Dagur - 31.03.1998, Side 3
ÞRIÐJVDAGUR 31.MARS 1998 - 19
r^wr
LÍFIÐ t LANDINU
Akumesingar ætla að setja
upp fiska- og sjávarútvegs-
safn íbænum. Hugmyndin
kviknaðijyrst kringum
1992.
Ævar Hardarson arkitekt og verkefnisstjóri fyrir forverkefni um fiska- og sjávarútvegssafn á Akranesi. Vitinn sem hugmyndin er að verði inngangur í safnið á bak við
hann. - myndir: ohr.
„Okkur hefur alltaf þótt að ís-
lendingar sem sjávarútvegsþjóð
þurfi að standa betur að kynn-
ingu á lífríki hafsins en hún ger-
ir en það er eitt fiskasafn starf-
rækt í Vestmannaeyjum," segir
Ævar Harðarson arkitekt og
verkefnisstjóri fyrir forverkefni
um fiska- og sjávarútvegssafn á
Akranesi. Nú er starfandi nefnd
á vegum Akranesbæjar að skoða
grundvöll að stofnun safnsins.
Ævar og félagar voru búnir að
vinna mjög mikla undirbúnings-
vinnu áður en að því kom.
Rannsóknarferð til
nágrannalanda
„Þegar við byijuðum á þessu
töldu menn þetta tiltölulega lítið
mál en eftir að hafa leitað upp-
lýsinga, m.a. hjá Krisjáni Egils-
syni forstöðumanni fiska- og
náttútugripasafnsins í Vest-
mannaeyjum sem reynst hefur
okkur ákaflega vel var afráðið að
leita frekari upplýsinga erlendis
þar sem mikið var að gerast á
þessu sviði í nágrannalöndun-
um. Að tilhlutan Kristjáns fór ég
á ráðstefnu rekstraraðila fiska-
safna á Norðurlöndum og í
framhaldi af henni í rannsókn-
arferð á öll helstu fiskasöfn á
Norðurlöndum og í Þýskalandi.
Skrifuð var skýrsla um ferð-
ina þar sem gerð var hugmynda-
fræðileg og rekstrarleg úttekt á
þeim söfnum sem heimsótt voru
og tillögur um hvernig best væri
að standa að áframhaldandi
vinnu við verkefnið. Ferðin var
að miklu leiti íjármögnuð með
styrkjum frá Akranesbæ og
einkaaðilum. Við fengum ágætar
viðtökur með hugmyndir okkar
m.a. hjá alþingismönnum Vest-
urlands og í framhaldi af því
sóttum við um stuðning til fjár-
laganefndar Alþingis haustið
1993. Við fengum verulegan
Ijárstuðning frá Alþingi og
menntamálaráðuneyti til að
kanna hugmyndafræði, rekstrar-
grundvöll og fleiri þætti í sam-
bandi við það að setja á fót
fiska- og sjávarútvegssafn. Við
sóttum einnig um stuðning til
Rannsóknarráðs Islands og
Akraneskaupstaðar og fengum
ágætan styrk sem rannsóknar-
verkefni á sviði ferðaþjónustu og
kynningar á Iífríki hafsins. Verk-
efnið var síðan skilgreint sem
nokkurra ára rannsóknarverk-
efni þegar búið var að fjármagna
rannsóknarþáttinn. Opinberir
aðilar tóku undir þá skoðun
okkar að kanna þyrfti hug-
myndafræði og rekstur vel áður
en ráðist yrði í umfangsmiklar
fjárfestingar,“ segir Ævar.
Getur staðið undir sér
„I rannsóknarverkefninu lögð-
um við mikla áherslu á að
kanna rekstrargrundvöllinn og
gerðum umfangsmiklar mark-
aðsrannsóknir og spár um að-
sókn. Niðurstaðan varð sú að
starfsemin gæti staðið undir
sér. En gera mætti ráð fyrir 50-
70 þúsund gestum á ári og með
tilkomu Hvalfjarðarganga gæti
þeim fjölgað. Það var aftur á
móti fljótlega Ijóst að stofn-
kostnaður þyrfti að koma sem
framlög frá heimaaðilum og
öðrum. Ljóst er að ef 50-70
þúsund gestir kæmu til Akra-
ness á ári hverju mundi það
hafa all nokkur áhrif á eftir-
spurn eftir vörum og þjónustu
á svæðinu. Svo að fiskasafnið
ætti að geta haft jákvæð áhrif á
ferðaþjónustu og verið mikið
aðdráttarafl fyrir Akranes.
Samkvæmt markaðsrannsókn-
um okkar mátti gera ráð fyrir
að innlendir gestir væru um
60% almennir ferðamenn, ráð-
stefnugestir og skólakrakkar en
40% erlendir ferðamenn. Við
kynntum þessar hugmyndir
okkar um Iifandi safn um lífríki
hafsins og nýtingu þess fyrir
heimaaðilum, þingmönnum,
ráðuneytum og fyrirtækjum í
sjávarútvegi og ferðaþjónustu.
Þessir aðilar tóku vel í hug-
myndir okkar."
Byggt á Breiðinni
„Þarna vorum við, að okkar
mati, komin með all vænlega
hugmynd. Við vorum búin að
finna fyrir safnið mjög fallega
lóð á ysta odda Akraness sem
heitir Breiðin. Þar eru gömul
sjávarútvegsmannvirki, tveir vit-
ar og mjög mikið og gott útsýni
yfir Faxaflóann. Umhverfis eru
fjörur með lífríki og fuglum og
oft eru bátar á Ieið til veiða eða
að veiðum rétt fyrir utan.
Hugmynd vinnuhópsins var
að reisa safnbyggingu í þremur
áföngum sem væri 1500 til
1700 fermetrar að stærð. Gert
var ráð fyrir því að fyrsti áfangi
væri kostnaðarsamastur og kost-
aði 140 til 160 milljónir vegna
þess að koma þyrfti upp tækja-
búnaði til sjótöku og gera lóð og
umhverfi aðlaðandi. Næstu
byggingaráfangar gætu kostað
40 til 60 milljónir hver eða sam-
tals 220 til 270 milljónir króna.
Allar þessar tölur eru háðar mik-
illi óvissu þar sem aðeins er um
hugmyndatillögur að ræða og
hönnun hefur ekki farið fram.“
Lifandi safn
„Miðpunktur safnsins yrði sýn-
ing á lífríki hafsins þar sem
sýndir væru helstu nytjafiskar í
stórum og litlum búrum. Við
gerum ráð fyrir að vera með eitt
mjög stórt búr eða tank þar sem
til sýnis yrði t.d. síldartorfa og
þar á einnig að vera stór fiskur
eins og háfur sem heldur torf-
unni á hreyfingu. Slíkt fyrir-
komulag skapar spennandi og
áhugaverða sýningu. Við höfum
gert ráð fyrir að vera með allt að
3 til 4 metra háa sýningarglugga
á þessum tanki. Aðrar lífríkis-
sýningar kynna svo búsvæði eins
og t.d. botndýr og fiska o. fl. I
nánum tengslum við lífríkissýn-
inguna verður svo kynning á
veiðarfærum og vinnslu, veiði-
stjórnun og umhverfisvernd. Að
sjálfsögðu verður svo veitinga-
salur með útsýni yfir Faxaflóann
og nánasta umhverfi þar sem
boðið verður upp á sjávarrétti. I
safninu er einnig gert ráð fyrir
fundar- og fyrirlestraaðstöðu.
Rætt hefur verið um að ráð-
stefnugestir eða kaupendur á
sjávarafurðum gætu t.d. farið í
sjóferð frá Reykjavík og endað
þarna úti á Breiðinni.
Tengdist umhverfinu
Gert hefur verið líkan af hug-
myndum vinnuhópsins. Vitarnir
á Breið gegna hlutverki í hug-
myndum þeirra að sjávarútvegs-
safni. Eins og ég hef áður sagt
þá eru á Breið tveir vitar, annar
er gamall eða frá því í upphafi
aldarinnar og stendur úti á
skerjunum. Hinn sem er enn í
notkun stendur á Breiðinni. Við
höfum hugsað okkur að hann
gæti orðið hluti af safninu og þá
sem inngangur og útsýnisturn.
Þetta höfum við nefnt við vita-
og hafnarmálayfirvöld og fengið
jákvæðar viðtökur.
Astæðan fyrir því að við telj-
um að Akranes sé afar heppilegt
sem staður fyrir svona safn er
nálægðin við höfuðborgarsvæðið
og þær rætur sem sjávarútvegur
byggir á. Það má nefna að Har-
aldur Böðvarsson var með salt-
fiskverkun á Breiðinni upp úr
aldamótunum. Nú og HB er eitt
elsta og stærsta sjávarútvegsfyr-
irtæki landsins. Þannig að ef af
þessu verður þá ætti að vera
hægt að bjóða upp á mjög
skemmtilegar og fræðandi sýn-
ingar um lífríkið og atvinnu-
hætti sem hafa beina skírskotun
um umhverfið og stuðla þannig
að auknum skilningi nútíma
ferðamannsins á þessum þátt-
um.“ Ævar segir að hefðbundn-
um aðferðum verði beitt við að
afla sjávardýra til safnsins.
„Komið verður á samstarfi við
sjómenn og Hafrannsóknar-
stofnun í því sambandi. Einnig
skiptast söfnin innanlands og er-
lendis á dýrum. Við höfum verið
f norrænu samstarfi og munum
halda því áfram,“ segir hann.
Með glæsibrag
„Það er mín skoðun að það
þurfi að gera þetta með glæsi-
brag ef menn ætla á annað borð
að kynna lífríki hafsins og ís-
lenskan nútímasjávarútveg. Eig-
um við ekki að segja að það
þurfi að sinna þessum málum í
samræmi við mikilvægi sjávarút-
vegsins fyrir þjóð okkar. Þetta
tengist einnig vel hugmyndum
um áhugaverða ferðaþjónustu
sem byggir á upplýsingamiðlun
um staðhætti og umhverfi. En
eins og ég hef sagt áður von-
umst við eftir því að þessum
hugmyndum verði hrint í fram-
kvæmd og þá helst fyrir alda-
mót.“ OHR.