Dagur - 06.12.1997, Síða 8

Dagur - 06.12.1997, Síða 8
8- LAUGARDAGUR 6.DESEMBER 1997 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 - 9 FRÉTTASKÝRING Bióraðir myndast og siminn þagnar ekki. Vel á annað þúsund heimila reiða sig á að fá föt og mat gefins til að geta haldið jólin hátíðleg. Hér má sjá starfsmenn Rauða krossins taka á móti fatagjöfum. - mynd: þök Fyrir flesta lands- meiiii er það ekkert tiltökumál að kaupa ný föt og kaupa góðan mat fyrir jólin. En þrátt fyrir góðæri þurfa þúsundir lands- manna að reiða sig á aðstoð samborgaranna til að jólahaldið geti orðið gleðirík sam- verustund. Líknarsam- tök og félagsmála- stofnanir eru umsetn- ar nú og næstu vikur. Islensk heimili, sem þurfa félags- Iega aðstoð og þá ekkí síst um jól- in, skipta ekki lengur tugum, heldur mörgum hundruðum og einstaklingarnir um leið þúsund- um. Þrátt fyrir vaxandi góðaeri í efnahagslífinu virðist stór hluti þjóðarinnar hafa verið skilinn eft- ir í fátækt, veikindum og basli. Þetta fólk sér sig knúið til að leita sér aðstoðar til að sjá sér og sín- um farborða - og á litla möguleika til að halda gleðileg jól nema að fá mat og föt gefins. Neyðin kennir naktri konu að spinna og knýjandi nauðsyn ýtir smám saman til hliðar rótgróinni andúð á því að þurfa að leita til samborgaranna um „ölmusu". En svo er líka til fólk sem vílar ekki fyrir sér að nýta sér allar smugur og þekkir öíl félagsleg úrræði, þótt það þurfi sannarlega ekki á þeim að halda. Fólk sem eyðir bótum sínum í áfengi og tóbak en fer síðan á skrifstofur félagsmála- stofnana eða nær í hangikjöt hjá Mæðrastyrksnefnd fyrir jólin. Um það fólk verður ekki fjallað hér. Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 8. desember 1996 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Ásta Sigurðardóttir og Þórarinn B. Jónsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem að- stæður leyfa. Síminn er 462 1000. Aðstoðin stokkuð upp vegna ásóknar Nokkur samtök eru með um- fangsmikla aðstoð við fólk í vanda árið um kring og mikla aðstoðar- útgerð fyrir jólin. Umfangsmesta aðstoðin felst í samvinnu Hjálp- arstofnunar kirkjunnar (HSK), Rauða kross Islands og Caritas á Islandi (sem er félagsskapur kaþ- ólikka). Jónas Þ. Þórisson, fram- kvæmdastjóri HSK, segir í sam- tali við Dag að í fyrra hafi 1.250 manns í vanda leitað aðstoðar og þar af um 800 í desember eða um og fyrir jólin, en þá er aðstoð bundin við matarúthlutun. „Það eru allar líkur á því að að- sóknin í aðstoð fyrir jólin verði síst minni í ár en í fyrra og jafnvel þvert á móti miðað við þær vís- bendingar sem Iiggja þegar fyrir. Þetta kemur betur í ljós á næstu dögum, en því miður er þegar Ijóst að ásóknin hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin. Það eru ekki síst öryrkjar og annað veikt fólk sem mest þurfa á aðstoð okkar að halda, enn fleiri en atvinnulaust fólk og einstæðir foreldrar," segir Jónas. Svo mikið hefur þörfin fyrir að- stoð vaxið að HSK sá sig knúna til að loka í íjóra mánuði í ár til að stokka upp skipulag hjálparstarfs- ins innanlands. Sérstakur félags- ráðgjafi hefur verið ráðinn í hálft starf, Elínborg Lárusdóttir, og var ákveðið að efna í fyrsta skiptið til sérstakrar fjáröflunar fyrir innan- Iandsaðstoð. HSK hefur fram á síðustu ár einbeitt sér að líknar- starfi erlendis, en í fyrra var svo komið, eftir 55% raunaukningu á hjálparumsóknum, að verkefni innanlands fóru upp í 22% af ráð- stöfunarútgjöldum HSK. „Létta neyð og vinna gegn böli“ Mæðrastyrksnefnd er ár hvert með mikla starfsemi fyrir jólin og þar þekkir Unnur Jónasdóttir hvern krók og kima. „Við opnuð- um fyrir fataúthlutun á miðviku- dag og aðsóknin var svo mikil að það var fullt út fyrir dyr. Matarút- hlutun er ekki byijuð, en síminn hringir samt stanslaust og þagnar ekki. Það virðist ætla að vera Iítil breyting frá því í fyrra, en þá hafði aldrei verið eins mikið að gera við að úthluta mat fyrir jól- in,“ segir Unnur. Unnur segir að fólk fái matar- miða eða sæki sér föt og að í fyrra hafi á bilinu 1.200 til 1.400 heimili fengið annað hvort eða bæði hjá Mæðrastyrksnefnd. „Þetta verður ekki minna í ár. Eg merki það á ýmsu. Þannig er at- vinnuleysi kvenna í Reykjavík 5,3%. Það er mikið af lands- byggðarfólki að koma til höfuð- borgarsvæðisins og þar eru marg- ir sem eiga erfitt með að koma sér fyrir. Það er mikið um skilnaði og margar konur sem eiga um sárt að binda. Oryrkjar og veikt fólk býr við mikinn lyfjakostnað og læknisþjónustu sem aldrei hefur verið dýrari. Og margt fólk þarf að sætta sig við afar léleg Iaun, sem duga ekki fyrir nauðþurftum heimilisins. Það er mikill vandi í þjóðfélaginu," segir Unnur. Þá er nokkuð ljóst að nú sem fyrr verður nóg að gera hjá prest- um í desember, ekki bara vegna almenns helgihalds, heldur og í sálgæslunni í kringum jólin. At- hygli vakti þegar Karl Sigur- björnsson var vígður sem nýr biskup Islands hversu afdráttar- lausa áherslu hann lagði á mann- úðar- og Iíknarmál í vígsluræðu sinni og er ástæða til að rifja upp eftirfarandi ummæli hans: „Við skulum... taka á móti honum er hann verður á vegi í þeim sem hjálparþurfi er. Finna til með þeim sem þjást. Samfagna þeim sem gleðjast. Leita leiða til að verða að liði, Iétta neyð og vinna gegn böli. Þannig mælir Kristur sér móts við okkur nú.“ Það er til fátækt í þjóðfélag- inu Mikið af fólki leitar til kirkjunnar um úrlausn sinna andlegu og ver- aldlegu vandamála og kannski hefur biskupinn nýi hlýtt vand- lega á forstöðumann Fjölskyldu- þjónustu kirkjunnar (FK), sem hefur varað við að framtíð FK sé jafnvel í hættu vegna skerðinga á fjárframlögum, en margar Ijöl- skyldur eru á biðlista FK eftir að- stoð. Forstöðumaðurinn, Þor- valdur Karl Helgason, hefur nú verið ráðinn sem biskupsritari, en Þorvaldur sagði að kirkjan ætti „að fara sér hægt í stundargleði framkvæmda og fjárfestinga þar sem framtíðarsýn skortir. Frekar ætti hún að einbeita sér að því að fjárfesta enn meira í fyrirbyggj- andi starfi, uppbyggilegum gleði- ríkum samverum, glæða fjöl- skyldulíf heimila með enn meira samstarfi og samtali." Og hann bætti við: „Okkur hefur fundist að misskipting fari vaxandi í þjóðfélag- inu og að samfélagið sé að verða harðara en það var. Alls staðar eru skilaboðin um að menn eigi að bjarga sér sjálfir.“ Hvað sem þessum skilaboðum líður þá eru ýmsir til að leggja hönd á plóg og það reynir ekki bara á sjálfboðaliðasamtökin um jólin. Hjá félagsmálastofnunum hins opin- bera er líka „traffík", þótt hún ein- skorðist ekki við jólahaldið. Marta Bergmann, félagsmálastjóri Hafnar- fjarðar: „Það er í sjálfu sér ekki meira að gera hjá okkur nú fyrir jól- in, en það er hins vegar gjarnan þungt í janúar og febrúar. Við telj- um okkur verða vör við að atvinnu- ástandið sé að lagast, en hitt er ann- að mál að það eru ákveðnir hópar sem sitja eftir. Þannig lagast ástand- ið lítið hjá einstæðum mæðrum í láglaunastörfum þótt hjólin rúlli á Grundartanga. Það eru ákveðnir hópar sem eru ekki samkeppnisfær- ir á samkeppnisvinnumarkaði og í láglaunastörfunum duga launin ekki fyrir framfærslunni - endar ná ekki saman hjá fullvinnandi fólki í þessu þjóðfélagi í dag,“ segir Marta og bætir við: „Það er fátækt í okkar þjóðfélagi f dag.“ FRÉTTIR Nónhressing! Heilsuleikskólinn Skólatröð i Kópavogi hefur staðið að gerð sérstaks bæklings um heilbrigða síðdegishressingu. Að sögn Unnar Stefánsdóttur leikskólastjóra vilja menn kalla þetta „nónhressingu" frekar en síðdegiskaffi, enda drekki víst fæst börn kaffi. í bæklingnum er kynntur átta vikna matseðill með heilsusamlegu fæði og í gær kom tiginn gestur í heimsókn á Skólatröð til að fá sér nónhressingu með krökkunum, en það var Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra. - mynd: eól. Olíuhreinsistöð í Skagafjörð? hversu þröngur fjörðurinn væri og óheppilegri fýrir skip sem flytja mundu olíuna til landsins, en þau væru gífurlega stór, eða allt að 400 metra löng. Steinunn Hjartardóttir, forseti bæjarstjórnar Sauðárkróksbæjar, segir að það sé hið besta mál ef til Skagafjarðar kæmi svo stór vinnustaður sem raun bæri vitni en gæta verði fyllstu mengunar- varna. Auk beinna starfa við verksmiðjuna skapar hún all- mörg þjónustustörf. „Ef af verður tekur þessi verk- smiðja ekki til starfa fyrr en kringum árið 2010 og það hlýtur að vera hægt að ganga svo frá öllum endum fyrir þann tíma að ekkert umhverfisslys verði. Helsta mengunarhættan er af flutningsleiðinni fram og til baka en það er hægt að ganga frá verksmiðjunni þannig að hún mengi ekki umhverfið. Hægt verður að nota heita vatnið hér til eimingar sem er stór hluti starfseminnar," sagði Steinunn Hjartardóttir. — GG Grunnskólar Hafnarfjarðar Kennarar - Kennarar Kennara vantar við Setbergsskóla frá áramótum. Um er að ræða kennslu á unglingastigi. Upplýsingar gefur skólastjóri, Loftur Magnússon í síma 565 1011. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. Atvi n na Óska eftir skrifstofumanneskju í 50% starf upp úr áramótum. Bókhaldsfærsla og sölumennska. Uppl. í síma 461 2258, fyrir jól. Frá Bókaútgáfunni Skjaldborg og Sögufélagi Eyfirðinga Afgreiðslutími til jóla Afgreiðslan Furuvöllum 13 verður opin frá kl. 12 til 18 alla daga nema sunnudaga til jóla. Mikið úrval bóka á góðu verði. Bókaútgáfan Skjaldborg og Sögufélag Eyfirðinga Furuvöllum 13, Akureyri, sími 462 4024 Iðnaðarráðherra, Finnur Ingólfsson, telur Skagafjörð álit- legan kost fyrir olíu- hreinsistöð á vegum bandarísks/rússnesks fyrirtækis, verði ákveðið að hyggja ál- ver við Reyðarfjörö. Iðnaðarráðherra sagði á fundi á Sauðárkróki nýverið að strax í byrjun næsta árs muni Iiggja fyr- ir forhagkvæmnisathugun á byggingu olíuhreinsistöðvarinn- ar. Iðnaðarráðherra taldi Skaga- Ijörð um margt vera heppilegan kost fyrir slíka stóriðju, m.a. vegna þess hversu djúpur hann er. Stöðin yrði að uppfylla ströngustu kröfur Evrópusam- bandsins um mengunarvarnir. T.d. væri Reyðarljörður að hans mati Iakari kostur vegna þess Þrír á heims- meistaramótið Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson og Helgi Ass Grétarsson taka þátt í heimsmeistaramótinu i skák sem hefst eftir helgi. Jóhann Hjartarson, Margeir Pét- ursson og Helgi Áss Grétarsson taka allir þátt í heimsmeistara- mótinu í skák sem hefst í Hollandi í næstu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem Islendingar eiga þrjá fulltrúa á heimsmeistara- mótinu. Mótið verður að þessu sinni með útsláttarfyrirkomulagi. I fyrstu umferð eigast við 68 skák- menn í 34 einvígum. Tefld verða tveggja skáka einvígi. Mótinu lýkur með einvígi um sjálfan heimsmeistaratitilinn sem hefst 2. janúar. Allir sterkustu skák- menn heims eru á meðal kepp- enda, að undanskildum Garri Kasparov sem féllst ekki á skil- mála Alþjóðaskáksambandsins. I fy'rstu umferð teflir Jóhann við Sulskis frá Litháen, Margeir við Oll frá Eistlandi og Helgi við Illescas frá Spáni. Jóhann er tal- inn eiga mesta möguleika á að komast áfram í aðra umferð, en andstæðingar Margeirs og Helga Ass eru meðal stigahæstu stór- meistara heims. Dagvist barna Daggæsluráðgjafi Staða daggæsluráðgjafa á daggæsludeild skrifstofu Dagvistar barna er laus til umsóknar. Um fullt starf er að ræða. Starfssvið • Umsjón og eftirlit með starfsemi dagmæðra í Reykjavík • Ráðgjöf og stuðningur við dagmæður og foreldra • Skipulagning fræðslu og námskeiðahalds fyrir dagmæður • Umsjón með daglegu starfi á daggæsludeild Menntunar- og hæfniskröfur • Leikskólakennaramenntun eða önnur sambærileg menntun • Skipulags- og stjórnunarhæfileikar • Hugmyndaauðgi og sjálfstæð vinnubrögð Umsóknarfrestur er til 20. desember 1997. Nánari upplýsingar veitir Steinunn Hjartardóttir þjónustustjóri. Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 563 5800

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.