Dagur - 03.07.1998, Qupperneq 2
18-FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998
LÍFIÐ í LANDINU
i. A
ÞAD ER KOMIN HELGI
Hvaö
ætlarþúað
gera?
„Að fólk hafi með sér
skólfur, fötur, góðan
galla og hugmynda-
flug, “ segir Lilja
Magnúsdóttir.
Sandkastalar og kraftakeppni
„Eg ætla um helgina að vinna í Leikjalandi,
nýjum afþreyingarstað sem við erum að koma
upp hér í þorpinu. Þar getur fólk m.a. farið í
kajakasiglingar út á fjörð eða leildð sér í
golfí,“ segir Lilja Magnúsdóttir, ferðamála-
frömuður á Tálknafirði.
Meðal þess sem ber hæst um komandi
helgi á Vestfjörðum er sandkastalakeppni í
Breiðavík við Patreksfjörð. Þangað geta allir
mætt og reynt með sér í sandkastalagerð.
Einu þátttökuskilyrðin eru að fólk hafi með
sér „ ... skóflur, fötur, góðan galla og svolítið
hugmyndafíug," einsog Lilja kemst að orði.
„Svo reikna ég með að bregða mér á ball
með Pöpum á Bíldudal á laugardagskvöld, en
það er lokapunktur á kraftakeppninni Vest-
fjarðavíkingi sem er hér um helgina," segir
Lilja.
„Þarfað byrja að slá
um helgina," segir
Sigurgeir Hreinsson,
bóndi á Hríshóli.
„Út í Bjarnarey til að
ná tilfinningu fyrir
eyjalífi og lundaveiði,"
segir Árni Johnsen.
Heyskapur og grill
„Vonandi kemst ég í heyskap um helgina. Að
minnsta kosti ráðlegg ég ekkert annað. Eigin-
lega þarf að byrja eitthvað að slá um helgina
því annars gæti grasið sprottið úr sér alveg á
örfáum dögum," segir Sigurgeir Hreinsson,
bóndi á Hríshóli í Eyjafjarðarsveit.
Um aðra helgi verður landsmót hesta-
manna haldið á Melgerðismelum í Eyjafirði
og þangað ætlar Sigurgeir að mæta. „Ég er að
vísu lítill hestamaður en gaman er að fara á
samkomur til þess að hitta skemmilegt fólk
og sjá fallega hesta. Síðan vona ég að um
helgina viðri þannig að hægt verði að setja
kjöt á grill,“ segir Sigurgeir.
Háfinn á loft
„Ég verð á hátíð í Eyjum um helgina í tilefni
af því 25 ár eru liðin frá lokum eldgossins.
Komið hefur verið upp samkomutjaldi við
Vesturveg þar sem verða flutt, m.a. lög eftir
Oddgeir og Asa í Bæ. Verður þessi dagskrá
bæði föstudags- og laugardagskvöld,“ segir
Árni Johnsen alþingismaður.
En Arni kemur víðar við um helgina. Hann
ætlar á sumartónleika í Skálholti á Iaugardag,
en vera kominn aftur út í Eyjar um kvöldið.
„Lundaveiðitímabilið hófst á miðvikudaginn,
1. júlí. Báturinn minn er klár og kominn á
flot og ég ætla endilega að komast út í Bjarn-
arey, rétt til þess að ná tilfinningu fyrir eyjalíf-
inu og lundaveiðinni mun ég sjálfsagt bregða
háfnum á loft,“ segir Arni Johnsen.
Varla verður sagt að Helgi Hörður Jónsson, nú fréttastjóri Sjónvarps, hafi breyst
mikið á þeim 22 árum sem eru liðin frá því stærri myndin hér að ofan var tekin.
Enn er hann með myndarlegt fréttastjóraskegg þó hann hafi alls ekki verið frétta-
stjóri í den tíð. Fyrir rúmum 20 árum var hann einn af liðsmönnum fréttastofu Út-
varpsins - og þá var þessi mynd tekin.
■ LÍF OG LIST
Listin
að snúa aftur
„Ég er þessa
dagana að
Jesa bókina
'. Art of the
Come Back,
sem er eftir Donald Trump
þann milda grósser í New York,“
segir Þorgils Óttar Mathiesen,
forstöðumaður hjá Islands-
banka. „Trump hefur skrifað
þijár bækur um veraldarvafstur
sitt vestanhafs, en hann á m.a.
spilavíti í Atlanta og fjölda bygg-
inga í New York. í þessari þriðju
bók, sem við getum kallað í
Listin að snúa aftur í lauslegri
þýðingu, segir hann frá bakslagi
í viðskiptalífí sínu og hvemig
honum tókst, m.a. með góðri
samningatækni, að ná sér aftur á flug. Ég les ekki
mikið, en finnst alltaf gaman að áhugaverðum
reynslusögum af þessu tagi.“
PORulLS UTTAR
MATHIESEN
Sjakalinn og Sean Penn
Björgvin og Forest Gump
„Síðast minnir mig að undir
geislanum hafí verið diskur með
lögunum úr kvikmyndinni For-
est gump. Ég get þó varla talist
mikill tónlistarunnandi, helst hlusta ég á þessa
popptónlist sem gengur á útvarpsstöðvunum yfir
daginn og oftast er ég með stillt á Bylgjuna. Af ein-
stökum tónlistarmönnum þá þykir mér Jón Ólafs-
son píanisti með meiru vera góður og Björgvin
Halldórsson ber höfuð og herðar yfir aðra íslenska
tónlistarmenn, enda gegn Hafnfirðingur."
„Líklega hefur það verið myndin
Sjakalinn með þeim Bruce Willis
og Richard Gere sem ég sá síð-
ast. Þetta er dæmigerð glæpa-
mynd sem fjallar um leigumorðingja sem kemst í
komapaní við rússnesku mafíuna og er virkilega í
vondum málum. Önnur mynd sem ég hef nýlega
séð er myndin Game, með þeim Sean Penn og
Michael Douglas. Þetta er ágæt hasarmynd, en
kannski einum of ótrúverðug. Um kvikmyndaval
mitt almennt get ég sagt að það sé mjög opið og
alls ekki einhlítt hvernig myndir ég vel mér á hverj-
um tíma til að stinga í myndbandstækið." -SBS.
■ fra degi til dags
Maður verður að reyna að brjótast í
gegnum smáu hugsanimar sem ergja
mann og út til hinna stóru, sem gefa
kraft. Dietrich Bonhoeffer.
Þetta gerðist
• 1973 tilkynntu vísindamenn formlega
að gosinu í Heimaey væri lokið. Það
hófst 23. janúar.
• 1948 var undirritaður samingur um
nær 39 milljóna dala aðstoð Bandaríkj-
anna við Island, svonefnda Marshall-
aðstoð.
• 1928 var farið á bifreið yfir Öxnadals-
heiði í fyrsta sinn. Ferðin frá Blöndu-
ósi til Akureyrar tók fimmtán klukku-
stundir.
• 1921 var hin Islenska fálkaorða stofn-
uð. Hana á að veita þeim „sem öðrum
fremur hafa eflt hag og heiður Is-
lands“.
Fædd þennan dag
• 1951 fæddist Jean Claude Duvalier,
forseti Haiti.
• 1925 fæddist leikarinn Tony Curtis
(Some like it hot).
• 1909 fæddist Stavros Niachos Greece
(Those fabulous Greeks).
Vísa dagsins
Þessi vísa var í vísnabók (Poesibók)
stúlku nokkurrar:
Ef að bragnar bjóða þér
blíðu sína að veita,
vita skaltu, að vandi er
velboðnu að neita.
Afmælisbam dagsins
Afmælisbarn dagsins er tékkneski rit-
höfundurinn Franz Kafka. Hann
fæddist árið 1883 og dó 1924. Kafka
skrifaði á þýsku og birti allmargar
smásögur meðan hann lifði, þ. á m.
Hamskiptin. Eftir andlát hans gaf
Max Brod vinur hans út þrjár skáld-
sögur Kafka, auk fleiri verka. Þetta
voru Réttarhöldin, Höllin og Ameríka.
Kafka hefur orðið mjög áhrifamikill
höfundur. I verkum hans speglast
myrk lífsviðhorf, stundum samofin
afar sérkennilegri gamansemi, í þeim
birtist einnig angist mannsins og þrá
eftir samneyti við aðra.
Brandarar
Þau Jón og Gunna sátu við morgunverðarborðið
daginn eftir gullbrúðkaupsdaginn og voru að
spjalla. „Manstu eftir því Jón, þegar við sátum
nakin við morgunverðarborðið morguninn eftir
brúðkaupið?"
Jú, Jón mundi það og þau ákváðu að prófa
þetta aftur og sjá hvort ekki lifði svolítið í göml-
um glæðurn.
„Elsku Jón,“ sagði Gunna með sælubrosi á
vör. „Mér hlýnar enn á brjóstunum við að horfa
á þig svona nakinn.1'
„Það er nú ekkert skrítið," sagði Jón þurrlega.
„Með annað brjóstið í hafragrautnum og hitt í
kaffinu!"
Veffangið
Ertu í vandræðum með það hvað á að kaupa af
tölvum, íhlutum og slíku? Þá er ágætt að fara
inn á þessa síðu: http://www.usadoday.com/ life
/cyber/bonus/qa/techform.htmen þar er að
finna mikið magn upplýsinga um tölvur, hvernig
á að láta þær vinna rétt og hvað er best að kaupa
hverju sinni fyrir þær.