Dagur - 18.03.1998, Síða 4
4 -MJDVIKUDAGUR 18. MARS 1998
FRÉTTIR
L
Deilt um vínveit-
ingaleyfí
Bæjarstjórnin á Akranesi deildi
á dögunum um hvort veita ætti
nýjum veitingastað við Kirkju-
braut á Akranesi vínveitinga-
leyfi. Niðurstaðan varð sú að
leyfið skyldi veitt. Deilurnar
eru athyglisverðar í ljósi þess
að þegar eru starfrækt tvö veit-
ingahús með vínveitingaleyfi,
örskammt frá nýja veitinga-
staðnum.
Þegar eru tveir veitingastaðir við Kirkjubraut á
Akranesi með vínveitingaleyfi; Barbró og H-Barinn.
Bæjarst/órnin deiidi um þann þriðja.
Nýr listi í Borgarbyggð
Nýr listi, Borgarbyggðarlistinn,
hefur verið stofnaður í Borgar-
byggð, nýja sveitarfélaginu f
Mýrasýslu. Að listanum standa
um 100 einstaklingar, þ. á m.
núverandi bæjarfulltrúar Al-
þýðuflokks og Alþýðubanda-
lags. A-flokkarnir koma ekki
með beinum eða formlegum
hætti að nýja listanum en hafa
lýst yfir stuðningi við hann og
jafnframt að þeir muni ekki
bjóða fram í næstu sveitar-
stjórnarkosningum í Borgar-
byggð.
Kerskáli vígður með söng
„Söngurinn er nú tilkominn þannig að mjög
oft þegar við erum að klára hús og þau eru
komin í það ástand að hægt er að syngja í
þeim þá hef ég gjarnan haft það fyrir sið að
prufa þau og athuga hvernig hljómburður-
inn er í þeim,“ sagði Helgi Maronsson, stór-
söngvari og byggingastjóri hjá íslenskum
aðalverktökum, en hann steig á stokk og tók
lagið íyrir starfsmenn Lava hf. í tilefni af því
að lokið er við uppsetningu járnbita og járn-
klæðningar á kerskála Norðuráls hf. á
Grundartanga.
Um og yfir hundrað manns hafa verið að
störfum á vegum Lava hf. á Grundartanga
þegar mest hefur verið. Á næstunni verður
unnið að frágangsvinnu auk þess sem eftir
er að reisa 2-3.000 fermetra steypuskála tengdan kerskálunum. — OHR
Hluti af undirbúningsnefnd Borgarbyggðaríistans.
Runólfur Ágústsson, Kristmar Ólafsson, Jenni R.
Ólason, Sigurður Már Einarsson, Guðbrandur
Brynjúlfsson og Snjólaug Guðmundsdóttir.
Skagafjarðarlistinn alskapaður
Framboðslisti Skagafjarðarlistans í hinu nýja sameinaða sveitarfélagi
hefur verið samþykktur að undangenginni skoðanakönnun. I efstu
sætunum eru Ingibjörg Hafstað, Staðarhreppi; Snorri Styrkársson,
Sauðárkróki; Pétur Valdimarsson, Sauðárkróki; Anna Margrét Stef-
ánsdóttir, Seyluhreppi; Stefanía Hjördís Leifsdóttir, Fljótahreppi; Jó-
hann Svavarsson, Sauðárkróki; Helgi Thorarensen, Hólahreppi;
Hjalti Þórðarson, Hofshreppi; Þórarinn Leifsson, Rípurhreppi og
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Seyluhreppi.
Skortur á víðsýui
I Feyki á Sauðárkróki lýsir Þórólfur Gísla-
son, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirð-
inga, áhyggjum yfir því hversu stirð sam-
skipti Sauðárkróksbæjar og KS hafi verið í
ýmsum málum. Þórólfur segir m.a. að hann
hafi vonast eftir eins góðri samvinnu við
bæjaryfirvöld um Villinganesvirkjun eins og
fékkst um málefni mjólkurframleiðenda og
loðdýrabænda. „Eg vona að innan nýrrar
sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi í
Skagafirði ríki meiri víðsýni en verið hefur
innan bæjarstjórnar Sauðárkróks," segir
Þórólfur Gíslason. Bæjarstjórn Sauðár-
króks hafnaði aðild að Skagfirskri orku.
Undirritaður hefur verið samingur milli
heimamanna og RARIK um virkjun Vill-
inganess og stofnun rekstrarfélags um virkj
Þórólfur Gíslason.
unina. — GG
Meiri kröfur
en sömu laun
Aðalfundur Samflots, bæjar-
starfsmanna innan BSRB, sem
haldinn var nýverið á Akureyri,
lýsti yfir áhyggjum vegna þeirrar
þróunar sem á sér stað í kjara-
og réttindamálum starfsmanna
sveitarfélaga. Fundurinn telur
launanefnd sveitarfélaga bera
þar milda ábyrgð.
Sveitarfélögin eru að taka við
nýjum verkefnum og auka þjón-
ustu sína og því eru gerðar sífellt
meiri kröfur til starfsmanna
þeirra án þess að bætt launakjör
fylgi. A næstu vikum munu
sveitarstjórnir kynna stefnur sín-
ar vegna komandi sveitarstjórn-
arkosninga. Því skorar fundur-
inn á sveitarstjórnarmenn að
láta kjara- og réttindamál starfs-
manna sveitarfélaga vera þar of-
arlega á blaði.
Aðalfundur Samflots harmar þá
miklu óvissu sem enn ríkir í líf-
eyrismálum starfsmanna sveitar-
félaga. Skorað er á nefnd þá sem
vinnur að framtíðarskipan lífeyr-
issjóðsmála starfsmanna sveitar-
félaga að ljúka þeirri vinnu sem
allra fyrst. Jafnframt sé það óvið-
eigandi að bókanir í kjarasamn-
ingi aðila hafi ekki verið upp-
fylltar. — GG
Jón Vilhjálmur Sigurðsson ásamt syni sinum, Sigurði Árna Vilhjálmssyni, á bátnum Hilmi ST-1 sem Jón gerir út frá Hólmavík við annan mann, Unnar
Ragnarsson. mynd: gb
Rækj tiveiði á
Himaflóa loldð
Hólmavíkiirbátar eru
að ljuka iimfjarðar
rækjuveiði þessa dag-
ana sem og bátar frá
öðrum útgerðarstöð-
iLin við Húnaflóa,
endakvótiuu búinn.
Jón Vilhjálmur Sigurðsson og
Unnar Ragnarsson á Hilmi ST-1
voru að ljúka veiðum á innQarð-
arrækju sem þeir hafa stundað í
vetur, aðallega á Húnaflóadýp-
inu. Innfjarðarrækjan hefur ver-
ið fremur smá í vetur, um 300
stk/kg og jafnvel minni. A síð-
ustu vertíð fengu þeir félagarnir
á Hilmi ST úthlutað 180 tonn-
um af 2.100 tonna kvóta, sem
koma til skiptanna á Húnaflóa,
en alls eru 4 bátar á innljarðar-
rækju frá Hólmavík og fer allur
aflinn til vinnslu hjá Hólnia-
drangi. A yfirstandandi vertíð var
heildarúthlutunin 1.400 tonn og
hlutur Hilmis skv. því um 130
tonn. Nokkurt seiðamagn var í
aflanum fyrst í haust og því var
vissum veiðisvæðum á Stein-
grímsfirði Iokað fyrst í stað.
Nokkuð er um smábátaútgerð
á Hólmavík. Einn smábátanna
er á kvóta, hinir allir á sóknar-
dagakerfi sem gaf þeim aðeins
20 daga þegar fyrst var úthlutað
á síðasta hausti. Már Olafsson á
Ösp segir það hafa verið visst
áfall í haust að komast að því að
hann mætti vera 14 daga á Iínu,
ekkert hafi legið annað fyrir þá
en að „deyja“ hægt og rólega í út-
gerðinni því ekki sé að annarri
vinnu að hverfa. Smátrillukarl-
arnir fara því ekki á sjó nema
þegar frést hefur af góðri veiði til
að nýta þessa fáu daga sem allra
best, helst að drekkfylla í hvert
sinn sem haldið er út. — GG
Vamimar saimað sig
Snjóflódavamimar
sem settar vom upp á
Siglufirði 1996 hafa
staðist álagið að mati
eftirlitsmannsms á
staðnum.
Örlygur Kristfinnsson, eftirlits-
maður með snjóflóðum á Siglu-
firði, segir að þær grindur, net og
fleira sem sett voru upp ofan
bæjarins sem tilraunaverkefni til
varnar gegn snjóflóðum hafi stað-
ist það álag sem verið hefur á
þeim í vetur og Iofi mjög góðu.
Það verður þó ekki fyrr en eftir
þennan vetur sem hlutlægt mat
verður Iagt á notagildi þeirra og
Snjóflóðavarnirnar á Siglufirði hafa staðist
álagið í vetur, segir Öriygur Kristfinnsson.
hvort þau verða sett upp víðar
ofan byggðar þar sem snjóflóða-
hætta er til staðar á vetrum. Þeg-
ar hafi þau hindrað að flóð falli
úr gilinu og þar megi verða mikil
snjósöfnun til þess að þar falli yf-
irborðssnjóflóð, til þess þurfi
stoðvirkin að fara á kaf.
Skömmu eftir að stoðvirkin
voru sett upp haustið 1996 fauk
hluti þeirra um koll. Ástæðan fyr-
ir því var talin vera að þau voru
ekki nægjanlega vel boltuð niður.
„Stoðvirkin eiga að safna í sig
snjó svo hann skríði ekki af stað
niður hlíðina og valdi tjóni. Þeim
var valinn staður í djúpu gili, sem
ekki er algengt í Evrópu þar sem
þau hafa verið notuð. Þarna er að
fást mjög dýrmæt reynsla og við
Siglfirðingar megum þakka fyrir
að þessari tilraun var valinn stað-
ur á Siglufirði. Miðað við stöð-
una í dag er langt í að það falli
snjóflóð í þessu gili þar sem stoð-
virkin eru,“ segir Örlygur Krist-
finnsson. — GG