Dagur - 30.07.1998, Side 2
18 - F IM M T VI) A G V R 3 0. JÍILÍ 1998
LÍFIÐ í LANDINU
SMÁTT OG STÚRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Pálmi Matthíasson.
„Ég veit að mínir
menn munu Ieggja
sig fram til þess
að knjga fram sig-
ur því við sjón-
deildarhringinn er
gullmoli sem allir
vilja, hann fáum
við aðeins með
mikilli vinnu og
sigri.“
Bjarni Jóhannsson
þjálfari ÍBV í
Mogga.
SkemmtikrafturiiiQ
Þeir sem gangast fyrir útihátíðum um verslun-
armannahelgina keppast nú við að auglýsa
hvað verður til skemmtunar hjá þeim eins og
vant er. Það stingur í auga í ár að allt í einu er
prestur auglýstur með skemmtikröftunum.
Það er séra Pálmi Matthíasson sem auglýstur
er með popphljómsveitum og trúðum á bind-
indismótinu í Galtalæk. Ef séra Pálmi á að
skemmta fólki eins og aðrir skemmtikraftar er
ekkert við þessu að segja en ef hann messar
eða flytur guðsorð við annað tækifæri á mót-
inu er það alger nýjung að samsama slíkt
skemmtun og prestinn með skemmtikröftum.
Hagræðing í pólitík
Guðni Agústsson alþingismaður bendir á að
nú sé til siðs að háeffa allt til að hagræða.
Hann segir ljóst að allt sé að springa hjá A-
flokkunum. Menn eins og Hjörleifur Gutt-
ormsson, Steingrímur J. séu farnir og Kristinn
H. Gunnarsson og Svavar Gestsson sitji klof-
vega á spýtunni og viti ekki í hvora áttina þeir
eigi að fara. Því eigi Framsóknarflokkurinn að
nota tækifærið og hagræða með því að taka þá
inn í flokkinn. Þetta séu rammir þjóðernis-
sinnar sem eigi samleið með Framsóknar-
flokknum í Evrópumálum, fiskveiðimálum og
fleiri stórmálum í pólitíkinni. Þá vaknar sú
spurning hvort flokkurinn héti á eftir Fram-
sóknarflokkurinn hf.
Rifist í útvarpi
Það hefur vakið athygli mína hversu illa þeim
virðist koma saman morgunhönunum hjá rás
2. Anna Kristín Jónsdóttir er að mínum dómi
með bestu útvarpsmönnum um þessar mund-
ir. Nú er með henni á morgnana piltur sem
heitir Börkur. Hann hefur tekið upp á því að
rífast við Onnu í beinni útsendingu út af ólík-
legustu málum, svo stundum hefur verið
klippt á með stefi, tónlist eða auglýsingum.
Um þverbak keyrði sl. þriðjudag þegar Anna
ræddi um að menn hefðu uppgötvað nauðsyn
þess að kennarar Iærðu að umgangast börn til
þess að haturssamband kennara og nemenda
mydaðist ekki. Þá fór Börkur að rífast og hélt
því fram að best væri að hatur ríkti á milli
kennara og nemenda!!
Glópagull
Um tíma voru menn að skjóta vísum að hag-
yrðingnum Hákoni Aðalsteinssyni í blöðunum
í von um svar í bundnu máli. Þegar þetta hafi
gengið lengi orti Hákon:
Hampa léttu glópagulli
gleðjast yfir sér.
Skreyta landsins blöð með bidli
og beina því að mér.
„Unnur Halldórs-
dóttir, fyrrverandi
formaður og
framkvæmdastjóri
Heimiiis og skóla,
er búin að skipta
um svið. Komin í
sjoppurekstur í
sveitinni.
gt'“.
Fer í golf og kóiinn
„Ég hef aldrei komið að svona
rekstri en maðurinn minn hefur
starfað hjá Skeljungi í mörg ár
þannig að hann þekkir til rekst-
urs bensínstöðva. En þetta er
heilmikið því að þetta er bæði
bensínstöð, sjoppa og veitinga-
sala þannig að nú verður maður
bara helst að fara að baka með
kaffinu. Ég hef náttúrulega gert
það áður sem húsmóðir í sveit en
húsmóðurgenin eru við það að
deyja út þegar maður vinnur
jafnmikið og ég gerði hjá Heimili
og skóla,“ segir Unnur Halldórs-
dóttir, fyrrverandi formaður og
framkvæmdastjóri Heimilis og
skóla.
Unnur flutti í Borgarnes í byrj-
un júlí og tók þá við rekstri
Shellstöðvarinnar; bensínsölu,
sjoppu og veitingasölu. Hún er þó ekki búin að
segja skilið við foreldrasamtökin Heimili og
skóla að fullu því að hún telst vera í sumarfríi
og á eftir að vinna í hálfan mánuð fyrir samtök-
in. Eftirmaður hennar tekur til starfa um miðj-
an ágúst. Sjálf skilur Unnur ánægð við. Hún
hefur verið í forystu fyrir samtökin í sex ár en
nú eru öll börnin uppkomin, það yngsta að byrja
í kokkanámi og því tími kominn til að takast á
við ný verkefni.
Unnur er ekki alveg ókunnug landsbyggðinni.
Hún var bóndi og kennari í Grímsnesi þegar
hún fluttist á höfuðborgarsvæðið fyrir nokkrum
árum þannig að það má segja að hún sé komin
aftur „til sinna heima“.
Á mér þann draum...
„Mér líst mjög vel á þetta hérna.
Þetta er mikil vinna, eins og allt
sem fólk tekur sér fyrir hendi af
lífi og sál, en þetta er skemmti-
Iegt starf og mikið um samskipti
við annað fólk. Maður hittir mik-
ið af fólki og mér líst voðalega vel
á Borgarnes. Ég er mjög ánægð
með að flytja út á land því að það
hentar mér mjög vel. Það hentar
mér vel að búa á litlum stað þar
sem eru stuttar vegalengdir, fólk-
ið er jákvætt og tekur okkur vel.
Ég er byrjuð aðeins í golfinu og
ætli ég reyni ekki að fara í ein-
hvern kór, blanda mér í samfélag-
ið,“ segir Unnur.
- Ætlarðu að gera einhverjar
stórar breytingar í veitingamálum
landsmanna?
„Nei. Ég hef miklu meira gaman af því að
borða mat en að selja hann. En ég neyðist til að
hugsa um hvað er hentugt og gott að hafa á
boðstólum því að það er svo breiður hópur sem
fer um veginn. Það þarf að reyna að fylgjast
með straumum og stefnum í veitingabransan-
um. Ég á þann draum að hægt verði að fá hérna
eitthvað til viðbótar við hamborgara og franskar
en ég er svo sem ekki farin að hrinda því af
stokkunum að öðru Ieyti en því að ég ákvað
strax að vera með kjötsúpu enda er þetta land-
búnaðarhérað. Það gengur ágætlega." -GHS
Skóla- ogforeldra-
frömuðurinn Unnur
Halldórsdóttir er
flutt til Borgamess
þarseni hún rekur
sjoppu, veitingasölu
og bensínstöð. Allt í
einum pakka.
SPJALL
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
Það sem \dtur maður ætti að íhuga er
ekki hvernig hann á að deyja, heldur
hvemig hann á að lifa.
Baruch Spinoza.
Þetta gerðist 30. ]úli
• 1980 mældist 23,7°C í Reykjavak og
þótti gott.
• 1973 var fyrsta skuttogaranum sem
smíðaður var á Islandi hleypt af stokk-
unum hjá Stálvík í Garðabæ.
• 1909 fengu vinnukonur sem borguðu
einhver sveitargjöld kosningarétt til
sveitastjórna, svo og giftar konur.
• 1874 kom Kristján konungur níundi til
Reykjavíkur. Hann ferðaðist um Suður-
Iand og til Isafjarðar, Akureyrar og
Seyðisfjaröar.
• 1284 lést Sturla Þórðarson sagnaritari,
þá 70 ára gamall. Hann tók saman eina
gerð Landnámu og samdi Islendinga
sögu.
Þessi fæddust 30. júlí
• 1958 fæddist söngkonan Kate Bush.
• 1947 fæddist Arnold Schwarzenegger
leikari sem frægur varð fyrir The
Termiantor og fleiri slíkar myndir þar
sem vöðvar og mikilfenglegt andlitsfall
leikarans njóta sín en tal er í Iágmarki.
• 1863 fæddist bílasmiðurinn Henry
Ford.
Vísa dagsins - leiðrétting
Tveimur vísum var slegið saman í vísu
dagsins þriðjudaginn 28. júlí. Réttar eru
vísur Káins svona:
Tíðum hér á tölti’ég sést;
til þess eru líkur,
gefið mér þeir hefðu hest
hefði ég verið ríkur.
Hérna tfjandans heiminum
hef ég mörgu að sinna,
læt mig varða ekkert um
orð né gerðir hinna.
Afmælisbam dagsins
AÍTnælisbarn dagsins er Emily
Bronté, en hún fæddist árið 1818.
Hún er ein þriggja systra, sem
ólust upp í nokkurri einangrun á
hæðunum í Norður-Englandi og
sköpuðu sér í æsku eigin ævintýra-
heim. Emily skrifaði hina mögnuðu
skáldsögu Wuthering Heights, sem
hefur margoft verið kvikmynduð og
kom út á íslensku undir nafninu:
Fýkur yfir hæðir. Ljóð Emily birt-
ust einnig í Ijóðabók sem þær syst-
ur gáfu út saman. Emily lést árið
1848.
Tilviljun
„Hver kynnti ykkur, þig og konuna þína
eiginlega?" spurði einn vinur annan.
„Við hittumst af hreinni tilviljun," svar-
aði hinn. „Það er engan um að sakast í því
máli.“
Veffang dagsins
I dag leiðum við hugann að örvhentum
lesendum okkar. Slóðin http:/Avww.indi-
ana.edu/~primate/Ieft.html/ leiðir okkur
á síðu þar sem hægt er að fá upplýsingar
um allan þann ótrúlega fjölda frægra karla
og kvenna, sem verið hefur eða er, örv-
hentur.