Dagur - 18.11.1997, Page 7
ÞJÓÐMÁL
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 - 7
Áviiuiingiir af
Schengen samstarfi
IJALLPOR
ASGRIMS-
SON
UTANRÍKISRÁÐHERRA
SKRIFAR.
I desember sl. undirrituðu Is-
Iand og Noregur samstarfssamn-
ing við aðildarríki Schengen-
samningsins um afnám persónu-
eftirlits á sameiginlegum landa-
mærum ríkjanna. Aðdragandann
að samstarfssamningnum má
rekja til sameiginlegrar yfirlýs-
ingar forsætisráðherra Norður-
landanna frá því í byrjun árs
1995 um að það þjónaði best
hagsmunum norræna vegabréfa-
sambandsins að Norðurlöndin
hefðu sameiginlega jákvæða af-
stöðu til þátttöku í Schengen-
samstarfinu.
Schengen-samstarfíð
Meginatriði Schengen-samn-
ingsins varðar frjálsa för fólks
um innri landamæri aðildarríkja.
Aðrir þættir samningsins íjalla
einkum um samræmt eftirlit á
ytri landamærum samnings-
svæðisins, samvinnu um vega-
bréfsáritanir, gagnkvæma réttar-
aðstoð, lögreglusamvinnu og
baráttu gegn fíkniefnum og
glæpum.
A ríkjaráðstefnu ESB, sem
lauk í júní sk, náðist samkomu-
Iag meðal aðildarríkja ESB um
að fella Schengen-samstarfið
undir samstarf ESB-ríkja. Jafn-
framt gengust aðildarríki ESB
undir þá skuldbindingu að virða
skyldi samstarfssamninginn við
Island og Noreg. Samningurinn
verður því áfram grundvöllur
framtíðarsamstarfs Islands við
ESB um þau málefni sem falla
undir Schengen-samninginn.
Hins vegar þarf að ganga frá sér-
stökum milliríkjasamningi milli
íslands og Noregs og Schengen-
ríkjanna vegna þeirra breytinga á
Schengen-samstarfinu sem
ríkjaráðstefnan hafði í för með
sér. Samningaviðræðurnar hefj-
ast von bráðar og er afstaða Is-
lands og Noregs ljós. Stjórnvöld
beggja ríkja leggja áherslu á að
tryggja þurfi fulla þátttöku í allri
umræðu um Schengen-málefni
innan ESB og að stofnanir þess
geti ekki gegnt sama hlutverki
gagnvart íslandi og Noregi ann-
ars vegar og aðildarríkjum ESB
hins vegar. Onnur Norðurlanda-
ríki hafa lýst fullum stuðningi
við kröfur Islands og Noregs og
kom sá stuðningur berlega í Ijós
á nýafstöðnu Norðurlandaþingi.
Stefnt er að því að Schengen-
samningurinn taki gildi gagnvart
Norðurlöndunum síðari hluta
ársins 2000.
Norræna vegabréfasamband-
ið varðveitt
Ein meginforsenda fyrir þátttöku
Islands í Schengen-samstarfinu
var varðveisla hins norræna
vegabréfasambands. Norræna
vegabréfasamstarfið hefur verið
við lýði í rúm 40 ár og felur í sér
að ekkert persónueftirlit er með
norrænum ríkisborgurum á
landamærum Norðurlandanna.
Hefur norræna vegabréfasam-
bandið gengið sérstaklega vel og
er einn þýðingarmesti ávinning-
ur norræns samstarfs. Hefðu
samningarnir við Island og Nor-
eg um þátttöku f Schengen-sam-
starfinu ekki náðst hefði nor-
ræna vegabréfasambandið verið
úr sögunni, þar sem Danir, Finn-
ar og Svíar eru þátttakendur í
Schengen-samstarfinu. Islenskir
ríkisborgarar hefðu því þurft að
sæta persónueftirliti á landa-
mærum Schengen-ríkjanna, þ. á
m. Norðurlandanna, með til-
heyrandi fyrirhöfn og biðröðum
á evrópskum flugvöllum. Er
óþarft að fjölyrða um hvaða
óþægindi það myndi hafa í för
með sér fyrir íslenska ferða-
langa. Það má því segja að með
tilkomu samstarfssamnings Is-
Iands og Noregs við Schengen-
ríkin hafi norræna vegabréfa-
sambandið verið bæði útvíkkað
og eflt.
Ábrif á ferðamaimastraum
Schengen-samstarfið snýst ekki
einungis um þægindi í ferðalög-
um íslendinga, heldur einnig
aðra mikilvæga þætti.
Óhætt er að fullyrða að ferða-
mannastraumur til íslands muni
minnka standi Island utan
Schengen-samstarfsins í fram-
tíðinni. Stór hluti Evrópumanna
ferðast til landa innan
Schengen-svæðisins í sumarleyf-
um sínum og ferðast aldrei til
Ianda utan þess. Þeir geta ferð-
ast þangað án vegabréfs og
Það er firra að
halda þvi fram að
það hafi ekki áhrif á
val fjögurra maniia
evrópskrar fjöl-
skyldu á sumarleyf-
isstað að þurfa að
greiða jafnvirði
u.þ.b. tuttugu þús-
uud króna fyrir út-
veguu vegahréfa
þegar hægt er að
komast hjá slíkum
kostnaði og fyrir-
höfn með því að
kjósa sumarleyfi
imian svæðisins.
óþarfi er fyrir þá að eiga það. Til
þess að geta ferðast til Islands
þyrftu viðkomandi hins vegar að
útvega sér vegabréf með tilheyr-
andi kostnaði og fyrirhöfn. Það
er firra að halda því fram að það
hafi ekki áhrif á val fjögurra
manna evrópskrar fjölskyldu á
sumarleyfisstað að þurfa að
greiða jafnvirði u.þ.b. tuttugu-
þúsund króna fyrir útvegun
vegabréfa þegar hægt er að kom-
ast hjá slíkum kostnaði og fyrir-
höfn með því að kjósa sumarleyfi
innan svæðisins. Enn fremur
vaknar upp sú spurning hvort
ekki sé þægilegra fyrir bandar-
íska ferðamenn á leið til Evrópu
að innrita sig inn á Schengen-
svæðið í lítilli flugstöð á Islandi
fremur en að bíða í biðröðum á
stórflugvöllum í Evrópu.
Eftirlit eykst
I umræðunni hér á landi hefur
því oft verið haldið fram að þátt-
taka í Schengen-samstarfinu
muni stuðla að auknu fíkniefna-
smygli til landsins þar sem allt
eftirlit með ólöglegum innflutn-
ingi á fíkniefnum frá Schengen-
ríkjum muni leggjast af. Slíkar
fullyrðingar eiga ekki við nein
rök að styðjast og eru beinlínis
rangar. Samstarfssamningurinn
tekur ekki til vörusviðsins og
leiðir samningurinn ekki til
neinna breytinga á eftirliti með
smygli á fíkniefnum til landsins.
A hinn bóginn má segja að
samningurinn leiði til hertara
eftirlits á þessu sviði þar sem
hann gerir það að verkum að eft-
irlitsmenn á íslandi munu hafa
beinan aðgang að skráðum upp-
lýsingum um glæpamenn, fíkni-
efnasala og -smyglara. Einnig er
í samningnum lögð mikil áhersla
á samstarf milli lögregluyfirvalda
í aðildarríkjunum með það að
meginmarkmiði að uppræta
ólögleg viðskipti með fíkniefni.
Slík samvinna er íslenskum lög-
regluyfirvöldum nauðsynleg í
baráttu við skipulagða glæpa-
starfsemi sem virðir engin landa-
mæri.
Pólitísk ábrif
Schengen-samstarfið hefur
einnig mikla pólitíska þýðingu
fyrir Island. Það er mjög mikil-
vægt fyrir ísland, sem er háð
milliríkjaviðskiptum í eins ríkum
mæli og raun ber vitni, að eiga
sem nánust og vinsamlegust
samskipti við nágrannaþjóðir
sínar. Gagnstætt því sem sumir
höfðu spáð hefur þýðing Norð-
urlandasamstarfsins fyrir íslend-
inga aukist við inngönguna í
EES og eiga Norðurlöndin með
sér náið samstarf á sviði Evrópu-
mála. Það hefði mjög neikvæð
áhrif á norræna samvinnu ef ís-
land og Noregur stæðu utan við
Schengen-samstarfið og myndi
jafnvel Ieiða til einangrunar
landanna á norrænum vett-
vangi. Aðildin að Schengen-sam-
starfinu tryggir varðveislu nor-
ræna vegabréfasambandsiris og
styrkir Norðurlandasamstarfið
því enn frekar.