Dagur - 18.03.1998, Síða 3
MlÐVIKÚDAGUR 1 8 . M Á R S ‘ 1 9 9 8 - 3
Dpptr
FRÉTTIR
Átta sig ekki
á vandanum
gert áætlun um aðgerðir vegna
ársins 2000, kannað þörf á að-
stoð og hvað hún tæki langan
tíma. Og bara 5% hafa spáð í
kostnaðinn af öllu saman. I
sjöttu hverri stofnun er m.a.s.
enn óákveðið hver ber ábyrgð á
lausn vandans.
Allt í lagi hjá mér
„Alh of margir telja að allt sé í
góðu lagi hjá sér, en gera sér oft
á tíðum enga grein fyrir því hve
víðtækur vandinn er. Ég hef
mestar áhyggjur af þessum aðil-
um,“ sagði Guðbjörg Sigurðar-
dóttir, deildarstjóri í forsætis-
ráðuneytinu, á ráðstefnu um ár-
talið 2000. Hún lýsti áhyggjum
af flestum framleiðslufyrirtækj-
um og þjónustustofnunum í
landinu sem hafa júnsan sér-
hæfðan tækjabúnað með inni-
byggðum tölvukubbum þar sem
dagsetningar koma við sögu. „Ég
hef áhyggjur af að allir þessir að-
ilar geri sér ekki grein fyrir þess-
um vanda - og að þar munum við
e.t.v. mæta mestu vandamálun-
um þegar ártalið 2000 nálgast."
- HEI
Forsvarsmenn fyrirtælýa og stofnana virðast ekki hafa nógu miklar áhyggjur af því að tölvukerfi
þeirra ráði ekki við ártalið 2000, samkvæmt því sem fram kom á ráðstefnu um ártalið sem haldin
var i gær. mynd: RiEtim
MiMð áhyggjuefni að
allt of margir telja að
allt verði í góðu lagi í
tölvumálunum hjá
þeim árið 2000, áu
þess að kyuna sér það.
Einungis í 15% ríkisstofnana (50
af 334) höfðu forstöðumenn fyr-
ir því að senda svör við nýrri
könnun sem Ríkiskaup gerðu til
að athuga stöðu ríkisstofnana
varðandi undirbúning upplýs-
ingakerfa fyrir ártalið 2000.
Þessi litla svörun þykir benda til
að ríkisstofnanir hafí þetta mikil-
væga mál ekki framarlega í for-
gangsröðinni hjá sér og/eða að
stjórnendur þeirra séu almennt
ekki vel meðvitaðir um alvöru
málsins.
Éorstjóri Ríkiskaupa, Júlíus S.
Ólafsson, taldi það t.d. athygli-
vert að 80% svarenda sögðust
nokkuð vissir um að ártalsbreyt-
ingin valdi litlum vanda og lítilli
hættu á alvarlegum rekstrartrufl-
unum hjá þeim, þó bara 37%
þeirra segði mikið vitað um
þennan vanda innan sinnar
stofnunar. „Hvernig geta menn
þá dæmt um það hvort vandinn
verður mikill eða lítill?“ spurði
Júlíus.
Bara 5% gert
kostnaðaráætlun
Sennilega væri sama vanþekk-
ingin þess valdandi að aðeins
þriðjungurinn hafði athugað
hvort allt yrði í lagi með bók-
haldskerfið og tölvubúnaðinn.
Bara 15% hefðu athugað ýmis
tæknikerfi, t.d. lyftur, símkerfi,
lækningatæki, loftræstikerfi og
fleira, eða tæki með innbyggðum
tölvukubbum. Alíka fáir hafa
Niöurrifi
frestað
Bæjarráð Akureyrar samþykkti
sl. fímmtudag að Éækjargata 6
verði rifin, en húsið skemmdist
mikið í eldi 17. janúar sl. Hús-
friðunarnefnd ríkisins hefur far-
ið fram á það að ákvörðun um
niðurrif verði frestað og var til-
laga bæjarstjóra, Jakobs Björns-
sonar (B), þess efnis samþykkt á
fundi bæjarstjórnar Akureyrar í
gær. Stefnt er að þvf að Húsfrið-
unarnefnd ríkisins komi á fund
bæjarráðs Akureyrar 2. apríl nk.
Gísli Bragi Hjartarson (A)
sagði að leyfa þyrfti Húsfriðun-
arnefnd að skoða húsið sem það
hafí verið að fjalla um. Oddur
Helgi Halldórsson (B) sagði að
viðhorf til niðurrifs Lækjargötu
6 hefðu breyst eitthvað, en varp-
aði fram þeirri spurningu hvort
ekki væri rétt að selja húsið á
eina krónu til þeirra sem húsið
vilja vernda með ströngum kvöð-
um um endurbyggingu þess. GG
Valgerður til liðs
við samfyUdngima?
Valgerður Guðmunds-
dóttir, bæjarfiiUtníi
Aiþýöiiílokksiiis, er
mjög hlyiiiit samein-
mgarferlinu. Alþýðn-
bandalagið samþykkti
mótstöðulítið að vera
með í samfylking-
unni.
Samkvæmt heimildum Dags eru
vaxandi líkur á því að Valgerður
Guðmundsdóttir, ritari Alþýðu-
flokksins, sem skipaði annað
sætið á lista Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði í síðustu bæjarstjórn-
arkosningum, muni ganga til liðs
við samfylkingu félagshyggju-
fólks í bænum. Alþýðubandalag-
ið hefur ákveðið að vera með í
samfylkingunni, en tillaga þess
efnis var samþykkt gegn vægri
mótstöðu Magnúsar Jóns Árna-
sonar á félagsfundi í fyrrakvöld.
Valgerður gafst upp á átökun-
Valgerður Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokksins.
um innan Alþýðuflokksins og
bauð sig ekki fram í prófkjöri
flokksins á dögunum. Athygli
vekur að á nafnalista yfír 100
manns sem styðja samfylkinguna
í Moggaauglýsingu er m.a. að
finna systur Valgerðar og börn.
„Ég stjórna fjölskyldu minni ekki
í stjórnmálum og hef enga
ákvörðun tekið um hvað ég geri í
þessum málum. Hitt er annað
mál að ég er mjög hlynnt samein-
ingarferlinu hér eins og um land
allt. Mér finnst að Hafnarljörður
eigi ekki að skera sig úr í því
starfi," segir Valgerður. Aðspurð
hvort þetta þýði ekki að hún
muni ganga til liðs við samfylk-
inguna í Hafnarfirði vildi Val-
gerður hvorki neita né játa. „Ég
er ennþá í Alþýðuflokknum. Ef
einhver breyting verður á því þá
kemur það bara í ljós,“ segir Val-
gerður.
Trausti Baldursson, formaður
Alþýðubandalagsfélags Hafnar-
fjarðar, segir í samtali við Dag að
ákvörðunin um að ganga til Iiðs
við hið nýja samfylkingarfram-
boð félagshyggjufólks hafi verið
tekin án teljandi andstöðu á fé-
lagsfundinum. „Þetta var sam-
þykkt nánast samhljóða, en eðli-
lega voru ekki allir jafn áhuga-
samir og ýmsir höfðu athuga-
semdir um útfærsluna, höfðu
t.d. áhyggjur af Alþýðubanda-
lagsnafninu. Sjálfur fagna ég
niðurstöðunni og er bjartsýnn
um að þessi hópur muni skila
góðum árangri í komandi kosn-
ingum,“ segir Trausti, - fþg
Sjálfseignarstefnan styrkt
Davíð Oddsson, forsætisráðherra
og starfandi fjármálaráðherra,
mælti á Alþingi í gær fyrir breyt-
ingum á lögum um tekju- og
eignaskatt sem gera þarf í tengsl-
um við breytingar á húsnæðis-
Iánakerfinu. Samkvæmt þeim
eiga hærri vaxtabætur að koma í
staðinn fyrir niðurgreidda vexti í
félagslega húsnæðislánakerfinu.
Vaxtabætur á að greiða sama ár
og eign er keypt en ekki árið á
eftir eins og nú er.
„Með fráhvarfi frá margbrotnu
miðstýrðu aðstoðarkerfi verður
valfrelsi einstaklinganna aukið
og sjálfseignarstefnan í húsnæð-
ismálum styrkt í sessi," sagði for-
sætisráðherra þegar hann fylgdi
frumvarpinu úr hlaði. Davið
sagði að stuðningur við íbúðar-
kaupendur )TÖi markvissari en
nú er og fleirum gert kleift að
kaupa á viðráðanlegu verði.
Stjórnarandstæðingar hafa
harðlega gagnrýnt frumvarpið og
vilja að afgreiðslu þess verði
frestað eins og verkalýðshreyf-
ingin hefur farið fram á. Forsæt-
isráðherra telur ekki ástæðu til
þess.
Sjú einnig bls. 7.
Fimm sækja um varalög-
reglustióra
Fimm umsóknir bárust um embætti varalög-
reglustjóra í Reykjavík sem var auglýst laust til
umsóknar. Umsóknarfrestur var til 15. mars
og eru umsækjendur þessir: Bjarni Stefánsson
sýslumaður, Georg Kr. Lárusson sýslumaður,
Stefán Hirst skrifstofustjóri lögreglustjóra-
embættisins í Reykavík, Þórir Oddsson vara-
ríkislögreglustjóri og Sturla Þórðarson yfírlög-
fræðingur hjá lögreglustjóraembættinu í Böðvar Bragason.
Reykjavík.
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík,
áminnti Sturlu Þórðarson nýlega fyrir ummæli sem höfð voru eftir
honum í fjölmiðlum í kjölfar Steinermálsins svokallaða.
FjögiiT mál duttu upp fyrir
Fjögur fíkniefnamál hlutu ekki eðlilega framhaldsmeðferð hjá ávana-
og fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík að því að kemur fram í
svari lögreglustjórans í Reykjavík við fyrirspurn frá dómsmálaráð-
herra. Eitt þessara mála er fyrnt, en hin hafa nýlega verið send í
framhaldsrannsókn. Þá glötuðust skýrslur í sjö minniháttar fíkni-
efnamálum.
Tilefni fyrirspurnarinnar voru ummæli sem Margrét Frímannsdótt-
ir Iét falla í umræðum á Alþingi um skýrslu Atla Gíslasonar um mál
Fraklíns Steiner.
Snorri ekki til fyrir alda-
mót
Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra Islands
í Washington, hefur rætt við sérfræðinga í
Bandaríkjunum um hugmynd Olafs Ragnars
Grímssonar, forseta Islands, sem hann setti
fram í heimsókn sinni til Bandaríkjanna, að
gerð verði teiknimynd í Disney-stíl um Snorra
Þorfinnsson, fyrsta evrópumanninn sem fædd-
ist í Ameríku. Þetta kom fram í fréttum Ríkis-
sjónvarpsins.
Jón Baldvin segir að of seint sé að gera slíka
mynd fyrir aldamót, þar sem vinnslutími slíkr-
ar myndar sé sex ár. Hann segir að afmæli Iandafundanna gefi Is-
Iendingum ýmis tækifæri til að Iáta að sér kveða í Ameríku.
Jórt Baldvin Harmibalsson.