Dagur - 24.12.1997, Side 1
Aftur að fjölga
í þjdðkirkjimni
Þjóökirkjimiöimiun
hefur aftur farið að
fjölga á þessu ári sem
er nýjum biskupi
fagnaðarefni.
Þjóðkirkjufólki er nú aftur farið
að fjölga, um rösklega 620
manns á þessu ári, eða ríflega
fjórðung þess sem landsmönn-
um hefur fjölgað á einu ári, sam-
kvæmt nýjum tölum Hagstof-
unnar. Það eru veruleg umskipti
frá rúmlega þúsund manna
fækkun í fyrra, litla sem enga
fjölgun í nokkur undanfarin ár.
Fólki skráðu utan trúfélaga hef-
ur aftur á móti einungis fjölgað
um rúmlega 320 á þessu ári,
borið saman við 1.330 á því síð-
asta, enda var þá algengast að
þeir sem sögðu sig úr Þjóðkirkj-
unni léíu skrá sig utan trúfélaga.
„Eg gleðst yfir þessum tíðind-
um“, sagði nýkjörinn biskup
landsmanna, sr. Karl Sigur-
björnsson. „Það er gott að finna
að fólk er tilbúið að taka hönd-
um saman við þjóðkirkjuna í
þeiri uppbyggingu og endurnýj-
un sem við viljum sjá í kirkju og
þjóðlífi. Eg skynja það svo.
Eg hef ekki lagt það niður fyr-
ir mér hver skýringin er, sem
hægt er að benda á í stuttu máli.
Þar er örugglega ótal margt sem
kemur til. En það er þetta, menn
gera sér grein fyrir að þjóðkirkjan
á Islandi er ákveðin kjölfesta í
okkar þjóðlífi - og kannski er
þetta það, að menn vilja koma til
móts við hana og styrkja hana.
Níu af hverjum tíu íslending-
um tilheyra þjóðkirkjunni, sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar.
Félögum fríkirkjusafnaðanna
fjölgaði um 350 manns á árinu,
sem langflestir eru í Oháða söfn-
uðinum, þar sem safnaðarfélög-
um hefur Ijölgað um 17% á ár-
inu. Og í öðrum trúfélögum hef-
ur fjölgað um 800 manns frá
fyrsta desember í fyrra. Meira
en helmingur þessa hóps er í
Kaþólsku kirkjunni, enda hefur
kaþólskum fjölgað um sjötta
hluta á einu ári. Félögum í
krossinum og búddistum hefur
líka fjölgað hlutfallslega mikið í
ár.
Búddistar er annað tveggja
trúfélaga sem sker sig úr hvað
hlutfall kynjanna snertir, þar
sem yfir 80% allra búddista í
landinu eru konur. Þessu er hins
vegar þveröfugt farið hjá ásatrú-
armönum þar sem karlar eru
85% félagsmanna. I öðrum trú-
félögum eru hlutföll karla og
kvenna svipuð. — HEI
Bamajól
á sjukra-
„ÖII börn og foreldrar eiga þá
ósk að komast heim um jól, þó
ekki sé nema að komast heim í
nokkra klukkutíma á aðfanga-
dagskvöld. Hægt er að verða við
óskum margra, en nokkrir verða
að vera hér á þessu helga kvöldi.
I þeim tilvikum koma foreldrar
og systkini barna sem hér dvelja
á aðfangadagskvöld hér saman
og borða saman hér og eins reyn-
um við að hafa eins jólalegt hér -
eins og hægt er,“ sögðu Anna
Ólafía Sigurðardóttir og Svana
Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingar á
Barnaspítala Hringsins í Reykja-
vík, í samtali við Dag í gær. — SBS
Sjá eittnig bls. 2.
Beðið eftir jólunum á Barnaspitaia Hr/ngsins i gær: Feðgarnir Jón Heiðarsson og sonur hans Atli Snær. Litli maðurinn er eins og
hálfs árs, en vegna veikinda hefur hann enn ekki komst heim af sjúkrahúsi eftir fæðingu. í fyrra dvaldist fjölskyldan á vökudeild
Landspítalans, en hefur nú von um að geta farið heim einhverja stund á aðfangadagskvöld. - mynd: þúk
Haukjur Ingi Guðnason. Dýrasti
knattspyrnumaður á íslandi.
Tæpar 80
miUjómr
fyrir Hauk
Kjartan Másson, framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildar Kefla-
víkur, var að vonum ánægður
með söluna á Hauki Inga til
Liverpool. „Þetta var mjög góð
sala. Það er vel séð fyrir strákn-
um, sem skiptir mestu máli, og
við erum ánægðir með okkar
hlut. Ekki síst það að við komum
á mjög góðum samskiptum við
Liverpool sem nýtast okkur vel í
framtíðinni. Þetta voru einstak-
lega góðir menn að eiga við og
stráknum líkaði svo vel þarna í
haust að hann snérist úr
Arsenaláhanganda í Liverpool
stuðningsmann og draumur
hans rættist á laugardaginn. Það
er því ljóst að við erum allir mjög
ánægðir hér,“ sagði Kjartan Más-
son.
Bresku blöðin
Það er mikið gert úr kaupverði
því sem Liverpool greiðir íyrir
Hauk Inga Guðnason. Ekki vildi
Kjartan segja nákvæmlega hvað
þeir fengu fyrir sinn snúð en
sagði það ekki fjarri lagi sem
bresku blöðin greindu frá í gær.
Þar kom fram að Liverpool hefði
borgað 150 þúsund pund fyrir
Hauk Inga auk þess sem félagið
borgar 500 þúsund pund til við-
bótar þegar hann hefur náð
ákveðnum leikjafjölda með lið-
inu.
Þá segja ensku blöðin einnig
frá því að Liverpool hafi haft bet-
ur en PSV Eindhoven frá
Hollandi sem einnig vildi fá
Keflvíkinginn í sínar raðir. — GÞÖ
Gleðileg
jól
Kertasníkix
Premium
miðlarar
BIACK&DECKER
Handverkf æri
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTUNI 31 • SIMI 562 7222 • BREFASIMI 562 1024