Dagur - 14.02.1998, Blaðsíða 10
10-LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
O^ttr
Au-pair
ÞJÓÐMÁL
Au-pair óskast til íslenskrar
fjölskyldu í Noregi sem fyrst.
Við búum í nágrenni Osló og eigum
fjögur börn, 2ja-10 ára.
Þú þarft að vera barngóð, reyklaus
og með bílpróf (eldri en 18 ára).
Ef þú hefur áhuga sendu umsókn til Ragnhildar Magnús-
dóttur, Bergslobtvegen 86 3400 Lier, Norge.
Uppl. í síma 0047-32847084 eða 0047-91595042.
Verslun / heimilistæki
Vaxandi fyrirtæki / verslun sem selur m.a. þvotta-
vélar, kæliskápa, sjónvörp og ýmis önnur raf-
magnstæki óskar eftir sölumanni.
Óskum eftir jákvæðum, metnaðarfullum og heiðar-
legum starfsmanni, sem er tilbúinn í krefjandi
starf. Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Svör sendist Degi, merkt: „Akureyri 1234“, með
upplýsingum um nafn, aldur og fyrri störf fyrir 25.
febrúar. 100% trúnaður.
EES-samningurinn
hefur verid birtur á vefsetri
utanríkisráðuneytisins:
www.utn.stjr.is
Þar eru einnig fjölmargar upplýsingar um ut-
anríkisþjónustuna og utanríkismál, m.a. frétta-
tilkynningar, skýrslur, ræður og greinar.
verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju miðvikudaginn 18.
febrúar kl. 14.00.
Sigurlína Magnúsdóttir,
Jóhann Lúðvíksson,
Elísabet Valgerður Magnúsdóttir,
Jóhann Birgir Magnússon,
Magnús Bragi Magnússon,
Steingrímur Magnússon,
Halldóra Magnúsdóttir,
Þorgils Magnússon,
Ólafur Bjömsson,
systkini, tengdabörn og barnabörn.
J - L
ORÐ DAGSINS
462 1840
S____________r
Samgönguvandi Grafarvogs var ræddur á fundi sem Sjálfstæðisfélagið i hverfinu boðaði nýiega með ibúum, Halldóri Blöndal
samgönguráðherra og Guörúnu Ágústsdóttur, forseta borgarstjórnar.
Samgönguvandi
Grafarvogs
FRIÐRIK
HANSEN
GUÐMUNDS-
SON
FORMAÐUR ÍBÚASAM-
TAKA GRAFARVOGS,
SKRIFAR
Fyrir hönd íbúasamtaka Grafar-
vogs fagna ég þeim áhuga sem
borgarstjóri og samgönguráð-
herra sýna á því að leysa sam-
gönguvanda Grafarvogs. Þessar
áætlanir Ieysa hins vegar engan
vanda fyrr en í fyrsta lagi árið
1999 og þá aðeins hvað varðar
Gullinbrú. Umferðarþungi um
Vfkurveg og Vesturlandsveg fer
ört vaxandi eftir því sem íbúum í
Grafarvogi fjölgar. Þar stefnir í
meiri vanda en við Gullinbrú.
Furðu sætir að borgarstjóri skuli
fyrst nú Iýsa því yfir að borgin
ætli að leggja áherslu á fram-
kvæmdir við Gullinbrú. íbúa-
samtök Grafarvogs hafa á síð-
ustu árum margítrekað við borg-
aryfirvöld nauðsyn þess að ráð-
ast í samgöngubætur. Þrátt fyrir
þetta hefur borgarstjóri ekki lagt
megináherslu á þessar fram-
kvæmdir fyrr en nú með bréfi til
ríkisvaldsins. Ljóst er að borgar-
yfirvöld hafa það í hendi sér að
forgangsraða þeim fjármunum
sem ríkið Ieggur til vegagerðar í
þéttbýli. Með því að borgaryfir-
völd hafa ekki sett Gullinbrú á
forgangslista, hafa Grafan'ogs-
búar mátt þola viðvarandi tafir á
leið til og frá hverfinu.
Samgöngur í ólestri
Það mættu flestir Grafarvogsbú-
ar of seint til vinnu miðvikudag-
inn 4. febrúar síðastiiðinn. Það
tók 20 til 40 mínútur lengur en
venjulega að komast úr úr hverf-
inu. Þetta er ]jví miður ekki í
fyrsta sinn sem slíkt ófremdar
ástand skapast. Það sem veldur
hinsvegar mestu um gremju íbú-
anna er að það er fyrirsjáanlegt
að þetta muni gerast æ oftar.
Ekki þarf annað til en einn
árekstur eða snjókomu og hálku,
þá stórminnkar afkastageta þess-
ara tveggja einbreiðu gatna sem
öll umferð inn og úr hverfinu fer
um. Eða þær lokast alveg. Vegna
góðs tíðarfars í vetur hefur þetta
gengið. Ef þetta væri snjóavetur
væri ekki að sökum að spyrja,
umferðarhnútar myndast og
biðraðir, sem mælast í kílómetr-
um.
Gullinbní
Stjórn Ibúasamtakanna hefur
undanfarin 3 til 4 ár unnið að
því að vekja athygli á þessum
málum og þrýst á stjórnvöld að
bæta úr. Itrekað hefur verið bent
Væri verkið boðið út
nú í febrúar eða mars
’98, væri hægur
vandi að taha tvö-
falda Gullinbrú í
notkun nú í haust.
á að helja eigi strax breikkun
Gullinbrúar. Hvað dvelur sam-
komulag milli borgarinnar og
ríkisins um GuIIinbrúna og af
hverju er ekki þegar búið að setja
framkvæmdir í gang. Einnig vek-
ur undrun hve Iangur tími er
ætlaður í framkvæmdir. Verkinu
á ekki að ljúka fyrr en 1999.
Hvers vegna? Væri verkið boð-
ið út nú í febrúar eða mars 98,
væri hægur vandi að taka tvö-
falda Gullinbrú í notkun nú í
haust. A virkilega að leggja það á
íbúa Grafarvogs að vera með
einfalda Gullinbrú einn veturinn
í viðbót?
Vesturlandsvegur og Víkur-
vegur
Annað mál sem er að verða ekki
minna vandamál en Gullinbrúin
eru gatnamótin Víkurvegur,
Vesturlandsvegur og Vestur-
Iandsvegur niður að gatnamót-
um við Suðurlandsveg. A þess-
um gatnamótum hefur ástandið
stórversnað frá því í sumar og
Vesturlandsvegur milli þessara
Ijósa annar orðið ekki umferð-
inni. Biðröð bíla að koma frá
Mosfellsbæ á morgnana og
þurfa að bíða á ljósum við Víkur-
veg er gjarnan tvö til þrjú hund-
ruð metra löng, en getur hæg-
lega orðið lengri á „góðum degi“.
A Vesturlandsveginum milli Vfk-
urvegar og Suðurlandsbrautar er
síðan bíll við bíl í samfelldri röð.
Hér er verið að tala um venjulegt
ástandið á góðum þurrum degi.
Sundabraut
Þriðja málið er að byggja þarf
brú yfir Kleppsvíkina. Ibúasam-
tökin hafa krafist þess að ekki
verði hafin nein uppbygging í
Geldinganesi og umferðarálagið
á núverandi gatnakerfi aukið,
nema samhliða verði farið af
stað með byggingu brúar yfir
Kleppsvíkina. Breikkun Gullin-
brúar ein og sér mun ekki duga
til þess að taka við umferð úr
Geldinganesi ofan á allt annað.
Knýja verður á um framkvæmdir
því aðeins með Kleppsvíkur-
brúnni verða samgöngumálin
hér í Grafarvogi leyst. Þó Gullin-
brúin verði breikkuð og lagfært
við Víkurveg og Vesturlandsveg,
þá er staðan áfram sú að aðeins
tvær vegtengingar eru inn í Graf-
arvoginn. Þegar eitthvað er að
veðri þá skapast vandræði á báð-
um þessum götum.
Framkvæmda er þörf
Ibúar í Grafarvogi sjá fram á
meira og minna óbreytt ástand í
umferðarmálunum næstu árin.
Mannfjöldi á stærð við bæjarfé-
lag eins og Sigluljörð mun flytj-
ast inn í Grafarvog á næstu 12
mánuðum. Þessi umferð á að
bætast ofaná þegar yfirhlaðið
gatnakerfi. Tvöföldun Höfða-
bakka frá Stórhöfða að Hallsvegi
og þar með tvöföldun Gullinbrú-
ar er eins og plástur á beinbrot.
Miklu meira þarf að koma til.
Þessi mál verða ekki leyst til
frambúðar nema til komi fleiri
tengingar inn í hverfið og byggð
verði brú yfir Kleppsvíkina. Fyr-
irsjáanleg er hver uppákoman á
fætur annarri næstu mánuði, að
ekki sé minnst á næsta vetur að
óbreyttu ástandi.
Krafa íbúasamtakanna er skýr.
Höfðabakki verði tvöfaldaður
ásamt Gullinbrú og framkvæmd-
um Ijúki nú í haust. Vesturlands-
t'egur verði tvöfaldaður milli
Víkurvegar og Suðurlandsbraut-
ar og framkvæmdum Ijúki nú í
haust. Brúin yfir Kleppsvíkina
verði tekin í notkun inna 4 ára
svo og mislæg gatnamót á mót-
um Víkurvegar og Vesturlands-
vegar.