Dagur - 31.10.1997, Qupperneq 6

Dagur - 31.10.1997, Qupperneq 6
6- FÖSTUDAGUR 31.0KTÓBER 1997 ÞJÓÐMÁL Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: A ðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Símar: ii'iiiiiiaiiiiTiíiiiiinT'iiwwtiwtWBWWiiyBBiiiiia DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON STEFÁN JÓN HAFSTEIN ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖRU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjaid m. vsk.: 1.680 kr. Á mánuði Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Símbréf augiýsingadeiidar: 460 6161 Simbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyri) 551 6270 (reykjavíK) Landsbyggðin sem skálkaskjól í fyrsta lagi Myndin sem Dagur á í fórum sínum segir allt: Halidór Blön- dal með eina hlutabréfið í Pósti og síma í eigin hendi. Nógu slæmur er íslenski einokunarkapítalisminn sem Halldór kann svo vel við, en verri er einokunarfasisminn sem hann veitir for- stöðu í krafti þessa eina hlutabréfs sem hann lét prenta handa sér. Að segja að Póstur og sími sé ekki í eigu almennings er slík fádæma frekja og dónaskapur að út yfir allt tekur. Nema þeg- ar sami ráðherra kemur í sjónvarp og hótar bara að selja fyrir- tækið ef fólkið er með múður. í öðru lagi En skítt með það þótt plattfótur þrammi um landið. Verri er atlagan að samgöngukerfi framtíðarinnar: „háhraðabrautinni inn í upplýsingasamfélagið" - sem við köllum Netið. Er það ekki dæmigert fyrir ráðherra - sem hvergi finnur útskot á fjall- vegi án þess að láta mynda sig við það - að neita að setja sig inn í og skilja hina rafrænu vegi. EKKERT - segi og skrifa EKKERT - er mikilvægara fyrir Iandsbyggðina nú en Netið. Fyrir unga fólkið. Fyrir menntir. Stofnanir. Fyrirtæki. EKK- ERT færir fólkinu utan hinnar miðlægu höfuðborgar meira vald en frjáls, ódýr og óheftur aðgangur að upplýsingamiðlun. í þriðja lagi Eitt gjaldsvæði fyrir landið er gott mál. Sú aðferð sem Póstur og sími beitir, og neitar að útskýra, vinnur gegn landsbyggðar- fólki á sama hátt og hún vinnur gegn öllum sem vilja ferðast um óravíddir Netsins. Halldór Blöndal getur spurt þá sem hafa stundað fjarnám við Verkmenntaskólann á Akureyri. Hann getur spurt þá sem ná sér í doktorsgráður við erlenda háskóla á Netinu, selja fisk, kaupa ljóð, fara á tónleika eða reka pólitískan áróður. Og hann getur sest við borð ríkisstjórn- arinnar og spurt frænda sinn Björn Bjarnason - þjóðkunnan nethaus. Meðal annarra orða. Hvað finnst þér Björn? Dagur býður þér hér með þjóðmálasíðuna alla til að svara. Ertu sá nethaukur í horni sem þú hefur alltaf þóst vera? Eða bara rétt- ur og sléttur gamaldags borðaklippir? Stefán Jón Hafstein. Dipló prestar Garra var kunnugt um að Davíð Oddsson væri andstæð- ingur Evrópusambandsins, enda hefur forsætisráðherra oftsinnis gefið þennan fjand- skap sinn til kynna á opinber- um vettvangi. Garri veit líka að Bjarni Einarsson, Hjörleif- ur Guttormsson, Páll Péturs- son og flestar kvennalista- jjingkonur eru á móti ESB. Hins vegar hefur Halldór Ás- grímsson stundum brosað út í Evrópumunnvikið svo lítið ber á, og allir þekkja Evrópu- sambandsbrímann hjá krötum. Allt eru þetta jjekktar stað- reyndir um stjórn- málaviðhorfin á Is- landi gagnvart Evr- ópusambandinu og eru hluti af heildar- myndinni sem menn hafa þegar þessi tengsl eru metin. Biskupinn gegn ESB Nú hefur hins vegar komið í ljós að hér á landi er ekki allt sem sýnist í Evrópumálunum og þýðingarmikil atriði vantar inn í heildarmyndina. Áður ókunn brot komu hins vegar í ljós á Kirkjuþingi í vikunni þar sem upplýst var að ís- lenskir sóknarprestar eru hluti af utanríkisjjjónustunni og hafa sérstök diplómata- vegabréf. Eftir því sem bisk- upinn segir hafa bæði prest- arnir í London og Kaup- mannahöfn slíka passa og eru {jví trúarleg útvíkkun á hinni formlegu utanríkisþjónustu. Svo mun hafa verið um nokk- urt skeið. Það sem vekur þó mesta athygli er að Olafur Skúlason biskup er í flokki V Evrópusambandsandstæðinga og er æstur í að láta þá andúð sína í ljósi. Garra grunar raunar að þeir flokksbræður Olafur Skúla og Davíð Odds- son hafi kokkað upp sérstaka aðgerð til að undirstrika and- stöðu sína. Og aðgerðin er ekki af verri endanum: gera Flóka að diplómatapresti í ESB. Flóki og Jón til Brussel? I utanríkisþjónust- unni tíðkast að kalla diplómata heim ým- ist alveg eða þá til skrafs og ráðagerða þegar ríki vilja lýsa andúð sinni og van- þóknun á einhverju. Að senda út í gervi diplómata, menn sem velja jafnan deilur, séu þær í boði, er hins vegar nýtt herbragð. Krafa biskups um að sr. Flóki Krist- insson fái diplómatapassa fyr- ir ESB er augljóslega af þess- um hvötum runnin. Sr. Flóld hefur ekki beinlínis áunnið sér nafn sem diplómatískiir maður og því viðbúið að það muni valda mildu uppnámi í Brussel ef slíkur maður kæmi veifandi diplómatapassa. Næsta stig í mótmælunum af hinni nýju tegund væri þá að senda á eftir Flóka organist- ann Jón Stefánsson - líka með diplómatapassa! Þá er viðbúið að regluveldið í Brussel bein- línis fríkaði út og allir myndu þá sjá að ESB er ekki eitthvað sem hentar okkur Islending- um - alveg eins og ESB and- stæðingarnir hafa verið að benda á. GARRI. Davíð sameinar vinstrimenn BIRGIR GUÐMUNDS SON skrifar Óhefðbundið fóstbræðralag birt- ist á þjóðmálasíðu Dags í gær, þegar þeir Vestfirðingar Kristinn H. Gunnarsson og Sighvatur Björgvinsson skrifuðu saman stjórnmálagrein. Þessir gömlu andstæðingar eru sjálfsagt vanari því að skattyrðast hvor út í annan en að standa saman einhuga í póiitíkinni. Það eitt að þeir skrifi saman grein sem ekki fjallar beint um kjördæmamál Vestfirð- inga, segir kannski heilmikið um ganginn í sameiningarmálum A- flokkanna - hann er greinilega rífandi! Þeir fóstbræður eru reiðir. Þeir eru reiðir út í Davíð Oddsson. Það er einmitt hann sem hefur knúið þessi vestfirsku stjórn- málatröll til sameiginlegra skrif- ta. í helgarviðtali í Degi um síð- ustu helgi lýsti Davíð þeirri skoð- un sinni að sameinaður listi A- flokka væri til einskis nýtur í rík- isstjórnarsamstarfi og hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Fram- sóknarflokkurinn myndu líta við honum sem samstarfsaðila. „Eg hcld að hann muni dæma sig í ei- lífa útlegð og harma það svo sem ekki,“ sagði Davíð í viðtalinu. Á villigötum Þetta kunna þeir Sighvatur og Kristinn ekki að meta og telja ein- sýnt að nú sé Davíð strax orð- iðnn hræddur við nýja framboðs- listann, þó hann sé enn ekki orð- inn til. Sé sú ályktun rétt hjá þeim fóstbræðrum er augljóst að Davíð er á miklum villigötum með viðbrögðin. Því allar móðg- anir og yfirlýsingar frá honum í garð A-flokkaframboðs munu verka sem vítamínsprauta á sam- einingarferlið. Sjálfstæðisflokk- urinn er og hefur verið - að nafn- inu til í það minnsta - höfuðand- stæðingur jafnaðarmanna. Ef úlf- urinn sjálfur - Davíð Oddsson - fer að veitast að jafnaðarmanna- hjörðinni, þá þjappa menn sér einfaldlega saman og sameinast gegn honum. Því meira sem hann lítilsvirðir sameiginlegt framboð jafnaðarmanna, því betra fyrir sameiginlegt framboð jafnaðarmanna. Davíð gæti því leikandi orðið eitt helsta hreyfi- aflið í sameiningu vinstrimanna, ef hann bara heldur áfram á þeir- ri hraut sem hann nú er kominn á. Framsóknardxaumiiriim Þeir fóstbræður gegn Davíð nefna það líka í grein sinni, að skörin sé nokkuð að færast upp á bekkinn hjá formanni Sjálfstæð- isflokksins þegar hann dæmir A- flokkasamstarf í útlegð fyrir hönd Framsóknarflokksins líka. Vissu- lega má færa að því einhver rök að Davíð tilheyri núorðið hópi framsóknarmanna í Sjálfstæðis- flokknum. Hins vegar er hann ekki, síðast þegar fréttist, tals- maður framsóknarmanna í Framsóknarflokknum. Það er því ekki nema sjálfsagt mál að tals- menn Framsóknar svari spurn- ingu vestfirsku þingmannanna um hvort Davíð sé orðinn tals- maður Framsóknarflokksins? Raunar væri slíkt fráleitt mál því ólíkt sjálfstæðismönnum kæmi það sér sérstaklega vel fyrir fram- sóknarmenn að A-flokkarnir sameinuðust. Framsóknarmenn yrðu þá í lyldlaðstöðu í miðjunni og gætu stigið í vænginn, hvort heldur til hægri eða vinstri. Þeir hefðu þess utan þá ákjósanlegu aðstöðu að geta gefið sér tíma til að velja því kapphlaupið um hver flokkanna færi í stjórn með sjálf- stæðismönnum væri úr sögunni. Orlögin hafa því hagað málum þannig að áframhaldandi geð- illska Davíðs Oddssonar í garð sameiginlegs framboðs vinstri manna er ekki einungis stórt hagsmunamál fyrir A-flokkana, heldur Iíka fyrir Framsókn sem sér fram á að komast í drauma- stöðu í stjórnarmyndunarviðræð- um eftir næstu kosningar. -Dxgur .svarað Er gjaldshrá rbreyting Pósts og síma lands- byggðarstefna ? Giinnlaugur A. Júliusson sveitarstjóri á Raufarhöfn. Það hefur margt verið gert sem er landsbyggð- inni verra en þetta. Jöfn- un á verði einstakra neysluvara hefur verið á undanhaldi, þannig að þetta er ágætur við- snúningur. Auðvitað þýðir jöfn- un alltaf að verð hækkar hjá ein- um en lækkar hjá öðrum og þetta er táknrænn stuðningur við fólk á landsby'ggðinni. Nei, ekkert frekar. Þetta fer nokkuð eftir því hvert fólk þarf oftast að hringja. Þ a n n i g hækka síma- reikningar fólks í Skagafriði sem mikið þarf að hringja innan héraðs, en lækka hjá þeim sem mikið hringja til Reykavíkur eða á önn- ur gjaldskrársvæði. Því er þetta ekkert endilega landbyggðar- stefna. Ami Egilsson sveitarstjóri á Ilofsósi Ólafia Jakobsdóttir skrifstofustjóri Skaftárhrepps, Kirkju- bæjarklaustri. Já, það myndi ég telja - svona upp að vissu marki. Um skeið hefur það verið baráttumál s v e i t a r - stjórnar- manna á landsbyggðinni að jafna símakostnað. Það er svo annað mál hvort hér hafi verið stigið of stórt skref, og hvort Póstur og sími hf. þurfi á þessari hækkun að halda. Guðimmdur B. Magnússon verslunarstj. á Drangsnesi, oddviti Kaidratianes- hr. á Strönd- um. Já, það tel ég vera. Sím- kerfið á ís- landi er allt sama kerfið og því eigum við öll að greiða sama gjald. Að skipta landinu í mörg gjaldsvæði var gamalt fyrirkomu- lag sem var eðlilegt að viki með nýrri tækni. Varðandi lækkun símagjalda til útlanda fannst mér óþarfi að gera það á þessum tímapunkti, því það vekur upp tortryggni milli landsbyggðar og höfuðborgar því við vitum ekki hver þáttur þeirrar Iækkunar er í þessum heildarbreytingum á

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.