Dagur - 31.10.1997, Page 5
FÖSTUDAGUR 31.0KTÓBER 1997 - S
FRÉTTIR
L
Lokun blasir vid
Hafnarkráiuii
Hafnarkráin: Hingað og ekki iengra segja borgaryfirvöid. Dyrunum verður tokað
þegar iögregiustjóri staðfestir höfnun borgarráðs. - mynd: bg
Borgin vill loka
Hafnarkráimi. Fleiri
veitingahús imdir
smásjánni.
Félagsmálaráð Reykjavíkurborg-
ar samþykkti samhljóða á fundi
sínum í vikunni að mæla gegn
endurnýjun á bráðabirgðaleyfi
Hafnarkrárinnar í Hafnarstræti
til vínveitinga. Þetta samþykkti
ráðið eftir skoðun á þykkum
bunka lögregluskýrslna og kvart-
ana.
Umsögn félagsmálaráðs fer til
borgarráðs til staðfestingar og að
sögn Guðrúnar Ogmundsdóttur,
formanns félagsmálaráðs, er ekki
við því að búast að afstaða borg-
arráðs verði á aðra lund en hjá
félagsmálaráði. Eftir afgreiðslu
borgarráðs fer málið fyrir lög-
reglustjóra, sem má ekki veita
leyfi ef borgin leggst gegn því.
„Meðan staðir gera eldd það
sem þeim ber að gera er ekki
hægt að endurnýja umsóknir
þeirra. Hafnarkráin var með
bráðabirgðaleyfi þar sem fyrir-
vari var gerður um lagfæringar á
rekstrinum, en ljóst er að engar
breytingar hafa átt sér stað til
batnaðar. Það réði úrslitum þeg-
ar við fengum gögn um ástand
staðarins og ónæði í næsta ná-
grenni við hann. Það er ljóst af
þeim lýsingum að ástand hefur
skapast sem gengur ekki upp í
hjarta borgarinnar,“ segir Guð-
rún.
Guðrún segir aðspurð að fé-
lagsmálaráð muni taka alla staði
til vandlegrar athugunar og biðja
um gögn frá öllum sem hags-
muni kunna að hafa er tengjast
rekstri veitingahúsanna. „Því má
ekki gleyma að stöðum hefur
áður verið lokað sem töldust
óæskilegir í umhverfi sínu.
Bresti mig ckki minni þá átti
þetta t.d. við um Casablanca og
Púlsinn," segir Guðrún.
Félagsmálaráð fór í samþykkt
sinni eftir umsögn Gunnars Þor-
lákssonar, deildarstjóra hjá Fé-
lagsmálastofnun Reykjavíkur,
þar sem kom fram að rekstrarað-
ilar Hafnarkrárinnar hefðu í
mörgum atriðum ekki farið að
settum reglum og sagt að „al-
mennur bragur“ staðarins sé
„engan veginn fyrsta flokks."
Einnig kemur fram í umsögn
Gunnars það álit framkvæmda-
stjóra staðarins, Asgeirs Þórs
Davíðssonar, að hann telji sig
miklum órétti beittan þegar
fjöldi lögregluskýrsla er lagður
fram, sem í mörgum tilvikum
eru staðnum óviðkomandi. — FÞG
Heigi Hjörvar viii
að veitufyrirtækin
kanni möguleika
á að heiia sér í
samkeppni við
Póst og síma.
Orkufyrir-
tæld í iimaii-
bæjarsímtol
Helgi Hjörvar,
fulltrúi Reykja-
víkurlistans í
stjórn veitu-
stofnana, lagði
fram tillögu þess
efnis að stjórn
veitus tofn ana
beindi því til
fulltrúa sinna í
Aflvaka hf. að
gerð verði úttekt
á þeim tækifær-
um sem nútíma-
tækni gæfi til
samkeppni í rekstri símafélaga.
Helgi lagði einnig til að stjórn
veitustofnana samþykkti að
hækka gjaldskrár sínar um 79%
til símafyrirtækja. Helgi sagði í
samtali við Dag að vel hefði verið
tekið í fyrri tillögu sína, enda væri
það vel þekkt að veitufyrirtæki
víða um lönd væru að hefja eða
farin að huga að samkeppni við
símafyrirtæki. Hann sagðist gera
sér vonir um að þessi tillaga fengi
afgreiðslu í örlítið breyttri mynd á
næsta fundi í stjórn veitustofn-
ana. „Það er geysileg hreyfing á
þessum markaði og þar eru orku-
fyrirtæki í fararbroddi."
Um seinni tillöguna sagði
Helgi að hann hefði ekki trú á að
hún næði fram að ganga, enda
væri hún fráleit; jafn fráleit og
hækkanir Pósts og síma á sím-
gjöldum Reykvíkinga. Hann sagði
ákvörðun Pósts og síma og fram-
göngu samgönguráðherra með
þeim hætti, að ómögulegt væri
annað en að huga að samkeppni
við fyrirtækið, enda samkeppni
besta svarið við einokunarokri af
þessu tagi. - HH
íslenskir útvegsmenn hafa þrýst mjög á að samningi íslendinga við Norðmenn og Grænlendinga um loðnuveiðar yrði sagt upp,
og hefur nú orðið að ósk sinni, að því er sjávarútvegsráðherra tilkynnti í gær.
' *#’yr ^%gM|f •
■■RPly í wM. 1
Norðmöimiun sagt upp
Ákveðið heliir verið
að segja upp samningi
íslendinga við Norð-
menn og Grænlend-
inga um loðnuveiðar
og hefjast viðræður
iiiii nýjan samning
iiinaii tíðar.
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, tilkynnti á aðalfundi
LIU í gær að loðnusamningi Is-
lendinga, Norðmanna og Græn-
Iendinga verði sagt upp. Viðræð-
ur hefjast fljótlega um nýjan
samning og segir Þorsteinn að
þar verði meginmarkmiðið að
jafna aðgang þjóðanna að lög-
sögu hvor annarrar, en þar hafi
hallað á Islendinga.
„Ný ríkisstjórn hóf feril sinn
með ögrunum í okkar garð þó
nokkuð hafi dregið úr fyrri yfir-
lýsingum og því nauðsynlegt að
knýja á um betri aðgang þjóð-
anna í lögsögu hvor annarrar.
Við höfurn átt góð samskipti við
Grænlendinga í þessurn efnum
og ég vona að þegar yfir Iýkur
verði hægt að treysta samvinnu
allra þriggja landanna á nýjum
og réttlátari grundvelli," sagði
ráðherrann.
Islendingar fengið að veiða
78% heildarloðnukvótans hér við
land en Norðmenn og Græn-
lendingar 11% hvor þjóð. Afli
Norðmanna er t.d. um 140 þús-
und hér við land og verðmæti
þess afla gæti verið um 1,3 millj-
arðar króna. íslenskir útvegs-
menn hafa þrýst mjög á að
loðnusamningnum yrði sagt
upp. - GG
SUÐURLAND
Pólverjar í kjöt
Sláturfélag Suðurlands hefur
fengið atvinnuleyfi fyrir fimmtán
Pólverja í kjötvinnslu félagsins á
Hvolsvelli. Eru þessir verka-
menn þegar komnir til starfa.
Skortur hefur verið á starfsfólki
til ýmissa starfa í Rangárvalla-
sýslu að undanförnu og því gríp-
ur SS á þetta ráð. „SS hefur
vantað fólk í vinnu og sérstak-
lega í kjötskurð. Þau störf eru
nokkuð sérhæfð og það gengur
ekki hver sem er í þau. Því gát-
um við ekki staðið í vegi fyrir því
að veita starfsle)'fi,“ sagði Guð-
rún Haraldsdóttir hjá Verkalýðs-
félagi Rangæinga í samtali við
Dag. Hún segir uppsveiflu vera í
atvinnulífi sýslunnar um þessar
mundir.
Verslunarmajiiiafélög 1
samstarf
Samstarfssamningur milli Versl-
unarmannafélags Árnessýslu og
Verslunarmannafélags Rangæ-
inga er í farvatninu. Að sögn
Hansínu A. Stefánsdóttur, for-
manns VÁ, myndi samningurinn
felast í að því að félagið í Arnes-
sýslu veitti verslunarmönnum í
Rangárþingi þá margháttuðu
þjónustu sem verkalýðsfélög
inna af hendi, en félagsmenn VR
eru um 100. Félagsmenn í VÁ
eru hinsvegar vel á fjórða hundr-
að.
Báran og Boðinn í Þór
Skoðuð hefur verið sameining
verkalýðsfélagsins Bjarma á
Stokkseyri og Boðans á Eyrar-
bakka að undanförnu, við Verka-
lýðsfélagið Þór á Selfossi. Við-
ræður eru þó skamrnt á veg
komnar og óvíst hvað verður,
segir Grétar Zópaníasson, for-
maður Bjarma.
Komuppskera var góð
Kornuppskera á Suðurlandi varð
mjög góð í sumar, en erfiðlega
gekk að ná uppskerunni í hús
vegna langvarandi rigninga á
haustdögum. Víðast fengust 2 til
3 tonn af þurru korni af hverjum
hektara og í einstaka tilvikum
meira en það. Þetta kemur fram
í Sunnlenska fréttablaðinu.
Dregið úr starfsemi á
Hvolsvelli
Enn stendur sú ákvörðun Vega-
gerðar ríkisins um að draga úr
starfsemi sinni á Hvolsvelli; þ.e.
selja áhaldahús sitt í kauptún-
inu, fækka starfsmönnum úr
tveimur í sex og bjóða þjónustu-
viðhald á svæðinu frá Markar-
fljóti og austur í Vík í Mýrdal.
Sunnlenska greinir frá. — SBS.
Þið verðið ekki á flæðiskeri
stödd með Veqahandbókina
www.umferd.is