Dagur - 19.12.1997, Blaðsíða 8

Dagur - 19.12.1997, Blaðsíða 8
8- FÖSTVDAGUR 19. DESEMBER 1997 FRÉTTASKÝRING Fjárhagsstaða Borgarleikhússins hefur orðið til þess að tvær grímur hafa runnið á borgaryfirvöld og forsvarsfólk leikhússins. Verið er að skoða þann möguleika að skilja á milli LR og Borgarleikhússins, þannig að hvort um sig verði sjálfstæð rekstrareining. mynd: gva ertd uelhomtn l’ARIS hef raunar gert það áður, að það sé bara um tvennt að ræða. Ann- ars vegar gagngerar breytingar og þá Iíka á innra skipulagi LR eða hins vegar, sé fólk ekki tilbú- ið til að gera náinar breytingar, þá sé verið í góðri samvinnu við yfirvöld að fremja hægfara sjálfs- morð. Þegar- leikhúsfólk í land- inu sá að það rambaði allt á barmi þess að við yrðum að loka þá tók það við sér. Það er enginn vandi að halda því fram að hlut- irnir eigi að vera svona eða hinsegin. En þegar fólk stendur frammi fyrir því að ekki sé hægt að starfrækja annað atvinnuleik- húsið í borginni þá hrekkur það við,“ sagði Þórhildur Þorleifs- dóttir. Hún var spurð hvort þær 140 milljónir sem Reykjavíkurborg veitti í fyrra og sömu upphæð aftur nú hrykkju ekki skammt? „Það vita allir að ekki verður rekin leiklistarstarfsemi með sómasamlegum hætti fyri þá upphæð. Það vita allir og enginn mótmælir því. En til þess er nú verið að fara í gegnum rekstur- inn og skoða sjálfstætt reskstrar- félag og fleira til að reyna að bæta úr þessu. Það verður að finna einhverjar lendingar í þessum málum," sagði Þórhild- ur. Gífuilegur baggi Þórhildur segir að hugmyndin um að skilja á milli leikhússins og leikfélagsins hafi oft komið til umræðu áður á liðnum árum. „Mín tillaga, sem nú var sam- þykkt, gengur út á það að leikfé- lagið sjálft endurskoði sín lög og að gerð verði tillaga um stofnun rekstrarfélags um leikhúsið í samvinnu við Reykjavíkurborg. Eg kynnti tillöguna fyrir borgar- stjóra viku síðar og þá kom í Ijós að áhugi var fyrir þessu hjá borg- inni. Niðurstaðan varð síðan sú að ráða rekstrarráðgjafa til að fara ofan í málið og gera tillögur um úrbætur. Þegar um þetta mál er rætt má fólk ekki gleyma því að Rorgarleikhúsið er gífurlegur tjárhagsbaggi á LR. Rekstur hússins er mjög dýr sem sést best á því, að bara það að halda húsinu í horfinu með þeim lág- marksmannskap sem til þarf, kostar hátt í 50 milljónir króna á ári,“ segir Þórhildur. Hún segir að það sé mikið af dauðum tíma, einkum fyrripart vikunnar sem LR nýtir ekki því hún segir fólk ekki sækja leikhús að ráði nema um helgar. Hægt væri að nýta húsið undir tón- leika eða ráðstefnur og raunar margt fleira á þessum tímum en til þess að hægt sé að sinna því þyrfti húsið að vera sjálfstæð rekstrareining. Þórhildur segir að enda þótt Rorgarleikhúsið og leikfélagið verði gert að sitt hvorri rekstrar- einingunni hafi LR fortakslaust forgang að húsinu f framtíðinni enda sé það bundið í stofnskrá. „Það vita auðvitað allir að þetta hús var byggt fyrir og vegna Leikfélags Reykjavíkur. Þar fyrir utan má ekki gleyma því að stór hluti mikillar fjárfest- ingar í húsinu er fyrir leikhús og í þeim sérþörfum sem því fylgja," sagði Þórhildur. Nauðsynlegt Þórhallur Gunnarsson er starf- andi formaður Leikfélags Reykjavíkur. Hann segist vera mjög ánægður með tillöguna sem samþykkt var. Hann segir að eins og allir vita sé reksturinn þungur og erfiður og þess vegna sé nauðsynlegt að fara ofan í saumana á rekstri Borgarleik- hússins og gera grein fyrir fjár- þörfinni við rekstur þess. Hann segir stóran hluta af peningum, sem ætlaðir eru til leiklistar fara í rekstur hússins. „Eg ætla engu að spá um það hvort einhver andstaða verði við þetta innan Leikfélags Reykja- víkur þegar endanlegar tillögur liggja fyrir. Eg held að allir félag- ar í LR vilji láta skoða málið ofan í kjölinn og fá að sjá hvaða tillög- ur síðan verða gerðar. Um fram- haldið ætla ég ekki að segja neitt á þessu stigi," sagði Þórhallur Gunnarsson. Málefni Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins hafa verið mjög til umræðu allt þetta ár ekki síst fyrir það að síðasta leik- ár þótti ekki ganga eins vel og vonast var til og hins mikla fjár- skorts sem þessir aðilar búa við. Nú hefur verið ákveðið að skoða þann möguleika ofan í kjölinn að skilja á milli LR og Borgarleik- hússins þannig að hvort um sig verði sjálfstæð rekstrareining. Hugmyndin er að Borgarleik- húsið verði gert að sérstakri rekstrareiningu sem sjái alfarið um rekstur hússins en LR geti snúið sér alfarið að leiklistar- þættinum. Þórhildur Þorleifs- og LR að aðskildum sjálfstæðum rekstrareiningum? „Alla vega var tillagan sam- þykkt samhljóða en hvort ein- hugur er um þetta skal ósagt lát- ið. Eg held að fólki sé alveg ljóst Það er enginn vandi að halda því fram að hlntimir eigi að vera svona eða hinsegin. En þegar fðlh stendur frammi fyrir því að ekki sé hægt að starf- rækja annað atvinnu- leikhúsið í horginni þá hrekkur það við. að það verði að koma til róttæk- ar breytingar og að það sé ekki hægt að hjakka svona ár eftir ár í sama farinu. Ég lýsti því svo, og dóttir leikhússtjóri hefur lýst því yfir að ef reka á myndarlegt leik- hús í Borgarleikhúsinu verði að koma til meiri styrkur frá Reykjavíkurborg en verið hefur síðustu tvö ár. A það hafa borg- aryfirvöld ekki viljað fallast að óbreyttu enda var tillögunni um að athuga möguleikann á því að gera LR og leikhúsið að sjálf- stæðum rekstrareiningum vel tekið hjá borgaryfirvöldum. Líf eða dauði Þórhildur Þorleifsdóttir leikhús- stjóri flutti tillögu á aðalfundi Leikfélags Reykjavíkur um að fara þessa leið og fékk hana þar samþykkta. TiIIagan er nú fylgi- skjal með áliti sem samstarfs- nefnd um Borgarleikhúsið hefur skilað. Samstarfsnefndin komst raunar að sömu niðurstöðu og kemur fram í tillögunni sem LR samþylikti. Þórhildur var spurð hvort um það hefði verið eining hjá LR að gera Borgarleikhúsið Jól d Guerlain me cHeiindannátic} // 'á er aullpudar di iólatilbod! peFmanai 10 arm SIGURDÓR SIGUR DORSSON SKRIFAR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.