Dagur - 09.04.1998, Page 2
18-FIMMTVDAGVR 9.APRÍL 1998
ro^ir
LÍFIÐ í LANDINU
Feguróardrottning Noróurlands var
krýnd á föstudagskvöldið var. Drottn-
ingin var valin, Ása Marla Guðmunds-
dóttir, ung Húsavíkuimær. Viö taka
stífar æfingar hjá henni fyrir keppnina
um Ungfrú ísland, sem að vlsu er ekki í
frásögur færandi, því aö það er nóg að
gera hjá Ásu á öðrum vígstöðvum. Hún
er nefnilega á leiðinni til New York á
föstudaginn langa til að taka þátt í
hæfileikakeppni. Þangað fer hún ásamt
fleiri ungum og efnilegum íslendingum
á vegum Kolbrúnar Aöalsteins.
Stundin okkar hefur vakið lukku í vet-
ur, ekki síst fyrir tilstuðlan bráð-
huggulegu umsjónarkonunnar Ástu
Garðarsdóttur enda sagt að þetta sé í
fyrsta skipti síðan Bryndís Schram
var og hét í bamatímanum sem karl
amir fjöhnenna að skjánum síðdegis á
sunnudögum. Til að gleðja þá má líka
geta þess að Ásta mun halda áfram
meó Stundina næsta vetur og ætlar
reyndar að nota sumarið, maí og
ágúst-september til að taka upp efni í
bamatímann. Það er um að gera að vera vel hirg í haust þeg-
ar vetrardagskráin byijar og Stundin hefur aftur göngu sína.
Trausti Ólafsson leikhússtjóri LA og
Aðalsteinn Bergdal leikari hafa verið
að æfa Markúsarguðspjall á Renniverk-
stæðinu. Á ýmsu hefur gengið þar scm
iniklar framkvæmdir era í nágrenninu.
Hamarshöggin hafa dunið á æfingar-
tímanum og ýmislegt annað ónæði hcf-
ur verið úr umhverfinu. Texti Markús-
arguðspjalls er háleitur og þess að
vænta að sýningunni sé gefinn gaumur
að ofan. Himnasendingin sem þeir fé-
lagar fengu var þó önnur en þeir kynnu að hafa búist við, því
björgunarþyrla sveimaði yíir húsinu eina æfinguna svo erf-
iðlega gekk að greina orðaskil í textanum.
Borgarstjómarkosningarnar í Reykja-
vík verða sein kunnugt er 23. maí.
Sigurvissir stuðningsmenn R-listans
em þegar famir að hlakka til sigurhá
tíðariimar um kvöldið. Þeir framsýn-
ustu meðal þeirra sjá fram á tveggja
daga sigurhátíð því daginn eftir kosn-
ingarnar halda hciðurshjónin og jafn-
aöannennimir Einar Karl Haralds-
son og Steinuim Jóhannesdóttir upp
á afmæli sín en bæði eiga fimintugsaf-
mæli á árinu. Fari svo ólíklega að R
listinn tapi borginni má búast við að einhver sút muni setja
svip á afmæli hinna lífsglöðu aímælisbama. Það má því
segja að það ráðist af úrslitum borgarstjómarkosninga
hversu gaman verður 1 afmælinu.
Trausti Úiafsson.
Ása María
Guðmundsdóttir.
Andrés Jónsson fékk vidurkenningu fyrir útvarpsþátt sinn. MA-ingarnir Eydís Hulda Helgadóttir, Guómundur Rúnar Svansson og
Eygló S. Arnarsdóttir fengu viðurkenningu fyrir bestu ritgerðina, besta Ijóðið og bestu smásöguna. Hátt hlutfall hjá MA i þessari
keppni! mynd: h/lmar þór.
MA-mgamir
sigruðu
ÞrírMA-ingar báru
sigurúrbýtum í rít-
gerðasamkeppni ungra
sjálfstæðismanna,
Frelsispennanum. Þeir
skrífuðu um frelsið.
Fjórði verðlaunahaf-
inngerði útvarpsþátt
um frelsið.
„Það er skrítið og gaman að við
séum þijú úr MA en við vissum
ekki hvert af öðru þegar við
sendum inn efni í keppnina -
eða við viðurkennum það að
minnsta kosti ekki,“ segja MA-
ingarnir Eydís Hulda Helgadótt-
ir frá Sandgerði, Guðmundur
Rúnar Svansson frá Dalsmynni
á Snæfellsnesi og Eygló S. Árn-
arsdóttir frá Akureyri en þau
fengu öll verðlaun í Frelsispenn-
anum, samkeppni ungra sjálf-
stæðismanna.
Vel máli farnir
Alls bárust 60 ritgerðir, ljóð og
smásögur f keppnina auk eins
útvarpsþáttar. I störfum dóm-
nefndar kom í Ijós að verkin,
sem báru af, voru svo sambæri-
leg að gæðum að ákveðið var að
veita fern verðlaun til einstak-
linga sem skiluðu inn frambæri-
legustu verkunum, hvert á sínu
sviði. Hver verðlaunahafi fékk
því 25 þúsund krónur.
Andrés Jónsson, Reykjavík,
Pólitískur áhugi er
ekki endilega neitt
meiri íMA þótt nem-
endurþarhafi skarað
fram úríFrelsispenn-
anum.
hlaut viðurkenningu fyrir út-
varpsþátt sinn. Eydís Hulda fékk
viðurkenningu fyrir bestu rit-
gerðina, sem nefnist Frelsi.
Guðmundur Rúnar hlaut viður-
kenningu fyrir besta ljóðið, Veg-
urinn, og Eygló S. Arnarsdóttir
hlaut verðlaun fyrir bestu smá-
söguna, Fangi frelsisins. Dóm-
nefnd lét þess getið að almennt
hefðu þátttakendur mátt vanda
málfar sitt betur en ef marka má
niðurstöður keppninnar virðast
MA-ingar vera óvenju vel máli
farnir.
Ópólitískir menntskælingar
Matthías Johannessen ritstjóri
var formaður dómnefndar. Hann
lét þess meðal annars getið að
þátttakendur hefðu allir verið
mjög uppteknir af frelsi einstak-
lingsins meðan „við sem erum
alin upp í kalda stríðinu hefðum
gleymt okkur í að tala um hið
þjóðfélagslega frelsi.“
Þegar rætt var við MA-ingana
eftir afhendinguna vildu þeir
ekki viðurkenna að pólitískur
áhugi væri óvenjumikill í skólan-
um en sögðu þó að þar væri
mjög hvetjandi andi til skrifta.
Þau kváðust ekki vera pólitísk,
að minnsta kosti ekki flokkspóli-
tískt bundin, en Guðmundur
Rúnar Iýsti hátt og skýrt yfir að
hann væri „harður kommi“. Ein-
hverjar pólitískar umræður virð-
ast því vera í skólanum. -GHS
Hetja vUmimar
erlax!
Lax, lax, lax og meirí lax! Þessi kynjafiskur er hetja
vikunnar á Islandi því honum hefur telzist að trylla
Landsbankamenn, Alþingismenn, fjölmiðlafólk og þjóð-
ina alla dögum og jafnvel vikum saman. Engum öðrum
fiski tekst með sama hætti að stökkva inn í þjóðarsálina
með nokkurra ára millibili og gera allt vitlaust, og það
án aðstoðar þrautþjálfaðra áróðursmeistara og ímyndar-
sérfræðinga. Húrra fyrir laxinuml
Laxinn: hetja vikunnar!