Dagur - 14.02.1998, Síða 5
Ð^ur
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 - S
FRÉTTIR
Engin
sýning
Meirihluti vætanlegra
þátttakenda á sjávar-
útvegssýningnm 1. -
4. september 1999
valdi að táka þátt í
þeirri sýningu sem
verður í Kópavogi í
stað sýningar í
Reykjavík.
Það var að frumkvæði þrettán
fyrirtækja sem tekið höfðu þátt í
sjávarútvegssýningunni 1996 að
efnt var til atkvæðagreiðslu um
sýningarnar. Þeir töldu að ef
haldnar yrðu tvær sýningar á
sama tíma yrðu það tvær veikar
sýningar í stað einnar sterkrar.
Nexus Media Ltd. hefur staðið
að sýningum í Laugardalshöll,
Icelandic Fisheries Exhibition,
en átti lægra tilboð í Laugardals-
höllina eftir útboð Reykjavíkur-
borgar en Sýningar ehf., sem
hugðist standa fyrir sýningunni
FishTec. Tilboð Sýningar var 25
milljónir króna, en fyrir síðustu
trvara.
Forsvarsmenn fjölmargra sjávarútvegsrfyrirtækja komu saman nýlega til að lýsa yfir
stuðningi við Nexus i slagnum um sjávarútvegssýningu hér á landi 1999 og nú hafa
þeir haft betur.
sjávarútvegssýningu voru greidd-
ar um 3 milljónir króna í leigu.
Nexus gerði í framhaldi af því
samning við Kópavogsbæ um
sýningarhald í íþróttamannvirkj-
um þar.
Alls höfðu 155 fyrirtæki kjör-
gengi í atkvæðagreiðslunni, þar
af tóku 136 þátt, eða 87,7% en
skilyrði var að þátttakan yrði
70%. Þau skiptu með sér 433 at-
kvæðaseðlum en atkvæðavægi
var reiknað út frá stærð sýning-
arsvæðanna og af þeim skiluðu
sér 406 og því var gerð grein fyr-
ir 93,8% atkvæða. Nexus Media
hlaut 238 atkvæða, eða 65,6%
þeirra sem tóku afstöðu, en Sýn-.
ingar 125 atkvæði, eða 34,4%. I
kjölfar atkvæðagreiðslunnar
ákváðu Sýningar að standa ekki
fyrir FishTec ‘99 til að lægja þær
öldur sem risið höfðu.
Sýningar höfðu þegar greitt
um 12 milljónir króna í leigu fyr-
ir Laugardalshöll og sett banka-
tryggingar fyrir eftirstöðvunum,
13 milljónum króna, en kominn
var á bindandi samningur án fyr-
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, borgarstjóri, segir að
samningurinn tryggi Reykjavík-
urborg umrædda upphæð.
„Við ætluðum okkur aldrei að
hafa þessa sjávarútvegssýningu
að neinni tekjulind fyrir borgar-
sjóð. Hins vegar teygðu menn sig
ansi langt í samkeppninni um
húsið, og við eðlilegar aðstæður
hefðu tekjur borgarinnar orðið 3
milljónir króna. Við munum ekki
hefta það þó þarná verði sýning
annarar tegundar, þ.e. sem ekki
tengist sjávarútvegi, heldur ræða
það við forsvarsmenn Sýninga.
Eg held að það hafi aldrei neinn
haft trú á því að hér yrðu tvær
sjávarútvegssýningar og engum
til hagsbóta. Þegar sýning af
þessu tagi er haldin á höfuðborg-
arsvæðinu þá skilur hún eftir
miklar tekjur í Reykjavík. Hér
eru t.d. hótelin, veitingastaðirnir
og leigubílarnir og því breytir
það engu um tekjur Reykjavíkur
þó sjávarútvegssýningin sé hald-
in í Kópavogi," segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir. — GG
Endurgreiða
Cargolux
Samgöngu-
ráðuneytið
hefur samið
við Cargolux
um að flugfé-
lagið fái end-
urgreitt of-
greitt elds-
neytisgjald
vegna frakt-
flutninga til
N-Ameríku.
Endur-
greiðslan er
milljónir
Halldór Blöndal,
samgönguráðherra.
upp á tæplega 10
króna og fellur Car-
golux um leið frá frekari kröfum.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um Dags kom í ljós eftir ítrekað-
ar fyrirspurnir í Flugráði og úr-
skurð samkeppnisráðs, að Car-
golux sæti ekki við sama borð og
Flugleiðir við greiðslu eldsneyt-
isgjalds. Flugleiðir hafa sloppið
viö gjaldið af N-Ameríkuflugi, og
af flugi til Luxemburg og Kaup-
mannahafnar. Eftir úrskurð
samkeppnisráðs varð Halldór
Blöndal að afnema eldsneytis-
gjaldið eða láta jafnt yfir alla
ganga. Með ákvörðun um að
endurgreiða Cargolux hefur sú
afstaða verið tekin að eldsneytis-
gjaldið haldi sér, en að farið verði
eftir forskrift Flugleiða. Ljóst er
að tekjur Flugmálastjórnar
munu Iækka og miðað við fjár-
hag stofnunarinnar verða aðrar
tekjur að koma í staðinn. — FÞG
íslenska útvarps-
félagið í farsímann
Islenska útvarpsfélagið, sem
m.a. á og rekur Stöð 2 og Bylgj-
una, undirritaði í gær viljayfirlýs-
ingu um kaup á 35% í Islenska
farsímafélaginu. Það hefur feng-
ið leyfi til að reka GSM símkerfi
í landinu og mun fara í loftið á
fyrri hluta ársins. Þá hefur félag-
ið sótt um Ieyfi til reksturs svo-
nefndra DCS - 1800 síma.
Með þessum samningi verður
íslenska útvarpsfélagið næst-
stærsti eigandinn í Islenska far-
símafélaginu á eftir bandaríska
stórfyrirtækinu Western Wire-
less sem á 47,3%. Þá á The Walt-
er Group sem einnig er bandar-
ískt 17,4% og Ragnar Aðalsteins-
son lögmaður 0,5%.
Forráðamenn Islenska út-
varpsfélagsins telja að með kaup-
um sínum í Islenska farsímafé-
laginu gefst fyrirtækinu nýtt
tækifæri til að auka enn þjón-
ustu við sína viðskiptavini. I því
sambandi er m.a. bent á þá
miklu möguleika sem felast í
samtengingu og samvirkni Inter-
nets við GSM síma. — GRH
Jón Ólafsson og Brad Horwitz handsaia viijayfiriýsingu um kaup íslenska útvarpsfé-
lagsins á 35% hlut i íslenska farsímafélaginu, sem var undirrituð í gær í höfuö-
stöðvum þess siðastnefnda að Síðumúla 28. - mynd: hilmar
Landssíminn lækkar
Þriðjungur íslendinga eldri en
15 ára er kominn með farsíma og
reikriað með að þeim fari áfram
hraðljölgandi. GMS notendum
hefur Ijölgað tvöfalt hraðar en
áætlað var 1994 og voru orðnir
fleiri en 40 þúsund í byrjun árs-
ins. Auk þess voru þá 25 þúsund
NMT farsímar í notkun. „Mjög
góð afkoma er af rekstri GMS
kerfisins. Tekjur hafa skilað sér
mun hraðar og uppbygging kerf-
isins kostað minna en ráð var
fyrir gert,“ segir í tilkynningu frá
Landssímanum um lækkun á
gjaldskrá fyrir farsímaþjónustu.
Mínútugjald á dagtaxta verður
lækkað um 3 kr. þann 1. mars,
og verður 21.90 kr. Jafnframt
stendur GMS notendum til boða
að greiða hærra mánaðargjald -
1.560 kr. í stað 633 kr. - gegn
lækkun á mínútugjaldi í 17,50
kr. á dagtaxta og 11.70 kr. á
kvöldin. Þetta segir Landssíminn
hagstæðara fyrir þá sem nota
GMS-símann a.m.k. tvær
klukkustundir á mánuði. Verð
símtala til útlanda breytist ekki.
- HEl
Krafa Odds vekur óróa
Krafa Odds Helga Halldórssonar, bæjarfulltrúa
Framsóknar á Akureyri, um eitt af þremur efstu sæt-
um á framboðslista flokksins vekur óróa meðal
flokksmanna. Elsa Friðfinnsdóttir, formaður Fram-
sóknarfélags Akureyrar, segir að stefnt sé að því að til-
lögur uppstillingarnefndar, sem byggja eiga á niður-
stöðu skoðanakönnunar meðal flokksmanna, verði af-
greiddar í fulltrúaráði flokksins helgina 21.- 22. febr- Halldórsson.
úar nk.
Elsu þykir miður að menn séu að tjá sig um listann áður en niður-
staða liggur fyrir. „Það er mjög óþægilegt, því framboðslistinn er ekki
frágenginn og það er ákveðin kurteisi við þá sem eru í fulltrúaráðinu
að þeir fái fyrstir að fjalla um sætaskipan án utanaðkomandi þrýstings
gegnum fjölmiðla," segir Elsa Friðfinnsdóttir. — GG
Oddur
Laxness minnst um allt land
Bandalag íslenskra lista-
manna, rithöfundasam-
bandið og fleiri gengust fyr-
ir minningarstund um Hall-
dór Kiljan Laxness víða um
land í gær. Markmiðið var
að gefa sem flestum lands-
mönnum kost á því að koma
saman til að heiðra minn-
ingu skáldsins, en útför
hans fer fram í dag. Fjöl-
menni var á Ingólfstorgi í
Reykjavík og margir komu
einnig saman á minningarstund á Ráðhústorginu á Akureyri þar sem
þessi mynd var tekin. Minningarstundir voru t.d. einnig á ísafirði og
Egilsstöðum.
Jóhanna ekki á lista
Athygli vekur að Jóhanna Engilbertsdóttir, formaður Landssambands
framsóknarkvenna, er ekki á lista yfir efstu menn sem Framsóknar-
flokkurinn í Hafnarfirði hefur stillt upp fyrir kosningarnar í vor, en
hún Ieiddi listann í síðustu kosningum. Formaður fulltrúaráðs flokks-
ins segir það alfarið ákvörðun Jóhönnu að taka ekki sæti meðal efstu
manna.
Þorsteinn Njálsson, heimilislæknir og tóbaksvarnafrömuður, mun
skipa efsta sætið. I öðru sæti verður Guðrún Hjörleifsdóttir, leiðbein-
andi, spámiðill og dulspekingur, sem starfar hjá Sálarrannsóknarfé-
laginu. — FÞG