Dagur - 17.12.1997, Qupperneq 5
MIÐVIKVDAGVR 17.DESEMBER 1997 - S
FRÉTTIR
L j
Unglæknar flykkj ast
til starfa í Noregi
Unglæknar eru mjög óánægðir með kjör sín og útlit er fyrir hópflutninga þeirra til
Noregs, þar sem næga vinnu er að fá.
Unglæknar ætla að
standa við uppsagn-
imar. í gær og í dag
hætta 19 þeirra störf-
um hjá Sjúkrahási
Reykjavíkur. Stór-
felldur læknaskortur
eftir örfá ár?
„Það er ljóst að nokkuð stór hóp-
ur unglækna er að pakka í tösk-
urnar. Margir ætla að láta upp-
sagnirnar standa og hyggja á að
halda utan uppúr áramótum eða
á vormánuðum. Það eru margir
sem ætla til Noregs og ekki bara
unglæknar hér, heldur læknar
sem hafa verið að læra í Svíþjóð
og treysta sér ekki í launa- og
vinnumhverfið á íslandi," segir
Helgi H. Helgason, talsmaður
unglækna á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur.
Félagar í Læknafélagi Reykja-
víkur hafa fellt samning félags-
ins við Reykjavíkurborg vegna
Sjúkrahúss Reykjavíkur og var
fyrsti fundur hjá Ríkissáttasemj-
ara boðaður í gær. Onnur Iækna-
félög samþykktu samninginn, en
þó er talið mögulegt að margir
unglæknar á Landspítalanum
láti uppsagnir samt standa.
Helgi segir að hann geri sér grein
fyrir því að staða Sjúkrahúss
Reykjavíkur sé án efa mjög erfið
og því líti dæmið ekki vel út.
„Það er hins vegar mat
unglækna að yfirvánnuprósentan
eigi að halda sér, en í samningn-
um var prósentan lækkuð úr 1%
af dagvinnulaunum niður í 0,8%.
Menn sjá ekki fyrir sér að yfir-
vinnan minnki í þeirri manneklu
sem nú ríkir. Það er satt að segja
ástæða til að hafa verulegar
áhyggjur af stöðunni og þá ekki
síst þróuninni næstu örfáu árin,
miðað við útlitið hvað nýliðunina
varðar. Eg veit til að þess að heil-
brigðisráðuneytið er þegar koinið
í vandræði með að ráða menn
heim,“ segir Helgi.
Kristín Á. Ólafsdóttir, formað-
ur stjórnar sjúkrastofnana í
Reykjavík, segir að alvarleg staða
blasi við. „Staða Sjúkrahúss
Reykjavíkur er nú þannig, miðað
við fjárlagafrumvarp, að það
vantar nokkur hundruð milljónir
króna í reksturinn ef þjónustan á
að haldast söm og verið hefur.
Það eru engir peningar aflögu,
heldur stórt gat. Ég hef þungar
áhyggjur af stöðunni. Unglæknar
hafa unnið geysilega mikla vinnu
og það er mikið skarð höggvið í
starfsmannhaldinu við það að
missa unglæknana,“ segir Krist-
ín. - FÞG
Rafmagnseftirlit í upplausn?
Ögmimdur Jónasson:
Telux að „einkavæð
ing“ rafmagnseftir-
lits valdi skaða.
„Það er allt í upplausn," segir
rafverktaki, sem er einn þeirra
sem gagnrýna harkalega hvernig
rafmagnseftirliti er háttað.
Margir í þeirri stétt telja að eftir-
lit sé nú mun minna en áður,
meira um fúsk og brunahætta
vaxandi. Sú nýskipan sem komst
á fyrir fáum árum að fela skoð-
unarstofum rafmagnseftirlit, í
stað Rafmagnseftirlits ríkisins,
veldur mikilli gagnrýni rafverk-
taka. Þessi mál verða rædd á Al-
þingi í dag, utan dagskrár, að
frumkvæði Ögmundar Jónasson-
ar. Einn þeirra rafverktaka sem
hart hafa gagnrýnt núverandi
skipan segir að árangur af breyt-
ingunni sé enginn, eftirlit minna
og kostnaður meiri. Hann vill
ekki láta nafns síns getið, enda
eigi hann mikið undir því að þær
þrjár skoðunarstofur sem hafa
eftirlit með rafverktökum „refsi“
honum ekki fyrir gagnrýni. „Raf-
verktakar eru skriðnir í felur,“
segir hann, þeir tilkynni ekki ný
verk til að eiga ekki á hættu
refsipunkta hafi þeim orðið á
mistök, og láti ekki á sér kræla til
að eiga ekki yfir höfði sér geð-
þóttaákvarðanir.
Hörð gagnrýni
I blaðagrein í Degi í fyrri viku
komst Sveinbjörn Guðmunds-
son, fyrrum eftirlitsmaður á
Austurlandi, svo að orði: „Ókjör-
um af mótmælum hefur rignt
yfir iðnaðarráðuneytið og þing-
Ögmundur Jónasson, alþingismaður.
menn vegna þessa. Heil starfs-
stétt, rafverktakar, sjá fram á
upplausn og öngþveiti, enda hef-
ur yfirgnæfandi meirihluti þeirra
mótmælt þessari gjörð. Ymis
hagsmunasamtök hafa einnig
sent mótmæli og fleiri eru á döf-
inni.“
Það sem helst veldur gagnrýni
er að kostnaður valdi því að
menn leitist við að koma sér hjá
eftirliti, auk þess sem „refsi-
punktakerfi" eftirlitsstofnana
leiði til þess að verktakar tilkynni
ekki ný verk. Þá þykir fram-
kvæmd gloppótt. I grein Sigur-
björns segir: „Hvernig litist
mönnum á 10% stikkprufueftir-
lit á ári með öryggi flugvéla og
skipa?"
Rafræn eignaskráning
Komið er fram á Alþingi frum-
varp til laga um rafræna eigna-
skráningu. Lögin eiga að gilda
um rafræna útgáfu verðbréfa og
skráningu eignarréttinda yfir
þeim. Samkvæmt lögunum verð-
ur rafræn útgáfa verðbréfa að-
eins heimil verðbréfamiðstöð,
sem hlotið hefur starfsleyfi sam-
kæmt lögum þessum.
LeiMistarlög
Lagt hefur verið fram á Alþingi
frumvarp til leildistarlaga. Lögin
eiga að leysa af hólmi tvenn nú-
gildandi Iög, annars vegar leik-
Iistarlög frá 1977 og hins vegar
lög um Þjóðleikhús frá 1978.
Félagsleg aðstoð
Ásta R. Jóhann-
esdóttir, Mar-
grét Frímanns-
dóttir, Guðný
Guðbjörnsdóttir
og Jóhanna Sig-
urðardóttir hafa
lagt fram frum-
varp til laga um
breytingu á lög-
um um félags-
lega aðstoð. í
frumvarpinu er
hleypingi,
Ásta R.
Jóhannesdóttir.
Jagt til að ein-
nýtur óskertrar
tekjutryggingar og er einn um
heimilisrekstur, skuli greidd
heimilisuppbót. Eins verði heim-
ilt að greiða Iífeyrisþega heimilis-
uppbót ef sýnt þykir að hann hafi
ekki fjárhagslegt hagræði af sam-
býli við aðra heimilismenn.
Framhaldsskólar
Frumvarp til breytinga á lögum
um framhaldsskóla er komið
fram á Alþingi. Það gengur út á
að heimilað verði að afmarka
ráðningartíma aðstoðarstjórn-
enda í framhaldsskólum. Að-
stoðarskólameistari verði ráðinn
til 5 ára, áfangastjóri til 4ra ára
og deildarstjóri til 3ja ára.
Spilliefnagjald
Frumvarp til laga um breytingu á
lögum um spilliefnagjald er
komið fram. Aðalatriði þreyting-
anna er að hækka gjaldið á
ákveðna flokka spilliefnis.
- S.DÓR
•t
í
DkUu og Sgga
ÁRITA GEISLADISKANA SfNA í BÚKVAL í DAG
I DAG MIÐVIKUDAG, A MILLI KL. 15.00 OG 16.00 MUN SIGRUN
HJÁLMTÝSDÓTTIR "DIDDÚ" ÁRITA NÝJA JÓLA-DISKINN SINN.
Á NÁNAST SAMA TÍMA EÐA FRÁ 15.30 TIL 16.30 VERÐUR
SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓTTIR EINNIG í VERSLUN OKKAR
ÞAR SEM HÚN ÁRITAR GEISLADISKINN SINN NÝJA OG
JÓLADISKINN SINN
PERSÚNULEG ÞJÚNUSTA - FRÁBÆRT ÚRVAL
BókvAL
HAFNARSTRÆTI 91-93 - SÍMI 461 5050
Á FÖSTUDAG, A MILLI KL. 15.30 OG 17.30
VERÐUR BERGLJÓT ARNALDS í
VERSLUNINNI ÞAR SEM HÚN
KYNNIR TÖLVUBÓK SlNA.
ÞÁ MUN HÚN EINNIG ÁRITA
BÆKUR SÍNAR "TÓTA OG TÍMINN"
OG "STAFAKAR LARNIR"