Dagur - 26.11.1997, Page 11
MIBVIKUDAGUR 2 6 .NÓVEMB ER 1 997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
L U
ElNino
DAGUR
ÞORLEIFS
SON
skrifar
Breytingar á veðurfari af völdum
hlýnunar í sjó á Kyrrahafi, sem
nefndar eru EI Nino og verða yf-
irleitt með 3-8 ára millibili, geisa
enn og ætlan ýmissa veðurfræð-
inga er að fyrirbæri þetta verði
að þessu sinni magnaðra en
nokkru sinni fyrr á öldinni.
Svæsnastur hefur E1 Nino
hingað til orðið 1982-83, svo vit-
að sé með vissu. Þá létu um
2000 manns lífið af völdum hans
og efnalega tjónið sem hann olli
þau árin er metið á sem svarar
um 900 milljörðum ísl. kr. En
einhverjir vísindamenn eru farn-
ir að kalla núverandi EI Nino
„atburð aldarinnar hvað loftslagi
viðvíkur" og spá því að hann
muni halda áfram a.m.k. til vors
1998.
„Sveinbamið“
EI Nino er spænska og þýtt
„drengurinn" eða „sveinbarnið."
Munu fiskimenn í Perú hafa gef-
ið veðurfyrirbærinu nafn þetta,
en þegar á 17. öld höfðu þeir
veitt því athygli og þar með að
það hófst oftast um jólin. Og
sveinbarn það sem fiskimennirn-
ir hér áttu við er sem sé Jesú-
barnið.
EI Nino kemur fram þegar
austanstæðir staðvindar hægja á
sér yfir Kyrrahafi vestanverðu,
skipta smám saman um stefnu
og reka þá með sér hlýjan sjó og
regn til austurs. Þetta verður til
þess að minna rignir í Ástralíu og
Suðaustur-Asíu en venjulegast
er. I Rómönsku Ameríku rignir
þar á móti meira en venjulega og
þar verður heitara en algengast
er.
Hlýr sjór næst yfirboröi vestan
Ameríku hefur þær afleiðingar
að kaldari sjór er inniheldur
meiri næringu en sá hlýi kemst
ekki upp á yfirborðið. Það kemur
niður á fiskistofnunum og dýr-
unum sem á þeim lifa, en þau
eru einkum fuglar og menn.
E1 Nino lætur meira eða
minna á sér kræla um allan
hnöttinn, einna minnst í Evr-
ópu, en í norðanverðri þeirri álfu
hefur þetta varla önnur áhrif en
að með hlýrra móti verður í
veðri, bæði vetur og sumar. Oðru
máli gegnir um aðrar heimsálfur.
Fyrirhyggja og fyrirhyggju-
leysi
Ástralía og Suðaustur-Asía urðu
fyrst fyrir barðinu á EI Nino að
þessu sinni sem oftar. Veður-
fræðingarnir höfðu með tölvu-
tækni fyrir löngu áttað sig á
hverskonar veðri við var að búast
og í Ástralíu bjuggu menn sig
undir þurrkana eftir föngum.
Bændur seldu kvikfénað og
breyttu um fyrirætlanir í akur-
yrkju. Þetta bar þann árangur að
Ástralía hefur sloppið til þess að
gera vel frá E1 Nino. Á allt ann-
an veg fór það í Indónesíu. Þar
héldu menn áfram að brenna
skóg að vanda í ýmsum tilgangi,
og vegna þurrkanna leiddi það til
gífurlegra skógarelda, sem náðu
hámarld í september. Nú er farið
Baksvið
að rigna þar svo að verulega hef-
ur dregið úr eldunum og reykjar-
svælunni frá þeim, en ennþá
logar í lögum af mó á svæði sem
Himgursneyð vofír
yfír í Indónesíu og á
Nýju Gíneu af völdum
E1 Nino og stórtjón
hefur hlotist af veð-
urfyrirhæri þessu í
Austur-Afríku.
er um milljón hektarar að stærð.
Hrísgrjónauppskeran þarlend-
is brást vegna þurrkanna og
svælunnar, matarskortur er þar
því þegar orðinn verulegur og
hefur valdið hundruðum dauðs-
falla. UNESCAP, nefnd á vegum
Sameinuðu þjóðanna sem fjallar
um efnahags- og félagsmál í
Asíu, spáir að innan þriggja til
fjögurra mánaða verði skollin á í
Indónesíu mikil hungursneyð, er
verði skæðust börnum og leiði til
þess að smitandi sjúkdómar
brjótist út á eyjum þeim er harð-
ast verði úti.
Barist við krókódila
I austanverðri Afríku hefur E1
Nino um rúmlega mánaðarskeið
gert vart við sig með gífurlegum
rigningum sem valdið hafa flóð-
um er sópað hafa burt með sér
brúm, vegum og húsum, sérstak-
lega f Kenýu og Sómalíu. I fyrr-
nefnda landinu hafa tugir
manna faríst í flóðunum og tvö
fljót sunnan til í Sómalíu,
Shabelle og Juba, hafa flætt yfir
bakka sína með þeim afleiðing-
um að fólk þar á í stríði, bókstaf-
lega talað, við krókódíla og
vatnahesta sem færa út kvíarnar
um leið og fljótsbakkarnir færast
í kaf, og slöngur, sem keppa við
mennina um bletti sem standa
upp úr. Eða svo segir Said Morg-
an, titlaður hershöfðingi, einn
margra stríðsherra þarlendis.
Talið er að í Sómalíu hafi um
800.000 manns þegar misst
heimili sín af völdum flóðanna,
ekki er búist við að þar stytti upp
í bráð og óttast er að kólera og
malaría brjótist þar út, vegna
skorts á hreinu drykkjarvatni.
Hungursneyð er talin vofa yfir
af völdum E1 Nino á Nýju Gíneu
og sumir kenna honum a.m.k. að
nokkru um hungursneyðina í
Norður-Kóreu, sem mótsagna-
kenndar fréttir berast stöðugt af
en ýmsir ætla að þegar hafi orð-
ið um milljón manns að bana.
Veðurstofa Japans hélt því að
vísu fram nýlega að E1 Nino
hefði e.t.v. náð hámarki í októ-
ber, en margir eru á öðru máli og
í Bandaríkjunum vestanverðum
búast menn við að E1 Nino fari
fyrst að láta verulega á sér kræla
þar í desember eða janúar og
verði umsvifamestur í síðar-
nefnda mánuðinum og í febrúar
og mars. Muni þá rigna helmingi
meira í Kaliforníu en algengast
er. Það muni, líkt og í Austur-
Afríku, hafa í för með sér skriðu-
föll og flóð. Þar vestra búa menn
sig nú sem best undir það að
mæta þeim náttúruhamförum og
gera sér sæmilegar vonir um að
þannig megi koma í veg fyrir
stóráföll af völdum þeirra.
Verðhnm verðbréfa í Asíu
JAPAN - Gjaldþrot japanska verðbréfafyrirtækisins Yamaichi olli í gær
verðhruni á verðbréfamörkuðum um alla Asiu. Hvort sem litið var til
Tókíó eða Hongkong, Singapúr eða Seúl, þá höfðu verðbréf hrapað í
verði um allt að eða meira en fimm prósent. Nokkur ótti var um að
verðhrunið myndi breiðast út til verðbréfamarkaða á Vesturlöndum.
Jeltsín ætlar að halda í Tsjubaís
RÚSSLAND - Boris Jeltsín, forseti Rússlands,
fullyrti í gær að hann myndi ekki víkja Anatólí
Tsjúbaís úr embætti aðstoðarforsætisráð-
herra, en í síðustu viku var Tsjúbaís rekinn úr
embætti ijármálaráðherra vegna hneykslis-
máls þar sem hann var grunaður um að hafa
þegir mútur í formi hárrar greiðslu fyrir bók
frá útgáfufyrirtæki. Margir töldu að Jeltsfn
hefði í hyggju að láta Tsjúbaís fjúka alveg þeg-
ar frá liði, en Tsjúbaís er einn aðalhugmynda-
fræðingur og hvatamaður markaðsumbótanna Anatólí Tsjúbafs.
sem mælst hafa mjög misjafnlega fyrir meðal
almennings í Rússlandi.
Gámaftutnmgaskip hrotnaði í tvennt
AZOREYJAR - 290 metra langt ítalskt gámaflutningaskip, MSC
Carla, brotnaði í tvennt skammt utan við Azoreyjar f óveðri sem gekk
þar yfir í fyrrinótt. Áhöfn skipsins, alls 34 menn, hafði komist aftur í
skut skipsins og í gær var verið að flytja þá smám saman af skipinu
með þyrlu, en mikið hvassviðri var enn sem gerði þyrlunni erfitt fyrir
við björgunina. Mikil hætta var á að skipið myndi sökkva.
Þarf að reka á eftir trössunum
BANDARÍKIN - Einungis 12 af 20 stærstu fiskveiðiþjóðum heims
hafa ekki enn undirritað fiskveiðisamning Sameinuðu þjóðanna, og
þar af hafa aðeins Bandaríkin, Rússland, Noregur og ísland bæði
undirritað og staðfest hann. Og þótt 59 ríki alls hafi undirritað sátt-
málann hafa enn ekki nema 15 þeirra staðfest hann. Alþjóða náttúru-
sjóðurinn (WWF) hvatti f gær Allsherjarráð SÞ til þess að reka á eft-
ir þeim ríkjum sem enn eiga eftir að undirrita eða staðfesta samning-
inn.
Persson fagnar rannsóMi
Göran Persson.
SVÍÞJÓÐ - Göran Persson segist fagna þingrannsókn á hugsanlegri
misnotkun hans á flugvélum, bæði í eigu ríkisins og leiguvélum, en
háværar umræður hafa verið í Svíþjóð undanfarna daga um meinta
misnotkun hans á almannafé í flugferðum. Dagblaðið Expressen hef-
ur skýrt frá því að hann hafi tvisvar notað leiguþotu til New York og
einu sinni til Englands, f staðinn fyrir að nota flugv'él í eigu ríkisins
til þeirra ferða. Þá hafi hann og fjölskylda hans ferðast með ríkisvél-
um til Italíu og Spánar. Sjálfur fullyrðir Persson að ekkert hafi verið
óeðlilegt við þessar ferðir.
Astrid Lindgren snæðir með Jeltsín
SVÍÞJÓÐ - Barnabókarithöfundurinn ástsæli, Astrid Lindgren, mun
snæða hádegisverð með Boris Jeltsín Rússlandsforseta í næstu viku
þegar hann verður á ferð í Svíþjóð. Lindgren er vinsæl í Rússlandi
eins og víðar um heiminn, og frú Naína Jeltsín, eiginkona forsetans,
hefur sagt að hún vilji endilega hitta hana. Henni var því boðið til há-
degisverðar með lbrsetahjónunum ásamt Göran Persson forsætisráð-
herra Svíþjóðar, og sagðist í gær hafa þegið það boð.