Dagur - 13.05.1998, Page 6
22 - MIDVIKVDAGUR 13.MAÍ 1998
HEIMILISLÍFIÐ I LANDINU
ElínAlbertsdóttir, rit-
stjóri Húsa og híbýla,
er vanari því að skoða
annrra híbýli en sýna
sín eigin. Hún tekurá
móti okkurífallegu
raðhúsi við Lækjar-
hvamm í Hafnarfirði,
en gatan sú hefur tví-
vegisfengið verðlaun
semfallegasta gatan í
bænum.
Þegar komið er inn í húsið er
dökkt tréverk áberandi en það
myndar skilrúm milli hæða og
inn í eldhúsið. „Þetta er karakt-
er hússins," segir Elín en það
eru aðeins þrír mánuðir síðan
hún flutti í raðhúsið. „Við erum
búin að búa í Hafnarfirði í rúm
sextán ár þótt það hafi aldrei
verið ætlunin að gerast Gaflarar.
En við sjáum svo sannarlega
ekki eftir því að flytja hingað og
viljum hvergi annars staðar
vera.“
AntUdiúsgögmn frá nöfnu
Þau höfðu eina viku til að flytja
og gera það sem þurfti á nýja
staðnum. „Það var hörkupúl
meðan á því stóð en ég er fegin
núna þar sem oft vill dragast að
gera hlutina séu þeir-ekki gerðir
strax. Við máluðum öll herbergi
og breyttum eldhúsinu lítilshátt-
ar en vorum í sjálfu sér heppin
hversu húsið var í góðu ástandi
og vel um það hugsað af fyrri
eigendum," segir Elín.
Eldhúsið er skemmtilega gult.
Veggir eru málaðir í mildum gul-
um Iit en gluggatjöld, diskamott-
ur og veggborði eru með sams-
konar sítrónumynstri. A borðinu
eru gulir skrautmunir og blóm.
Þessi guli litur fer sérlega vel
með dökkri viðarinnréttingunni
og svarbláum borðplötunum.
Á heimilinu er mikið af göml-
um húsgögnum sem Elín fékk
frá nöfnu sinni, Elínu Jónatans-
dóttur, en hún ólst upp að hluta
til hjá henni og eiginmanni
hennar, Þorsteini Jónssyni húsa-
meistara. „Eg hef alla mína ævi
verið meira eða minna hjá henni
nöfnu minni, t.d. borðaði ég
alltaf hjá henni á aðfangadag og
fór með þeim hjónum í sumar-
leyfi svo eitthvað sé nefnt. Hún
er heldur ekki
Iangt frá mér
núna því hún
dvelur á Sól-
vangi. Það var
einlæg ósk
hennar að ég
eignaðist þessi
húsgögn og það
er mér mikils
virði að geta
varðveitt þau
áfram því þau eru hluti af
bernsku minni og uppeidi."
Elín sýnir okkur myndir af sér
fimm ára gamalli í sófanum sem
grammófónn frá sjötta áratugn-
um, mikil mubla en þarfnast
viðgerðar.
Nokkuð góður garður er við
húsið jafnt að framanverðu sem
aftan en af svölunum úr stof-
unni er frábært útsýni yfir sjó-
inn og Snæfellsjökull blasir við í
góðu skyggni. „Þetta er nánast
eins og út í sveit,“ segir Elín.
„Við erum með gróðrarstöð hér
næstum í bakgarðinum og fugla-
söngurinn er nær stöðugur."
Kaþólska kirkjan i Hafnarfirði
er rétt fyrir ofan húsið og þar
niður með er svolítið dalverpi,
þar sem maður bíður eiginlega
eftir að sjá kýrnar koma
labbandi, rétt eins og í sögunni
um Heiðu. Eiginmaður Elínar
hefur yndi af garðvinnunni og
finnst það mikill kostur að eiga
eigin garð en húsmóðirin er al-
veg sátt við að sitja í sólbaði og
láta honum eftir vorverkin í
garðinum. -VS
Elín heldur hér á uppáhalds bókinni sinni, Kvennafræðaranum, en þetta eintak var áður i eigu Guðrúnar frá Lundi.
Gamli grammófónninn er laglegur, en þarfnast viðgerðar. Þarna hefur Elín
búið til fjölskylduhorn, safnað saman myndum afýmsum fjölskyldu-
meðlimum.
Elín hefuránægju af
gömlum hlutum eins
og sjá má á heimili
hennar. Hlutum sem
eiga sérsögu.
nú prýðir stofu hennar. „Borð-
stofusettið er íslenskt. Það var
smíðað á trésmíðaverkstæði á
Þóroddsstöðum árið 1957, árið
sem ég fæddist, og er einstak-
lega vandað að
öllu leyti. Ég er
sérstaklega
hreykin af því að
það skuli vera ís-
Ienskt,“ segir
hún.
Elín hefur
ánægju af göml-
um hlutum eins
og sjá má á
heimili hennar.
Hlutum sem eiga sér sögu, eins
og hún orðar það. Hún segist oft
fara í antíkbúðir, bæði hér
heima og erlendis, til að skoða
Borðstofusettið er íslenskt handverk, hannað og unnið hér á landi og sérlega
vönduð smíði.
og handleika þessa gömlu, fal-
Iegu muni.
Fallegur fuglasöngur
Hún hefur Iíka mikla ánægju af
bókum og í stofunni er
skemmtilegur glerskápur sem
geymir margar bækur. „Sjáðu
þessa hér,“ segir Eh'n. „Þetta er
uppáhaldsbókin mfn, Kvenna-
fræðarinn, gefin út árið 1904.
Bókin hefur ekki síst gildi þar
sem hún var eitt sinn í eigu rit-
höfundarins Guðrúnar frá
Lundi."
Barnaherbergi eru á neðri
hæðinni svo og sjónvarpsstofa
og vinnuherbergi þeirra hjóna,
Elínar og eiginmanns hennar,
Ásgeirs Tómassonar frétta-
manns. I sjónvarpsherberginu er
/ eldhúsinu ber mikið á sítrónumynstri sem gerir að verkum að dökk eld-
húsinnréttingin nýtur sín vel. Eh'n segist kunna vel við gula litinn og finnst
hann léttur og notalegur. myndir: bd.