Dagur - 17.12.1997, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 17.DESEMBER 1997 - 3
Samið á
ný um
friðland
FRETTIR
Afstaða tíl Kyoto
tekin á næsta ári
Gudmundur Bjamason umhverfisráðherra segir að við verðum að nota tímann vei
næsta árið.
ísland mim ekki und-
irrita Kyoto sam-
komulagið fyrr en eft-
ir ráðstefnuna í Buen-
os Aires á næsta ári
enda ýmis atriði sem
ekki liggja ljðs fyrir
fyrr en þá.
„Við þurfum að nota tímann á
næstunni til að fara vel yfir
Kyoto-samninginn og skoða
hvaða tækifæri felast í honum
fyrir okkur. Og þegar ég segi að
ég eigi ekki von á staðfestingu
samningsins af okkar hálfu fyrr
en eftir fundinn í Buones Aires á
næsta ári er það vegna þess að í
samningunum eru nokkur
ákvæði sem geta skipt okkur
máli en um þau verða ekki tekn-
ar ákvarðanir fyrr en á þeim
fundi,“ sagði Guðmundur
Bjarnason umhverfisráðherra í
samtali við Dag í gær en þá flutti
hann Alþingi skýrslu sína um
ráðstefnuna í Kyoto á dögunum.
Þessi atriði, sem Guðmundur
nefnir, eru meðal annars sameig-
inleg framkvæmd og viðskipti
með kvóta sem gætu skipt okkur
íslendinga máli. Gróðurbinding-
in er heldur ekki fullfrágengin og
allir eru sammála um að það
þurfi að vinna betur. Og loks það
sem Guðmundur segir Islend-
inga binda miklar vonir við sem
er ákvæðið um lítil efnahags-
kerfi.
„Þar hafa einstakar fram-
kvæmdir veruleg áhrif á magn
losunar gróðurhúsalofttegunda.
Þá erum við að tala um hvað til
að mynda eitt álver eða annað
stóriðjuver þýðir í prósentum
talið mikið íyrir lítið land eins og
ísland en nánast ekki neitt fyrir
stórþjóðirnar. Við þurfum að fá
betri skilgreiningu og meiri vissu
fyrir því að svona ákvæði gagnist
okkur eitthvað. Menn tala um að
með þessu séum við að bregðast
eða komast undan því að taka á
okkur skyldur. Mér þykir furðu-
legt að hlusta á slíkt ef við berum
saman það sem er staðreynd hjá
öðrum ríkjum," sagði Guðmund-
ur. -S.DÓR
Eyrarbakkahreppur og Fugla-
friðunarfélag Islands hafa gert
með sér nýtt samkomulag um
friðland fyrir fugla og endur-
heimt votlendis í námunda við
Eyrarbakka. Fyrra samkomulag
gerði ráð fyrir friðlandi á jörðun-
um Flóagafli og Óseyrarnesi, en
vegna málshöfðunar Jóns Sig-
urðssonar, sem á hálfa spilduna
Hallskot í Flóagaflstorfu á móti
Eyrarbakkahreppi, til ógildingar
á samkomulaginu var ákveðið að
gera nýtt samkomulag.
Jón taldi gengið á sína hags-
muni og mótmælti fyrirætlun-
um um friðland sem næði jdír
hans eign. Ekki var hlustað á
mótmælin fyrr en Jón höfðaði
mál, en þá var gert nýtt sam-
komulag er náði aðeins til Ós-
eyrarness. Jón hafði því sitt fram
- í bili. Eyrarbakkahreppur hefur
enn það mótspil í hendinni að
taka spildu Jóns eignarnámi eða
bjóða honum landaskipti. Staða
hreppsins til eignarnáms er ekki
slæm, enda er svæðið friðland
samkvæmt skipulagi. - FÞG
Krefjast systkiiia-
afsláttar á leikskóluni
Tvíburamæðurnar Hugrún Stefánsdóttir, Erna Rós Ingvarsdóttir og Hugrún Hjörleifs-
dóttir afhenda Jakobi Björnssyni undirskriftalistana. Með þeim er Stefanía Hitd Ev-
ertsdóttir, 5 ára, dóttir Hugrúnar Stefánsdóttur. Mynd: Brink
Bæjarstjóraimm á Ak
ureyri, jakobi Bjöms-
syui, vom í gær af-
hentar uiidirskriítir
fjölda foreldra sem
þrýsta á um afslátt á
leikskólum bæjarins.
I texta með undirskriftasöfnun-
inni segir m.a.: „Við undirrituð
skorum á bæjarstjórn Akureyrar
að koma á sem lýrst a.m.k. 25%
systkinaafslætti á leikskólum
bæjarins. Samskonar alsláttur
tíðkast í öllum stærri bæjarfélög-
um landsins. Þrátt fyrir ítrekuð
tilmæli til bæjaryfirvalda hafa
þau hundsað þessa beiðni."
Fram kom í máli þeirra sem af-
hentu undirskriftalistana að leik-
skólagjöld væru þau næst hæstu
á landinu, aðeins í Kópavogi
væru þau hærri.
Bæjarstjóri sagði að háskóla-
nemar hefðu einnig þrýst á um
svipaðan afslátt og samþykktur
yrði á bæjarstjórnarfundi (í gær,
innsk. blm.) systkinaafsláttur
fyrir 2 systkini, en til þessa hefði
hann gilt fyrir þrjú systkini.
Nauðsynlegt reyndist hins vegar
að hækka gjöldin um 8% I. febr-
úar nk. m.a. vegna þess að hlut-
fallskostnaður Akureyrarbæjar
hefði farið úr 45% í 40%. — GG
Þrennt í gæsluvarðhald
Tveir Islendingar og sænsk kona hafa verið úrskurðuð í gæsluvarð-
hald til 19. janúar vegna aðildar að stórfelldu fíkniefnasmygli. A
sunnudag fundu tollverðir á Keflavíkurflugvelli ellefu hundruö E-
töflur og talsvert magn af LSD-strimlum í fórum konunnar.
Sama dag voru tveir karlmenn handteknir í Reykjavík. Þau hafa öll
verið úrskurðuð í gæsluvarðhald eins og fyrr segir. Rannsókn málsins
stendur )Tir en nokkrir til viðbótar eru í haldi lögreglu.
Skipting Evrópu heyrir
söguuni til
Hallaór Asgrímsson utanríkisráðherra sagði á
fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins
að undirritun á aðildarbókunum Póllands, Tékk-
lands og Ungverjalands sýndi svo ekki væri um
villst að skipting Evrópu heyrði förtíðinni til.
Hann lagði áherslu á að ekki væri verið að setja
ný landamæri í Evrópu, heldur væri þvert á móti
verið að auka frið og öryggi í álfunni. Hann lýsti Halldór Asgrímsson.
einörðum stuðningi ríkisstjórnar Islands við
framtíðaraðild ríkjanna þriggja að NATO. Hann
lagði á sama tíma áherslu á að bandalagið yrði áfram opið fyrir önn-
ur ríki og á samstarfið við Rússland, Ukraínu og önnur samstarfsríki.
Tveir bankar eftir 2 ár
Halldór Guðbjamar-
son bankastjóri spáir
því að eftir tvö ár
verði aðeins tveir við-
skiptabankar á ís-
landi. Segir að ríkið
geti ankið verðmæti
sín um miUjarða með
sameiningu Lands-
banka og Búnaðar-
banka.
Halldór Guðbjarnarson, banka-
stjóri Landsbankans, telur að rík-
ið eigi að sameina Landsbanka
og Búnaðarbanka áður en það
selur hlut sinn í bönkunum.
Hann mælir gegn því að Búnað-
arbankinn verði sameinaður Is-
landsbanka og segir að rök fyrir
slfku séu aðeins til að rugla
menn í ríminu.
Halldór lýsir yfir í viðtali við
SIB-blaðið, málgagn banka-
starfsmanna, að eftir tvö ár eða í
mesta lagi fjögur ár verði tveir
bankar til sem hafi yfirtekið alla
aðra Ijármálastarfsemi á mark-
aðnum, meðal annars Fjárfest-
ingabankann, en þó ekki nokkra
sparisjóði. „Það mun gerast það
sama hér og í verslun og útgerð,"
segir Halldór, „það er að segja ef
markaðurinn fær að ráða og ein-
hver ósýnileg hönd kemur ekki
og kippir í spottana." Hann hvet-
ur Finn Ingólfsson viðskiptaráð-
herra til að selja ekki hluti í
Landsbanka og Búnaðarbanka í
sitthvoru lagi, því þá sé ekki ver-
ið að hámarka verðmæti ríkisins.
Halldór segir enn fremur að
með hlutafélagsvæðingunni og
sölu hlutabréfa, ásamt samein-
ingu Landsbanka og Búnaðar-
banka, verði hægt að loka mörg-
um útibúum og selja fasteignir.
Um leið leggist af „félagslegt
hlutverk“ ríkisbankanna og „þá
verður arðsemi auðvitað ráðandi
afl í bankanum". Halldór segir að
hagræðingin í bankakerfinu geti
numið milljörðum króna. - FÞG
Nöfn hlóðefnisþega liggja
fyrir
Landlæknisembættið hefur undir höndum nöfn
á þeim sem farið hafa í lungnarannsókn og feng-
ið greiningarefnið Amersham. Efni þetta var not-
að við lungnarannsókn í nóvember 1997 á Land-
spítalanum og Sjúkrahúsi Reykjavíkur, en komið
hefur í ljós að maður sem gaf blóð sem efnið er
unnið úr dó úr Creutzfeldt-Jakob sjúkdómnum. .
Landlæknir býður þeim sem undir rannsókn- /aft/r Oiafsson.
ina gengust að koma til viðræðna við embættið.
Efnið var innkallað þegar í ljós kom að um 35
hettuglös af 50 höfðu verið notuð við rannsóknina. Landlæknir tek-
ur fram að aldrei hefur sannast að þessi sjúkdómur smitist með blóði.
Afgreiðslutími lengdur í Kringluimi
Afgreiðslutími Kringlunnar hefur verið lengdur fyrir jólin og verða
verslanir þar opnar frá kl. 10 til 22 alla daga til jóla nema á Þorláks-
messu, en þá verður opið kl. 10 til 23 og á aðfangadag frá kl. 9 til 12.
Boðið verður upp á margvísleg skemmtiatriði og jólastemmningu
alla daga til jóla og búið að gera ráðstafanir til að viðskiptavinir
Kringlunnar geti nýtt 600 viðbótarbílastæði í nágrenni verslunarhall-
arinnar.