Dagur - 03.07.1998, Blaðsíða 10

Dagur - 03.07.1998, Blaðsíða 10
26-FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 19 9 8 D^ur LÍFIÐ í LANDINU L HRISALUNDUR KEA grill kynning. Leiktæki fyrir börnin. Frisso frísko gos kynning. TILBOÐ Svínokótilettur kr. 699 kg. KEA pylsubrauö kr. 69 pk. KEA Prakkarapylsur kr. 559 kg. Coca Cola 1 I kr. 88 Pepsí 2 I kr. 97 Frissi fríski gos 1/2 I kr. 49 Hrísalundur fyrir þig. Sumarsprell í dag fró kl. 16-19 Margir spá Kringlu sigri í B-flokki á landsmótinu. Knapi Sigurður Sigurðarson. Nauðsyn á öflugum félagsmótum Um síðustu helgi var Murneyrarmótið hald- ið með góðri reisn. Stutt er síðan menn ræddu það í alvöru að leggja það mót af vegna lítillar þátttöku. Frá því var fallið og mótið sem nú var haldið virðist styðja þá ákvörðun. A þeim tímum eins og nú er þar sem einkavæðingin og peningahyggja virðist nær allsráðandi þá er nauðsynlegra en áður að geta haldið reisn yfir félagsmótunum, ef menn á annað borð vilja halda í félögin sem sameiginlegan vettvang hestamanna. HESTAR Kári Arnorsson skrifar Gott mót á Mumeyrum Á Murneyrarmótinu sem er sameiginlegt mót Sleipnis á Selfossi og nágrenni og Smára félags Hreppamanna komu fram ágæt hross. Þá náðist góður árangur í skeið- kappreiðum en kappreið- ar virðast vera að ná betri stöðu en verið hefur um hríð. I A-flokki hjá Sleipni varð sigurvegari Roði frá Egilsstaðabæ, knapi Hall- dór Vilhjálmsson, í öðru sæti Storka frá Dalbæ, knapi Brynjar J. Stefáns- son og í þriðja sæti Gammur frá Hreiður- borg, knapi Þorvaldur Á. Þorvaldsson. B-flokkinn sigraði Glóð frá Grjóteyri, knapi Svanhvít Kristjánsdóttir, annar var Heljar frá Skið- bakka, knapi Brynjar J. Stefánsson og þriðji Oli- ver frá Garðsauka, knapi Olafur B. Ásgeirssson. Unglingaflokkinn sigraði Bangsi frá Gríms- húsum, knapi Olöf Har- aldsdóttir og önnur varð Elva frá Dalbæ, knapi Þóranna Másdóttir. í barna- flokki sigraði Ingi Hrafn frá Egilsstaðabæ, knapi Kristinn Loftsson, í öðru sæti Blesi frá Votmúla, knapi Freyja Amble Gísladóttir. Hörkukeppni í A-flokki hjá Smára I A-flokki hjá Smára sigraði Blúnda frá Kílhrauni, knapi í úrslitum var Þórður Þorgeirsson en Magnús Benediktsson í forkeppni, í öðru sæti Ás frá Há- holti, knapi Magnús Benediktsson og i þriðja sæti Hlýja frá Vestra Geldingaholti, knapi Sigfús B. Sig- fússon. I B-flokki sigraði Nasi frá Hrepphólum, knapi OIiI Amble, annar varð Gaqrur frá V-Geldingaholti, knapi Sigfús B. Sigfússon og þriðja varð Kvika frá Egilsstaðakóti, knapi Birna Káradóttir. Unglingaflokkinn sigraði Hamar frá Háholti, knapi Bjarni Másson og annar varð Goði frá Húsa- tóftum, knapi Helena Steinþórsdóttir. I barnaflokki varð Þytur frá Háholti efstur, knapi Ragnheiður Másdóttir og önnur Yrpa frá Háholti, knapi Helga H. Sigurðardóttir. Þriðji varð Bylur frá Hæli, knapi Dóróthea H. Sigurðardóttir. Góð þátttaka var hjá konum á Murneyrarmótinu. Glóð frá Grjóteyri og Svanhvít Kristjánsdóttir sigr- uðu í B-flokki hjá Sleipni. Atkvæðamesti knapinn hjá Sleipni var Brynjar J. Stefánsson sem kom alls fimm hestum í úrslit og hjá Smára var það Sigfús B. Sigfússon, sem kom (jórum hestum í úr- slit og hlaut Sveinsmerkið, knapaverðlaun Smára. Þá er ástæða til að geta góðrar frammistöðu knapa og hesta frá Háholti. Töltkeppnin á Murneyrarmótinu er orðin vinsæl enda til nokkurs að vinna því veitt voru 50 þús. króna verðlaun fyrir fyrsta sæti. Það er Sláturfélag Suðurlands sem gefur þessi verðlaun og er það vel þegar íyr- irtæki standa þannig við bakið á félagsstarfi heima í héraði. 1. verðlaunin hreppti Hugrún Jó- hannsdóttiná Blæ frá Sigluvík og sigraði Sigurbjörn Bárðarson en þeir félagar hann og Oddur frá Blönduósi láta ekki deigan síga og urðu í öðru sæti. Góður árangur náðist í skeiðinu. 150 metrana sigraði Áki frá Laugarvatni á mjög góðum tíma 13,9 sek. Hann var setinn af Þórði Þorgeirssyni sem í raun keppti við sjálfan sig en Lúta frá Ytra-Dalsgerði sem Þórður sat einnig var með tímann 14,0. Ragnar Hinriksson slær ekki slöku við frekar en Sigurbjörn og náði fyrsta sætinu með Bendil frá Sandfelli, hestur sem hann skaut upp á skeiðhimininn í fyrra. Tím- inn var 22,10 sek. Sigurður V. Matthíasson, sem búinn er að skipa sér í röð fremstu skeiðknapanna, sat Glað frá Sigríðarstöðum sem varð í öðru sæti með 22,27. 350 m stökkið vann Lýsingur frá Brekkum með tímann 25,86 sek. Knapi Sveinn Þ. Gunnarsson. Mjög sterkt lið frá Herði á landsmótið Nokkuð er síðan Harðarmenn héldu sína úrtöku fyrir landsmótið og sýnilegt að þar fer sterkt lið sem líldegt er til stórræða. I öllum flokkum eru sterkir hestar og mjög reyndir knapar. Það má því vænta mikils af þessu liði á landsmóti. A-flokkinn sigraði Prins frá Hörgshóli, knapi Sigurður Sigurðarson. Að mati áhorfenda þá var þetta stjörnusýning. Váli og Elías Þórhallsson urðu númer tvö. B-flokkinn sigraði Kringla frá Kringlu- mýri með miklum yfirburðum og þvílík sýning. Knapi Sigurður Sigurðarson. Háfeta og Guðmari Þór var ekki ógnað í ungmennaflokknum en þeir skipa fyrsta sætið. Garðar Hólm er líka vel þekktur knapi og hann kom hesti sínum Ónari í annað sæt- ið. Unglingaflokkinn sigraði Hrafnhildur Jóhannes- dóttir á Saffron og Sigurður Pálsson og Rimma urðu í öðru sæti. Linda Pétursdóttir ætlar að feta í fótspor bróður síns því hún reið Fasa með glæsi- brag í harðri keppni um fyrsta sæti í barnaflokki. Númer tvö varð Daði Erlingsson á Nökkva. Sem sagt harðsnúið lið frá Herði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.