Dagur - 24.12.1997, Qupperneq 6
6 -MIÐVIKUDAGUR 24.DESEMBF.R 1997
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstodarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Símbréf auglýsingadeildar:
Simbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELI'AS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG PVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Sköpuð fvrír
ljósið og lífið
í fyrsta lagi
Jólahátíðin er að ganga í garð. Hátíð friðar og fögnuðar meðal
kristinna manna sem minnast fæðingar Jesú Krists í Betlehem
fyrir um tvö þúsund árum síðan. I nútímanum eru jólin ekki
síst tími barnanna sem bíða óþreyjufull dögum og vikum sam-
an eftir að þessi mesti hátíðisdagur ársins renni upp. Þótt hin
ytri umgerð jólahaldsins sé fyrirferðarmikil í samtímanum og
kaupmennskan setji gjarnan um of mark sitt á jólahald vestur-
landabúa gefa vonandi flestir sér næði til að meðtaka hinn eig-
inlega boðskap jólanna - markmiðið með öllu umstanginu.
í öðru lagi
„Hvers vegna eiga aðventan og jólin svo rík ítök í okkur öll-
um?“ spyr herra Karl Sigurbjörnsson, nýkjörinn biskup yfir Is-
landi, í jólahugvekju sem birt er í dag í jólablaði Dags. Og
hann svarar spurningunni þannig: „Það gerir myrkrið. Vegna
þess að myrkrið er ekki bara náttúrufyrirbæri. Það er tákn alls
þess sem ógnar lífinu, eyðir, deyðir. Vil viljum ekki tilheyra því
myrkri. Við erum sköpuð fyrir ljósið og lífið, Ijósið sem er óháð
birtubrigðum náttúrunnar og sólfari, ljósið sem eilíft er. Um
það ljós fjalla aðventa og jólin.“
I þriðja lagi
Islendingar, eins og aðrar vestrænar þjóðir, blóta mammon
ótæpilega síðustu vikurnar fyrir jólin. En hið sanna inntak jól-
anna felst ekki í gjöfum og glingri. Það felst heldur ekki í vél-
rænu helgihaldi. Svo aftur sé vitnað í jólahugvekju hins nýja
biskups í jólablaði Dags: „Þú sem nú ætlar að undirbúa heilög
jól og vilt njóta hughrifa og helgi. Leitaðu ekki langt yfir
skammt. Það fæst nefnilega ekki í hlutum, ekki einu sinni í
dýrum hlutum. Það fæst í nánd, í umhyggju, í kærleika. Taktu
utan um þau sem þér næst standa, láttu þau finna að þau skip-
ta máli.“ Já, hin sanna helgi jólanna felst í mannkærleika og
hluttekningu með öllum mönnum. Gleðilega hátíð!
Elías Snæland Jónsson.
Aflrek VISA-
Kinars
Garri á áhugamál sem hann
stundar af þeim krafti að
hann er að mestu til friðs á
heimilinu í sínum fáu en
þónokkuð góðu frístundum.
Ahugamálið sem fáir vita um
eru uppfinningar. Garri er í
hópi þeirra fjölmörgu ís-
lensku hugvitsmanna sem
hafa leyst aðskiljanlegustu
vandamál hversdagsins og
fært mannkyninu
hamingju og gleði.
Garra er alltaf
minnistætt úrið
sem var þeirrar ynd-
islegu náttúru að
ganga hratt á virk-
um dögum, en
hægt um helgar.
Þessi uppfinning sem því
miður fékk ekki náð fyrir aug-
um heimsbyggðarinnar, hefði
getað breytt ásýnd heimsins
meir en Kristnin og Komm-
únisminn samanlagt. Garri
hefur samt sem áður eins og
margir hugvitsmenn, sætt sig
við að vera á undan samtíð
sinni. Hins vegar dáist hann
að þeirri tegund uppfinninga-
manna sem ekki sætta sig við
slíkt og þverskallast við háði
og spotti samtíðarinnar.
Brauð handa hungraðum
heimi
Garri réði sér því ekki fyrir
kæti þegar hann las um einn
slíkan í blaðinu sem fundið
hafði Iausn á vandamáli sem
fæstir vissu að væri til. Það er
alltaf afrek að leysa vandamál,
en tvöfalt meira afrek er að
finna upp nýtt vandamál og
leysa það síðan. Þessi maður
er Einar S. Einarsson, for-
stjóri VISA á Islandi. Hann
hefur með hugkvæmni sinni
fundið upp fleiri vandamál og
leyst þau, en nokkur annar ís-
lendingur. Það er ljóst að slík-
um manni er þjóðin öll skuld-
bundin og mun verða um
ókomna tíð.
Nýjasta dæmið um hug-
kvæmni Einars er tvöfalt
pylsubrauð. Þessi frábæra
uppfinning leysir vanda þeirra
sem af einhverjum ástæðum
hafa löngun til
þess að graðga í
sig tveimur pyls-
um í einu, en
hafa þurft að búa
við þá fötlun að
borða eina í einu.
Munnstórar og
magamiklar
pylsuætur geta því nú, þökk
sé VISA-Einari, glaðst um jól-
in eins og hinir smámynntari
og magarýrari. Framlag hans
til þessa vanrækta minni-
hlutahóps verður líklega seint
metið.
Ný dögim neysliumar
Þetta framlag VISA-Einars
varð Garra kveikja að þ\á að
vinna eitthvert Jiað verk sem
verða kynni mannkyni til heil-
la. Slíkt er ekki áhlaupsverk
og mun Garri beita allri hug-
kvæmni sinni til að örva
landsmenn til eyðslu og
neyslu á komandi árum.
Garri óskar landsmönnum
gleðilegra jóla og hvetur þá til
að leggja höfuðið í bleyti og
reyna að yfirvinna þær tækni-
legu, líkamlegu og andlegu
takmarkanir sem hindra
taumlausa neyslu manna.
Fordæmi VISA-Einars sýnir
að við slíkt böl þarf enginn
maður að búa.
BIRGIR
GUÐMUNDS-
SON
skrifar
Það er fróðlegt að rifja upp um-
mæli foringja ríkisstjórnarinnar
sem æ ofan í æ hafa fallið síðan
núverandi stjórnarsamstarf byrj-
aði. Bæði Halldór Asgrímsson og
Davíð Oddsson hafa talað um
það sem einn megin muninn á
þessari stjórn og þeirri sem áður
sat, að nú leystu menn sin mál
innan ríkisstjórnarinnar og
kæmu svo samstæðir fram út á
við. Þessi ríkisstjórn, sögðu þeir,
leysti ekki sín mál í fjölmiðlum.
Skilaboðin voru vitaskuld þau -
ekki síst þegar Davíð talaði á
þessum nótum - að í síðustu rík-
isstjórn hafi ekki verið starfsfrið-
ur fyrir fjölmiðlagleði samstarfs-
aðilans, Alþýðuflokksins. Hvort
sem það var nú Alþýðuflokknum
og Jóni Baldvini einum að kenna
(sem teljast verður ótrúlegt) þá
er það tilfellið að ótrúlegir fjöl-
miðlafarsar einkenndu samstarf-
ið í Viðeyjarstjórninni á seinni
hluta samstarfsins ekki síst í
kringum Evrópumál og landbún-
Nýr stíllá
stjómarheimilmu?
aðarmál, kalkúnalappir og annað
fínerí.
KaLkúnalappír og traust
Skærur milli ráðherra í fjölmiðl-
á ekki hvað síst við ef slíkar
skærur eru að endurtaka sig með
reglulegu millibili. Það hins veg-
ar virkar ekki heldur mjög sann-
færandi fyrir ríkisstjórnarsam-
samstarfsflokkurinn koma
greinilega af fjöllum. Það þætti
gerræðisleg framkoma á vinnu-
stað ef verskstjóri tilkynnti um
meiriháttar uppsagnir og breyt-
ingar á vinnulagi fyrst í fjölmiðl-
um og léti hendingu ráða
hvenær starfsfólkið frétti af mál-
inu. Engu að síður er svo komið
að einmitt þessi staða er uppi á
ríkisstjórnarborðinu í dag.
um í kringum innflutning á
nokkrum kalkúnalöppum getur
auðvitað spillt fyrir trúverðug-
leika og trausti ríkisstjórnar. Það
starf ef forsætisráðherra ríður á
vaðið í fjölmiðlum og tilkynnir
um breytingar á ríkisstjórninni
þannig að allir ráðherrarnir og
Þáttaskil
Þess vegna er sérstaklega for-
vitnilegt að fylgjast með hvað
gerist í framhaldinu með ríkis-
stjórnarsamstarfið. Uppákoman
um helgina gæti hiklaust markað
ákveðin þáttaskil í þessari sam-
vinnu, þáttaskil þar sem snúið er
frá hugmyndafræðinni um „ríkis-
stjórn sem ekki leysir sín mál í
fjölmiðlum" en hefur þess í stað
tekið upp kalkúnalappastílinn.
Hvort það gerist eða hvort hér
verður um einangrað tilfelli að
ræða kemur í Ijós á nýju ári. -BG
X^ur
Ætlarþú í hirkju um
jólin?
Magnús
Kjartansson
tónlistannaður.
Nei, það hefur
ekki verið siður í
minni fjölskyldu
að fara í kirkju
um jólin, enda er
oft lítið þar um
laus sæti á þess-
ari helgu hátíð.
Ragnheiður Ásta
Pétursdóttir
þultirá Útvarpimi.
Nei, ég er lítið
fyrir að fara í
kirkju og að fara
í kirkju um jól
hefur ekki verið
siður í okkar h’öl-
skyldu. Stefanía
Valgeirsdóttir er
á þuiarvakt á aðfangadagskvöld,
en ég býst við að ég hlusti á
messuna svona í bakgrunni á
þessu helga kvöldi. Sjálf er ég
síðan á vakt á öðrum degi jóla.
Hörður
Geirsson
safnvörður í Minjasafninu á Akureyri.
Já, ég ætla í
messu í Akureyr-
arkirkju kl. 6 á
aðfangadags-
kvöld. Síðan er
ég kirkjuvörður í
Minjasafnskirkj-
unni hér, þar
sem messað er kl. 5 á öðrum
degi jóla. Þangað mæta gjarnan
50 til 100 manns í huggulega
kertaljósamessu, þar sem fólk
nær kannski að upplifa jól hinna
liðnu tíma.
Elsa
Bjömsdóttir
snyrtifræðingur á Akureyri.
Já, ég ætla í mið-
næturmessu í
Akureyrarkirkju
sem hefst kl.
23:30 á aðfanga-
dagskvöld. Fjöl-
skyldan öll hefur
farið á þessa
messu síðustu ár og sú hátíðlega
stund hefur verið verið ómissan-
di hluti í jólahaldi okkar — og
reyndar það sem ég hlakka alltaf
til, frá ári til árs.