Dagur - 03.07.1998, Síða 5

Dagur - 03.07.1998, Síða 5
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 - 21 Vjgpr. LEIKHÚS KVIKMYNDIR TÓNLIST SKEMMTANIR urlöndunum heimsækja safnið kl. 15.00. Auk þess verður hefðbundin dagskrá, hand- verksfólk verður við störf í hús- unum og sýningarsalirnir opnir. I Dillonshúsi verður rjóma- kökudagur. Þorgerður sýnir í Kringlunm Á laugardaginn verður opnuð sýning á verkum Þorgerðar Sig- urðardóttur í Kringlunni, í sýn- ingarrými Gallerís Foldar. Þor- gerður sækir myndefni sitt til miðaldalistar og í myndum hennar eru minni úr kirkjulist. Uglan er tákn viskunnar og ljónið tákn valdsins og hún spyr: „Hvert stefnir valdið án viskunnar? Sönghópurínn Htjómeyki mun ásamt Guðna Franzsyni og Helgu Ingólfsdóttur ftytja ný tónverk í Skálholtskirkju um helgina. Dagana 4. og 5. júlí mun Sig- urður Pétursson cand. mag. flytja erindið Draumur Brynjólfs biskups, sönghópurinn Hljómeyki, ásamt Guðna Franz- syni og Helgu Ingólfsdóttur flytja ný tónverk eftir staðartón- skáldin Elínu Gunnlaugsdóttur \Og Báru Grímsdóttur. Dagskráin \hefst kl. 14.30 með ávarpi sr. Sigurðar Sigurðarsonar, vígslu- I biskups. ■ UM HELGINA Norrænþjóðdansa- sýning Á sunnudaginn verður þjóð- dansasýning í Árbæjarsafni. I tilefni af norrænu þjóðdansa- móti sem fram fer í Reykjavík munu þjóðdansarar frá Norð- Sýningin stendur til 22. júlí og er opin á sama tíma og Kringlan. Tryggvi Ólafsson 1 Haligrímskirkju Sýning Tryggva Olafssonar list- málara í Hallgrfmskirkju, verð- ur opnuð á sunnudaginn kl. 12.15, eftir messu. Tryggvi hef- ur búið í Kaupmannahöfn í nærri 40 ár, en heldur af og til sýningar hérlendis. Ein mviida Tryggv'a, sú sem hér sést, heitir „Flug“, en hann kemur einmitt fljúgandi til landsins til að koma myndunum fyrir. V________________________________/ Grease, Grease Það ríkir Grease æði þessa stundina á íslandi og samein- astforeldrar og unglingar í því æði. Söngleikurinn Grease verðurnefnilega frumsýndurí Borgarleikhúsinu íkvöld. „Þetta verk eins og það er sett upp hér, er allt annar handleggur en bíómyndin sem margir muna eftir,“ segir Þorsteinn Stephen- sen blaðafulltrúi. „Það er miklu meiri tónlist í verkinu en í myndinni, lög sem ekki komust inn í myndina og eru úr uppruna- lega söngleiknum, en þessi söngleikur okkar er blanda af þeim upprunalega og þeim lög- um sem slógu í gegn í myndinni. I verkinu kemur fram fjöldi ungra leikara, flestir nýút- skrifaðir úr Leiklistarskólanum og þeir lofa svo sannarlega góðu,“ bætir hann við. Þorsteinn segir það athyglisvert að nú sé verið að setja þetta verk í fyrsta skipti upp í atvinnuleikhúsi hérlendis, en hingað til hef- ur það eingöngu verið sett upp af áhugaleik- hópum. Nú er líka verið að reyna það í fyrsta skipti að hafa atvinnuleikhús opið allt árið, en þau hafa verið lokuð yfir sumartím- ann. „Við fengum hingað enskan leikstjóra til að setja sýninguna upp og semur hann einnig dansa í samvinnu við Ástrósu Gunn- arsdóttur, sem er þjóðkunn," segir Þor- steinn. „Það er líka annað sem er skemmtilegt við þessa sýningu og það er að hún er uppfull af skemmtilegum karakterum og í henni er söguþráður. Þetta er ekki bara röð af lögum og það fá mildu fleiri möguleika á því að láta ljós sitt skína en aðalhetjurnar, jafnvægið er mjög gott í þeim efnum,“ segir Þorsteinn. Með aðalhlutverk fara þau Rúnar Freyr Gíslason sem leikur Danny og Selma Björnsdóttir sem leikur Sandy. Leikmynd gerði Stfgur Steinþórsson og Ieikstjóri er Ken Oldfíeld en honum til aðstoðar er Randver Þorláksson Spaugstofumaður. Næstu sýningar á Grease verða Iaugardag- inn 4. júlí og sunnudaginn 5. júlí. -vs Nú gefst íslendingum færi á að sjá söngleikinn Grease fluttan af atvinnumönnum og meira að segja á sínu ylhýra og ástkæra móðurmáli, því Leikfélagið fól Veturliða Gunnarssyni að þýða verkið. Sumarí Skálholti Stærsta og elsta sumartónlistar- hátíð landsins, Sumartónleikar í Skálholtskirkju, verður sett á laugardag kl. 14.30. Að vanda verður boðið upp á tónleika fímm helgar í júlí og ágúst en tónlistarhátíðin er nú haldin í 24. sinn. Tónleikahaldið verður með svipuðu sniði og undanfar- in ár, tónleikar haldnir á laugar- dögum kl. 15 og 17 og á sunnu- dögum kl. 15. Erindi sem tengj- ast tónleikunum verða flutt í Skálholtsskóla kl. 14, á laug- ardardögum og sunnudögum kl. 17 verður messa með þáttöku tónlistarmannanna og hefst messan með tónlistarstund kl. 16.40. Stólvers úr fornu íslensku söguhandriti verður flutt, í nýrri útsetningu Snorra Sigfúsar Birg- issonar, en ekki er langt síðan fannst ljöldinn allur af söng- handritum í íslenskum handrit- um sem fallið höfðu í gleymsku.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.