Dagur - 18.11.1997, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 - 9
ingarklessur?
.R er eigandi eiiefu þeirra 25 verka sem Ríkislögreglan kannar nú hvort séu falsanir.
hveijir hafi staðið fyrir því. Aug-
ljóslega hefur listaverkamarkað-
urinn orðið varhugaverðari vegna
þessara mála, en á hinn bóginn
tel ég að ef fólk fer að snúa sér í
meira mæli en hingað til að lif-
andi listamönnum má tala um
ljós í myrkrinu,“ segir Eiríkur.
Listasafn Islands á eina þeirra
mynda sem kærðar hafa verið,
Kjarvalsmálverk, en forstöðumað-
ur LÍ, Ólafur Kvaran, vildi Iítið tjá
sig um málið meðan það væri í
rannsókn. „Eg get þó tekið undir
að það er gríðarlega mikilvægt að
fá niðurstöður í málinu sem fyrst.
Ég tel ákaflega æskilegt að fá
þetta mál hreinsað út og ef það
skyldi vera að Listasafn Islands
eigi eina falsaða mynd þá er það
einni mynd of mikið. Og auðvitað
áfall, en hafa ber þó í huga að
safnið á um átta þúsund myndir,"
segir Ólafur Kvaran.
Átti bnumuriim að vera
byrgður?
Vísbendingar um falsanir og að
nafn Gallerís Borgar tengist
meintum fölsunum eða slöku eft-
irliti með upprunaferli verka leið-
ir hugann nokkur ár aftur í tím-
ann, þegar Gallerí Borg fékk
Pressuna dæmda í meiðyrðamáli.
I grein í Pressunni var einmitt
fjallað um meintar falsanir og til-
búnar rannsóknir á verkum hjá
Gallerí Borg og voru blaðið og
Kristján Þorvaldsson, ritstjóri
þess, dæmd í háár sektir auk þess
sem fullyrðingar voru dæmdar
dauðar og ómerkar. Hvað segir
Kristján um nýjustu tíðindi - er
hann að íhuga kröfu um endur-
upptöku málsins?
„Ekki að svo stöddu. Ég sé ekki
að réttarfarið á Islandi hafi lagast
frá þessum tíma. Og ég sé ekki að
samtök blaðamanna hafi nokkurn
áhuga á því að bakka blaðamenn
upp í svona málum. Menn eru
einir og blankir í meiðyrðamál-
um,“ segir Kristján.
I þessu sambandi er rétt að geta
þess að núverandi Gallerí Borg í
höndum Péturs Þórs er ekki sama
Gallerí Borg og Úlfar Þormóðs-
son var með. Gallerí Borg Ulfars
var úrskurðað gjaldþrota í maí sl.,
en áður hafði nafni fyrirtækisins
verið breytt í „Málverk og list-
munir ehf.“ Auk Ulfars sátu í
stjórn hins gjaldþrota félags þeir
Pétur Þór Gunnarsson og Ragnar
Arnason.
Við ljúkum þessari umíjöllun
með orðum Péturs Þórs Gunnars-
sonar um þann lærdóm sem
draga má af málinu og viðbrögð
Ólafs Inga við hinu sama. „Þetta
írafár hefur þó leitt eitt gott af
sér; við munum í framtíðinni
passa betur en hingað til upp á
eigendasögu og upprunaferil
verka. Þetta er hlutur sem ein-
faldlega hefur ekki verið uppi á
borðinu hér á landi og við ekki
haft grun um að svona gæti kom-
ið upp,“ segir Pétur Þór.
„Það er ankannalegt að Pétur
tali eins og að svona mál hafi ekki
verið uppi á borðinu hér á landi
áður. Mál í þessa veru, sem
tengdust Gallerí Borg, hafa kom-
ið upp í fjölmiðlum og maður ætl-
ar að brennt barn forðist eldinn.
Þau vafamál hefðu átt að kenna
þeim að örugg eigendasaga sé
besta vörnin til að fyrirbyggja
hugsanlegt skaðabótamál. í þessu
máli hefur komið í ljós að sjö
mánuðir hafa ekki dugað Gallerí
Borg til að finna í sínum skrám
nöfn hluta þessara seljenda," seg-
ir Ólafur Ingi.
J
Viljir þú skila
vönduðu
verki þá
velur þú
ESAB
Allt til rafsuðu
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
Veislunnar í
Akóges-salnum
frá 21. nóvember 1997.
Akógessalurinn 1 Sóltúni 3 og
Veislan-veitingaeldhús á Seltjarnarnesi
verða með jólahlaðborð fyrir almenning á
föstudags- og laugardagskvöldum frá
og með 21. nóvember í ár
Lriæsnegtjoianlaðborð þar sem
áralöng reynsla fagfólks
mun njóta sín.
Skiptir ekki máli hvort í
hópnum eru 2 eða 200.
Lifandi tónlist á staðnum og
//G/mar- Œ. //ónsson
matreiðslumeistari
aðstoðar ykkur við hlaðborðið.
Möguleiki er að óska eftir dansi fram á nótt.
Borðapantanir í síma 5612031
Góða skemmtun!
Veislan veitingaeldhús
Œnj/t/an //uxfmuncísjson/
matreiðslumeistari
Akógessalurinn
Œenec//Át Œac/m ann
veitingamaður
VEISLAN
VErnNttAKLDHÚS