Dagur - 18.11.1997, Page 2
2 -ÞRIDJVDAGUR 1 8.NÓVEMBER 1997
FRÉTTIR
■
HVERFELL VIÐ MYVATN
Myndin umdeilda og skiitið sem vakið hefur upp miklar deiiur. Á innfelldu myndinni má sjá Sólveigu lllugadóttur listakonu.
Vill að myiidin hangi
þar til húsið er rifið
Sveitarstjom Skútustaða-
hrepps hafnar krðfu lista-
iiianns uni að málverk af
Hverfjalli megiekkitaka
niður af vegg í nýlegri
tþróttamiðstöð íReykja-
hlíð nema húsið sé rifið.
Deilur og hókanir uni
málið.
Eins og Dagur hefur greint frá er nafn-
ið á Hverfjalli/felli enn deiluefni og ný-
lega vakti málverk er hreppnum var
gefið úlfúð í Mývatnssveit. Tildrög
málsins eru þau að myndlistarkonan
og Mývetningurinn Sólveig Illugadótt-
ir gaf Skútustaðahreppi málverk af
fjallinu en nokkrum íbúum í sveitinni
þótti felast í því ögrun við skoðanir sín-
ar þar sem neðan úr verkinu hangir í
keðjum stór og hvít plata sem í er
greipt nafnið Hverfell. Til skamms
tíma hékk málverkið uppi í íþróttamið-
FRÉTTAVIÐ TALIÐ
stöðinni í Reykjahlíð, en sveitarstjóri
ákvað að taka það niður eftir kvartanir
frá fólki í sveitinni.
Myndlistarkonaxi mótmælir
í nokkur ár hafa staðið yfir töluverðar
deilur um heiti fjallsins, hvort það heiti
Hverfjall eða Hverfell, og var málið
m.a. sent til umhverfisráðuneytisins
sem ályktaði að eðlilegt væri að vilji
meirihluta landeigenda yrði virtur og
fjallið skyldi bera nafnið Hverfjall. Þeir
íbúar í Mývatnssveit sem telja fjallið
vera Hverfjall voru þ.a.l. ósáttir við það
að nefna fjallið Hverfell og fóru fram á
það við sveitarstjóra Skútustaða-
hrepps, Sigbjörn Gunnarsson, að plat-
an yrði fjarlægð af verkinu.
Þegar Sigbjörn fór þess á leit við Sól-
veigu brást hún ekki vel við. Sagði
plötuna vera óaðskiljanlegan hluta
verksins og yrði hún fjarlægð færi hún
í málsókn við sveitastjórann íyrir hönd
hreppsins. Ekkert varð hins vegar af
málsókninni og lét Sólveig nægja að
senda sveitarstjórn Skútustaðahrepps
bréf þar sem segir m.a. „Málverk mitt
af Hverfelli við Mývatn sem ég afhenti
íþróttamiðstöð Skútustaðahrepps til
eignar 3ja júlí 1997 og staðsett er á
miðjum austurvegg í anddyri má ekki
hverfa af upprunalegum stað og ekki
taka niður nema húsið verði rifið. Ég
mótmæli að áfestur skjöldur verði fjar-
lægður af verkinu."
Ekki orðið við tilmælimum
Oddviti lagði fram tillögu við bréfi Sól-
veigar um að sveitarstjórn Skútustaða-
hrepps gæti ekki orðið við þeim tilmæl-
um hennar um að framansagt yrði
skjalfest en sveitastjórnarmeðlimirnir,
Hjörleifur Sigurðarson og Þuríður Pét-
ursdóttir, lögðu hins vegar fram móttil-
Iögu. Þá að sveitarstjórn harmi bréf
sveitarstjóra sem Sólveigu var sent,
sveitarstjórn samþylvki að draga það til
baka og biðji hana innilega afsökunar.
Um leið þakki það höfðinglega gjöf.
Tillaga Hjörleifs og Þuríðar var felld
með þremur atkvæðum gegn tveimur.
Tillaga oddvita var samþykkt með
þremur samhljóða atkvæðum. — HBG
Eftir prófkjör Sjálfstæðis-
flokkslns í höfuðborginni
þar sem Ámi Sigfússon var
kjörinn leiðtogi listans er
búið að liggja yfir úrslitmn
og hugsa stíft. Innanbúð-
armenn segja að búið sé að
hringja í alla frambjóðend-
ur og spyrja hvort þeir geti ÁrnijSigfússon.
hugsað sér að leggja á sig
þá miklu vimiu sem fylgir því að vera á lista, og
síðan hvort memi hafi það ekki örugglega á
hreinii að prófkjörið hafi ekki vcrið bindandi.
Þetta síðasta þykir mikilvægt því mjög ákveðnar
raddir tala fyrir því að færa alla íyrir neðan
sjötta sæti til. Vandamálið? Það vantar konm.
Og þrálátur orðrómur cr
um að Guðrún Pétursdóttir
verði beðin að fara gegn
vinkonu sinni Ingibjörgu
Sólrúnu á lista Sjálfstæöis-
manna. Gamlir hmidar úr
borgarpólitíkinni mega
ekki heyra það ncfnt! En
illa gengur að fá Guðrúnu
til að segja hreint út NEI.
Það vakti óneitanlega at-
hygli pottverja að sjá það á
ættfræðisíðu DV íyrir helgi
að Þórunn Sigurðardóttir
væri að taka við fram-
kvæmdastjórastarfi fyrir
Reykjavík - menningarborg
2000. Þorgeir Ólafsson
hefur gegnt þessu starfi en
mun á útleið og Þórunn er
að taka við. Hins vegar er fullyrt í pottinum að
hvergi hafi verið búið aö tilkynna um þessi um-
skipti fyrr en þau dúkkuðu upp á ættfræðisíð-
unni. í heita potthium varð þá strax til slagoðr-
ið
la DV - fyrst með fréttirna r“
Þórunn Sigurðardóttir.
Guðrún Pétursdóttir.
Aðalheiður
Jóhannsdóttir
frainkvæmdastjóri Náttúru-
vemdar ríkisitis.
Að öllum líkindum var
goshvemum Geysi hjálpað
með nokhmm tugum kílóa
afsápu sem „duttu“ ofan í
hverínn sl. föstudag á sama
tíma og aðálfundur Ferða-
málasamtaka Suðurlands
stóð yfir.
Útiloka ekki
lögregluraimsókn
— Hvað var þarnu ú ferðinni?
„Við erum að skoða þetta. Það fór maður
frá okkur að líta á kringumstæður við hver-
inn í dag og ég reikna með að hann muni
ekki gefa skýrslu um málið fyrr en á morgun
[í dag.] Fram að því get ég lítið tjáð mig um
málið.“
— En er ekki þarna sannarlega gengið
gegn vilja yfirlýstra sjónarmiða Náttúrn-
vemdar?
,Jú.“
— Þannig að burtséð frá þvt hvort skaði
hefur orðið eða ekki, hlýtur tnálið að vera
litið alvarlegum augum. Hvaða viðhragða
er að vænta?
„Ég á eftir að taka ákvörðun um það í kjöl-
far þessarar vettvangsrannsóknar. Við eigum
eftir að skoða myndir og fleira."
— Hefur verið rætt að vísa málinu til
lögreglu?
„Engin ákvörðun Iiggur fyrir í því efni. Ég
útiloka ekkert en vil fyrst fá að sjá hvað
gerðist."
— Um hvað hefur þetta mál snúist á
liðnum árum? Af hverju má ekki hjáilpa
Geysi ef hann getur ekki gosið sjálfur?
„Það er verið að rannsaka þetta alveg sér-
staklega. Stjórn Náttúrverndar rfkisins sam-
þykti að láta rannsaka hvort hægt væri að
láta Geysi gjósa án þess að nota sápu. Þær
rannsóknir standa yfir og er ekki lokið þeg-
ar þetta gerist núna. Menn hafa í tímans rás
ekki verið sammála um það almennt séð
hvort eitthvað ætti að gera við Geysi eða
leyfa honum bara að vera í friði. Sumir segja
að það sé best en aðrir vilja að honum verði
hjálpað. Nú er verið að athuga hvort hægt
sé að hjálpa Geysi án þess að nota sápu.“
— Vilji heimamanna er væntanlega skýr
í þeim efnum?
„Já, ég myndi telja það. Þeir vilja að Geysi
verði leyft að gjósa í raun og veru með hvaða
ráðum sem er og þar með talið sápu.“
— Hver er persónuleg skoðun þtn á þvt?
„Ég segi ekki mína persónulegu skoðun
heldur vinn ég eftir því sem best er fyrir
stofnunina."
— Hve langt er stðan Geysir gaus af eig-
in hvötum?
„Það er mjög langt síðan. Þau gos sem
menn minnast nú eru sápugos."
— Hvenær var síðast sett sápa ofan t
liann?
„Árið 1991.“
— Hvaða dæmi höfum við í útlöndum
sem hægt er að bera saman við Geysi?
„Við höfum t.a.m. allmörg dæmi frá
Bandaríkjunum um hveri sem hættu að
gjósa. Á hverasvæðinu í Yellowstone Park
gilda mjög strangar reglur og þar hafa menn
t.d. tekið þá ákvörðun að hreyfa ekki við
hverum sem hafa hætt að gjósa. Sumir að-
hyllast þá hugmyndafræði að allir hverir eigi
sinn líftíma og þegar honum sé lokið beri að
virða það. Þeir hafa eftir því sem ég best veit
gert þetta." — bþ