Dagur - 19.12.1997, Blaðsíða 7

Dagur - 19.12.1997, Blaðsíða 7
FÖSTVDAGVR 19. DESEMBER 1997 - 7 ÞJÓÐMÁL Framsókn til framfara auknum mannfjölda. Skýrasta dæmið um slíkt er tvfmælalaust Akureyri og Eyjafjarðarsvæðið. Ekki Ieikur nokkur vafi á að ákvörðun um til dæmis stóriðju á Reyðarfirði, olíuhreinsistöð í Skagafirði og aðrar slfkar ákvarðanir geta ráðið þar úrslit- um hvað varðar atvinnuöryggi skattar lækka, skuldir rfkisins fara minnkandi í fyrsta sinn í langan tíma og þannig má áfram telja. A miðstjórnarfundinum kom fram eindregin ánægja með þessa breytingu á undirstöðu- þáttum efnahagslífs okkar. Fundarmenn létu mjög í ljósi þá trú sína að á sfðari hluta kjör- segir það líklega sitt um viðhorf flokksmanna að fundurinn kaus 9 einstaklinga í landsstjórn flokksins. Af þeim voru 5 karl- menn og 4 konur. Jafnari getur skipting á milli kynja vart orðið. Flokkurinn sýndi vilja sinn í verki til þess að efla jafnrétti milli kynja. yrðu sambærileg við það sem best tíðkast innan ríkja OECD. Þá var það lagt til að skattalög- um yrði breytt á þann veg að fyr- irtæki sæju sér hag í því að fjár- festa f rannsóknum og eftir- menntun. Sjávarútvegsmál A miðstjórnarfundinum kom fram að hópur þingmanna hefur unnið að því frá síðasta flokks- þingi að ræða við fulltrúa ólíkra aðila, tengdum sjávarútvegi. Formaður flokksins benti á í setningarræðu sinni að nokkur skref hafa verið stigin í þá átt að svara gagnrýni á núverandi fisk- veiðistjórnunarkerfi. Meðal annars hafa verið lögð fram lög sem setja hámark á aflahlutdeild einstakra aðila í sjávarútvegi. Þá lýsti formaðurinn því yfir að ekki ætti að verða erfitt að ná sátt um þann þátt, sem harðastur er gagnrýndur í fiskveiðistjórnun- arkerfinu, þ.e.a.s. að takmarka framsal veiðiheimilda. Mið- stjórnarfundurinn samþykkti f raun að í byrjun næsta árs kynnti sjávarútvegshópur þing- manna niðurstöður af verki sínu en fram kom að tillögur í 15 lið- um liggja á borðum hópsins. Sóknarfæri fyrir frjálslynt fólk Þau mál, er hér hafa verið reif- uð, tóku mest rými á miðstjórn- arfundinum. Ymis önnur mál bar vissulega á góma þó þau skuli ekki rakin hér frekar. At- hygli vekur, miðað við aðra flokka, hversu málefnaleg og hispurslaus umræða fór fram á miðstjórnarfundinum um alla þessa málaflokka. I stjórnmálaá- lyktun fundarins var brugðist við þeim athugasemdum sem fram höfðu komið og var álykt- unin samþykkt með öllum at- kvæðum. Þetta merkir með öðr- um orðum að Framsóknarflokk- urinn fór í gegnum harða um- ræðu um ýmis af stórmálum ís- lenskra stjórnmála og komst að sameiginlegri niðurstöðu. Eg trúi ekki öðru en frjálslynt fólk, sem áhuga hefur á stjórnmál- um, geti fundið sér farveg til að starfa að þessum stóru málum. Til þess starfar Framsóknar- flokkurinn sem stjórnmálaafl. Nýlega hélt Framsóknarflokkur- inn aðalfund miðstjórnar sinnar. I sjálfu sér er það ekki í frásögur færandi, hér er um reglulegan atburð að ræða á tveggja ára fresti. Flokksmenn hittast til þess að meta stöðu flokksins í ljósi samþykkta frá síðasta flokksþingi og athuga hver kúrs- inn er. Hátt í 200 manns sátu fundinn og óhætt er að segja að umræður hafi orðið Iíflegar. Meginþema fundarins var byggðastefnan en vissulega var drepið á fjölmörg önnur mál. Byggöakjamar - vaxtasvæði Þrátt fyrir harða viðleitni síð- ustu áratuga til að verja byggðir landsins hefur mikil byggðaþró- un átt sér stað. Athygli vakti sú niðurstaða í könnun að ástæða byggðaflutninga er ekki síst sú að fólk leitar til þéttbýlisstaða í því skyni að eiga þess kost að stunda menningu, listir og aðrar tómstundir sem auðga andann. Sú spurning hlýtur að vakna hvað stjórnvöld geta gert og hvort þau geta á nokkurn hátt brugðist við þessum þætti. Vinnuhópi úr þingflokknum var falið að halda áfram vinnu sinni við mótun byggðastefnu. Segja má að sú lína hafi verið dregin að rökrétt svar sé að ein- blína á fáa en sterka byggða- kjarna um landið sem verði mót- vægi við höfuðborgarsvæðið, taki við fólki, veiti þjónustu og styrki bakland sitt á enn stærra svæði t.d. 50-100 km. radíus. Segja má að í rauninni ætti slík ákvörðun ekki að vera svo snúin enda mótast hún af atvinnuhátt- um og náttúrulegum skilyrðum. í kjölfarið þarf að taka ýmsar pólitískar ákvarðanir svo sem um samgöngumál, upplýsinga- hraðbrautina, velferðarkerfið og menntamál og síðast en ekki síst menninguna sem ætti að spretta upp í fjölbreytileika sínum með „Bjartsýni og uppgangur einkennir efnahagslífid í stað þeirrar kyrrstöðu og svartsýni sem þar ríkti fyrir rúmum tveimur árum," segir Hjálmar m.a. f grein sinni. og fjölbreytileika í atvinnu. Slík- um vinnustöðum fylgir ásókn menntaðs fólks á öllum sviðum og breyting frá einhæfum at- vinnuþáttum. Með traust at- vinnulíf að leiðarljósi, styrkt vönduðu velferðar- og mennta- kerfi ætti að þrífast blómlegt og fjörugt tómstundalíf. Kúvending í efnahagslífi Ekki Ieikur nokkur vafi á því að á síðastliðnum tveimur árum hefur orðið kúvending í efna- hagslífi þjóðarinnar. Bjartsýni og uppgangur einkennir efnahags- lífið í stað þeirrar kyrrstöðu og svartsýni sem þar ríkti fyrir rúm- um tveimur árum. Atvinnuleysið er á hröðu undanhaldi, vextir fara lækkandi, kaupmáttur mun vaxa um rúm 20% til aldamóta, tímabilsins yrði áfram haldið á sömu braut þannig að góðærið skilaði sér til þjóðarinnar allrar. Þess vegna er mikilvægt að halda markvissum vinnubrögð- um og láta skammtímasjónar- mið víkja fyrir langtímahags- munum þjóðarinnar. Gott dæmi um þetta er sú ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að tengja ellilífeyri launavísitölunni - sjálfsagt og eðlilegt mál. Jafniéttismál og velferðar- kerfið A síðasta flokksþingi samþykkti Framsóknarflokkurinn metnað- arfulla jafnréttisáætlun þar sem stigið er djarft skref til að tryggja jafnræði kynjanna á öllum svið- um. Á miðstjórnarfundinum bar jafnréttismál töluvert á góma og Menntamálahópur flokksins reifaði tíllögur á miðstjórnar- fundinum um að hækkað menntastig þjóðarinnar væri Iykill að efnahagslegri sem and- legri vellíðan þjóðarinnar. Mikil- vægt væri að rífa þá umræðu úr þeirri stöðnun sem einkennt hefur hana að undanförnu - ein- kenni sem birtast helst í því að ábendingum um að peninga vanti. Minna hefur verið um að- gerðir þó vissulega hafi verið stigin mikilvæg skref á þessu kjörtímabili, svo sem við ein- setningu grunnskóla, lagfæringu á lögum um Iánasjóðinn og svo framvegis. Lagt var til að fram- lög hins opinbera til mennta- mála, skilgreind sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu, yrðu á fimm árum aukin þannig að þau Meirafé til meimtamála ÞORSTEINN ÓLAFSSON FYRRVERANDI KENNARI SKRIFAR Gæfa og gengi þjóðarinnar bygg- ist fyrst og fremst á því hvernig við stöndum að verki í mennta- og heilbrigðismálum. Fjárfram- lög til tveggja málaflokka þurfa að aukast. I hörðum heimi vaxandi sam- keppni veltur framtíð komandi kynslóða mikið á þvf hvernig til tekst með menntun fólksins. Mannsævin er sem betur fer að lengjast. Það kallar á meiri kostnað við hjúkrun og læknis- hjálp. Tækni og þekkingu fleygir ört fram. Læknar eru nú færir um að gera ótrúlega flóknar að- gerðir til bjargar sjúklingum og alltaf eru að koma á markað ný og dýr lyf. Ef við viljum að hér ríki fyrirmyndar velferðarþjóðfé- lag, þá er óhjákvæmilegt að stór- auka útgjöld til heilbrigðismála. En hvernig standa skal undir fyrsta flold<.s velferð og mennt- un, íyrir fámenna þjóð, er þraut- in þyngri. Að sjálfsögðu þarf að kapp- kosta að efla atvinnuvegi lands- ins. Þróttmikið, fjölbreytt at- vinnulíf og góður hagvöxtur eyk- ur tekjur hins opinbera. En það dugar ekki til. Nr. eitt er að gera allt sem hægt er til að uppræta skattsvik. Það virðist hægara sagt en gert. Getur ekki verið að hinn sífelldi söngur gegn bein- um sköttum sé ein af orsökum skattsvika? Vegna þessa söngs finnst mörgum að undanskot frá löglegum gjöldum sé ekki stór glæpur og hafa því betri sam- visku en ella. Þegar ég var að taka til í plögg- um mínum fyrir nokkru, rakst ég á hugleiðingu um skattsvik, í öðru lagi hefur þaö slæm áhrif á marga að horfa upp á ná- granna sína lifa miklu lúxuslífi en horga sáralítið í opin- her gjöld. (dagsett 14.12.1987) en aldrei birt opinberlega. Þar er horft á þessi mál frá öðru sjónarhorni en venja er. Eg ætla að Iáta flakka niðurlag þessarar 10 ára gömlu greinar: Rökstuðningurinn fyrir nauð- syn þess að koma í veg fyrir skattsvik finnst mér of einhliða, andlegi þátturinn er sjaldnast nefndur. Eg ætla hér að nefna þrjár ástæður fyrir nauðsyn þess að uppræta skattsvik. I fyrsta lagi myndi koma í rík- iskassann stór fjárfúlga sem verja mætti til margra góðra verka. í öðru Iagi hefur það slæm áhrif á marga að horfa upp á ná- granna sína lifa miklu lúxuslífi en borga sáralítið í opinber gjöld. Sumir fyllast réttlátri reiði yfir þessum mikla ójöfnuði og óréttlæti, aðrir verða öfundsjúk- ir. Með öðrum orðum, þetta veldur neikvæðum tilfinningum og verri lfðan hjá áhorfendum skattsvika. í þriðja lagi vil ég nefna skattsvikarana sjálfa. Þeirra sjálfra vegna er brýnast að skatt- svik verði með öllu aflögð. Skatt- svik er eins og hvert annað af- brot, sem menn bera innra með sér og veldur sífellt verri líðan eftir því sem árunum fjölgar og samviskubitið fer að segja meira til sín. Það má vel vera að menn hafi ekki svo miklar áhyggjur af undanskoti frá skatti um leið og verknaðurinn er framinn og sumir gera það að lítt athuguðu máli. Margir eru því miður of skammsýnir, horfa ekki nóg fram á veginn. En sannið til, samviskan á eftir að segja til sín, þó síðar verði. Engin byrði í ell- inni er þyngri en slæm samviska. Ef tekst að halda uppi blóm- legu atvinnulífi og draga veru- lega úr skattsvikum, þá má vera að koniast rnegi hjá hækkun skatta. Ymislegt þarf vafalaust að færa til og lagfæra innan skattakerfisins. En á heildina lit- ið skulum við forðast að lækka beina skatta, frekar í hina áttina.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.