Dagur - 20.12.1997, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 20.DESEMBER 19 9 7 - S
FRÉTTIR
Bjöm má ekld sklpa
arkiis frænda siirn
Menntamálaráðherra
bíður það verkefni að
skipa nýjan ntvarps-
stjóra. Margir telja að
náfrændi hans og vin-
ur sé öflugasti um-
sækjandinn. Ráðherra
má hins vegar, lögum
samkvæmt, ekki
skipa náinn frænda
sinn í embættið og
þarf að fá annan ráð-
herra til að fram-
kvæmda embættis-
verkið.
Markús Örn Antonsson er í hópi
5 umsækjenda um stöðu út-
varpsstjóra Ríkisútvarpsins.
Markús gegndi einmitt þessu
embætti á árunum 1985 til
1991, þegar Davíð Oddsson kall-
aði hann til sem eftirmann sinn
á stóli borgarstjóra Reykjavíkur.
Almennt munu menn sammála
um að Markús Örn muni endur-
heimta sitt gamla embætti.
Björn - lendir i vanda vegna náins skyld-
ieika við Markús, þegar skipa skal útvarps-
stjóra.
Umsóknarfrestur um embætt-
ið er liðinn og höfðu eftirtaldir
skilað umsóknum til mennta-
málaráðherra í gær: Jón Karl
Helgason dagskrárgerðarmaður,
Markús Örn Antonsson fram-
kvæmdastjóri hljóðvarpsdeildar
RÚV, Ómar Valdimarsson blaða-
maður, Þorsteinn Ingimarsson
nemi og Ævar Kjartansson dag-
skrárgerðarmaður. Ekki var úti-
lokað að fleiri umsóknir kynnu
að berast í póstinum.
I næstu viku mun Björn
Markús - taiinn sigurstranglegastur i hópi
fimm umsækjenda sem vitað var um í
gær.
Bjarnason menntamálaráðherra
væntanlega velja vænlegasta um-
sækjandann úr hópnum. Lög-
fróðir menn segja að ráðherrann
muni þá víkja sæti, telji hann
frænda sinn, Markús Örn, hæf-
astan í embættið.
„Stjórnsýslulögin eiga einnig
við um ráðherra. Þau kveða svo á
um skyldleikatengslin að ef um
er að ræða maka, mann sem er
skyldur eða mægður í beinan
Iegg, eða í öðrum lið til hliðar, þá
er ráðherra óheimilt að skipa
Markús í embættið. Annars er
þetta allt leikrit, ráðherra hverf-
ur úr embætti um stundarsakir
og annar ráðherra framkvæmir
ráðninguna. Þetta er hálfgert
grín. Eðlilegra væri að ráðherra
skipaði sjálfur og stæði fyrir
sinni ákvörðun," sagði Jón Stein-
ar Gunnlaugsson hæstaréttar-
lögmaður í gær.
Þeir Markús og Björn eru
systkinasynir, æskuvinir og pólit-
ískir samherjar um langt skeið.
Dæmi eru um að ráðherrar hafi
„skroppið“ burtu stutta stund úr
embætti sínu vegna ráðningar
venslamanns. Það gerði Jóhanna
Sigurðardóttir sem félagsmála-
ráðherra. Jón Baldvin settist í
hennar stól og réð Gunnar Sig-
urðsson, bróður Jóhönnu, sem
deildarstjóra við ráðuneytið.
Einn umsækjenda um útvarps-
stjórastöðuna er Ómar Valdi-
marsson. Hann sagði í gær að
sem útvarpsstjóri mundi hann
leggja áherslu á að „frelsa not-
endur Ríkisútvarpsins undan því
ógnarlega íþróttaböli sem ríður
húsum í þessu landi.“ Ómar ætl-
ar líka að leggja niður Rás 2 hjá
RÚV, segir að ástæðulaust sé að
ríkissjóður reki diskótek þegar
nóg sé af þeim fyrir. -JBP
Neyðará-
standi aflétt
„Staðan er ekki góð og það er
hætt við því að það verði mikið
að gera um helgina. Við höfum
að vísu aflýst neyðarástandi, því
það er búið að útvega auka í'
mannskap, en það breytir ekki
því að við erum langt undir eðli-
legri mönnun og ég óttast að við
getum ekki annað þessu um
helgina,11 segir Jón Baldursson,
yfirlæknir á slysadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur.
Neyðarástandi hefur verið létt
af slysadeildinni í bili vegna þess
að aðsóknin minnkaði þegar því
var beint til manna að fara með
minniháttar meiðsl og veikindi
annað. Slysadeildin hefur síðan
fengið hjálp frá öðrum deildum
sjúkrahússins, sem hafa nóg á
sinni könnu vegna manneklu,
en standa þó betur en slysa-
deildin. „Þessar ráðstafanir
breyta þvi ekki að það er tak-
markaður mannskapur í húsinu
og það má lítið út af bregða svo
ekki myndist neyðarástand. Við
verðum að vona að helgin verði
stórslysalaus, því annars er
hætta á því að við getum ekki
sinnt öllum sem hingað koma og
að margir þurfi að bíða mjög
lengi eftir þjónustu, “segir Jón.
- FÞG
Bakkus mældur með
öndunarsýnum
Sjón sem þessi heyrir nú brátt sögunni til, enda voru i gær kynntir nýir mæiar til að mæla
áfengismagn með söndunarsýnum og verður annað tækið sem tii er notað i Reykjavik en hitt úti
á iandi mvnd: eva
Öndimarsýni í stað
blóðpnifn. Tvö tæki á
700 þúsund krónur
hvort. Hentar vel á
útihátíðum.
Lögreglan hefur fengið tvö ný og
fullkomin tæki til að mæla
áfengismagn í blóði ökumanna.
Hvort tæki um sig kostar um 700
þúsund krónur. Með tækjunum
sparast bæði peningar og fyrir-
höfn. Ekki þarf að taka blóðsýni
úr ökumönnum vegna þess að
öndunarsýni nægja. Það voru
Umferðarráð, Vegagerðin og Fé-
Iag íslenskra bifreiðaeigenda
sem gáfu ríkinu þessi tæki.
Þessi nýju tæki sem eru
bandarísk, verður hægt að nota
ýmist á lögreglustöð eða í stærri
Iögreglubílum. I framkvæmd
virkar það þannig að hinn grun-
aði ökumaður blæs tvisvar í tæk-
ið og í hvert skipti fer fram sér-
stök greining á öndunarsýnum.
Tækið umreiknar síðan niður-
stöðurnar í gildi sem gefið er upp
í milligrömmum áfengis í hverj-
um lítra Iofts. Ef áfengismagnið
reynist vera 0,25 milligrömm í
hverjum lítra af lofti er ökumað-
ur í vondum málum og missir
ökuréttindin umsvifalaust.
Lögreglan og dómsyfirvöld
binda miklar vonir við þessi nýju
tæki. Við afhendingu tækjanna í
Kringlunni í gær kom fram að
annað tækið verður notað í
Reykjavík en hitt í einhverju Iög-
regluumdæmi á landsbyggðinni.
Þá mun tækið koma í góðar þarf-
ir í eftirliti með ölvunarakstri t.d.
í Þórsmörk og á öðrum stórhá-
tíðum. Talið er að þriðjungur
allra ökumanna hafi ekið undir
áhrifum áfengis, samkvæmt
skoðanakönnun. -GRH
Byggingarkostnaðiir hækkar ekki
Vísitala byggingarkostnaðar
hækkar ekkert í desember - og er
raunar sú sama og hún var í júlí
sl. eða 225,9 stig. Byggingarvísi-
talan er samt 3,6% hærri en hún
var einu ári áður, en sú hækkun
varð nær öll á tímabilinu frá apr-
íl til júlí, enda vega launahækk-
anir þungt í byggingarvísitölu.
Launin vega þó ennþá þyngra í
vísitölu húsnæðiskostnaðar, þar
sem allar breytingar miðast við
breytingar meðallauna á 3ja
mánaða tímabilum. Vísitala hús-
næðiskostnaðar hækkar um
1,6% frá áramótum. Það þýðir
t.d. að 35.000 kr. húsaleiga í des-
ember hækkar í 35.560 kr. í jan-
úar, samkvæmt útreikningum
Hagstofunnar.
Sjálf launavísitalan hækkaði
um 0,3% milli október og nóvem-
ber. Alls hefur hún þá hækkað
um 7,8% á síðustu tólf mánuð-
um - rúmlega tvöfalt meira en
byggingarvísitalan. - HEl
Ástand sjávar gott
Ástand sjávar á miðunum allt í kringum landið er gott. Hlýsjórinn að
sunnan er óvenju áhrifaríkur og enn gætir lítillar vetrarkælingar. Þá
hefur kaldi Austur-Islandsstraumurinn fyrir Norður- og Austurlandi
íjarlægst.
Þetta eru helstu niðurstöður úr nýafstöðnum sjórannsóknaleið-
angri Bjarna Sæmundssonar, rannsóknarskipi Hafrannsóknastofn-
unar. -GRH
Framtíðin sagði já við Hlíf
Yfirgnæfandi meirihluti félags-
kvenna í Verkakvennafélaginu
Framtíðinni í Hafnarfirði sam-
þykkti að hetja viðræður við Verka-
mannafélagið Hlíf um sameiningu
félaganna. Stefnt er að því að
helja þessar viðræður fljótlega eft-
ir áramótin.
Niðurstaðan í póstatkvæða-
greiðslu Framtíðarinnar var að
94% sögðu já, 1% nei og 5% at-
kvæðaseðlar voru auðir og ógildir.
Þátttakan var um 51%.
Lára Sveinsdóttir, skrifstofu-
stjóri Framtíðarinnar, segir að al-
menn ánægja sé með niðurstöðuna
og þátttökuna. Hún segir að fé-
lagskonur hafi einnig ástæðu til að
fagna því að engar tilkynningar um
fjöldauppsagnir fiskvinnslufólks hafa borist félaginu fyrir þessi jól.
Það er öndvert við það sem verið hefur. Það er til merkis um það að
atvinnuöryggi fiskvinnslukvenna í Hafnarfirði sé meira en oft áður.
-GRH
Norðmeim kaupa írafoss
Eimskip er búið að selja írafoss til norska fyrirtækisins Aasen Tran-
sport í Mosterham. Norðmenn hafa fengið skipið afhent en þeir
keyptu það á 120 milljónir króna.
Eimskip keypti írafoss 1988, en þetta er rúmlega þrjú þúsund
brúttólesta stórflutningaskip. Salan er liður í endurnýjun skipa Eim-
skips í stórflutningum, en félagið er með 13 skip í rekstri. Níu þeirra
eru í flutningum milli Islands og annarra landa en hin eru í erlend-
um verkefnum.
Atvinnuöryggi fískvinnslufólks i Hafnarfirði
virðist vera meira um þessar mundir en oft
áður. íþað minnsta hafa engar fjöldaupp-
sagnir verið tilkynntar til Framtíðarinnar,
öndvert við það sem verið hefur á þessum
árstíma ígegnum árin.