Dagur - 14.02.1998, Qupperneq 1
Rfldd innheiinti tugi
milljóna án heimildar
Hjón í Bolungarvík
lögðu fjármálaráðu-
neytið. Ólögmætt
skráningargjald sjó-
inaima innheimt í
fjögur ár. Mannleg
mistök, segir ráðu-
neytið.
„Þingmenn hafa sett lög sem
segja að rfkið megi stela ef það
kemst upp með lengur en tvö ár
og þá á það,“ segir Jón Guðbjarts-
son, útgerðarmaður Gunnbjarnar
IS í Bolungarvík.
Fjármálaráðuneytið viður-
kenndi á dögunum að það hefði
látið innheimtumenn ríkissjóðs
innheimta ólöglega 5 þúsund
króna skráningargjald í hvert sinn
sem undanþágumaður var skráð-
ur í skipsrúm. Endurgreiðsla rfk-
isins nær þó aðeins til síðustu
tveggja ára þótt þetta hafi við-
gengist frá árinu 1994. Gjaldið
var greitt hjá sýslumannsembætt-
um landsins þar sem lögskráning
fer fram. Lætur nærri að þarna sé
um tugi milljóna króna að ræða
sem ríkið hefur haft af útgerðum
Iandsins án þess að hafa heimild
til þess í lögum. Hinsvegar hafði
ríkið heimild til þess í lögum frá
1991 um aukatekjur ríkissjóðs en
sú heimild datt út við setningu
laga nr. 50 frá 1994. Engu að síð-
ur var innheimtunni haldið
áfram, eða þangað til starfsmönn-
Jón Guðbjartsson, útgerðarmaður í
Bolungarvfk.
um ráðuneytisins var sýnt fram á
ólögmæti þess.
Þyrnir í augum
Jón segir að þetta skráningargjald
hafi lengi venð útgerðum þyrnir í
augum. LÍÚ hafi lengi gert at-
hugasemdir við það en án árang-
urs og hefur þó aðgang að fjö\-
mörgum lögfræðingum. Það fór
svo að Jón og kona hans fóru að
grafast fyrir um það á eigin spýtur
hvort þessi innheimta gæti stað-
ist, en hvorugt þeirra er lögfræði-
menntað. Eftir fjölmargar bréfa-
skriftir, símtöl og fyrirspurnir við
ýmsa aðila komst loks skriður á
málið eftir að Jón náði sambandi
við starfsmann í tekju- og laga-
skrifstofu fjármálaráðuneytisins.
Eftir nokkra yfirlegu fann starfs-
maðurinn að það væri engin laga-
stoð fyrir innheimtu á þessu
skráningargjaldi og því ætti hann
rétt á endurkröfu frá ríkinu.
Mistök
„Það uppgötvuðust þarna mann-
leg mistök og menn brugðust við
þeim með eðlilegum hætti,“ segir
Indriði H. Þorláksson, skrifstofu-
stjóri í tekjudeild fjármálaráðu-
neytisins.
Hann segir að þetta dæmi úti-
heimti ekki frekari skoðun á inn-
heimtumálum ríkisins. Þarna sé
um einstakt mál að ræða sem
rekja megi til mannlegrar yfirsjón-
ar þegar verið var að færa inn
breytingar á innheimtunni í tölvu-
kerfinu í framhaldi af gildistöku
laga frá 1994. — GRH
Laxness
kvaddur
Útför Halldórs Kiljan Laxness
verður gerð frá Kristskirkju í dag.
Athöfnin hefst kl. 13.30. Henni
verður sjónvarpað og útvarpað
beint. Útsending ríkissjónvarps-
ins hefst kl. 13. Hægt verður að
fylgjast með útförinni á sjónvarps-
skjám í safnaðarheimili kaþólska
safnaðarins og í Hlégarði í Mos-
fellssveit.
Kristskirkja verður opnuð ld.
12.30. Séra Jakob Roland, prest-
ur hjá kaþólska söfnuðinum,
syngur sálumessu, en séra Gunn-
ar Kristjánsson, prófastur á
Reynivöllum í Kjós, flytur minn-
ingarorð. Að athöfn lokinni verð-
ur kistan flutt í Fossvogskapellu,
en þar mun bálför fara fram síðar.
Duft skáldsins verður Iagt í mold
að Mosfelli í kyrrþey.
Að athöfninni í Kristskirkju lok-
inni býður ríkisstjórnin til erfi-
drykkju í Súlnasal Hótel Sögu.
Listamenn efndu til samveru-
stunda í Reykjavík og á Akureyri í
gær og Pjotr Sabiro afhenti ríkis-
stjórninni að gjöf brjóstmynd af
Halldóri.
Islendingaþættir Dags eru helg-
aðir minningu Halldórs Kiljan
Laxness. Hans er einnig minnst á
leiðaraopnu blaðsins.
GabrioW
(höggdeyfar)
Gi
varahlutir
Hamarshöfða 1-112 Reykjavík
Sími 567 6744-Fax 567 3703
Halldór Kiljan Laxness. Útför hans verður gerð i dag.
Ráðuneyt-
ið svaraði
ekki
Nýjustu upplýsingarnar um að-
draganda og meðferð Steiner-
málsins hafa orsakað alvarlegan
trúnaðarbrest milli lögregluyfir-
valda og dómsmálaráðuneytisins
og hafa ráðherrar sakað yfirlög-
fræðing lögreglunnar um sak-
næmt trúnaðarbrot. Þar greindi
Sturla Þórðarson yfirlögfræðingur
frá efni funda hans og Arnars
Jenssonar með dómsmálaráð-
herra um reynslulausn Franklins
Steiner.
I skýrslu Atla Gíslasonar, setts
rannsóknarlögreglustjóra, kemur
fram að Atli hafi ítrekað óskað eft-
ir upplýsingum frá dómsmála-
ráðuneytinu um afskipti Arnars
og Sturlu af málinu. Þeim fyrir-
spurnum svaraði ráðuneytið ekki.
Stjórnarandstaðan í Allsherjar-
nefnd Alþingis ætlar að herða
róðurinn fyrir því að Steiner-mál-
ið verði tekið fyrir í nefndinni,
málsaðilar kallaðir til að svara
spurningum og skýrsla Atla Gísla-
sonar öll afhent nefndinni. Þar
fyrir utan verður að líkindum efnt
til utandagskrárumræðu um trún-
aðarbrestinn. — FÞG/s.DÓR
Sjá fréttashýringu hls. 8-9.
m BIACKSOECKER
_HonJverUæri
SINDRI k
-sterkur í verki
BORGARTUNI 31 • SIMI 562 7222 • BREFASIMI 562 1024