Dagur - 06.12.1997, Blaðsíða 16
T
4
| Sfy
Mögnuð heimkoma
islenskur ljósmyndari kemur heim eftir langa dvöl í Ástralíu og hefur meðferðis ösku foreldra sinna sem hann
hyggst búa hinstu hvílu. Heimkoman verður hins vegar söguleg. Hann dregst inn í furðulegar flækjur íslenskrar
réttvísi og er á tímabili sakaður bæði um kynferðisofbeldi og eiturlyfjasmygl. Þetta setur af stað hraða og spennandi
atburðarás sem berst vítt og breitt um landið.
Listilega skrifuð, myndræn og spennandi bók eftir einn af
vinsælustu höfundum okkar, full af leiftrandi húmor, nýstárlegri
sýn á samfélagið, dýpt og mannlegri hlýju.
Pétur Gunnarsson skrifaði sig inn í hjörtu landsmanna með
bókum sínum um Andra Haraldsson. í þessari spennandi og
viðburðaríku sögu sýnir hann á sér nýjar og óvæntar hliðar.
Mál og menning
S i , ihb wL
maailr
.LLLLl-LLLLL'L'OLL
■ <'
• •
Orlagasaga
vesturfaranna
Næstum fjórðungur þjóðarinnar hélt vestur um haf á árabilinu 1870-
1914, alls á milli 15 og 20 þúsund manns. Við það varð til íslenskt
samfélag í öðru landi, menn þurftu að læra ný vinnubrögð og aðlagast
gerólíkum aðstæðum.
Hvers vegna yfirgaf þetta fólk ísland? Hvað beið þess i nýja landinu? í
þessari bók er loksins rakin saga vesturferðanna um og fýrir aldamótin
á greinargóðan hátt og með fjölda fágætra mynda. Bakgrunnur ferðanna
er skýrður, lýst tildrögum þeirra hérlendis, fylgst með fyrstu
landnemimum yfir hafið og leitinni að Nýja Islandi, fýrirheitna landinu
sem loksins fannst við Winnipeg-vatnið. Tengslin við gamla landið eru
rakin og djúpstæð áhrif sem samfélagið vestra átti eftir að hafa á okkar
samfélag.
Þetta er margslungin örlagasaga og heillandi ævintýri um þjóðflutninga,
fyrirheit, plágur og drepsóttir, þrautseigju og sigra. Bók sem svarar
áleitnum spumingum um þessa tíma og fólkið sem fór - og vekur nýjar.
Guðjón Amgrimsson er þjóðkunnur blaða- og fréttamaður. Hann hefur
um árabil rannsakað vesturferðimar og er þessi bók afrakstur af þeim
rannsóknum.
Mál og menning
Laugavegi 18 Síöumúla 7-9
Sími 515 2500 Sími 5102500
T