Dagur - 13.11.1997, Page 10

Dagur - 13.11.1997, Page 10
26 - FIMMTUDAGUR 13.XÓVEMBER 1997 Daf£Ut~ BÍLAR OG VETUR að gátill?ess Jog að í>aU n0'1 yUMFERÐAR RÁÐ íil sölu Nissan NX100 2,0 Gti, rauður með T-topp, álfelgur. Ekinn 79 þús km, verð kr. 970 þús. stgr. Upplýsingar í síma 462 2422. Dýrar sköfur tómt pj átur? Ekkert smá skemmti- LEGUR -O" STRAUMRÁS Furuvöllum 3 ■ 600 Akureyri Sími 461 2288 ■ Fax 462 7187 Látið okkur yfirfara bíiinn fyrir veturinn Velkomin á verkstæði okkar Við tökum vel á móti þér Höldur ehf. Draupnisgötu 1 Sími 461 3015 Rúðusköfur eru muð- synlegt hjálpartæki þegar veturgengur í garð. Þegarfrystir á nóttunni sest iðulega ísing á rúðumará bíln- um ogþað erótrúlega algengt aðframrúðan sé verst útleikin. Ef frost hefur verið yfir nótt og rúðurnar í bílnum eru ísaðar er að sjálfsögðu þægilegast að fara í úlpuna og rölta út í bíl nokkru áður en maður ætlar af stað og setja í gang og miðstöðina á fullt og fara svo inn í hús aftur. Það tekur bílinn yfirleitt ekki nema nokkrar mínútur að hitna og bræða ísinguna af rúðunum og þá losnar maður við að skafa. A meðan getur maður setið inni í hlýju húsinu, sötrað morgun- kaffið og gluggað í Dag. Það eru líka á markaðnum bíl- ar með upphitaðri framrúðu. Þá kveikir maður á framrúðuhitar- anum og bíður í svolitla stund þangað til farið er að losna um ísinguna og þá er hún einfald- lega þurrkuð af með rúðuþurrk- unum. Einnig er hægt að fá sér- staka tímastillta hitara í bílinn sem eru þá búnir að hita bílinn upp þegar maður sest inn að morgni og ætlar að aka af stað. Þeir kosta hins vegar nokkuð. Rúðuskafan fæst viða Einhvern veginn er það nú þannig að maður áttar sig ekki á því að bíllinn er óökufær sakir ísingar fyrr en maður er búinn að morgunverkunum og ætlar að leggja af stað í vinnuna eða skól- ann, yfirleitt orðinn allt of seinn og bíllinn hvorki með tímastillt- um hitara eða framrúðuhitara. Þegar rúðurnar eru ísaðar og bíllinn kaldur þá duga engar rúðuþurrkur, það þarf eitthvað öílugra. Þá notar maður rúðu- sköfu. Rúðusköfur fást á öllum bensínstöðvum og eru til í fjöl- mörgum útfærslum. Það eru til sköfur sem eru hvorutveggja í senn, kústar og sköfur, það eru til sköfur með hlífðarvettlingum upp undir olnboga, það eru til stórar sköfur og það eru til litlar sköfur. Snjór eða ísing Sköfur þarf við tvær mismun- andi aðstæður. Annars vegar til að skafa þétta ísingu eða klamma af rúðum og hins vegar til að sópa snjó af rúðunum og bílnum. Það væri best að geta fengið eina sköfu sem sameinar þetta tvennt, en því miður getur það reynst þrautin þyngri. Margar af þeim sköfum sem eru á markaðnum eru algert drasl sem brotna og verða ónýtar, oft við fyrstu notk- un. Tiltölulega dýrar sköfur hafa líka reynst tómt pjátur þegar til átti að taka. Líklega er skást að sætta sig við að ekki er hægt að fá eina sköfu fyrir hvoru tveggja og eiga kúst til að sópa snjónum af bíln- um og sérstaka sköfu fyrir ísing- una. Margir fullyrða að bestu sköfurnar séu þær sem eru einna ódýrastar, ferköntuð harð- plastþynna með járnþynnu út úr einni hliðinni. Slíkar sköfur kosta heldur minna en sykur- sætt súkkulaðistykki eða rúmar sextíu krónur og tilfellið er að þær endast ágætlega og eru góð- ar til að skafa ísinguna af. Ágætt að lyftasköfimum að kvöldi Sumir ökumenn nenna ekki að standa í þessu sköfuveseni. Það eru ökumenn bílanna sem eru stundum á ferð í umferðinni með Idammaðar og blindaðar rúður en örlítið gægjugat rétt ofan \áð mælaborðið, ökumenn- irnir sem sitja skakkir í keng og rýna út um þetta litla gat. Það er að sjálfsögðu stórhættulegt og á ekki að sjást. Það er betra að mæta fimm mínútum of seint en komast aldrei á staðinn af því maður nennti ekki að skafa al- mennilega af rúðunni eða tímdi ekki að kaupa sköfu fyrir sextíu- kall þcgar maður tók bensín síð- ast. Svo er ágætt að Iyfta rúðu- þurrkunum þegar gengið er frá bílnum á kvöldin til að losna við að þær séu frosnar fastar við rúðuna að morgni. -OltR

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.