Dagur - 24.12.1997, Page 11
l^HT
MIÐVIKUDAGUR 24.DESEMBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
k
Daglegt líf
í nxstuimm
Aðeins 100 vLkux eru
frá því Daytoii sam-
komulagið var gert og
langt frá því að öll
vandamál hafi verið
leyst.
Það sem kemur einna mest á
óvart í Sarajevó undir árslok
1997 eru ekki húsarústirnar,
sem allir hafa hvort eð er ótal
sinnum séð myndir af í sjónvarp-
inu, heldur hversu daglegt líf
virðist ganga þar fyrir sig með
eðlilegum hætti.
Nú tveimur árum eftir að
Serbar afléttu 43 mánaða löngu
umsátri sínu um borgina er
gamli miðbærinn fullur af lífi.
Viðskipti blómstra á útimarkaðn-
um, sem oftar en einu sinni var
vettvangur hryllilegra atburða
meðan stríðið geisaði. Rétt þar
hjá er svo Benetton-verslun - rétt
eins og í öllum öðrum stærri
borgum Evrópu.
Nú í haust var bæði kvik-
myndahátíð og leikhúshátíð í
borginni, fjölsóttar báðar tvær og
þangað kom fólk úr öllum
heimshornum. Hljómsveitin U2
spilaði í Sarajevó í september
fyrir fullu húsi, og það sem
áhorfendum þótti hvað best við
tónleikana var að ekkert var
minnst á stríðshörmungarnar.
„Það var gott að manni þurfti
ekki að Iíða eins og maður sé
skjólstæðingur Iíknarstofnana,"
sagði einn læknanemi sem var á
tónleikunum.
1 síðasta mánuði kaus Cat
Stevens - eða Yusuf Islam eins og
hann heitir núna - að halda í
Sarajevó fyrstu tónleika sína í
tvo áratugi.
Ekki er allt sem sýnist
En oft er ekki allt sem sýnist.
Mikið ef erlinum í miðbænum
má rekja til þess að gríðarmikið
innstreymi hefur verið af pening-
um erlendis frá auk þess sem
nokkur þúsund erlendra sendi-
manna og starfsmanna hjálpar-
stofnana eru í borginni. Fyrir
stríðið var íbúatala borgarinnar
525 þúsund, en um þriðjungur
þeirra er farinn og snýr að öllum
líkindum aldrei aftur - a.m.k.
ekki í náinni framtíð. Nærri
helmingur þeirra sem eru eftir er
atvinnulaus, og mikil fátækt er í
úthverfunum. Vatnsveitan er
brigðul, og í sumum hverfum
hitaveitan líka.
Satt að segja eru rústirnar ekki
bara lýsandi fyrir lífið í borginni,
heldur er hún ekki síður klofin
en meðan á stríðinu stóð. Fyrir
stríðið sem hófst 1992 var borg-
in blönduð múslimum og
Serbum sem bjuggu saman í sátt
og samlyndi. Rúmlega helming-
urinn voru múslimar en um
þriðjungurinn Serbar. I lok
stríðsins var meirihluti Serbanna
flúinn.
Aírani klofin borg
En þótt nánast allir sem eftir eru
séu múslimar er Iangt frá þ\a að
þeir séu samhentur hópur. Nýjar
félagslegar átakalínur eru komn-
ar til sögunnar - milli heims-
borgaranna sem fyrir voru og að-
flutta sveitafólksins sem leitaði
þar hælis í stríðinu; milli þeirra
sem héldu umsátrið út heima
fyrir og hinna sem flúðu en
sneru aftur þegar samið var um
frið; milli nýríkra útsjónarsamra
athafnamanna og allra hinna
sem lifa bara á leifunum af
gamla útbrunna sósíalíska efna-
hagskerfinu í gömlu Júgóslavíu;
milli menntaða enskumælandi
unga fólksins sem getur fengið
vinnu hjá alþjóðlegum stofnun-
um hvers konar og foreldra þeir-
ra sem tala bara eitt tungumál og
fá enga atvinnu. Að mörgu leyti
er eftirstríðsborgin Sarajevó
töluvert klofnari en hún var fyrir
stríðið þegar þar bjó saman fólk
af ólíku bergi brotið.
Samkvæmt friðarsamkomulag-
inu sem gert var í Dayton í
Bandaríkjunum er gert ráð fyrir
því að flóttafólkið snúi aftur til
síns heima. Vandinn er sá að það
virðist alls ekki ætla að ganga
upp. Vesturlönd eiga að sjá um
að samkomulaginu sé framfylgt,
en hafa hikað við að beita her-
valdi enda virðist ólíklegt að
hægt sé að leysa mörg vandamál-
anna með valdbeitingu.
í fjölmiðlum er óspart kynt
undir kynþáttaótta og raddir
þjóðernissinna eru ráðandi í
stjórnmálum, þannig að fólk á
erfitt með að mynda sér sjálfs-
mynd sína öðruvísi en í ljósi kyn-
þáttar síns. Vesturlönd hafa ekki
gert mikið til að styðja og styrkja
hófsama stjórnmálamenn, og
þeir njóta lítils stuðnings heima-
manna.
Innan Jjjóðemisnuíra
Þrátt fyrir að alþjóðlegar stofn-
anir hafi varið tveimur milljörð-
um dollara á tveimur árum til
uppbyggingar landsins, og Nató
ásamt bandamönnum sínum
hafi varið mörgum milljörðum
að auki í sín verkefni, þá hafa
þjóðernismúrarnir staðið af sér
allar atlögur.
„Það hefur svo miklu fé verið
eytt með afar, afar litlum ár-
angri,“ sagði Zdravko Grebo, lög-
fræðiprófessor í Sarajevó. Sjálfur
segist hann ekki vilja gefa upp
vonina um að eðlilegt Iíf geti aft-
ur orðið mögulegt í Bosníu og
Hersegóvínu. En á þessu stigi
telur hann hugmyndina um að
koma aftur á samhentu fjöl-
þjóðaríki vera „nánast draum-
x <(
syn .
„Það eru 100 vikur frá því
Dayton-samkomulagið var gert,“
sagði háttsettur vestrænn stjórn-
arerindreki sem þekkir vel til
mála. „A Balkanskaga hefur flók-
ið átakaferli hins vegar staðið
yfir í þúsund ár, kommúnisminn
entist í 50 ár og fjögur ár fóru í
borgarastyrjöld eða eitthvað sem
líkist borgarastyrjöld. Samt eru
allir að segja að við eigum að
leysa þetta eftir 100 vikur. ... Það
þarf að láta sjúklinginn gangast
undir meðferðina alla, og við eru
ekki einu sinni hálfnaðir. Guð
minn almáttugur, auðvitað höf-
um við ekki leyst vandamálin
ennþá.“ - Washington Post
Jeltsín mættiir til vinnu
RÚSSLAND - Boris Jeltsín, forseti Rússlands, mætti
aftur til vinnu sinnar í Kreml í gær eftir tveggja vikna
veikindi. Hann hefur dvalið á heilsuhæli frá því 10.
desember vegna heiftarlegs kvefs, en segist nú hafa
náð sér að fullu. Læknar hans hafa sagt að veikindin
hafi engin áhrif haft á hjarta Jeltsíns.
Boris Jeltsin.
Drukknar rottnr til vandræða
INDLAND - Lögreglan í Nýju-Delhi, höfuðborg Indlands, hefur um
nokkurra vikna skeið átt í mikilli baráttu \ið drukknar rottur sem
sækja stíft í áfengi sem gert hefur verið upptækt og er geymt á lög-
reglustöðvunum. Samkvæmt frásögnum dagblaða á Indlandi dansa
rotturnar uppi á borðum og stólum, lögreglunni og viðskiptavinum
hennar til mestu vandræða. Er nú svo komið að jafnvel kettir hafa
enga lyst Iengur á dýrunum.
„Fuglaflensan64 virðist smitast mifli
manna
HONG KONG - Svo virðist sem fuglaflensan dularfulla, sem vart
hefur orðið í Hong Kong undanfarið, smitist milli manna, en hennar
hefur hingað tii einungis orðið vart hjá fuglum. Sex ára drengur smit-
aðist af flensunni, en hann er skyldur þremur börnum sem voru smit- W
uð fyrir. Drengurinn er ellefta manneskjan sem greinist með flens-
una. Þrír hafa þegar látist af henni, og tvísýnt er um líf einnar konu.
Friðarsamkomulag undirritað
SOMALIA - Leiðtogar allra helstu stríðandi afla í Sómalíu undirrit-
uðu í gær friðarsamkomulag eftir að hafa verið á fimm vikna fundum
1 Egyptalandi. Hugsanlegt er að þar með sé bundinn endir á borgara-
styrjöldina í landinu, sem hófst eftir að einræðisherranum Mohamed
Siad Barre var velt af stóli árið 1991. I samkomulaginu er gert ráð fyr-
ir því að stofnuð verði bráðabirgðastjórn sem sitja skal þangað til lýð-
ræðislegri stjórnskipan hefur verið komið á.
Öryggisráðið gagnrýnir írak -
en fordæmir ekki
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR - Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti á mánudag yfirlýsingu þar sem
Irakar eru gagnrýndir fyrir að heimila ekki vopnaeftir-
litsmönnum SÞ óheftan aðgang að stöðum þar sem
grunur leikur á að vopn sé að finna. Yfirlýsingin sem
samþykkt var er þó ekki jafn harðorð og Bandaríkin
vildu, þar sem Irakar eru ekki „fordæmdir" eins og stóð
í upphaflegum drögum að yfirlýsingunni. Orðalagið var
mildað vegna mótmæla frá Rússum og Frökkum.
Leyflð bömiuium að trúa á
jólasveiniim
NOREGUR - Nærri 44 prósent Norðmanna er þeirrar skoðunar að
það sé mikilvægt fyrir börn að fá að trúa á jólasveininn í friði, að því
er fram kemur í skoðanakönnun sem birt var í gær. Það er þó dálítið
breytilegt eftir stjórnmálaskoðunum hve Norðmenn telja trúna á jóla-
sveininn mikilvæga. Þannig eru aðeins 28% þeirra sem kjósa Vinstri-
flokkinn þeirrar skoðunar að jólasveinatrúin sé börnunum mikilvæg,
en hins vegar er Framfaraflokkurinn greinilega helsti stuðningsflokk-
ur jólasveinsins, því 50% kjósenda hans telja að börn eigi að fá að trúa
á hann í friði.
Skóli fyrir þriggja ára
SVIÞJÓÐ - Nýr skóli tekur til starfa næsta haust í sænska bænum
Rynkeby skammt frá Stokkhólmi, og er hann ætlaður börnum frá
þriggja til fjórtán ára. Þriggja ára börnin byrja strax að læra ensku sem
fyrsta erlenda tungumál. Við tíu ára aldur bætist annað erlent tungu-
mál við, og svo þriðja tungumálið þegar þau verða tólf ára. Mikil áher-
sla verður einnig lögð á tölvukennslu, en það eru foreldrar barnanna
sem eiga frumkvæðið að stofnun hans.
íþróttastöðiimi lokað iim áramót
DANMÖRK - Dönsku sjónvarpsrásinni TVS, sem sýnir eingöngu
íþróttaefni, hefur eklci verið eins vel tekið af áhorfendum og vonast
var til. Taprekstur hefur verið á stöðinni, og erfiðlega gengið að safna
áskrifendum. Hefur þvf verið ákveðið að hætta útsendingum stöðvar-
innar frá og með áramótunum.