Dagur - 18.03.1998, Blaðsíða 1
Kemur í veg fyrlr
ónefni í sveitum
Átök í meimtamála-
nefnd um frumvarp
um bæjamefni. Mið-
stýring við nafiigiftir
sveitabæja aukin?
Þingmaður Alþýöii
bandalags segist gátt-
aður.
Menntamálanefnd mun á næstu
dögum skila frá sér frumvarpi
um bæjarnefni og er tekist á um
afgreiðsluna. Samkvæmt frum-
varpinu verður eigendum býla á
landsbyggðinni ekki heimilt að
gefa bæjum sínum nöfn, nema
að fengnu samþykki Ornefna-
nefndar. Sumir bænda sem blað-
ið hefur rætt við telja að vegið sé
að frelsi þeirra.
Óhófleg miðstýring
Svavar Gestsson, þingmaður Al-
Snjóflóða-
leit í Hlið-
arfjalli
Árleg æfing Björgunarhunda-
sveitar Islands hefur farið fram í
Hlíðarljalli síðan á laugardag og
er liður í að auka hæfni hunda til
leitar að fólki sem grafist hefur í
fönn, t.d. í snjóflóðum. Auk þess
að þjálfa þá 15 hunda sem hing-
að komu til leitar hafa farið fram
fyrirlestrar um ýmis efni að Þela-
merkurskóla.
I gærkvöld var fólk grafið í
fönn og hundarnir tóku síðan
þátt í leit að fólkinu ásamt Ijölda
aðstoðarmanna og björgunar-
sveitarmanna. Hundarnir, sem
og það mannfólk sem tekur þátt
í æfingunni, koma víða að af
landinu. Leitarhundarnir þurfa
árlega að taka próf sem fram fara
á námskeiðinu, og skiptast þau í
A, B og C gráðu.
Æfingin þykir hafa tekist vel,
en þó hefur veður truflað áætl-
unina nokkuð og hefur fyrirlestr-
um innandyra íjölgað nokkuð af
þeirri ástæðu frá upphaflegri
áætlun. GG
þýðubandalags, er lítt hrifinn af
frumvarpinu. „Eg tel að þarna sé
um óhóflega miðstýringaráráttu
að ræða. Hún felst bæði í frum-
varpi um Örnefnastofnun sem
búið er að samþykkja sem og
þessu frumvarpi um bæjarnöfn-
in. Ég er í raun gáttaður á að
menn skuli ætla að ganga svona
langt,“ segir Svavar.
Vantbneðfarið mál
Hjálmar Árnason, varaformaður
menntamálanefndar, segir að
nefndin muni afgreiða frumvarp-
ið á allra næstu dögum. „Við
erum að ræða hvar eigi að
stoppa. Á að gefa nafngiftir
frjálsar, hver á að ákvarða hvað
er við hæfi og hvar á að draga
mörkin'? Eins og gefur að skilja
er þetta afskaplega vandmeðfar-
ið og við gerum okkur grein fyrir
því,“ segir Hjálmar.
„Starlight“ í Biskupstungum?
Að sögn Hjálmars er hætta á að
alls konar ónefni komi fram ef
frelsi landeigenda til nafngifta
verður algjört. „Fáum við ensk
orð á býlin eins og t.d. „Star-
Iight“? Eða verður viðkomandi
að leita staðfestingar? Mín skoð-
un er að hugmyndaflugið eigi að
fá að njóta sín en ég vil vera
þjóðlegur og er að því Ieytinu til
íhaldsmaður. Ég vil minna á það
sem gerst hefur í t.d. nafngiftum
veitingahúsa að undanförnu. Við
höfum séð mikið af framandi
enskum nöfnum og mér þætti
dapurlegt ef við færum að sjá
býlin okkar og örnefni bera slík
nöfn. Þar er ég ekki síst að hugsa
um verndun tungunnar."
Sitt hvor áttin
Landeigandi sem blaðið ræddi
við sagði að athygli vekti að þetta
frumvarp kæmi á svipuðum tíma
og frumvarp um breytingar á
mannanafnalögum sem miðuðu
að auknu frjálsræði. Um það
segir Svavar Gestsson: „Ég var
þeirrar skoðunar að þar væri
gengið of langt, vegna þess að
þar væri bara ein krafa gerð að
lokum, að viðkomandi nafn gæti
tekið eignarfallsendingu. Hér
eru menn hins vegar að hneppa
þessi mál í fjötra með tilteknum
hætti." BÞ
Ungmennin á leið i dómsal. -mynd: s
Ungumþióf-
umgenð
tækifæri
Átta 16 til 18 ára ungmenni, sjö
piltar og ein stúlka, voru í Hér-
aðsdómi í gær dæmd í 6 til 15
mánaða fangelsi fyrir rán og
gripdeildir í verslununum Kvöld-
úlfi við Sundlaugaveg og Kjalfelli
við Gnoðarvog. Dómurinn er þó
skilorðsbundinn að fullu hjá
mörgum þeirra og að stórum
hluta hjá öðrum og má því segja
að ungmennin fái nokkurt tæki-
færi til að bæta sig - en þeim er
gert að halda sig frá áfengi og
öðrum vímuefnum næstu þrjú
árin.
Ránin voru framin í september
og október á síðasta ári. Höfðu
fjórir piltanna sig mest í frammi
af hópnum. I ránsferðunum voru
sakborningarnir grímuklæddir
og ógnuðu þeir afgreiðslustúlku
Kvöldúlfs með hnífi. Ungmenn-
in höfðu yfirleitt ekki mikið upp
úr krafsinu, einhveija tugi þús-
unda króna, sígarettur og fleira.
Sum ungmennanna tóku einnig
þátt í að hrifsa veski af öldruðum
konum og ræna innihaldi þeirra.
Þetta gerðist tvisvar og mátti í
sjálfu sér ekki miklu muna að illa
færi fyrir gömlu konunum. - FÞG
Aurarúr
umferð
Nú verður enginn lengur af aur-
um api því ríkisstjórnin hefur
ákveðið að afnema aurana þann-
ig að krónan verði lægsta
mynteiningin. Við þetta verður
5, 10 og 50 aura mynt tekin úr
umferð. Um leið gerist það að
upphæð sem reiknast 50 aurar
eða minna verður sleppt en upp-
hæð sem er 51 eyrir eða meira
verður hækkuð upp í eina
krónu. Eigi að síður má eftir
lagabreytingu þessa verðleggja í
aurum svo sem eldsneyti, raf-
magn og heitt vatn en upphæðin
færð upp eða niður eins og að
framan segir. -S.DÓR
HnHBHBl
■■■
mmmmmmmmm
Nvtt símanúmer
4 6 0 2 5 0 0
SPARISJÓÐUR
NORÐLENDINGA
I
Skipagata 9 • Pósthólf 220 • 602 Akurcyri
-----------■
Promiuni
itiiðlcirar
1 Alfa Laval
BORGARTUNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024
Varmflskiptflr
SINDRI %
-sterkur í verki 2aj
;o
;o
!On
■ r-
!Os
IsO