Dagur - 07.03.1998, Page 2
2-LAUGARDAGUR 7. MARS 1998
FRÉTTIR
Mjög fallegt veður var i Hlíðarfjalli í gær og frábært skíðafæri. Hins vegar er kuldinn varasamur og dæmi eru um að börn hafi kalið í andliti.
mynd: bös
Skíðakrakka
kól í andliti
Krakkar sem voru á skíðaæfingu í Hlíð-
arfjalli við Akureyri í fyrrakvöld, fengu
kalbletti í andlit og einn fékk frostsár.
Töluverður vindur var í fjallinu og mik-
ið frost. Að sögn Ivars Sigmundssonar,
forstöðumanns Skíðastaða, aðvaraði
hann þjálfara barnanna vegna veðurs-
ins, enda taka börn oft ekki eftir því
þegar kalblettir eru að myndast.
„Þeir sem þekkja þetta sjá þetta eins
og skot, en menn verða að átta sig á að
þetta getur gerst. Eg hef reyndar verið
á skíðum í útlöndum í 30-35 stiga
frosti og þótti það ekkert tiltökumál,
en auðvitað veldur kuldinn þvd að
menn verða að fara varlega. Það er
best að hylja andlitið í svona frosti,
vera með andlitsgrímu eða kraga og
gleraugu,“ segir Ivar.
Mjög kalt var á Akureyri í gær en
stillt. Frost fór yfir 20 stig og olli m.a.
skemmdum á loftinntaki hjá Efnaverk-
smiðjunni Sjöfn á Akureyri. Tjón varð
þó ekki mikið.
Þrjátíu gráðu frost við Mývatu
MikiII kuldi gekk yfir landið í gærdag
og í gærmorgun klukkan 9 var mesta
frostið 30 gráður á Syðri-Neslandar-
tanga við Mývatn. Jón Aðalgeirsson,
bóndi í Vindbelg í Mývatnssveit sagði
heimamenn lítið kippa sér upp við
kuldann: „Þetta er engin nýlunda á
þessum slóðum. Ætli frostið fari ekki
nálægt þessu nánast á hveijum vetri.
Ég man eftir 30 gráðu frosti nálægt
sumarmálum,“ sagði Jón.
Á Grímsstöðum á Fjöllum var frostið
27 gráður, 25 gráður á Möðruvöllum í
Hörgárdal, 24 gráður á Nautabúi í
Skagafirði og 23 gráður á Þingvöllum
sem er með því mesta sem mælst hef-
ur þar. Óvenju kalt hefur einnig v'erið
á suðvesturhorninu og er talsverður
lagnaðarís á sundum og vogum. Is-
skæni þekur Sundahöfn í Reykjavík og
einnig Fossvoginn.
Spáð er vaxandi suðaustanátt um allt
land og mun fyrst hlýna vestan til á
landinu. Því dregur eitthvað úr frosti
norðan og austan til um helgina en á
þriðjudag er aftur spáð norðanátt sem
væntanlega mun auka á frosthörkuna
að nýju. Kuldaboli mun því halda
áfram að narta í kinnar landsmanna og
er full ástæða til að fylgjast sérlega vel
með að börnin séu klædd í samræmi
við frosthörkurnar. — bþ/gg
Endurskoðendur, helst þessir með fínu útlendu
nöfnin, óttast mjög að upp sé komitt sú staða, að
viðskiptavinir þeirra láti ekki hvað sem er yfir
sig ganga. Forráðamenn fyrirtækja hafa trúað
endurskoðunarstofum í blindni fyrir fjárhag
sínum. Sumir forstjórar eru sagðir treglæsir á
reikninga fyrirtækja sinna. Nú hefur Coopers
Lybrand á íslandi verið stefnt af Natlian & 01-
scn. Fyrirtækinu þykir það slæm endurskoðun
þcgar sölukona getur hnuplað 30 milljónum á
fáum árum án þess að bjöllur klingi hjá endur-
skoðanda...
í pottinum eru endalausar
umræður utn lista Framsókn-
armanna. ValtýSigurbjamar-
syni, forstöðumanni Byggöa-
stofnunar á Akureyri var stillt
upp í þriðja sæti listans en
tapaði í kosningu fyrir Sigfríði
Þorsteinsdóttur, með eins at-
kvæðis mun. Fullyrt er í
heita pottinum að Valtýr hafi
ekki mætt á fulltrúaráðsfundinn í vikunni
vegna veikinda. Þetta þykir pottverjum sýna að
Valtýr eigi ekki mikið erindi í pólitík. í þeim
bransa mæti menn á svona mikilvæga fundi
hvað sem tautar og raular...
í heita pottinum er fullyrt
(óstaðfest) að það hafi verið
óskastaða þeirra Birgis Guð-
mundssonar, formanns Osta-
og smjörsölumiar og mjólk-
ursamlagsstjóra á Selfossi, og
Þórólfs Gíslasonar, kaupfé-
lagsstjóra á Sauðárkróki að
stjómin gæti ckki fundið for-
stjóra fyrir Osta- og smjörsöluna. Þeir hafi báðir
haft áhuga á starfinu, en óttast höfnun. Nú
kann sú staða að vera uppi að öðram hvorum
þeirra verði boðið starfið, emmitt það sem þeir
vonuðust eftir - hvor fyrir sig. Langsótt plott, en
gott - ef það gengur eftir.
Þórólfur Gíslason.
Línuritin sýna
íjögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað.
Línan sýnir
hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu
en vindáttir og
vindstig eru
tilgreind fyrir
neðan.
Hæg breytileg
átt, víðast
léttskýjað og
frost 4-13 stig,
mildast við
ströndina
sunnan og
vestan til en
kaldast á
Norðurlandi.
----------------------------------------------------------------------------------------------------------;
ln a
Færð á vegum
Færð er víðast hvar góð og allar aðalleiðir færar. Snjóþekja er þó víða og
hálkublettir á heiðum sem ber að varast.