Dagur - 30.07.1998, Side 11
Xfc^ur
FIMIUTUDAGUR 30.JÚLÍ 1998 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
R A D D I R
FÓLKSINS
MEINHORNIÐ
• Fullveldishá-
tíð Hríseyinga
fór fram helgina
17.-19. júlí í
hálfgerðu Ieið-
indaveðri. Við
því var ekkert
að gera. Hins
vegar var eina
kjörbúðin í
eynni lokuð yfir
hátíðina. Við
því hefði hins
vegar mátt gera
eitthvað. Þetta
er hreint með
ólíkindum
heimskuleg ráð-
stöfun hjá þeim
sem þarna áttu
hlut að máli. í
eynni var fullt
af aðkomufólki
sem átti kannski
ekki von á því
að þurfa að taka
með sér mjólk!
Ekki var hægt
að fá nauðsynja-
vörur eins og
brauð og mjólk
með góðu móti.
Ekki grillkjöt í
grillveisluna
sem boðið var
upp á. Aðstand-
endur hátíðar-
innar fá stóran
plús fyrir
skemmtilega
dagskrá en eig-
endur búðar-
innar verða að
hugsa sinn gang
fyrir næsta ár.
Þetta er þjón-
ustuskortur sem
ekki á að sjást í
dag.
„Útivistarreglurnar á Akureyri heimila þeim sem ekki eru orðnir 16 ára að vera úti til mið-
nættis, nema þeir séu í fyigd með fullorðnum eða á viðurkenndum skemmtunum fyrir börn
og unglinga."
Fj ö I skyldur
ferðumst saman - fylgjnmst að
Böm eiga rétt á því að vera
varin fyrir áfengis- og
vímuefnaneyslu.
Áfengis- og vímuvarnanefnd og for-
eldravaktin á Akureyri hvetja foreldra
til að fylgja börnum sínum og ung-
mennum eftir á ferðalögum og
skemmtunum um verslunarmanna-
helgina.
Foreldravakt verður föstudags-, laug-
ardags- og sunnudagskvöld. Farið verð-
ur frá Lögreglustöðinni á miðnætti öll
kvöldin. Foreldrar og forráðamenn eru
hvattir til að hringja á Lögregiustöðina
462 3222 og láta skrá sig sem þátttak-
endur á foreldravakt eitthvert kvöldið.
Foreldravaktin er nauðsynlegur hlekk-
ur milli lögreglu og barnaverndar-
nefndar við að hindra slys, aðstoða illa
stödd ungmenni og fylgja útivistarregl-
um eftir.
Fólk úr nærliggjandi sveitarfélögum
er sérstaklega velkomið til samstarfs.
Fólk getur einnig komið á Lögreglu-
stöðina rétt fyrir miðnætti og boðið
fram krafta sína. Utivistarreglurnar á
Akureyri heimila þeim sem ekki eru
orðnir 16 ára að vera úti til miðnættis,
nema þeir séu í fylgd með fullorðnum
eða á viðurkenndum skemmtunum fyr-
ir börn og unglinga.
Foreldrar!
Stöndum saman og njótum ánægju-
legrar verslunarmannahelgar glöð og
allsgáð.
Afengis- og vímuvarnarnefnd og for-
eldravaktin á Akureyri.
Að „hanka“ hest
GUÐMUNDUR P. VALGEIRSSON
SKRIFAR
Þriðjudaginn 26. maí sl. rakst ég á frá-
sögn Brynjólfs Brynjólfssonar undir fyr-
irsögninni „Að kippa hest“. Þar er lýst
gömlu „húsráði" við að Iækna brjóstveik-
an hest.
Eg kannast vel \áð þessa læknisaðgerð
á hestum frá ungdómsárum mínum, allt
framyfir 1920. Þetta var kallað að
hanka hestinn. I stað þess að nota ein-
angraðan rafmagnsvír, sem ekki var til
þá, var notaður lokkur úr taglhári hests.
Var Iokkurinn dreginn gegnum húð á
hálsi hestsins niður undir þar sem sam-
an kemur háls og bringa.
Eins og Iýst er í frásögn
Brynjólfs átti þetta að draga
út vessa frá bijóstholi hests-
ins og létta honum öndun.
Líklega hefur það gerst,
annars hafði þetta ekki verið
gert eins og gert var. Hér ber
ekki margt í milli, nema
hankinn sem ég man eftir
var úr hrosshári og nafnið er
ekki það sama, en þó skylt.
Mér datt í hug að einhver
hefði gaman að vita nánar
um þetta, til upprifjunar á
gömlum húsráðum þegar
dýralæknar voru engir og
engin lyf til við hinum ýmsu kvillum,
sem komu upp í búpeningi bænda.
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6111
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
En úr því ég er farinn að blanda mér í
þetta, sem litlu skiptir þá datt mér í hug
að segja frá því að ég vissi einn „brjóst-
veikan" mann beita þessari aðferð við
sjálfan sig - þar eins og hjá hestum
myndaðist graftarkennd vilsa útmeð
„hankanum".
Ekki veit ég hvort maðurinn fann ein-
hverja bót á brjóstþyngslum sínum við
þessa aðgerð. - En hitt er víst að óþrifa-
legt var þetta og ógeðslegt. Sá maður
sem ég vissi með þetta var vel greindur
og hugvitssamur umfram aðra menn.
Hér var því ekki um heimskutiltæki að
ræða. - Eg heyrði þess ekki getið að aðr-
ir hefðu notað þetta sem læknisráð.
Vera má að áður fyrr hafi þetta verið
gert á mönnum líkt og á hestum.
Hjóttu ferdarinnar
♦
t Nú getur þú lesiö
« Dag í loftinu á öllum
áætlunarleiðum
Islandsflugs.
ÍSLANDSFLUG
gorlr fíotrum fært að ftjúgo
Vegna síðbúinna og óvæntra
uppsagna vantar okkur kennara
nú þegar í eftirtaldar stöður:
Öldutúnsskóli:
- samfélagsfræðikennsla
- sérkennsla í sérdeild
- tónmennt
Upplýsingar gefur skólastjóri
Viktor A. Guðlaugsson í síma 566 8648.
Víðistaðaskóli:
- almenn kennsla á yngra stigi
- sérkennsla
- myndmennt
Upplýsingar gefur skólastjóri,
Sigurður Björgvinsson í síma 565 7246.
Framkvæmdastjóri fræðslusviðs
Hafnarfirði.
Dvalarleyfi í Canada
Með því að fjárfesta I „Fleet Rent a Car“ sérleyfi (franchise)
er þér tryggt dvalarleyfi í Canada, jafnvel þeim sem ekki hafa
hreint sakavottorð. Heildarfjárfesting er 50.000 Kanadískir
dollarar eða um 30.000 US$.
Hægt er að fá frekari upplýsingar með því að skrifa til: 5950
Bathurst Street, Suite 1009, Toronto, Ontario, Canada M2R
IY9 eða með því að hringja I síma 416-667-1676 eða með
því að senda símbréf I 416-667-1467.
VÖRUFLUTNINGAR
BJarna Haraldssonar
Aðalgötu 22 - 550 Sauðárkrókur - Sími 453 5124
Pósthólf 89 - Kennitala 140330-2139
Frá Saudárkróki Frá Reykjavik
mánudaga og þriðjudaga og
miðvikudaga fimmtudaga
kl. 14.00 kl. 17.00
ADAL
FLUTNINGAR
HÉDINSGÖTU 2
Afgreiðslan I Reykjavík: Aðalflutningar, Héðinsgötu 2
Sími: 581 3030 - Fax: 581 3036
Afgreiðslan á Sauðárkróki: Verslun Har. Júl. Aðalgötu 22
Sími 453 5124 - Farsími: 852 2824
STYÐJUM EINSTAKLINGINN
Tapað - stolið
Þessi kerra hvarf
7. maí frá
Trésmíðaverk-
stæði Harðar og
Óia við Hvanna-
velli.
Þeir sem geta gefið upplýsingar hafi samband
við Bílaleigu Akureyrar - Vilhelm,
síma 461 3000.
Fundarlaun kr. 10.000,-