Dagur - 24.12.1997, Blaðsíða 2
2 - M IÐ VIKU D AGU R 24. DESEMBER 1997
FRÉTTIR
Jólakvíði - en jafn-
framt eftírvænting
Reynt er að gera bömiun
sem dveljast á Bamaspít-
ala Hringsins biðina sem
léttbærasta.
Það var sérstaeð stemmning að Iabba
um ganga Barnaspítala Hringsins í
gærmorgun. Greina mátti kvíða en
jafnframt eftirvæntingu meðal þeirra
barna sem þar dveljast. Enginn velkist
í vafa um að jólin eru hátíð barnanna
- og sjáifsagt þurfa engin þeirra að
bíða jafnlengi eftir að klukkan slái sex
á aðfangadagskvöld og þau sem dvelj-
ast á sjúkrahúsi.
Reynt að gera þeim biðina sem létt-
bærasta. I gær voru væntanlegar til
bamanna á deildinni bókagjafir frá
Vöku-Helgafelli og í fyrri viku var efnt
til jólaballs þar sem dansað var í kring-
um jólatréð og sungið var um Adam
sem átti syni sjö - sem allir elskuðu
Adam. Alíflest börnin sem dveljast á
spítalanum komast eitthvað heim um
jólin, þó ekki sé nema í fáeinar
klukkustundir á aðfangadagskvöld.
Heim í einhverja stimd
„Við komumst heim á aðfangadags-
kvöld, að minnsta kosti í einhveija
stund,“ sagði Jón Heiðarsson úr Borg-
arnesi, sem gekk um ganga með son
sinni Atla Snæ Jónsson á hendi sér.
Atli Snær er eins og hálfs árs og hef-
ur vegna veikinda enn ekkert farið
heim af sjúkrahúsi eftir fæðingu. „Við
dvöldumst í fyrra á vökudeildinni, en
höfum verið hér með son okkar síð-
ustu mánuði," sagði Jón Heiðar.
Skrýtnir dagar
„Eg vonast til að komast heim í dag,
Þorláksmessu, þannig að ég þurfi ekki
að vera hér um jólin,“ sagði María Rán
Ragnarsdóttir, tíu ára gömul, sem hef-
ur verið á spítalanum síðustu daga
vegna botlangatöku. Hún var á sjúkra-
húsinu ásamt móður sinni, Kolbrúnu
Marelsdóttur og sátu þær og horfðu á
myndband um Fred Flintstone. „Eg
hef aldrei áður verið á spítala og þetta
hafa verið svolítið skrýtnir dagar,“
sagði María Rán.
Mamma bakar
„Við Guðlaug Erla förum heim á að-
fangadagskvöld en verðum að koma
hingað fljótt til baka aftur. Við erum
búnar að vera hér fastagestir síðan í
júlí sl. og komum hingað inn sl. Iaug-
ardag, en dóttir mín er með æxli við
augað,“ sagði Sigrún Gunnarsdóttir,
ung móðir úr Grindavík sem \dð blaða-
menn Dags hittum á Barnaspítala
Hringsins í gær.
Sigrún sagði að þessi sjúkrahúsvist
hefði ekki sett sínar fyrirætlanir um jó-
laundirbúning úr skorðum, sér hefði
að mestu leyti tekist að Ijúka honum
af í nóvember - fyrir utan það síðan að
móðir sín sæi um matartilbúning og
bakstur. -SBS.
í pottinum hafa komið
fram ýmsar kenningar um
hvers vegna Gunnari Giss-
urarsyni gekk ekki betur að
komast áfram í prófkjöri
R-Iistans en raun ber vitni.
Innanbúðarmaður £ Al-
þýðuflokknum sagði, að
stuðningsmenn Gunnars
hefðu gert þau grundvall-
armistök að hringja út í
hinar ýmsu deildir flokks-
ins með mismunandi skilaboð sem sum hver
voru ekki hagstæð öðrum fylkingum. Fullyrt er
að eftir að fylkingarnar fóru að talast við hafi
náðst að móðga svo marga hópa að enginn hafi
stutt hann ...
í pottinum voru menn að
fara með limrur eftir
Hjálmar Freysteinsson
heilsugæslulækni á Akur-
eyri. Limrur þessar eru ort-
ar um jólasveinana og við-
eigandi að láta sýnishorn í
pottinn í tilefni jólanna:
Nú umboðsmenn eru á kreiki
fyrir iljanudd, heilun og reiki
en ég hef mína trú
og trú mín er sú
að ég trúi á Askasleiki.
Nærklæði af nýjasta tagi
eru nokkuð í skjólminna lagi.
Er maddama rik
mátaði ein slík
þá leið yfir Gluggagægi.
„Guðm. upplýsti að síðasta sumar hefði verið
gott, blautt og hefðbundið." Þessar upplýsing-
ar er að finna í fundargerð frá 53. fundi stjórn-
ar Reykjanesfólkvangs á dögunum. Þar kemur
li'ka fram að „hollensku hjónin sem hafa m.a.
rekið skálaræfilinn við Seltún eru að fara. Onn-
ur hjón kannski að taka við.“
Línuritin sýna
fjögurra daga
veðurhorfur á
hveijum stað.
Línan sýnir
hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu
en vindáttir og
vindstig eru
tilgreind íyrir
neðan.
Allhvöss eða
hvöss NA átt og
slydda á
Vestfjörðum en
annars NV kaldi
og skýjað suðves-
tanlands en rign-
ing norðan og
austan til. Hiti 1
til 7 stig, hlýjast
um Iandið sunn-
anvert.
Færö á vegum
Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði, hálka og hálkublettir eru á
stöku stöðum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Hálkublettir eru á
Möðrudalsöræfum og þæfingur á Hólssandi. 5 tonna öxulþunga-
takmörk eru á Hrafnseyrarheiði og 2 tonna takmörk á Lágheiði.
Að öðru leiti er góð færð á þjóðvegum landsins.