Dagur - 20.12.1997, Blaðsíða 6
6- LAUGARDAGUR 20. DESEMBF.R 19 9 7
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Adstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöiuverð:
Grænt númer:
Símbréf augiýsingadeiidar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
460 6171CAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Sjátfsmorði
afstýrt
í fyrsta lagi
Loksins virðist horfa til breyttra stjórnarhátta í Borgarleikhús-
inu sem hefur átti við alvarleg vandamál að etja undanfarin ár
vegna sundurlyndis innanhúss, of lítillar aðsóknar að sýning-
um og alvarlegs tapreksturs. Samkomulag hefur náðst á milli
borgaryfirvalda og forráðamanna Leikfélags Reykjavíkur um
að stofna sjálfstætt félag sem annist rekstur hússins. Það sam-
komulag opnar möguleika á að nýta húsið mun betur og und-
ir mun fjölþættari starfsemi en hingað til - sem aftur ætti að
draga úr þörf fyrir auknar opinberar fjárveitingar til reksturs-
ins.
í öðru lagi
I athyglisverðu viðtali sem birtist í Degi í gær lýsti Þórhildur
Þorleifsdóttir, leikhússtjóri, þeim tveimur kostum sem félags-
menn í leikfélaginu stóðu frammi fyrir. Annars vegar að gerð-
ar yrðu gagngerar breytingar á rekstrinum og þá líka á innra
skipulagi Leikfélags Reykjavíkur. Ef félagsmenn í leikfélaginu
væru hins vegar ekki tilbúnir til að gera neinar breytingar þá
væri verið að „fremja hægfara sjáIfsmorð“ í góðri samvinnu við
borgaryfirvöld. Andpænis þessu vali fékk skynsemin að ráða.
Hægfara sjálfsmorði leikfélagsins á hundrað ára afmælinu
hefur því verið afstýrt.
1 þriðja lagi
Framundan er vafalaust mikil vinna við úttekt á stöðu Borgar-
leikhússins og tillögugerð um hvernig staðið verði að rekstri
þess og tekjuöflun á komandi árum. Nýja rekstrarfélagið ætti
að geta náð inn í húsið margvíslegri starfsemi annarra aðila en
leikfélagsins og þannig styrkt fjárhaginn verulega. A sama tíma
getur Leikfélag Reykjavíkur einbeitt sér að því meginhlutverki
sínu að setja upp metnaðarfullar sýningar sem eftir er tekið og
almenningur hefur áhuga á að sjá.
Elías Snæland Jónsson.
Höfðmginn
sigUr i vestur
Það þarf ekki að koma nein-
um lesendum Garra á óvart
að Garri er vinamargur, auk
þess að eiga sér sæg aðdá-
enda. Það er nú svo að ofur-
mannlegt er að sýna þá hug-
kvæmni, dirfsku og fyndni
sem Garra tekst á
hverjum degi. Það skal
því upplýst að stöku
sinnum verður það
Garra til lífs á blóðvelli
pistlaskrifa að eiga sér
vini og aðdáendur sem
stinga að honum efni
og hugmyndum. Garri
þakkar Iíka þau hundruð að-
dáendabréfa sem honum hafa
borist á árinu, svo ekki sé tal-
að um öll blómin og vínflösk-
urnar.
Skáldmæltur
Einn af nánustu vinum Garra
sendi bréf þar sem hann róm-
ar víkingalund hans og hælir á
hvert reipi. Höfundur bréfs-
ins er skáldmæltur mjög, en
hógvær með afbrigðum og vill
ekki láta nafn síns getið. Það
er skynsamleg afstaða, því
skyndileg skáldfrægð er til
þess fallin að raska einkalífi
manna og friðhelgi þess.
Hann bað hins vegar Garra að
koma á framfæri drápu einni
mikilli og er það ekki nema
sjálfsagt að miðla góðum
kveðskap til þjóðarinnar.
Drápa þessi er tregablandin
kveðja til stjórnmálahetjunn-
ar Jóns Baldvins Hannibals-
sonar sem yfirgefur vígvöll
stjórnmálanna og sest víga-
móður í helgan stein handan
V
hafsins þar sem hunang og
smjör drýpur af hveiju strái.
Höfundur segir drápuna hafa
lostið sig eins og elding, þegar
hann komst að þeirri dapur-
legu, en því miður sönnu nið-
urstöðu: „Að okkar bestu
menn eru ýmist dauð-
ir eða farnir til sólar-
landa.“ Ekkert er jafn
hættulegt góðum
skáldskap og djúpar
bókmenntalegar út-
skýringar, því er best
að gefa skáldinu orðið:
Jón Baldvin fer
Höfðinginn siglir í vestur
Hetjan er gengin frá hildi
hafði þar lengi barist
sjá má á sverði og skildi
að sótt var oft þungt og varist.
Brynjan er bætt og slitin
brotið af skaftinu spjótið
öxin er skörðótt og skitin
á skallanum sár eftir grjótið.
Veltur á Viðeyjarsundi
velbúinn knörrinn bestur
héðan með hrafni og hundi
höfðinginn siglir í vestur.
Sighvatur situr ífjöru
sá er nú lítið kátur
falinn ifiðri og tjöru
jy lgja kveðjum hans grátur.
Segir og sáran stynur
sigldu í Margrétar nafni
vertu blessaður vinur
Vínland erfyrir stafni.
GARRI
Maður heyrir mikið kvartað yfir
því að pólitíkin sé nánast alveg
bragðlaus þessa dagana. Stjórn-
arandstaðan sé svo upptekin af
eigin naflaskoðun og innbyrðis
sundurþykkju að hún nái ekkert
að beija á ríkisstjórninni. Og ef
fjölmiðlaumfjöllunin er skoðuð
þá lætur það líka nærri að þegar
stjórnarandstæðingar kveða sér
hljóðs, þá eru þeir annað hvort
að tala um sameiningu vinstri-
manna eða framtíð Kvennalist-
ans. Veiðileyfagjald hefur að vísu
dregið óskýra markalínu milli
stjórnar og stjórnarandstöðu, en
þó ekki meira en svo að oftast er
sú markalína nær því að vera
þverpólitísk.
Glæpniun stolið
Ríkisstjórnin hefur Iíka spilað
nokkuð klókt í reiptogi stjórnar
og stjórnarandstöðu og alltaf ver-
ið fljót að gefa eftir í óþægilegum
Að ná takl á stjóminni
deilumálum. Eftirgjöfin kemur
áður en málin hafa náð að
springa almennilega út. Ríkis-
stjórnin hefur þannig aftur og
aftur náð að stela glæpnum frá
stjórnarandstöðunni. Þannig var
það með vísitölutengingu ellilíf-
eyris. Þannig var það í
símamálinu - fyrir til-
stuðlan Davíðs og svo
aftur varðandi frestun
skattalækkana um dag-
inn. I staðinn fyrir að
stjómarandstaðan
næði að færa sér þau
mál í nyt, var það for-
sætisráðherrann sem
sankaði að sér vin-
sældapunktum og nýt-
ur sín nú rólegur í hlut-
verki heimsmannsins sem stjórn-
ar landinu og skrifar bækur.
Mannsins sem er stjórnmálum á
Islandi það sem Olafur Jóhann
Ólafsson er í tölvuheiminum í
Ameríku.
Fj árlagaafgangur
Þess vegna biðu áhugamenn um
stjórnmálaátök spenntir eftir
ljárlagaumræðunni, en í henni
hefur oftast verið mikið fjör og
mikil læti. En hún nær sé ekki
heldur almennilega á strik.
Menn kalla ekki einu
sinni á ráðherra til að
standa fyrir máli sínu
í þinginu, Jón Krist-
jánsson sér um
andsvörin meira og
minna frá upphafi til
enda!
Stjórnarliðarnir í
fjárlaganefnd virðast
nefnilega ástunda
svápaða tækni og rík-
isstjórnin gerir al-
mennt. Að slaka á klónni að fyrra
bragði, áður en mál ná að verða
vandamál. Tilslökunin nú er hins
vegar orðin svo mikil að tekjuaf-
gangurínn, sem menn stefndu að
heilagir í framan, er nánast upp
urinn. I því felst afar gagnrýni-
verð niðurstaða. Þó er ólíklegt að
stjómarandstaðan geti náð al-
mennilegum tökum á stjórninni
vegna Iítils tekjuafgangs, vegna
þess að útgjaldaaukinn milli um-
ræðna hlýst einmitt af því að ver-
ið er að koma til móts við mál
sem stjórnarandstaðan hefur
með áberandi hætti borið fyrir
brjósti. Einfaldasta Ieiðin fyrir
stjórnarandstöðuna til að koma
raunverulegu höggi á stjórnina
er því að hætta þátttöku í böggla-
uppboðinu um góðu og vinsælu
málin. Hún á að snúa sér þess í
stað að málum eins og litlum
tekjuafgangi á fjárlögum í bull-
andi góðæri. Tillögurnar verða
þá líka að vera raunhæfar og það
þýðir ekki að gera eins og til-
hneigingin er í dag: að krefjast
þess að bæði sé eytt og sparað.
.Ifc^wr-
Hvað líingíirþig að fá
íjólagjöf?
Einar Sigurðsson
aðstoðarmaðurforstjóra Flugleiða.
„Eg hef eiginlega
ekki haft tíma til
að hugsa um
það. Á maður
ekki að segja á
svona stundum
að maður vilji
friðsæl og gleði-
leg jól fyrir alfa heimsbyggðina.
En svo verð ég líka að viður-
kenna að það bfundar líka alltaf í
mér lítill strákur að norðan sem
vill fá að minnsta kosti einn
harðan pakka og helst eitthvað
dót.“
Edda Björgvinsdóttir
leikkona.
„Mig langar að fá
nýjustu útgáfuna
af Mercedes-
Benz, svona
pínulítinn kubb
sem er eins og
Renult Twingo í
útliti, nema að-
eins stærri. Þetta er svona
Legokubba bíll. Þetta langar mig
að fá í jólagjöf eða í skóinn, það
er alveg sama hvort er. Hvað lík-
ur varðar að fá þennan bíl þá á
maður á treysta jólasveinum og
það geri ég ennþá.“
Aðalsteinn Á. Baldursson
formaður Verkálýðsfélags Húsavíkur.
„Ég hefði ekki
ekki verið í vand-
ræðum að svara
þessu fyrir 25
árum, þá hefði
ég viljað dýr úr
plasti og búgarð.
Ég Ies lítið af
bókum, það er nóg að lesa kjara-
samninga alla daga og því eru
bækur ekki á listanum hjá mér.
Besta jólagjöfin er náttúrlega að
fjölskyldan sé heilbrigð, sæl og
glöð, en annars vantar mig úr -
gamla úrið mitt er orðið slitið."
Sigríður Amardóttir
ritstjóri dxgurmálaútvarpsRásar2.
„Ja, maðurinn
minn er mikið að
spyrja mig um
þetta. En ég veit
ekki ennþá hvað
hann er fjáður,
en það sem kem-
ur til greina er
GSM sími ef hann er fjáður en
ilmvatn ef hann er rómantískur.
Hann má sjálfur velja tegundina,
en ég tek undir með Rósu Ing-
ólfs sem sagði eitt sinn þau
fleygu orð að kona ætti aldrei að
þurfa að kaupa ilmvötnin sín
sjálf.“