Dagur - 16.12.1997, Blaðsíða 5

Dagur - 16.12.1997, Blaðsíða 5
Tfc^«r ÞRIÐJUDAGUR 16.DESEMBER 1997 - 21 MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU Að upplifa atburðina „Heftileinkað mérfrá- sagnarmáta, sem virk- arþannig aðfólk kemst í snertingu við atburði, “ segir Óttar Sveinsson. Hann send- irfrá sér bókina „ Út- kall TF-LÍF, sextíu menn í lífshættu“,þar sem segirm.a.frá sjó- slysunum miklu á fyrstu mánuðum árs. „I þeim bókum sem ég hef skrif- að síðustu ár um björgunarafrek hef ég tileinkað mér sérstakan frásagnarmáta og -tækni sem virkar þannig að lesendum finn- ast þeir komast í nána snertingu við atburðina. Eg hef einmitt fengið mikil viðbrögð frá lesend- um, þar sem þeir segjast upplifa atburðina eins og þeir gerðust," segir Óttar Sveinsson blaðamað- ur á DV. Hann er nú að senda frá sér bókina „Útkall TF-LÍF, sextíu menn í lífshættu." Frásagnir mynda eina heild I bókinni segir Óttar frá at- burðarásinni þegar Vikartindur strandaði í Háfsfjöru í Þykkvabæ og varðskipið Ægir var hætt komið við björgunarstörf þannig að út af því tók einn mann. Þeg- ar Dísarfellið fórst suður af landinu og með því tveir menn, - og þegar Þorsteinn GK strand- aði við Krísuvíkurberg. Áhöfnin á þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, vann afrek við erfiðar kringumstæður í öllum þessum sjóslysum en þar var 39 mönn- um bjargað úr lífshættu á fimm sólarhringum. Mynda frásagnir af þessum slysum eina heild. - Fjórði og síðasti kaflinn er viðtal við Einar Agústsson, ungan há- skólanema, sem villtist í frum- skógum Gvatemala sl. sumar og horfðist þar í augu við dauðann. „Mér finnst vera staðreynd að fólki sem lendir í hrikalegri lífs- reynslu líður jafnvel betur eftir að hafa sagt sína sögu,“ segir Óttar, en í þessari bók ræðir hann við alls 20 manns. Mfiin eldlíniumar Sérstaklega skulu nefnd viðtöl í bókinni við menn sem voru í eldlínu sjóslysanna miklu á fyrstu mánuðum árs. Þeir eru Einar Valsson, skipherra á Ægi, Karl Guðmundsson, hleðslu- stjóra á Vikartindi, sem lýsir samskiptum sínum við þýska skipstjórann þegar skipið stefndi upp í fjöru. Þá er rætt við Hilm- ar Þórarinsson spilmann og Auðun Kristinsson sigmann á TF-LIF, en báðir unnu þeir þrekvirki við björgunarstörf í Vikartinds- og Dísarfellsslysun- um. Síðastur skal nefndur Ingvá Hallgrímsson, vélamaður á Dís- arfelli, en hann horfði á þyrluna hverfa af vettvangi þegar hún var búin að hífa upp úr sjónum alla úr skipshöfninni aðra en hann. En hún snéri við hálftíma síðar, en á meðan lifði Ingvi hrikalega stundir. Viðtöl við þessa menn hafa ekki birst áður. -SBS. Ritsafii HiJmars Annað bindið í ritsafni sem geymirverkHilmars Jónssonar ernýkomið út. Þarerað finna tvö leikrit, Útkall íKlúbbinn, og nýtt leikrit sem fjallar um ævi séra Jóns Steingrímssonar. í safninu ereinnig að finna skáldsögumar, Foringjarfalla ogHundabyltinguna, auk nokkurra Ijóða. Það erBók- menntaklúbbur Suðumesja sem gefur verkið út. „Mönnum þykja bækur mínar eiga erindi, annars hefði ekki verið áhugi á að endurút- gefa þær,“ segir Hilmar Jónsson um ritsafnið sem væntanlega mun verða þrjú eða fjögur bindi. sínum tíma mæltust þessi verk misjafnlega fyrir og fjölmiðlar þorðu ekki að fjalla um þær. Dæmi um þetta er Útkall í Klúbbinn og Foringjar falla sem báðar þóttu eldfimar." Hilmar hefur um árabil skrifað greinar um þjóðfélagsmál og bókmenntir sem vakið hafa nokkra athygli enda er þar ekki töluð nein tæpitunga. „Eg gagnrýndi Sovétkerfið harkalega og átti þess vegna ekki upp á pallborðið hjá vinstrimönnum. Hins vegar eru nrenn að uppgötva það núna að ég hef kannski verið róttækari en margt af því fólki sem taldi sig í framvarðasveil róttækra manna,“ segir Hilmar. Þegar hann er spurður um álit sitt á stöðu íslenskra nútímabókmennta segir hann: „Það kann vel að vera að mönnum finnist ég hafa sterkar skoðanir, en að mínu mati hefur fýndna kynslóðin, sem að miklu Ieyti hefur ráðið ferðinni í bókmenntaheiminum, ekki skilað burðarmiklum verkum. Mér finnst mikið af þeim verkum sem gagnrýnendur hafa hælt á hvert reipi síðustu ár hafa fallið dauð niður eftir tiltölulega skamman tíma. Athyglisverðir höfundar finnast þó innan um. Ég er enn hrifinn af Borgarlífi Ingimars Erlendar Sigurðssonar og Svartri messu Jó- hannesar Helga, og Guðlaugur Arason hefur skrifað mjög athyglisverðar bækur. Við höf- um ekki eignast mörg góð leikverk en leikrit Guðrúnar Asmundsdóttur um Kaj Munk var yfirburðarverk og hið sama má segja um Inúk Haraldar Ólafssonar.“ Álítur hann sín eigin verk eiga eftir að standast tímans tönn? „Maður er ekki dóm- bær í eigin sök,“ segir Hilmar og bætir við: „Mér sýnisf’saVnt að sum þeirra muni lifa og þau eiga ékki síður erindi en ýmislegt sem skrifað hefur verið hér á landi á síðustu árum.“ „Mér finnst mikið afþeim verkum sem gagntýnendur hafa hælt á hvert reipi síðustu ár hafa fallið dauð niður eftir tiltölulega skamman tfma, “ segir Hilmar Jónsson en annað bindi ritsafns sem geymir verk hans er nýkomið út Vígdrekar á FaxafLóa Margar eru þær spurningar varðandi hernaðarátök við Is- Iand í síðari heimsstyrjöldinni, sem aldrei hefur verið svarað og jafnvel aldrei verið lagðar fram. Mörg svaranna er að finna í bókinni Vígdrekar og vopnagnýr eftir Friðþór Eydal. Bókin ber undirtitilinn Hvalfjörður og þáttur Islands í orrustunni um Atlantshafið. Höfundur hefur víða leitað fanga og meðal ann- ars leitað uppi áður óbirtar beimildir úr skjalasöfnum hinna stríðandi þjóða, sem lýsa á hvern hátt hildarleikurinn á hafinu snerti Island. Siðferðilegar ádeilur Háskólaútgáfan og Siðfræði- stofnun Háskóla Islands hafa sent frá sér bókina Broddflugur eftir Vilhjálm Árnason heim- speking. í bóldnni er safn 30 greina sem fela í sér siðferðilegar ádeildur og samfélagsgagnrýni. Ádeilurnar beinast einkum að þeim þáttum í samtímanum sem ógna mennskunni, frelsi og ábyrgð einstaklinga. Tekist er á við margvísleg álitamál svo sem tilvistarverkefni einstaklinga sem og þau málefni er varða far- sæld mannlegs samfélags, svo sem menntun og heilbrigði, trú og stjórnmál, hamingju og dauða, frelsi og mannlegt eðli. Aftur í aldir Mál og menning gefur út bók- ina Galdrastafir og græn augu eftir Onnu Heiðu Páls- dóttur. Hún fjallar um hann Svein sem finnur galdra- staf ristan í stein suður í Selvogi og er í sömu svifum hrifinn aftur til ársins 1713, en þá bjó galdra- meistarinn mikli Eiríkur í Vogsósum í Selvoginum. Sveinn kynnist lifnaðarháttum 18. aldar og verður ástfanginn af henni Stínu með grænu augun. Fjölskyldusaga Elskan mín ég dey eftir Kristínu Ómars- dóttur er fjöl- skyldu- saga sem gerist í sjávar- þorpi. Þar býr ekkju- maður með íjórum sonum sínum og ganga hremmingar yfir þá alla. Ekki bætir úr, að Iátnir fjöl- skyldulimir vaka yfir þeim af áhuga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.