Dagur - 14.02.1998, Blaðsíða 12
12- LAVGARUAGUR 14. FF.BRÚAR 1998
ro^ir
ÍÞRÓTTIR
iUÉimrtrag
Bætir Vala heimsmetiö sitt?
Þrír íslenskir frjálsíþróttamenn verða í sviðsljósinu í
Eskilstuna í Svíþjóð í dag, en þar fer fram sænska
meistaramótið. Vala Flosadóttir, heimsmethafi innan-
húss, og Þórey Edda Elíasdóttir keppa báðar, en átján
konur eru skráðar til leiks. Þetta er fyrsta mót Völu frá
því í Bielefeldt í Þýskalandi, þar sem hún setti nýtt
heimsmet innanhúss, 4,42 m. Þriðji íslenski keppand-
inn er Einar Karl Hjartarson, sem setti Islandsmet í
hástökki, um síðustu helgi þegar hann fór yfir 2,16 m.
Vala Flosadóttir.
Sex á Thomas-híkariim
íslensku karla- og kvennalandsliðin í badminton taka þátt í alþjóðleg-
um mótum um næstu helgi. Karlaliðið tekur þátt í undankeppni Thom-
as-bikarsins sem fram fer í Noregi og Filippseyjum samtímis. Islenska
karlaliðið er skipað þeim Tryggva Nielsen, Arna Þór Hallgrímssyni,
Nirði Ludvigssyni, Guðmundi Adolfssyni, Sveini Sölvasyni og Brodda
Kristjánssyni, sem jafnframt er þjálfari hópsins. Islenska liðið mun
leika við Slóvena á laugardag, Letta á sunnudag og þriðja og síðasta
viðureignin verður gegn Frökkum á mánudaginn. Kvennaliðið tekur
þátt í Uber Cup, þar sem leikið verður gegn Eistlandi, Suður-Afríku og
Póllandi. Það er skipað þeim EIsu Nielsen, Vigdísi Asgeirsdóttur, Drífu
Harðardóttur, Brynju Pétursdóttur, Katrínu Atladóttur og Birnu Peder-
sen.
Varnarliðið / laust starf
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða bif-
vélavirkja til starfa á Bifreiðaverkstæði Stofnunar
verklegra framkvæmda.
Starfið felst í vélastillingum ásamt öllum almenn-
um viðgerðum. Æskilegt er að viððkomandi hafi
þekkingu á bílarafmagni og reynslu af notkun
tölvustýrðra vélastillingatækja. Góð enskukunnátta
nauðsynleg.
Umsóknir berist til Ráðningardeildar Varnarmála-
skrifstofu, Brekkustíg 39, Reykjanesbæ, sími 421
1973, eigi síðar en 20. febrúar 1998.
Starfslýsing liggur þar frammi til aflestrar fyrir um-
sækjendur og er þeim bent á að lesa hana áður
en sótt er um.
Umsóknareyðublöð fást á sama stað.
BORGARBIO KYNNIR:
í New York er framinn glæpur á 8. hverri sekúndu.
Rétt utan við New York er smábærinn Garrison þar sem
lögreglustjóri bæjarins hefur valdið á yfirborðinu en löggur
stórborgarinnar stjórna í raun öllu.
Lögreglustjórinn (Stallone) stendur nú frammi fyrir því að þurfa að
velja milli þess að vernda þá sem hann lítur upp til eða framfylgja
lögunum. Mögnuð mynd með stórleikurunum Silvester Stallone,
Robert DeNiro, Harvey Keitel og Ray Liotta.
HTTP://WWW.NET.IS/BORGARBÍÓ
CcreArbié
Grindvíkingar hömpuðu bikarnum 1995. Tekst þeim að endurtaka afrekið I dag? - mynd: bg
Klófesta ísflrd-
tngar bikariim?
Bikarveislan verður í
Laugardagshöllinni í
dag. ísflrðingar reyna
að vinna sinn fyrsta
stðra titil meðan
Grindvíkingar ætlar
sér að endurheimta
bikarinn.
Körfuboltaveisla verður í Laugar-
dalshöllini í dag. Klukkan 15.00
hefst leikur Keflvíkinga og IS í
kvennaflokki og strax að honum
loknum takast Grindvíkingar og
Isfirðingar á um karlabikarinn.
Keflavíkurstelpurnar hafa verið
með yfirburði í kvennakörfunni
hér á Iandi í mörg ár. Þær unnu
KR stelpurnar í ævintýralegum
úrslitaleik á síðasta ári og ætla sér
ugglaust að vinna bikarinn aftur
nú. Stúdínur geta þó bitið frá sér
og eru eina liðið, ásamt KR, í
kvennaboltanum sem getur velgt
Keflvíkingunum undir uggum.
Nýr vcrðlaimagripur
Atlavík á Eskifirði, fyrirtæki sem
flytur inn verðlaunagripi, hefur
geííð nýjan og glæsilegan bikar
sem stelpurnar keppa um. Ekki
var vanþörf á, því gamli bikarinn
var Iítið fyrir augað og ekki sam-
bærilegur við karlabikarinn. Töl-
fræðin segir að það verði Kefla-
víkurstúlkurnar sem vinna. Þær
hafa unnið bikarkeppnina átta
sinnum frá árinu 1987. Stúdínur
gera þó örugglega sitt til að koma
í veg fyrir að bikarinn fari suður
fyrir Straum.
UMFG og KFI
Lið Grindvíkinga og Isfirðinga
eru þau lið sem hafa staðið sig
hvað best í vetur ásamt Haukum.
Bæði hafa liðin þó verið að hiksta
í síðustu Ieikjum sínum. Isfirð-
ingar hafa ekki unnið leik frá því
þeir rótburstuðu Njarðvíkinga í
undanúrslitaleiknum á Isafirði á
dögunum. Grindvíkingar hafa að
vísu klárað sína leiki en ekki með
þeim glæsibrag sem af þeim er
ætlast.
KFI og Grindavík eru afar ólfk
lið og spila ólíkan körfubolta. Is-
firðingar eru með mjög sterka
mið- og framherja, þá Friðrik
Stefánsson og David Bevis. Nái
þessir menn sér á strik og ef
Marco Salas dælir inn á þá send-
ingum er fátt sem stoppar KFI.
Grindvíkingar tefla aftur á móti
fram besta bakvarðapari landsins,
Helga Jónasi Guðfinnssyni og
Darryl Wilson. Þá er ekki ónýtt
fyrir þá að hafa gríska risann,
Konstantin Tsartsaris. Konstantin
er að öllum líkindum besti leik-
maður DHL-deildarinnar á þess-
ari leiktíð og því full átæða að
koma í Höllina þó ekki sé til ann-
ars en að sjá þennan frábæra leik-
mann sem örugglega leikur ekki á
Islandi annað keppnistímabil.
LykiII ísfirðinga að sigri er að
stöðva skyttur Grindvíkinga strax
í upphafi. Nái þær sér hinsvegar
á strik og Konstantín og Pétur
Guðmundsson leika af eðlilegri
getu eiga Isfirðingar litla mögu-
leika. Olafur Ormsson og Baldur
Jónasson ættu að geta haldið Is-
firðingum á góðri siglingu nái
þeir sér vel á strik. Ólafur hefur
sýnt mjög góða leiki í vetur og er
að verða ein allra besta skytta
landsins auk þess sem hann leik-
ur mjög góðan varnarleik. Það
eru því ekki aðeins KFI og
UMFG sem beijast um bikarinn
heldur verða á boðstólum tvær
ólíkar leikaðferðir. Hvor reynist
betur kemur í Ijós í dag. — GÞÖ
UM HELGINA
HANDBOLTI
Sunnudagur 1. deild karla:
Stjaman-Víkingur kl. 20
HK-ÍR kl. 20
Fram-Haukar kl. 20
FH-ÍBV kl. 20
KA-UMFA kl. 20
Breiðablik-Valur kl. 20
2. deild ltarla
Laugardagur
ÍH-Fjölnir kl. 16
Fylkir-HM U. 16:30
Sunnudagur
Þór-Hörður kl. 13:30
KNATTSPYRNA
Leikið verður til úrslita í yngri ald-
ursflokkum karla og kvenna í innan-
hússknattspyrnu í Laugardalshöll
og íþróttahúsinu við Austurberg um
helgina.
I Austurbergi:
Laugardagur
5. flokkur karla: kl. 10:00 - 15:20
3. flokkur kvenna: kl. 16:00 -18:50
Sunnudagur
4. flokkur kvenna: 9:00 - 11:30
4. flokkur karla: 12:00 - 16:50
í Laugardalshöll:
Sunnudagur
2. floldcur karla: kl. 9:30 - 16:00
Leikið verður í 2. flokki kvenna og í
3. flokki karla um aðra helgi í Aust-
urbergi.
Á skjánimi í vikimni
Laugardagur 14. feb.
RÚV
kl. 15.00 Þýski boltinn
Hertha Berlin - Byern Munchen
STÖÐ2
kl. 14.50 Enski boltinn (FA Cup
- 5. umferð)
WEST HAM UNITED - BLACK-
BURN ROVERS
kl. 16.50 Bikarúrslitaleikur karla
í körfubolta GRINDAVÍK - KFÍ
SÝN
kl. 15.00 Bikarúrslitaleikur
kvenna í körfubolta
KEFLAVÍK -ÍS
Sunnudagur 15. febrúar
STÖÐ 2
kl. 13.05 NBA-nýliðaleikurinn
(stjörnuleikurinn)
kl. 14.00 ítalski boltinn
UDINESE - PARMA
SÝN
kl. 13.55 Enski boltinn (FA Cup
- 5. umferð)
ARSENAL - CRYSTAL PALACE
kl. 16.25 Enski boltinn (FA Cup
- 5. umferð)
MANCHESTER UNITED -
BARNSLEY
kl. 18.25 Golfmót í Bandaríkjun-
um BOB HOPE CHRYSLER
CLASSIC a
kl. 19.25 ítalski boltinn
JUVENTUS - SAMPDORIA
Þriðjudagur 17. febrúar
SÝN
kl. 22.30 Enski boltinn - þáttur
Sýndar verða svipmyndir úr eftir-
minnilegum leikjum með LIVER-
POOL frá árinu 1994.
Miðvikudagur 18. febrúar
kl. 19.40 Enski boltinn (Coca-
Cola Cup)
CHELSEA - ARSENAL undanúr-
slit/seinni leikur.
Nagano á hverjum degi
Sjónvar])ið mun vera með beinar
útsendingar frá Vetrarólympíleik-
unum f Nagano á hverjum degi
alla vikuna. Auk þess verða sam-
antektir frá helstu viðburðum
Ieikanna dag hvern fyrir átta
fréttirnar.