Dagur - 25.04.1998, Síða 7

Dagur - 25.04.1998, Síða 7
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 - T l^ir RITSTJÓRNARSPJALL Hvalur skorinn í Hva/firdi: Ætla íslensk stjórnvöld aó sýna heiminum glæsilega ímynd íslensks nútímasamfélags viö lok tuttugustu aldarinnar með því að skjóta og skera hval á nýjan leik? Lifandi eða dauðan? ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON SKRIFAR Margar hugmyndir hafa verið á lofti um hvernig Islendingar eigi að fagna þúsund ára landsfund- um víkinganna í Ameríku þannig að eftir yrði tekið í útlöndum. Sérstök nefnd hefur safnað til- lögum landsmanna um þetta efni og er að meta þaer hverja fyrir sig. Mikið er Iíka lagt upp úr samstarfi við Bill Clinton, for- seta Bandaríkjanna, og aðild ís- lendinga að nefnd sem hann hef- ur skipað til að skoða þessi mál þar vestra. En svo kemur allt í einu í ljós að allt þetta umstang er hinn mesti óþarfi. Ríkisstjórnin virðist með það á hreinu hvernig best sé að vekja athygli umheimsins á Islandi og Islendingum \áð lok tuttugustu aldarinnar. Jú, fullyrt er að ráðherrarnir hafi í hyggju að sýna heiminum glæsilega ímynd íslensks nútíma- samfélags með því að hefja hval- veiðar á nýjan leik! VandræðaganjJur Það að fara að drepa hval að nýju núna rétt fyrir aldamótin væri svo sem í fullu samræmi \ið fyrri vandræðagang í hvalamálinu. Fyrir einum og hálfum áratug eða svo var ákveðið á fundi Al- þjóða hvalveiðiráðsins að banna hvalveiðar í atvinnuskyni tíma- bundið. Islendingar voru andvíg- ir þeirri ákvörðun. Engu að síður samþykkti Alþingi að mótmæla henni ekki, andstætt því sem til að mynda Norðmenn gerðu. Með því að mótmæla tryggðu Norðmenn sér lagalegan grund- völl til frekari hvalveiða, ef þeim sýndist svo. Islendingar misstu afþeirri lest með eigin gjörð. I samræmi við samþykktir Al- þjóða hvalveiðiráðsins hættu Is- lendingar formlega hvalveiðum árið 1985, en héldu samt áfram að drepa hvali - nú í nafni vísind- anna. Flestum var að vísu Ijóst að hvalir voru áfram veiddir hér við Iand til að halda hvalstöðinni í Hvalfirði í rekstri, þótt vafa- laust hafi visindamenn fengið einhverja viðbótarþekkingu í leiðinni. Þessum vísindaveiðum var loks hætt árið 1989 - fyrir níu árum. Hik og hökt Þegar í ljós kom að mikill meiri- hluti þjóða innan Alþjóða hval- veiðiráðsins hafði engan hug á að leyfa hvalveiðar að nýju, þótt takmarkaðar veiðar á tilteknum tegundum ættu ekki að setja við- komandi hvalastofna í hættu, gripu Islendingar til þess ráðs að segja sig úr ráðinu og reyna að byggja upp nýtt ráð veiðiþjóða á norðurslóðum. Það samstarf hefur ekki skilað þeim árangri í hvalamálinu sem vonast var eftir. Þess vegna er það nú talið ein af forsendum þess að hefja svokall- aðar vísindahvalveiðar á nýjan leik að Islendingar gangi aftur í Alþjóða hvalveiðiráðið. Sú spurning hlýtur að vera of- arlega í hugum margra hvers vegna Islendingar ættu núna að fara að hefja hvalveiðar á nýjan leik, fyrst þeir hafa ekki þorað að gera það mörg undanfarin ár. Þótt ekki hafi skort þrýsting frá þröngum hagsmunaaðilum til að taka þetta skref, hafa stjórnmála- mennirnir hingað til áttað sig á því að með því að fara að drepa hval er verið að taka mikla áhæt- tu fyrir smávægilegan ávinning. Þess vegna hafa síðustu ríkis- stjórnir tekið á málinu með hiki og hökti. Framlag sjávarútvegs- ráðherra hefur verið að skipa hverja nefndina á fætur annarri. Þingmenn hafa flutt tillögur um hvalveiðar skömmu fyrir þinglok svo ljóst væri að enginn tími ynn- ist til að afgreiða þær. Hver er ávirminguriim? Þingmannatillaga um að helja hvalveiðar að nýju var til með- ferðar á Alþingi síðasta vetrar- dag. Fonátnilegt var að fylgjast með þeirri snubbóttu umræðu. Örfáir þingmenn tóku til máls, flestir úr kjördæmi hvalstöðvar- innar. Ræður þeirra voru ekki síst merkilegar fyrir það sem ekki kom fram í þeim. Enginn þingmannanna upp- lýsti til dæmis hvað veiði á 100 hrefnum, eins og nú er talað um, gæfi af sér í þjóðarbúið, þannig að hægt væri að meta slíka ákvörðun út frá beinum tekjum. Enginn upplýsti heldur hvar ætti að selja afurðir af hvölum sem veiddir yrðu í óþökk ríkisstjórna allra helstu stórþjóða beggja vegna Atlantshafsins. Astæðan er auðvitað sú að hvalaafurðir verða ekki seldar úr landi að óbreyttu.'Gróðinn er því enginn. Þingmennirnir voru hins vegar nokkuð sammála um eina meg- inástæðu þess að þeir vildu veiða hval á ný. Það var til að sýna um- heiminum að Islendingar láti ekki einhverja útlendinga segja sér fyrir verkum! Það er nánast fyndið að heyra slíkt nú á dögum þegar íslenskri þjóð er sagt fyrir verkum í stóru og smáu frá út- löndum á hverjum einasta degi, og lætur sér bara vel líka. Vemdun fiskveiða Veiði á nokkrum hrefnum skiptir engu máli fyrir þjóðarhag íslend- inga. Við lifum hins vegar á fisk- veiðum. Orku íslenskra stjórn- valda væri óneitanlega betur var- ið í að vernda rétt okkar og ann- arra til skynsamlegra fiskveiða en að efna til ófriðar við volduga nágranna út af nokkrum hrefn- um. Það er nefnilega veruleg hætta á ferðum í þeim efnum, eins og Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra, benti réttilega á í þriðjudagsgrein sinni í Degi í vikunni. Þar kom fram að al- þjóðastofnanir telja „að 70% fiskistofna veraldar séu illa á sig komnir, það er fullnýttir, of- veiddir, tæmdir eða að jafna sig eftir rányrkju." Áróður þeirra öflugu samtaka og einstaklinga sem láta sig um- hverfismál mestu varða beinist í auknum mæli að þessu hörmu- lega ástandi fisksins í sjónum, og sá málflutningur hefur þegar náð athygli fjölmiðla og almenn- ings. Lítið dæmi um þetta mátti sjá á vinsælum vef einnar stærstu sjónvarpsstöðvar Bandaríkjanna á „Degi jarðar" sem nú er hald- inn árlega víða um heim í apríl- mánuði. Þar var þeirri spurn- ingu beint til almennings hvaða dýrategundir væru í mestri út- rýmingarhættu í heiminum. Velja átti á milli margra svara, svo sem fíla, hvala, nashyrninga og svo framvegis. En rétta svarið við spurningu sjónvarpsstöðvar- innar var þessi: Fiskurinn. Ömurlegt ástand margra fiski- stofna er ekki bara nýjasta áhyggjuefni umhverfisverndar- samtaka, heldur líka áhrifamik- illa stjórnmálamanna í hinum vestræna heimi, þar á meðal í Bandaríkjunum, og sumir þeirra eru reiðubúnir að grípa til rót- tækra aðgerða. Mildlvægt er að Islendingar hafi áhrif á umræður og aðgerðir í þessum efnum á komandi misserum og árum, því þarna er tekist á um raunveru- lega hagsmuni þjóðarinnar allr- ar. Lifandi auðlind Þótt hvalveiðar hafi Iagst af hér við land hafa hvalir haldið áfram að gefa þjóðarbúinu umtalsverð- ar tekjur. Dugandi menn hafa nefnilega byggt upp nýjan og sí- vaxandi þátt í íslenskri ferða- þjónustu: skipulagðar ferðir til að skoða Iifandi hvali í náttúru- legu umhverfi sínu í hafinu við Island. Lifandi hafa hvalirnir þannig reynst Islendingum nota- drjúg auðlind. íslendingar eiga m'mælalaust mikla möguleika á að draga til sín sívaxandi fjölda ferðamanna sem vilja skoða þessa lifandi auðlind í hafinu umhverfis land- ið. Landið gæti hæglega orðið langstærsta miðstöð hvalaskoð- unar við Norður-Atlantshaf. Það hlýtur að teljast ótrúleg skamm- sýni að ætla að setja framtíð þessarar atvinnugreinar í hættu með því að taka upp á nýjan leik alþjóðlegan slag við öflugustu nágranna okkar um arðlitlar hvalveiðar. Hafa stjórnmála- mennirnir okkar virkilega ekkert þarfara að gera? f

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.