin
og tilfinningin er meiriháttar og
ekki spillir fyrir að ég er líklega
eini maðurinn sem náð hef
„erni“ á holuna."
11. Grafarholtsvöllur, 7.
hola.
Bogahola með hættum beggja
vegna brautarinnar. Flötin er
ekki stór, en á tveimur pöllum.
Ummæli: „Annað höggið á
þessari holu er eitt af þeim
skemmtilegri. Ef það heppnast
ekki getur maður gleymt því að
ná sæmilegu skori.“
12. Korpúlfsstaðavöllur, 12.
hola.
Landsmótskylfingar fóru
margir illa út úr viðskiptum sín-
um við þessa braut, sem sam-
kvæmt áliti þeirra sem rætt var
við, er besta par fjögur hola
landsins. Hún er stutt, um 300
metrar, en mjög þröng með
hættum á báða bóga og ekki er
óalgengt að sjá menn slá auka-
högg af teig. Innáhöggið er krefj-
andi og hætt er við að áin Korpa
taki bolta sem eru of mikið til
vinstri.
Ummæli: „Vel hana af því mér
gekk svo vel með hana á Lands-
mótinu, eða hitt og þó heldur."
„Ekkert rosalega erfið, en þú
verður að hitta brautina."
13. JaðarsvöIIur, 18. hola.
Hin glæsilega lokahola á Akur-
eyri tók nokkrum breytingum sl.
sumar sem gerði hana enn betri.
Byggður var stærri teigur og við
það lengdist brautin aðeins, en
hún er um 150 metra löng. Flöt-
in hallar á móti og vissara er að
staðsetja högg sín fyrir neðan
holuna. Glompur á alla kanta
taka á móti þeim boltum sem
fara af Ieið, en ekki er hægt að
segja að holan sé erfið, við venju-
Iegar aðstæður.
Ummæli: „Stutt hola en krefst
mikillar nákvæmni, þegar menn
slá á stöngina þar sem flötin er
mjög lftil. Oft slegið beint upp í
sólina að kvöldlagi, sem gerir
hana enn erfiðari."
14. Jaðarsvöllur, 12. hola.
Strembin par fjögur hola, 320
metrar á lengd, þar sem skógar-
lundur hægra megin í brautinni
getur gert mönnum lífið leitt.
Upphafshöggið er blint og inná-
höggið er upp í móti.
Ummæli: „Mjög sérstök og frá
teignum eru hættur á alla
kanta.“ „í sunnanátt er allt of
mikil áhætta að taka dræver.“
15. Kiðjabergsvöllur, 6. hola.
Þröng og löng par fjögur hola.
Slegið er ofan í gil úr upphafs-
högginu en til hliðar við brautina
báðum megin er hengiflug. Ut-
sýni yfir Suðurland.
Ummæli: „Meiriháttar tilfinn-
ing að standa á teignum sem er á
klettabrún.“ „Magnáð umhverfi
og ég hef mikla tilfinningu fyrir
þessari braut. Ég held að það sé
engin íslensk hola sem meira
hefur verið fjallað um í erlend-
um blöðum."
16. Grafarholtsvöllur, 15.
hola.
Fáar holur hafa eyðilagt jafn
marga góða hringi og sú 15. í
Grafarholtinu, en ástæðan íyrir
því er augljós; ef menn fara út af
braut sjá skurðir beggja vegna
um að hirða boltana. Þessir
hvítu boltar sem menn sjá ofan í
tjörninni fyrir framan flötina eru
dæmi um það hvað gerist þegar
innáhöggið heppnast ekki.
Ummæli: „Hún býður upp á
mikið, helv.. á henni.“ „Öll högg-
in eru krefjandi.“ „Ég fékk 17 á
hana á Landsmóti fyrir 25 árum,
en set hana samt með.“
17. Vestmannaeyjarvöllur,
17. hola.
Stysta holan á „draumavellin-
um“, en tvímælalaust ein af
þeim erfiðari, eins og þeir vita
sem staðið hafa á teignum með
Atlantshafið á hægri hönd. Köll-
uð Mormónapollur.
Ummæli: „Utsýnið er ógnvekj-
andi af teignum. Vindáttin kem-
ur alls staðar frá, það getur verið
meðvindur á flöt, en mótvindur á
teig og það gerir hana svo erf-
iða.“ „Gífurlegur karakter.“
18. Hólmsvöllur Leiru, 18.
hola.
Glæsileg lokahola. Hún er 466
metrar og þeir högglengri eygja
möguleika á því að komast inn
að flöt í tveimur höggum. Vatn
vinstra megin á brautinni vefst
fyrir mörgum, en aðalsmerki
þessarar holu er aðkoman að
flötinni, sem er stórglæsileg.
Ummæli: “Getur verðlaunað
högg, en einnig refsað illilega.
Það er kostur að flötin er stór og
auðvelt er að hitta hana.“
Lengd vallar: 5705 metrar.
Þeir völdu holumar